Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
3
Loðnan:
Fundur
með
EBE
í maí
„VIÐ stefnum að fundi med
fulltrúum Efnahagsbandalags
Evrópu í maí næstkomandi og
þá næst vonandi samkomulag
um ad algjört loðnuveidibann
ríki, þar til að mælingar hafa
verið gerðar á loðnustofninum í
októbernóvember næstkom-
andi,“ sagði Jón L. Arnalds
ráðuneytisstjóri í sjávar
útvegsráðuneytinu þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann að
loknum fundi norsk-íslenzku
fiskveiðinefndarinnar.
Jón Arnalds sagði, að niður-
staða fundarins hefði orðið sú, að
Norðmenn og Islendingar hefðu
samþykkt að minnka þann kvóta,
sem enn var í gildi, þegar fundur-
inn hófst, úr 700 þúsund tonnum í
594 þúsund tonn, og að frekari
loðnuveiðar yrðu ekki stundaðar
fyrr en eftir nákvæmar mælingar
á loðnustofninum í haust. Sagði
Jón að á fundinum með fulltrúum
Efnahagsbandalagsins í maí
næstkomandi væri stefnt að því
að fá þjóðir Efnahagsbandalags-
ins til að fallast á algjört veiði-
bann á loðnu þar til að minnsta
kosti í október-nóvember á þessu
ári, en sem kunnugt er voru mörg
skip aðildarlanda EBE á loðnu-
veiðum utan íslenzku lögögunnar
síðastliðið sumar.
Víglundur Þorsteinsson kjörinn formaður FÍI:
I w ' W ^ r*JP* ■ ‘ 7
H .
***'— "
Davíð Sch. Thorsteinsson, sem
nú lætur af fnrmennsku FII,
ásamt Víglundi borsteinssyni,
nýkjörnum formanni Félags
ísl. iðnrekenda.
víð Sch. Thorsteinssyni fyrir
störf hans í þágu iðnaðarins og
sagði, að málflutningur hans
hefði stóraukið skilning þjóðar-
innar á gildi og þýðingu iðnaðar,
og barátta hans fyrir nauðsyn
þess, að iðnaðurinn nyti jafn-
réttis á við sjávarútveg og fisk-
iðnað hefði myndað víðtækan
skilning hjá þjóðinni i því nauð-
synjamáli.
Víglundur Þorsteinsson «agði í
ræðu sinni, að nú yrði að láta á
það reyna, hvort stjórnmálaleg
geta væri til þeirra breytinga,
sem þörf væri á til þess að skapa
skilyrði til nýrrar sóknar fyrir
íslenzkan iðnað. Hann varpaði
fram þeirri spurningu, hvort
aðrir kostir væru til staðar fyrir
iðnrekendur og sagði: „I því sam-
bandi hljóta iðnrekendur að líta
Samstarf við verkalýðshreyfingu
um nýskipan efnahagsmála?
VÍGLUNDUR Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, var kjörinn formad-
ur Félags ísl. iðnrekenda í stað
Davíðs Sch. Thorsteinssonar, sem
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Urslitum í stjórnarkjöri var lýst á
ársþingi iðnrekenda í gær og var
Víglundur Þorsteinsson kjörinn
formaður með 77,2% atkvæða.
- spurði nýkjörinn
formaður Félags ísl.
iðnrekenda
í stjórn Félags ísl. iðnrekenda
til næstu tveggja ára voru kjörn-
ir Brynjólfur Bjarnason með
83,4% atkvæða, Eggert Hauks-
son með 76,6% atkvæða og Ág-
úst Valfells með 62,5% atkvæða.
Auk Davíðs Sch. Thorsteinsson-
ar lét Sveinn S. Valfells af störf-
um í stjórn FÍI, þar sem hann
gaf ekki kost á sér til endur-
kjors.
í ræðu við lok ársþingsins
þakkaði nýkjörinn formaður Da-
til þess möguleika, hvort að sam-
starf og samningar við verka-
lýðshreyfinguna um nýskipan
efnahagsmála sé mögulegt og
hvort slíkt samstarf gæti orðið
vænlegra til árangurs en það
erfiða stríð, sem heyja hefur
þurft við stjórnkerfið til að ná
fram nauðsynlegum umbótum."
I
i
I
I
I
I
I
i
Korsíka
Þessi undurfagra eyja stendur skammt
undan ströndum Frakklands og Italíu.
Korsíka á sér langa og sérkennilega
sögu og má þar nefna, að þar voru
heimkynni Napóleons Bonaparte, hins
fræga keisara Frakklands. Óvíða eru
jafn tælandi og sól-
ríkar baðstrendur
og heillandi um-
hverfi, enda frábær
aðstaða til sjó- og
sólbaða og heil-
næms útilífs. Glað-
vært skemmtanalíf
og góðir, franskir
veitingastaðir gera
Korsíku að heillandi paradís þeirra
sem vilja njóta alls hins besta í sumar-
leyfi sínu. Við bjóðum mjög góða gist-
ingu í smáhýsum alveg við strönd.
Brottfarardagar: 23. maí og síðan viku-
lega út september.
Páskaferd
til Mexico
17 daga páskaferð til þessa sögu-
fræga lands, þar sem sameinuð
kynnis- og skoðunarferð til sögu-
frægra menningarslóða og hvíldar-
ferð til heillandi baðstranda í Aca-
pulco.
Brottför 3. aprfl. íslenskur farar-
stjóri.
Páskaferd til Chicago
Nú gefst óvenjugott tækifæri til þess að heimsækja stórborgina Chicago.
Brottfór 4. aprfl og hæst að velja um 7 og 10 daga ferð. íslenskur fararstjóri.
Mallorka
Nýjung
Hafi þið heyrt tala um Puerto de Andtraix, einn feg-
ursta fiskimannabæ á Mallorka? Ovíða er meiri náttúru-
fegurð. Heillandi baðstrendur, hreinn og tær sjór, að óglevmd-
um hinum sérstæðu og frábæru veitingastöðum. Við bjóð-
um óvenjulega og glæsilega gistingu í smáhýsuni
(bungalows) og íbúðum í heillandi umhverfi. Við bjóðum
yður að koma á skrifstofu okkar og sjá gistiaðstöðu okkar á
myndbandi (video).
Brottfarir: 29/5 og síðan alla laugardaga út september.
101
Feröaskrifstofan
Laugavegi 66,
Reykjavík,
Sími: 28633