Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 Paisley-sinni í þriðja sæti Belfa.st, 5. marz. AP. FRAMBJÓÐANDI Sambandsflokksins (OUP) sigraði í aukakosningu til brezka þingsins í SudurBelfast í dag, fdstudag, en frambjódandi flokks séra Ian Paisleys vard í þriðja sæti. Svokallaður Alliance-flokkur hófsamra manna, sem reyna að brúa bilið milli mótmælenda og kaþólskra, varð í öðru sæti. Kosið var um sæti séra Robert Brad- fords, sem skæruliðar írskra lýð- veldissinna vógu 14. nóvember. Séra Martin Smyth úr Sam- bandsflokknum sigraði með 5.397 atkvæða mun, en Bradford sigraði með 17.130 atkvæðum í kosning- unum 1979. David Cook úr All- iance-flokknum hagnaðist greini- lega á klofningi mótmælenda og hlaut meira fylgi en séra William McCrea, syngjandi sveitaprestur úr Lýðræðislega sambandsflokkn- um (DUP), flokki séra Paisleys. Kosningin var talin mjög mik- ilvæg þar sem hún gæti orðið mælikvarði á fyigi Paisleys meðal mótmælenda og skorið úr um hvort halla muni undan fæti hjá Sambandsflokknum og flokkur Paisleys taki við hlutverki hans. Fylkiskosningar eru fyrirhugað- ar í Úlster, ef til vill í haust. Vörður myrtur í árás á sendiráð Lík ungs vegfaranda eftir skotbardaga lögreglu og bankaræningja á fjölförnu torgi I Róm á föstudag. Skothríð á torgi í Róm Kóm, 5. marz. AP. LÖGREGLA og bankaræningjar — ef til vill hryðjuverkamenn — skiptust á skotum á mannmörgu torgi í Róm í dag, föstudag, og 16 ára vegfarandi beið bana og lögreglumaður særðist alvarlega. Maður, sem hringdi í fréttastofuna Ansa, sagði að hægriöfgasamtökin NAR bæru ábyrgðina. Tveir aðrir lögreglumenn og annar vegfarandi særðust lítillega. Fjórir árásarmenn búnir skotheldum vestum og vopnaðir vélbyssum réðust inn í banka við torgið rétt hjá miðborginni. l>egar lögreglan kom á vettvang í þann mund er ræningjarnir komu úr bankanum var skotið á hana. Allir bankaræningjarnir fjórir komust undan í bíl. Hundruð týndir eftir fellibyl á Kyrrahafí Sydney, 5. marz. AP. Kangoon, 4. marz. AP. TILR/EÐISMAÐUR vopnaður hnífi hljóp inn á lóð bústaðar sendiherra Bandaríkjanna í Rangoon, höfuð- borg Burma, í gærkvöldi, miðviku- dagskvöld, stakk tvo verði og drap Gulllækkun veldur fáti Gmdon, 5. marz. AP. FÁT greip um sig í kauphöllum í dag og verð á gulli lækkaði og hefur ekki verið eins lágt í tvö og hálft ár. Doll- arinn lækkaði gagnvart öllum helztu gjaldmiðlum. Við opnun var gull selt á 337,50 dollara únsan í London og Zúrich, 6,75 dollurum lægra verð en dag- inn áður í London og 11 dollurum lægra í Zúrich. Gullverðið hefur ekki verið eins lágt síðan 14. sept. 1979 þegar úns- an kostaði 344,88 dollara í London. Ástæðan er talin sala Rússa á gulli til að greiða fyrir matvæla- innflutning. Þær fréttir hafa einn- ig borizt að nokkur OPEC-ríki selji gull vegna lágs olíuverðs. Silfur seldist á 7,41 dollara úns- an miðað við 7,505 við lokun í gær. annan þeirra áður en hann var yfir bugaður. Árásarmaðurinn heitir Mya Thaung og er 35 ára gamall starfs- maður í hrísgrjónamyllu. Hann komst inn á lóðina þegar verðirnir opnuðu hliðið til að hleypa sendi- ráðsbíl inn. Sendiherrann, ungfrú Patricia Byrne, var ekki viðstödd þegar þetta gerðist. Annar vörðurinn, Saw Wilson, reyndi að stöðva Mya Thaung, en var stunginn til bana. Hinn vörð- urinn, Tinn Thein, reyndi að hjálpa félaga sínum, en árásar- maðurinn stakk hann með hnífn- um. Garðyrkjumaður sendiherrans fleygði exi að árásarmanninum, en hæfði ekki, og árásarmaðurinn tók hana upp og elti garðyrkju- manninn inn í þjónaálmu sendi- herrabústaðarins. Skömmu síðar kom lögreglan á vettvang og yfirbugaði Mya Thaung. Ix)greglan sagði að Mya Thaung héldi því fram að hann hefði lent í rifrildi við eiginkonu sína og verið í öngum sínum og drápshug. Ekki er ljóst hvers vegna hann kaus að ráðast á verði sendiherrabústaðarins. Yfirheyrslur yfir Mya Thaung standa enn yfir. Vörðurinn, sem komst lífs af, liggur þungt haldinn í sjúkrahúsi. KONUNGURINN á Tonga, Taufa Ahau Tupou IV, sagði í dag, fóstu- dag, að nokkrir tugir Tongamanna hefðu farizt þegar fellibylurinn “ís- ak“ gekk yfir eyjaklasann á mið- vikudaginn. Þetta er mesti fellibylur í sögu Tonga og sambandslaust var við eyjarnar þar til konunginum tókst að koma þessum skilaboðum til Ástralíu gegnum talstöð. Seinna hermdu fréttir að hundruða manna væri saknað og 45.000 manns væru heimilislausir eða helmingur íbúanna. Konungurinn sagði að höfuð- borgin Nukuúlofa á eynni Tonga- tapu hefði orðið harðast úti. Vindhraðinn var yfir 100 hnútar og hús jöfnuðust við jörðu, þök fuku af mörgum byggingum og mikil flóð urðu. Símastaurar hrundu, tré rifnuðu upp með rót- um og eina orkuverið á eyjunum eyðilagðist. Fellibylurinn gekk yfir alla þrjá helztu eyjaklasana og mikið tjón varð á uppskeru, sagði konungur- inn. Þó vantar upplýsingar frá nyrztu eyjunum þar sem síma- sambandslaust hefur verið og rafmagnslaust síðan fellibylurinn gekk yfir. Mest áherzla er lögð á að koma því í lag. Kapella konungs, sem hefur staðið af sér hitabeltisstorma í tæpa öld, skemmdist mikið. Hercules-flutningaflugvél kon- unglega ástralska flughersins er komin til höfuðborgarinnar með matvæli og lyf, litla rafstöð og vatnshreinsitæki. í Wellington sagði forsætisráðherra Nýja- Sjálands, Robert Muldoon, að þrjár flugvélar ný-sjálenzka flughersins yrðu sendar til Tönga með hjálpargögn. Tonga ganga einnig undir nafn- inu „Vináttueyjar" og eru 2.115 km austur af Ástralíu á Suður- Kyrrahafi. í eyjaklasanum er 171 eyja og þar af er búið á 45. íbúar á eyjunum eru um 90.000. Heiðarlegri kosningu heitið í Guatemala t.ualemalaborg, 5. marz. AP. FORSETI (.uatemala, Fernando Romeo I.ucas Garria, hét landsmönnum því í dag, föstudag, að kosningarnar á sunnudaginn yrðu frjálsar og heiðarlegar og kvaðst mundu virða úrslitin, hver sem þau yrðu. Hann kvaðst ekki styðja nokk- urn hinna fjögurra íhaldssömu frambjóðenda í forsetakosningun- um, sem fara fram í skugga póli- tískra ofbeldisverka. Vinstrisinnar hundsa kosn- ingarnar og segjast ekki geta tekið þátt í þeim, þar sem „dauða- sveitir" hægrimanna mundu myrða frambjóðendur þeirra. Þeir halda því einnig fram að herinn muni falsa kosningaúrslitin. Rúmlega 20 voru drepnir í gær, fimmtudag. Níu uppreisnarmenn féllu þegar herflokkur eyddi búð- um skæruliða nálægt Chichisten- ango í héraðinu Quiche. Lagt var hald á vopn, skotfæri, hand- sprengjur, jarðsprengjur, lyf og aðrar vistir. Einn hermaður beið bana í átökum í San Rafael Pie de la Cuesta. I Guazacapan börðust skæruliðar við lögreglu og kveiktu í skrifstofu þar sem kjósendur skrá sig, ráðhúsi og lögreglustöð. Þrír óbreyttir borgarar eru í framboði í forsetakosningunum: Mario Sandoval Alarcon, leiðtogi Þjóðfrelsishreyfingar hægriöfga- manna, Alejandro Maldonaldo Aguirre, sem nýtur stuðnings bandalags kristilegra demókrata og Þjóðarendurnýjunarflokksins, og Gustavo Anzueto Vielman, frambjóðandi þjóðernissinna. En sigurstranglegasti fram- bjóðandinn er Angel Anibal Guev- ara hershöfðingi, fyrrverandi varnamálaráðherra sem er í kjöri fyrir Lýðræðisflokkinn eins og þrír síðustu forsetar voru á sínum tíma. Bandaríkjastjórn vonar að kosningarnar verði heiðarlegar svo að Bandaríkjaþing fáist til að samþykkja fyrirætlanir um að Guatemala verði veitt hernaðar- aðstoð á ný. Slík aðstoð hefur ekki verið veitt síðan 1977 þar sem Gu- atemalastjórn hefur neitað að samþykkja skilyrði um virðingu fyrir mannréttindum sem fylgja slíkri aðstoð. Yfirmaður kjörstjórnar spáir því að innan við helmingur tveggja milljóna kjósenda greiði atkvæði og telur að þátttakan verði minnst í norðvesturhéruðun- um þar sem skæruliðar eru um- svifamiklir. Hann sagði að her og lögregla mundu halda hryðju- verkastarfsemi í skefjum á kjör- dag, m.a. með stuðningi flugvéla. Vopnaðir hermenn eru á verði í höfuðborginni og leita m.a. að jarðsprengjum undir bifreiðum. Þrjú hundruð morð að meðaltali hafa verið framin í hverjum mán- uði síðustu tólf mánuði, en morð- unum fjölgaði í um 500 í janúar. Bretar horfa á BBC um gervihnött london, 5. marz. AP. BREZK yfirvöld hafa gefið brezka sjónvarpinu BBC grænt Ijós á að hefja sjónvarpssendingar um gervihnött um Bretland, fyrst um sinn á tveimur rásum til viðbótar við þær sem sjónvarpsstöðin hefur fyrir. Er ráð fyrir því gert að þessar útsendingar geti hafizt árið 1986, og að möguleikar á fleiri rásum síðar verði opnir. Til þess að geta notið sendinga á nýju rásunum verða neytendur að gerast áskrifendur að því efni sem verður dreift á þeim. Á ann- arri rásinni verða fyrst og fremst sýndar kvikmyndir, list- viðburðir og íþróttir, en á hinni úrval sjónvarpsþátta sem völ er á hverju sinni víðs vegar að úr heiminum. Afnotagjald af nýju rásunum tveimur verður 34 sterlingspund fyrir litasjónvarp og 12 pund fyrir svart-hvítt tæki. í dag var skotið á loft stærsta fjarskiptahnetti heims frá Cana- veral-höfða, Intelsat V-d, sem vegur tvær smálestir. Hnöttur- inn er í eigu 106 þjóða og um hann munu fara tveir þriðju allra milliríkjasamtala. Hann verður tekinn í notkun 1. maí næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.