Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
Yfirlit Þjóðhagsstofnunar um vísitölukerfi:
Kerfið víðtækast og
sjálMrkast hér á landi
Þjóðhagsstofnun hefur tekið
saman yfirlit yfir tilhögun vísi-
tölutengingar launa í nokkrum
löndum. Mun þetta yfirlit hafa
verið lagt fram á fundum við-
ræðunefndar ríkisstjórnarinnar
við aðila vinnumarkaðarins um
viðmiðunarkerfi, sem gæti kom-
ið í stað núverandi vísitölukerf-
is. Fer þetta yfirlit Þjóðhags-
stofnunar hér á eftir, en það er
miðað við stöðu mála í einstök-
um löndum nú í ársbyrjun.
ÁGRIP
Tenging launa við verðlagsvísi-
tölu er líklega hvergi eins víðtæk
og sjálfvirk og hér á landi. Yfir-
leitt ér sjaldnast um beina reglu-
bundna tengingu að ræða, en þar
sem slíkt tíðkast (Danmörk,
Belgía, Holland), er tengingin yf-
irleitt talsverðum takmörkunum
háð. Á hinn bóginn verður að hafa
í huga, að verðbreytingar hafa
ekki verið nándar nærri eins örar
í þessum löndum og hér á landi,
þannig að tilefnið til beinna
tengsla kann að vera minna.
Þannig má nefna, að á árinu 1981
námu verðbreytingar í þeim lönd-
um, sem hér er fjallað um, að með-
altali rétt rösklega 10% saman-
borið við um 50% hér á landi.
Ef reynt er að draga saman
helztu þætti í launamálum ná-
grannalandanna að undanförnu,
má segja, að í stað sjálfvirkrar
breytingar launa og verðlags,
komi grunnkaupshækkanir á
fyrirfram ákveðnum tímum, þar
sem fyrst og fremst er miðað að
því að tryggja kaupmátt lægstu
launa. Verðbótatímabilið er yfir-
leitt lengra, enda verðbreytingar
mun hægari en hér á landi. Víða
eru verðbætur einungis greiddar
— eða launaliður í samningum
endurskoðaður — ef hækkun verð-
lags fer fram úr tilteknum mörk-
um og þá gjarnan með nokkurri
töf. í Danmörku og Hollandi eru
greiddar krónutölubætur og jafn-
framt miðað við framfærsluvísi-
tölu að frádregnum óbeinum
sköttum, svo og útgjöldum vegna
heilbrigðisþjónustu (Holland) og
orkukaupa (Danmörk).
Hér á eftir er í stuttu máli gerð
grein fyrir vísitölutilhöguninni í
ýmsum nágrannalöndum.
FINNLAND
Tenging launa við verðlag hefur
verið nokkuð skrykkjótt í Finn-
landi á undanförnum árum. Þann-
ig voru vísitöluákvæði í kjara-
samningum árin 1945—51,
1964-65 og 1967-68. Frá 1968/69
og allt fram á árið 1979 var vísi-
tölubinding launa bönnuð með
lögum. Frá 1979 hafa hins vegar
verið í gildi ákvæði um takmark-
aða tengingu launa við verðlags-
vísitölu. Þannig var í samningum
á árinu 1979 gert ráð fyrir vísi-
töluuppbótum á laun, ef fram-
færsluvísitalan hækkaði umfram
tiltekin mörk. Til þess kom þó ekki
1979. Á árinu 1981 var svipað
ákvæði í samningum, þó með
þeirri viðbót, að áhrif viðskipta-
kjara skyldu koma til lækkunar
eða hækkunar verðbóta. Þetta
ákvæði var sett inn í samninga að
tillögu launþegasamtakanna.
Áhrif viðskiptakjara eru þannig
metin, að þriðjungur breytingar-
innar er reiknaður til hækkunar
eða lækkunar á verðbótum og er
þá miðað við hlutfall utanríkis-
viðskipta af þjóðarframleiðslu.
Ákvæði samninganna, sem eru
til tveggja ára, um launahækkanir
og verðbætur, eru í stuttu máli á
þá leið, að gert er ráð fyrir grunn-
kaupshækkunum í fjórum áföng-
um á sex mánaða fresti, hinn 1.
marz og 1. september 1981 og 1982,
auk sérstakrar hækkunar á lægstu
laun. Hækki framfærsluvísitalan
að teknu tilliti til áhrifa viðskipta-
kjara umfram tiltekin mörk, sem
eru raunar svipuð launahækkun-
armörkunum, kemur til verðbóta-
greiðslna einu sinni á ári, sem
þessum mun nemur. Fyrra markið
— eða þröskuldurinn — var miðað
við desember 1981 og hið síðara
við desember 1982. Fari verð-
hækkun fram yfir þessi mörk,
kemur til verðbótagreiðslna
tveimur mánuðum seinna, þ.e. í
febrúar.
NOREGUR
Almenna reglan um launabreyt-
ingar hefur verið sú að semja um
grunnkaupshækkanir í kjara-
samningum, en tengja laun ekki
sjálfvirkt við verðlagsvísitölu. í
kjarasamningum eru hins vegar
yfirleitt ákvæði um endurskoðun
launaliðarins, ef verðlag hækkar
umfram ákveðin mörk á samn-
ingstímanum. Undir lok ársins
1978 voru sett lög um verðstöðvun
og bann við launahækkunum og
giltu þessi lög til loka ársins 1979.
I framhaldi af því voru síðan sett
ný lög, sem gilda fyrir tímabilið 1.
janúar 1980 til 31. marz 1982. Með
þessum lögum var verð- og launa-
stöðvuninni aflétt og kveðið á um,
að laun skyldu einungis hækka
með samkomulagi aðila vinnu-
markaðarins. Á grundvelli þess-
ara laga var síðan samið um
ákveðnar grunnkaupshækkanir og
jafnframt var í samningunum
ákvæði i’"> endurskoðun launa, ef
framfærsluvísitalan hækkaði um-
fram tiltekið mark. Ennfremur er
beinlínis gert ráð fyrir því, að slík
endurskoðun taki mið af almennu
ástandi efnahagsmála, sérstak-
lega samkeppnisstöðu atvinnuveg-
anna út á við, svo og þróun kaup-
máttar ráðstöfunartekna á samn-
ingstímanum. Kauphækkunar-
þörfin er því metin — ekki með
einhliða tilliti til þróunar kaup-
máttar kauptaxta — heldur fyrst
og fremst með tilliti til þróunar
tekna og skattgreiðslna, auk efna-
hagsástandsins almennt.
DANMÖRK
Allt frá árinu 1946 hafa kjara-
samningar kveðið á um greiðslur
verðbóta á laun. Meginreglan hef-
ur yfirleitt verið sú að greiða
fyrirfram fastákveðnar krónu-
töluuppbætur á laun fyrir hver
þrjú stig, tveir skammtar fyrir
hækkun um sex stig o.s.frv. Kaup-
gjaldsvísitalan er reiknuð út frá
framfærsluvísitölunni að frá-
dregnum óbeinum sköttum og að
viðbættum niðurgreiðslum.
Ennfremur var ákveðið í ársbyrj-
un 1980 að taka alla orkuliði út úr
viðmiðuninni og var sú breyting
afturvirk til 1. janúar 1979. Rétt
er að benda á, að vísitölubinding
launa er ekki lögbundin heldur
háð samkomulagi aðila vinnu-
markaðarins hverju sinni.
SVÍÞJÓÐ
Almenna reglan um launabreyt-
ingar hefur til skamms tíma verið
sú, að samið er um grunnkaup í
kjarasamningum, sem yfirleitt
eru til tveggja ára, en ekki gert
ráð fyrir sjálfvirkri tengingu
launa og verðlags. Hins vegar hef-
ur á síðari árum jafnan verið
endurskoðunarákvæði í samning-
unum, þar sem kveðið er á um
formlega endurskoðun, hækki
framfærsluvísitalan umfram
ákveðið mark. í kjarasamningum,
sem gerðir voru á síðasta ári, var
hins vegar vikið frá þessari meg-
inreglu og gert ráð fyrir verðbóta-
greiðslum á laun tvisvar á samn-
ingstímabili, ef framfærsluvísi-
talan færi fram úr tilteknum
mörkum.
BELGÍA
Líklega er vísitölubinding launa
hvergi eins víðtæk í Evrópu og í
Belgíu, að íslandi undanskildu.
Nær öll samningsbundin laun
hafa um alllangt skeið verið vísi-
tölubundin og nú hin síðari ár
hafa verðbætur verið greiddar á
þriggja mánaða fresti, þó með
þeirri takmörkun, að hækkanir
eru því aðeins bættar, að hækkun-
in sé meiri en 2% á undangengnu
þriggja mánaða tímabili.
HOLLAND
Meginreglan er sú, að laun eru
tengd framfærsluvísitölu, þó að
frádregnum óbeinum sköttum og
útgjöldum vegna heilbrigðisþjón-
Stykkishólmur:
Kristniboðar
STARFSMENN kristniboðssam-
bandsins, þeir Jónas Þórisson og
Benedikt Arnkelsson, hafa verið á
ferð um Snæfellsnes að undanfornu
til að vekja athygli fólks á því mikla
starfi sem unnið er í Afríku á vegum
Kristniboðsins og útbreiðslu fagnað-
arerindisins þar. í Stykkishólmi
héldu þeir tvær samkomur í kirkj-
unni og sýndu myndir frá starfinu.
Einnig heimsóttu þeir sjúkrahúsið
og dvalarheimili aldraðra.
Frá Stykkishólmi héldu þeir í
Grundarfjörð og Ólafsvík þar sem
þeir héldu samkomur með mynda-
sýningum í kirkjunum þar og loks
héldu þeir samkomu í félagsheim-
ilinu Röst á Hellissandi. Þá komu
þeir við á heimleiðinni í Borgar-
nesi þar sem þeir kynntu skóla-
nemendum kristniboðið, árangur
og útbreiðslu.
Nú eru að verða 30 ár liðin frá
því að fyrstu íslendingarnir fóru
til Eþíópíu og reistu fyrstu ísl.
kristniboðsstöðina í heiðnu landi,
meðal Konsóþjóðflokksins.
Nú eru um 10 þúsund Konsó-
menn kristnir og þeim fjölgar með
hverju ári. Þúsundir Konsómanna
hafa notið menntunar í skólum
kristniboðsins og tugir þúsunda
koma á hverju ári til að fá bót
meina sinna \ sjúkraskýlinu í
Konsó. Ýmislegt annað hjálpar-
starf hefur verið unnið þar á liðn-
um árum.
ustu. Verðbætur eru greiddar á
sex mánaða fresti, raunar með
þriggja mánaða töf. Á miðju ári
1980 var horfið frá hlutfallslegum
verðbótagreiðslum og teknar upp
krónutölubætur, sem miðuðu að
því að tryggja kaupmátt lægstu
launa.
FRAKKLAND
Vísitölubinding launa annarra
en hinna lægstu er bönnuð með
lögum. Lægstu launin hækka hins
vegar því aðeins, að framfærslu-
vísitalan hækki um meira en 2% á
undangengnu þriggja mánaða
tímabili. I reynd má þó segja, að
flest laun séu verðtryggð með
þeim hætti, að grunnkaup hækkar
að jafnaði 3—4 sinnum á ári sam-
kvæmt samningum.
VESTUR-ÞÝZKALAND
Vísitölubinding launa er bönnuð
með lögum, en samningar eru hins
vegar yfirleitt aðeins gerðir til tólf
mánaða í senn.
BRETLAND
Laun hafa yfirleitt ekki verið
tengd verðlagsvísitölu, nema í sér-
stðkum undantekningartilvikum.
AUSTURRÍKI
Laun eru ekki visitölutengd, en
á hinn bóginn eru í samningum
gjarnan ákvæði um grunnkaups-
hækkanir á samningstímabilinu
til þess að tryggja kaupmátt
lægstu launa.
KANADA
Almennt eru laun ekki tengd
vísitölu verðlags, en á síðari árum
hefur þó færzt í vöxt, að samhliða
lengri samningstímabilum komi
reglubundnar grunnkaupshækk-
anir tengdar verðlagshækkunum.
Enn sem komið er, taka þessi
ákvæði aðeins til lítils hluta heild-
arvinnuafls og vega því ekki
þungt.
í heimsókn
Vonir standa nú til að Jónas
Þórisson kristniboði og fjölskylda
hans fari aftur til Eþíópíu síðar á
þessu ári, því þrátt fyrir andstöðu
yfirvalda gegn trúarlegu starfi, fá
kristniboðar að dveljast í landinu.
Árið 1978 hófu íslendingar
kristniboð meðal Pókotmanna í
Kenya. Á stöðinni þar er kirkja og
skóli og nú er áformað að reisa þar
sjúkraskýli. Tvenn íslensk hjón
starfa þar meðal Pókotmanna.
Hið fjölþætta kristniboðsstarf er
borið uppi af frjálsum framlögum
einstaklinga. Gert er ráð fyrir að
til kristniboðsins þurfi eitthvað á
aðra milljón ísl. króna á þessu ári.
Islenska kristniboðið er í senn út-
breiðsla kristinnar trúar og
þróunarhjálp.
Það fer ekki milli mála að því fé
er vel varið sem látið er renna til
Kristniboðsins. Það skilar marg-
földum arði í betra mannlífi og
gleði þeirra sem gefa, yfir að geta
bætt úr böli þeirra sem hafa verið
utan við heilbrigt líf og verið í
stöðugum ótta um sína tilveru.
Starfið í Konsó og Kenya sýnir
að það er hægt að lyfta björgum ef
vilji er fyrir hendi.
Um leið og ég bið þessu góða
starfi allrar blessunar vil ég beina
því til landsmanna að þeir leggi
þessu máli lið.
Fréttaritari
Bókamarkaðurínn
Góóar bækur
Gamalt veró
SÝNINGAHÖLLINNI ÁRTÚNSHÖFÐA
Opió 1 dag, kl 9 -18
næst síóasti dagur