Morgunblaðið - 06.03.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
31
fclk f
fréttum
+ John Alford heitir 10 ára gamall
strákur á Englandi sem leikur stórt
hlutverk í skemmtiþáttum í ensku
sjónvarpi, sem bera nafnið: „Not The
Nine O’clock News“. Þá hefur strákur
komið fram í fleiri sjónvarpsþáttum
og gert mikla lukku. Við birtum hér
nokkrar myndir af honum úr fyrr-
nefndum skemmtiþætti, en sjálfur
segir leikarinn: „Ég hef gaman af því
að koma fólki í gott skap. Það er allta
og sumt. Ég hugsa ekki mikið um
þetta, ég segir bara eitthvað
skemmtilegt. Mamma leyfir mér allt-
af að vaka til að horfa á „Ekki níu
fréttirnar“. Það er æðislegur þáttur,
finnst mér, og ég ætlaði ekki að trúa
mínum eigin eyrum, þegar þeir sögð-
ust vilja fá mig í þáttin.“ John Alford
hefur þegar dágóðar tekjur fyrir leik
í skemmtiþáttum, en mamma hans,
leggur jafnharðan inná bankabók,
nema 20 krónur, sem hann fær í vasa-
peninga vikulega ...
Japanskur prins
+ Japanskur prins á skautum. Hiro heitir hann og er annar
erfingi krúnunnar. Hann var nýverið 22ja ára og var þá þessi
mynd tekin í Tokýó-borg, þar sem piltur fór á skautum ...
Þau eru
að skilja
+ Leikarinn Richard Burton
og þriðja kona hans, Susan
Hunt, standa nú í skilnaði,
svo sem kunnugt er úr frétt-
um. Við sjáum þau hér á
mynd frá 1980, á meðan allt
lék í lyndi ...
Elton John
í megrun
+ Elton John, poppsöngvarinn
frægi, hefur nú ákveðið að fara í
strangan megrunarkúr. „Ég
keypti nokkrar leðurbuxur í
París fyrir jólin, dýrar buxur, og
nú kemst ég ekki í þær. Svo nú
er það bara vatn og brauð,“ seg-
ir Elton John ...
Avallt um
helgar
v 2 O'-
3 LEIKHÚS £
« KJPLiPRinn ö
Opiö til kl. 03.00.
Kjallarakvöld aöeins fyrir matargesti.
Miöar seldir milli kl. 14 og 16 fimmtud.
föstud. Spiluð þægileg tónlist.
Boröapantanir eru í síma 19636.
Spariklædnadur eingöngu leyfdur.
Opid fyrir almenning eftir kl. 10.
og
1.
verdlaun kr.
79.000.-
skyndibitastadur
Hagamel 67, s. 26070.
Keppnisdagar:
8., 11., 15., 18., 22.,
26. mars kl. 20—22.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU