Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
37
Arni Helgason skrifar:
Til hvers?
Lífið hefir upp á margt að
bjóða. Mörg þjóðfélög stefna að
því að gera mönnum auðveldara
að njóta þess betur en áður. Þau
kjör, sem forfeður vorir bjuggu
við, væru mörgum nútímamannin-
um þannig að hann bókstaflega
gæfist upp við að axla slíka byrði.
Skólakerfið á að veita manninum
þekkingu á tilverunni, skapa hon-
um leið til betra lífs. I það er eytt
gífurlegu fé. Tæknin eykst með
hverjum degi og kemur oft og tíð-
um í stað margra manna. Allt
þetta á að vera til þess að gera
manninn betri og hamingjusam-
ari.
En hvernig má svo vera að í
allsnægtunum aukast kveinin og
sjúkdómarnir og maðurinn snýr
inn á alls konar villigötur, flýr sitt
eigið líf og umhverfi?
Eg var um daginn að lesa viðtal
við ungan mann, sem ánetjast hef-
ur eiturefnunum; og það var dap-
urlegt. I stað hugsandi og vinn-
andi manns mætir maður í þessu
viðtali brunnu skari, þjóðfélags-
vandamáli og byrði. Hann lætur
hafa eftir sér þessa setningu:
„Neytendur kaupa dauða-
skammtinn. Og svo er lífinu lok-
ið.“ Hvað skyldu vera margir sem
slíka sögu hafa að segja, sem
kaupa dýrum dómum það sem
Árni Helgason
eyðileggur þá og ekki einungis þá
sjálfa, heldur taka þeir aðra með?
Þetta eitrar að sjálfsögðu út frá
sér.
Og spurningin vaknar: Þarf
meira fé og hærra kaup til að fá
fleiri slíka? Það er vitað að vand-
ratað er um velferðarþjóðfélagið,
svo sem sést á þessu dæmi. En er
þá ekki sæmra að biðja um minna
af þeim auði sem mölurinn kemst
í og auka þess í stað andleg verð-
mæti, byggja sjálfæp sig upp til
átaka fyrir hið besta í lífinu.
Ég heyri oft talað um að „fara
út að skemmta sér“. Er þá átt við
að fara t.d. í vínveitingahús, eyða
þar kvöldinu og nóttinni, breyta
eða glata persónuleikanum, af-
skræma guðsmynd sína. Og svo er
komið heim að morgni og — ég
þarf ekki að segja þessa sögu
lengri; hún er alkunn. Dagurinn
eftir fer svo í að jafna sig eftir
þetta skemmtanabað. Já, flest má
kalla skemmmtun!
Og hvað kosta svo þessar
„skemmtanir" í veraldlegum verð-
mætum. Það reiknar víst enginn
upp á krónu en athugulan og
áreiðanlegan mann hefi ég- heyrt
fullyrða að á Reykjavíkursvæðinu
fari í þennan lifnað verðmæti góðs
skuttogara yfir eina helgi og þarf
ekki helgi til. Þessu má vel trúa
þegar litið er á gróðann af þessu
óskapa flóði. A meðan ekki er
hægt að ljúka menningarbygging-
um, svo sem kirkjum og sjúkra-
húsum, rísa veitingahús á hverju
horni með börum og öðrum ófagn-
aði. Og það vantar ekki peningana.
Þrælar áfengisauðvaldsins sjá
fyrir því. Breiði vegurinn var lagð-
ur á mettíma.
Og til að halda þessari öfug-
þróun við er hamast á atvinnuveg-
unum. Þeir eiga að borga hærra
kaup svo menn geti „skemmt" sér
meira og lengur. Og svo tala menn
um aukna menningu og bjartara
líf!
Hvílíkt ósamræmi!
Þessir hringdu . . .
Fyrirspurn til stjórnar SVR:
Hvers vegna
ganga ekki Breið-
holtsvagnarnir
niður Elliðavog?
4529—3300 hringdi: „Mig langar
til að koma þeirri fyrirspurn á
framfæri til stjórnar Strætis-
vagna Reykjavíkur hvort ekki
væri hægt að koma því þannig
fyrir að Breiðholtsstrætisvagn-
arnir færu niður Elliðavoginn,"
sagði hún. „Það kæmi mjög mörg-
um til góða því fjölmargir sem
eiga heima í Breiðholti sækja
vinnu í fyrirtæki og stofnanir
þarna á svæðinu. Þarna eru t.d.
tvö sjúkrahús, Kleppsspítalinn og
Hrafnista, og svo eru verksmiðj-
urnar mjög margar.
Eins og akstri strætisvagna úr
Breiðholti er nú háttað þurfum við
sem þar búum og vinnum á þessu
svæði, að fara fyrst niður á
Hlemmtorg og taka þar leið 4 inn-
eftir. Með þessu móti tekur það
heil þrjú korter að komast í vinn-
una og stundum getur það tekið
lengri tíma.
P
Þetta er búið að vera vandamál
í mörg ár og það eru margir sem
hafa kvartað undan þessu. Ég
ætla að vona að þetta verði tekið
til gaumgæfilegrar athugunar og
ef það er ekki hægt að breyta
þessu finnst mér að við eigum
heimtingu á að fá að vita hvers
vegna það er ekki hægt."
„Nóvember ’21“
Fyrirtaks útvarps-
þættir — þakkir
til Péturs
Eldri maður hringdi: „Mig lang-
ar að koma á framfæri þakklæti
til Péturs Péturssonar fyrir af-
bragðsgóða útvarpsþætti — „Nóv-
ember ’21“,“ sagði hann. „Ég hef
hlustað á þá alla mér til mikillar
ánægju og á Pétur mikið lof skilið
fyrir hversu hann vinnur þessa
Pétur Pétursson
þætti vel. Ég vænti mér mikils af
þessum þáttum strax og ég frétti
hvað stóð til en ég hef svo sannar-
lega ekki orðið fyrir vonbrigðum."
að hægt sé að hella henni rak-
leitt á lampann.
Saltvatn í stað olíu
Og úr því að minnzt er á olí-
una, þá hafið þið ef til vill
gaman að vita, að Danir hafa nú
leitað olíu hjá sér hér um bil í ár.
Þeir hafa borað og borað mörg
hundruð metra niður, og vonuðu
allt það bezta. Og loks var olí-
unnar von fyrir viku, en því mið-
ur varð ekki öðru dælt upp en
saltvatni. En Danir eru ekki af
baki dottnir. Sérfræðingar þykj-
ast hafa gengið úr skugga um, að
olíu sé að finna í jarðlögum á
þeim slóðum, sem grafið hefir
verið, og nú verður enn reynt á
næstu grösum.
Snjór útflutningsvara
Um helgina var háð stökk-
keppni í svigi fyrir utan
Kaupmannahöfn. Snjórinn var
fluttur inn frá Noregi eins og
vanalega. Ekki liggja enn fyrir
fullnaðarreikningar um snjó-
verðið. Menn geta sér þess þó til,
að það hafi verið í hærra lagi,
því að mikill hörgull er á snjó í
Noregi um þessar mundir.
Kannski gætum við boðið Dön-
um ódýrari snjó, og unnið svo
markaðinn af Norðmönnum.
SÖLUSYNING A
NOTUÐUM
DAIHATSUBÍLUM
í DAG
Vegna mikillar sölu á nýjum bílum að undan-
förðu höfum við í sölumeðferð eftirtalda notaða
bíla sem við sýnum og seljum í dag að Ármúla
23.
Árg. Litur Ekinn
Daihatsu Charade xle 81 Blár 15.000
Daihatsu Charade xg 81 Rauður met. 12.000
Daihatsu Charade xte 80 Rauður met. 50.000
Daihatsu Charade xte 80 Gulur 17.000
Daihatsu Charade xte 80 Brúnn 25.000
Daihatsu Charade xte 80 Silfur 34.000
Daihatsu Runaboul xte 80 Blár 22.000
Daihatsu Runabout xte 80 Silfur 17.000
Daihatsu Runabout xte 80 Blár 8.000
Daihatsu Runabout xte 79 Silfur 38.000
Daíhatsu Charade xte 79 Rauður 45.000
Daihatsu Charade xte 79 Silfur 33.000
Daihatsu Charmant 81 Blér 14.000
Daihatsu Charmant at. 79 SiHur 18.000
Daihatsu Charmant 79 Silfur 34.000
Daihatsu Charmant 78 Hvítur 41.000
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, 85870 — 39179
/7i/n i n i uvvvV
Bóka
mark
aóurinn
Góöar
bækur
Gamalt
veró
Bokamarkaóurinn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁRTÚNSHÖFÐA