Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
39
„Biartsynn á að
okkur takist að
vinna bronsið"
- sagði Leif Mikkelsen þjálfari Dana
Krá Jóhanni Inga <>unnars.syni í Dortmund:
„Ég er mjög bjartsýnn á að liði
okkar takist að ná í bronsverðlaunin
í þessari keppni. Ég hef trú á því að
við vinnum Pólverja. I>að er mikil
stcmmning í strákunum, og þeir
koma til með að leggja allt í sölurn-
ar til að ná sér í verðlaun. Það var
mikil synd að okkur skildi ekki tak-
ast að komast í úrslitaleikinn. Það
stóð svo glöggt. Að hafa tvö mörk
yfir, 18—16, þegar aðeins þrjár mín-
útur voru til leiksloka gegn Ungverj-
um og missa það niður í jafntefli,
það var agalegt. En við getum vel við
þennan góða árangur unað,“ sagði
Leif Mikkelsen, þjálfari Dana, þegar
ég spjallaði við hann í gierdag.
Kuckta, þjálfari Pólverja, sagði að
það væri mjög óvænt fyrir Pólverja
að komast svona langt í keppninni.
Undirbúningur pólska landsliðsins
hefur aldrei verið slakari. En liðið
hefur sýnt framfarir í hverjum leik.
Við lékum aðeins 8 undirbúnings-
leiki fyrir HM-kcppnina að þessu
sinni og það er ekki nóg. Við munum
ekki vanmeta Danina. Þeir hafa sýnt
góða leiki til þessa, sagði Kuckta.
Verður Stenzel
látinn hætta?
• Það er ekki eins hátt risið á
Stenzel, þjálfara VesturÞjóðverja,
núna og í síðustu HM-keppni. Þá
dansaði hann um allt með kórónu á
höfði eftir að hafa gert lið sitt að
heimsmeisturum og sagði sig mesta
þjálfara allra tíma. Nú er ekkcrt
nema svartnætli framundan hjá
karli.
í GÆRDAG var fundur í v-þýska
handknattleikssambandinu og jafn-
framt voru allir þýsku leikmennirnir
á fundi með þýskum blaðamönnum.
Þar komu fram mjög mikil vonbrigði
með undirbúning Stenzels með
þýska landsliðið, fyrir HM-keppn-
ina. Stenzel er mikið gagnrýndur í
þýskum fjölmiðlum og sögur eru á
kreiki um það, að hann verði ekki
með þýska landsliðinu er það leikur
um 7. til 8. sætið í dag.
Vlado Stenzel er niðurbrotinn
maður og heldur sig fjarri öllum
blaðamönnum og talar varla við
nokkurn mann. Rætt hefur verið
um að Klaus Zöll, þjálfari Gross-
wallstadt, taki við þýska landslið-
inu.
Mikil vonbrigði ríkja nú í
Vestur-Þýskalandi með HM-
keppnina. Ljóst er að fjárhagslegt
tjón verður á keppninni, þar sem
ekki hefur verið uppselt á alla
leikina sem fram hafa farið. Þar
spilar ntikið inní hvað v-þýska lið-
ið hefur staðið sig illa.
Handknaltlelkur
Keppt í sjö þyngdarflokkum
á íslandsmótinu í júdó
Islandsmótið í júdó hefst sunnu-
daginn 7. mars kl. 14 í íþróttahúsi
Kennaraháskólans. Þennan dag
verður keppt í öllum þyngdarflokk-
um karla, þ.e. í sjö þyngdarflokkum.
Mikil þátttaka er á mótinu, en þátt-
taka er takmörkuð við lágmarks-
gráðuna 5. kyu.
Allir íslandsmeistararnir frá
fyrra ári ætla að verja titla sína
en margir fleiri hafa fullan hug á
að ná heiðrinum til sín.
Síðari hluti íslandsmótsins í
júdó verður svo sunnudaginn 14.
mars.
Elnkunnagjöfln
LIÐ FRAM:
Björn Magnússon 6
Símon (tlafsson 6
Þorvaldur Geirsson 7
Viðar Þorkelsson 6
Ómar Þráinsson 4
llörður Arnarsson 4
Lárvs Thoriacius 5
Aðrir léku of iítið.
LIÐ ÍR:
Kristinn Jörnndsson 7
Jón Jörundsson 6
Renedikt Ingþórsson 4
Hjörtur Oddsson 4
Sigurður Þórisson 3
Helgi Magnússon 4
Rjorn Leosson 3
Ellert Magnúsnon 6
Aðrir léku of Iftið.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi í dag
Viö stuöningsfólk Richards Björgvinssonar skorum á
Sjálfstæöisfólk í Kópavogi að tryggja kjör Richards í
fyrsta sæti á lista Sjálfstæöisflokksins.
Ástæöur fyrir áskorun okkar eru:
1. Richard hefur lengstu reynslu í bæjar-
málum Kópavogs af öllum frambjóöend-
um.
2. Richard er starfsamur, málefnalegur og
gjörkunnugur málefnum Kópavogs.
3. Richard hefur sýnt ábyrgöartilfinningu í
meöferö fjármuna bæjarbúa.
4. Richard á mikinn þátt í því, aö Sjálf-
stæðisflokkurinn í Kópavogi er samein-
aöur á ný.
Tryggjum kjör Richards í fyrsta sætið
Stuóningsfólk.
Buxur kr. 299,-
Blússur kr. 130,- kr. 45Ö,-
Kjólar kr. 275,-
Jakkar kr. 355,-
VEBZIUNIH £/£/
Frakkastig 12, s. 11699.