Morgunblaðið - 31.03.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
3
Skákþing íslands:
9 hafa skráð sig
í landsliðsflokk
NÍU keppendur hafa verið skráðir í
landsliðsflokk á Skákþingi íslands, en
fyrsta umferð verður tefld á föstudag.
Hvorugur stórmeistaranna teflir á
mótinu, Guðmundur Sigurjónsson tefl-
ir á alþjóðlegu móti í Gausdal í Noregi
og Friðrik Ólafsson kemur ekki við að
tefla á skákþinginu vegna anna.
if>eir níu sem tilkynnt hafa þátt-
tökii* eru: Helgi Ólafsson, Jón L.
Árnason, Jóhann Hjartarson, Elvar
Guðmundsson, Björn Þorsteinsson,
Magnús Sólmundarson, Stefán
Briem, Sævar Bjarnason og Sigurð-
ur Daníelsson. Hugsanlegt er að
Haukur Angantýsson muni tefla, en
þeir Margeir Pétursson og Karl Þor-
steins munu ekki tefla, vegna anna
við próf. Alls munu 12 keppendur
tefla í landsliðsflokki. Pyrstu verð-
laun verða 15 þúsund krónur, önnur
verðlaun 9 þúsund krónur, þriðju
verðlaun 6 þúsund og fjórðu 3 þús-
und krónur.
Teflt verður í Norræna húsinu og
verða tefldar 11 umferðir. í áskor-
endaflokki og opnum flokki verður
teflt í félagsheimili Taflfélags
Reykjavikur, að Grensásvegi 46.
Ragnar R. Jóhannesson, skipstjóri á Víði Trausta, með sprengjuna sem
kom i netin um 10 sjómílur norðaustur af Siglunesi.
Sprengjan
gerð óvirk
VARÐSKIPIÐ Ægir kom til
Hauganess í Eyjafirði í gær og
gerðu varðskipsmenn sprengju,
sem kom í netin hjá Víði
Trausta um 10 sjómílur norð-
austur af Siglunesi í fyrradag,
óvirka. Lögreglan á Akureyri
kom með sprengiefni til Hauga-
ness og var sprengjan sprengd í
fjörunni í Hauganesi.
Helst er talið að sprengjan
hafi verið flugskeyti frá stríðs-
árunum. Hún var um 12 kíló að
þyngd, um 70 sentimetra löng og
milli 20—25 sentimetrar í þver-
mál.
Herstöðva-
andstæðingar:
Ihuga lög-
bann á fram-
kvæmdir
í Helguvík
SAMTOK herstöðvaandstæðingi
íhuga að krefjast lögbanns á fram
kvæmdir í Helguvík.
Samtökin láta nú kanna lög-
fræðilega möguleika á lögbanni og
að sögn Jóns Ásgeirs Sigurðsson-
ar, sem sæti á í miðnefnd samtak-
anna, verður ákvörðun um lög-
bann tekin þegar könnun þessari
er lokið, en þrjár vikur munu liðn-
ar siðan málinu var hreyft aí
hálfu samtakanna.
Fimmta sýn-
ing á Jazz-inn
Pálmi Gunnarsson er hér í einu hlut
verka sinna í söngleiknum Jazz-inn
sem frumsýndur var við prýðilegai
undírtektir í Háskólabíói á föstu
dagskvöld.
Söngleikurinn var síðan sýndui
á laugardags-, sunnudags- og
mánudagskvöld. Fimmta sýning
hans verður í kvöld kl. 21. Á fjórðs
tug tónlistarmanna og dansars
kemur fram í sýningunni.
Leiðrétting
Nafn eins piltanna í a-sveit
Hvassaleitisskóla, sem sigraði í
sveitarkeppni grunnskóla í skák,
misritaðist í Mbl. í gær. Snorri
Guðjón Bergsson tefldi á 4. borði.
Mbl. biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
VEISTU UM ABRA BETRI?
-M utmi okkur vmt!
SKURÐGRAFA - HJÓLASKÓFLA - GAFFALLYFTARI -
SNJÓRUÐNINGSTÆKI O.FL. SCHAEFF-INN ER
JAFNVÍGUR Á ALLT OG HVERGI SLEGIÐ AF KRÖFUNUM.
Schöéff
SCHAEFF fæst i tveimur
stearðum:
SKB-600 (6 tonn),
SKB-800 (8 tonn).
Aka má vélinni úr aftursæti
Vökvaflæði er 142 I pr. minútu
á SKB-600 og 200 I pr. minútu á
SKB-800.
Öryggishús með sérstaklega
góðu útsýni.
Liðstýring — kostir hennar eru
augljósir.
Hægt er að fá opnanlega fram
skóflu og lyftaragaffla, hvor
tveggja með hraðtengiútbúnaði
Fjórhjóladrif og öll hjól eru
jafn stór er mikið atriði.
Þegar SCHAEFF-inn er hjóla
skófla án gröfuarms er þyngd
arjöfnunarlóðum rennt auð
veldlega úr frambrettum i aft
urbretti.
SKB-600 hefur 3.6 tonna há
markslyftikraft,
SKB-800 hefur 4ra tonna há
markslyftikraft.
SKB-600 hefur 9.5 tonna brot
kraft,
SKB-800 hefur 13.0 tonna brot
kraft.
SCHAEFF-inn sýnir vestur þýskt hugvit og hönnun
Þeir fylgjast með sem þekkja SCHAEFF.
Þyngdarjöfnun
Höfðabakka 9 Simi 8-52-60
■ j
irt -
Gafflar fyrir lyftivinnu t.d. ffsk- M kassa, timbur o.fl.
Stiglaust vökvadrif kassa. í stað gir-