Morgunblaðið - 31.03.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
19
VIRKA
Klapparstíg 25—27,
simi 24747.
Bómullarefni
650 litir og munstur.
Strauþjál, vönduö.
V/RJKA
Klapparstíg 25—27.
simi 24747.
Bómullarefni
í fermingarkjóla og til
hverskonar sauma.
Talid frá vinstri: Halldór Ingi Ásgeirsson, Skapti Hallgrímsson, Árni Helga-
son og Sigurþór Heimisson.
SINDRA/mSTÁLHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Efnispípur
°OOo oo°^ °OOo
Fjölmargir sverleikar og þykktir.
BorgartúniSI sími 27222
„Leikhúsið er sem
ópíum íyrir okkur“
Rætt við nokkra nemendur MA í leikferð
Aristofanes hinn gríski skrifaði leik-
rit fyrir 2400 árum, ádeilu á samtíðar-
mann sinn og speking, Sókrates. Þrátt
fyrir yfirnáttúrulegan áhuga íslendinga
á bókmenntum yfirleitt, hefur þetta
verk aldrei verið sýnt hérlendis fyrr en
Leikfélag Menntaskólans á Akurevri
frumsýndi það sunnudaginn 21. marz
sl. i Samkomuhúsinu á Akureyri.
Leikfélagið, sem er skipað fólki úr
Menntaskólanum, sýndi leikritið sex
sinnum á Akureyri og tvisvar í
Kópavogsleikhúsinu. Þá er einnig
fyrirhuguð sýning á Húsavík um
næstu helgi.
Til að forvitnast um leikfélagið og
aðstandendur þess, ræddi Mbl. við
nokkra úr hópnum, þá Halldór Inga
Ásgeirsson, formann, Loga Má Ein-
arsson, Árna Helgason, Sigurþór
Heimisson og Gunnar Þorsteinsson.
„Sl. haust hélt Andrés Sigurvins-
son, leikari hjá Leikfélagi Ákureyr-
ar, námskeið hjá Leikfélagi Mennta-
skólans. Andrés vissi um handrit
sem Karl Guðmundsson hafði þýtt
fyrir LA árið 1976, en LA tók það
aldrei til sýningar. Þá vaknaði
hugmyndin um að LMA fengi verkið
og það varð úr.
Þetta verk heitir „Skýin“ og hefur
aldrei áður verið sýnt á Islandi.
Leikfélag Menntaskólans sýndi því
áhuga vegna þess að það var tilvalið:
bæði krefst það margra leikara,
bæði stórra og lítilla hlutverka, auk
þess fengum við það svo gott sem
upp í hendurnar.“
Næst voru þeir spurðir hvers
vegna þeir væru í leiklistinni.
„Það er fyrst og fremst vegna
áhugans. Sumir í hópnum ætla
meira að segja í leiklistarskóla.
(Ekki ég, skaut Logi inn í.) Það er
gaman að vinna með öðru fólki og
við kynnumst fleirum en ella. I
okkur öllum býr viss exhibisjónismi
og leikhúsið virkar eins og ópíum á
okkur.“
Aðspurðir sögðust þeir vera nokk-
uð ánægðir með aðsóknina, þó sér-
staklega á Akureyri, en þar sáu um
700 manns leikritið. En hins vegar
sögðust þeir vera óánægðir með að-
sóknina á Reykjavíkursvæðinu. „Við
sýndum í Kópavogsleikhúsinu á
mánudagskvöldið, þá komu 50
manns, en í gærkveldi um það bil
100. En þó aðsóknin hafi ekki verið
sem skyldi, þá voru undirtektir
þeirra sem komu mjög góðar.“
HJ & KH
Bestu þakkir til fjölskyldu minnar, annarra
vandamanna og vina, félaga og stofnana, er
gerðu mér áttugasta afmælisdaginn ógleym-
anlegan og að sönnum hátíðardegi með heim-
sóknum, heillaóskum og stórgjöfum.
Bestu kveðjur,
Guðmundur Björnsson.