Morgunblaðið - 31.03.1982, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
AÐEINS einn leikur er nú eftir í
íslandsmótinu í handknattleik 2.
deild. Haukar og Stjarnan Garðabæ
leika í íþróttahúsinu í Hafnarfirði á
fimmtudag kl. 21. Sigri lið Stjörn-
unnar í leiknum hefur liðið hlotið
jafn mörg stig og lið ÍR, 21 en á
möguleika á að ná betra markahiut-
falli, og hafna þar með i efsta sæti
deildarinnar. Ljóst er núna að
Stjarnan leikur í 1. deild á naesta ári
í fyrsta skipti.
Breiðablik úr Kópavogi hafnaði
í þriðja sæti, hlaut 15 stig úr fjór-
tán leikjum sínum.
Staðan í 2. deild þegar einum
leik er ólokið er nú þessi:
IR 14 10 1 3 249:232 21
Stjarnan 13 9 1 3 294:265 19
Breiðabl. 14 6 3 5 277:270 15
Haukar 13 6 2 5 274:252 14
Þór Ve. 14 6 1 7 274:272 13
Aftureld. 14 4 4 6 282:294 12
Týr 14 5 1 8 308:317 11
Fylkir 14 1 3 10 283:329 5
- ÞR.
Meistaramót íslands í sundi:
og leikfimi en venjulega skíðaiðk-
un. Og síðan fór ég að keppa í
þessum greinum og tókst að kom-
ast á toppinn. Heimsmeistara-
keppnin fer þannig fram að keppt
er á 12 skíðastöðum víðsvegar um
heiminn. Samanlögð stigatala úr
öllum keppnunum ræður svo úr-
slitum um hver hreppir heims-
meistaratitilinn. í þessum æfing-
um notum við minni skíði en geng-
ur og gerist og jafnframt stærri
skíðastafi, léttari skíðaskó og
traustar bindingar. Æfingarnar
gerum við í takt við tónlist sem
leikin er með þegar sýningin fer
fram. Það er mjög mikilvægt að
vera sterkur í efri hluta líkamans
til að geta framkvæmt þessar æf-
ingar," sagði Bob. Má víst telja að
þeir verða margir sem leggja leið
sína í Bláfjöllin um helgina til
þess að sjá heimsmeistarana í
skíðafimi sýna listir sínar. Allur
ágóði af sýningunni rennur
óskiptur til Skíðasambands ís-
lands. — ÞR.
Bob Howard:
26 ára Bandaríkjamaður, heimsmeistari í skíðaballet 1979—1980, og hand-
hafi 20 annarra heimsmeistaratitla í skíðaíþróttum.
Flensborgarskólinn
sigraði í Bersamótinu
BERSAMÓTINU í handknattleik er
nýlokið. Tóif framhaldsskólar tóku
þátt i mótinu að þessu sinni, og er
það með mesta móti. Mikil keppni
var milli skólanna, en í flestum lið-
um voru þekktir handknattleiks-
menn. Liðin sem léku til úrslita í
mótinu voru frá Flensborgar-
skólanum í Hafnarfirði og íþrótta-
kennaraskóla íslands á Laugarvatni.
Flensborgarskólinn sigraði eftir æsi-
spennandi og jafnan leik, 10—-9.
Staðan í hálfleik var jöfn, 5—5.
- ÞR.
UM NÆSTII helgi fer fram skíða-
sýning í Bláfjölium. Þeir sem þar
munu sýna listir sýnar eru flestir af
færustu skíðaköppum veraldar i
skíðafimi. Það eru Flugleiðir og
Volvo á íslandi sem að sýningunni
standa ásamt SKÍ. Sýningin hefst kl.
13.30.
Einn af þeim sem sýna i Bláfjöll-
um um helgina er Bob Howard, 26
ára Bandaríkjamaður. Sá er heims-
meistari í skíðaballett síðastliðin
þrjú ár. Jafnframt er hann handhafi
20 annarra heimsmeistaratitla í
skíðaíþróttum ýmiskonar.
„Þetta er fyrsta árið sem ég sýni
með þessum hóp. Við höfum þegar
sýnt í sex þjóðlöndum og það hefur
verið mjög skemmtilegt og tekist
vel,“ sagði Howard, sem er frá Reno
Nevada, er Mbl. spjallaði við hann í
gærdag.
Eg hóf skíðaiðkun þegar ég var
11 ára gamall. Fljótlega fór ég að
einbeita mér að því að fram-
kvæma allskyns æfingar á skíðum
sem flokkast frekar undir ballet
Um 200 keppendur
eru skráðir til leiks
e Hópurinn sem keppir að því að vinna sér sæti í Kalottkeppninni í sundi
sera fram fer i Finnlandi.
INNANHÚSSMEISTARAMÓT fs- höll Reykjavíkur um næstu helgi,
lands í sundi verður haldið í Sund- dagana 2.-4. apríl. Hátt í 200 kepp-
endur eru skráðir til keppni í sam-
tals 24 greinum. Skráningar eru um
360, og er þetta eitt fjölmennasta
sundmót, sem haldið hefur verið
hérlendis. Þátttakendur eru frá 12
sundfélögum eða deildum á 10 stöð-
um. Keppendur eru nú í fyrsta skipti
á slíku móti frá Bolungarvík og ísa-
firði, a.m.k. um langt árabil.
Akveðið hefur verið að taka þátt í
Norðurkollumótinu, sem haldið
verður í bænum Kemi í Finnlandi
17.—19. apríl, og munu úrslit á mót-
inu nú geta ráðið vali keppenda á
það mót. Að undanförnu hefur hópur
15—17 sundmanna æft sem lands-
liðshópur fyrir Norðurkollumótið.
Getrauna- spá MBL. íS 3 JS a & o 5 Sunday Mirror ! S' 1 1 Sunday Kxpress News of the World t | 4» H i £ SAMTALS
1 X 2
QPR - WBA 2 X 2 2 2 2 0 1 5
Brighton — Southampton 1 2 X 2 X 2 1 2 3
Leeds — Man. Utd. 2 2 2 2 2 2 0 0 6
Man. City — West Ham 2 1 1 1 1 X 4 1 1
Nott. Forest — Everton X 1 1 I 1 1 5 1 0
Sunderland — Middlesbr. 1 X X X 1 1 3 3 0
Wolves — Arsenal 2 2 2 2 2 X 0 1 5
Ipswich —• Coventry 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Cambridge — Norwich 1 X X 1 X X 2 4 0
Cardiff — Watford 2 2 2 2 2 2 0 0 6
Luton — Blackburn 1 1 1 X 1 1 5 1 0
Wrexham — Derby X 1 1 1 1 1 5 1 0
Breskirjijálfarar
vilja til Islands
Aðalfundur KÞI
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
þjálfarafélags íslands verður
haldinn á morgun, fimmtudaginn
1. apríl að Vagnhöfða 11 (Ártúni)
og hefst hann klukkan 20.00.
Fundarefni eru venjuleg aðalfund-
arstörf, lagabreytingar og al-
mennar umræður.
AUGLÝSINGAR í tengslum við
íþróttaviðburði færast í aukana eftir
því sem umfang iþróttanna vex og æ
fleiri fylgjast með þeim sér til án-
ægju. Sumum kann þó að þykja það
nýjasta í þessum efnum ganga full
langt. Nú er nefnilega talað um það
í Noregi, að þekja knattspyrnu-
marksúlur auglýsingum, íþróttunum
TVEIR breskir knattspyrnuþjálfarar
hafa brennandi áhuga á því að þjálfa
lið hér á landi á komandi sumri og
til framdráttar.
Þessar hugmyndir hafa fengið
misjafnar undirtektir hjá almenn-
ingi í Noregi, en það er sama sag-
an þar eins og hérna, sérsambönd-
in eiga aldreijÁóg af peningum og
eru með allar klær úti til að fjár-
magna umsvif sín.
virðast vera reyndir kappar á ferð-
inni. Annar er Englendingur að
nafni Ted Burgin, en hann er fyrr-
verandi leikmaður hjá Leeds og
Sheffield Utd. Hann mun auk þessa
eiga landsleiki með enska landslið-
inu að baki. Burgin jiessi hefur verið
þjálfari hjá ýmsum áhugamanna- og
atvinnumannaliðum á Bretlandseyj-
um.
Hinn þjálfarinn er skoskur og
heitir Danny McClellan. Sá hefur
14 ára starfsreynslu úr skosku 1.
deildinni, auk þess sem hann hef-
ur þjálfað landslið Filippseyja, ír-
an, Irak og Ródesíu.
í Knattspyrna)
Auglýsingar á
marksúlunum!
Á myndinni hér að ofan má sjá lið ÍR, sem hefur tryggt sér sæti í 1. deild að ári þó ekki sé endanlega Ijóst hvort að
efsta sætið hafi orðið hlutskipti þess. Úr því fæst skorið er Haukar og Stjarnan mætast á fimmtudaginn, en sigri
Garðabæjarliðið hreppir það efsta sætið. ÍR-strákarnir færðu félagi sínu 1. deildarsætið á 75 ára afmæli félagsins og
var það góð gjöf. Um Stjörnuna gegnir öðru máli, félagið er kornungt og færist upp í 1. deild eftir aðeins eins árs dvöl
í 2. deild, en liðið lék í 3. deild á síðasta keppnistímabili. Ljósm. Júlíus.
' og Stjarnan
leika í 1. deild
Heimsmeistari í
skíðaballett
sýnir í Bláfjölkim