Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 127. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tyrknesk „Ungfrú Evrópa“ Istanbúl, 12. júní. AP. TVÍTUG tyrknesk stúlka hlaut í gær titilinn „Ungfrú Evrópa“, sem keppt var um í Istanbúl. Alls voru þátttak- endur 23 talsins, þar á meðal ein stúlka frá íslandi, Hlín Sveinsdóttir. Hún náði ekki að komast í hóp þeirra efstu, en þetta var í fyrsta skipti, sem hún ferðaðist erlendis að eigin sögn. I öðru sæti keppn- innar var sænsk stúlka og þriðja sætið kom í hlut stúlku frá Spáni (Mallorca). Páfi þreytu- legur í Argentínu Buenos Aires, 12. júní. AP. MÖRG hundruö þúsund manns hlýddu á Jóhannes Pál páfa II í úr- hellisrigningu og kalsaveðri i Lujan í gær. Kom fóik úr öllum landshlutum til að hlýða á messu páfa og biðu margir í langan tíma til þess að tryggja sér sem best útsýni. í frétta- skeytum segir, að páfi hafi virst þreytulegur. Við komuna til landsins tók Galtieri, forseti landsins, á móti honum svo og herforingjastjórn landsins. Krupu herforingjarnir á kné og kysstu hönd páfa. Heimsókn páfa til Argentínu, sem aðeins stendur yfir í 32 stund- ir, átti að ljúka í dag með stuttum fundi hans og herforingjastjórn- arinnar. Er talið víst að hann muni leggja ofurkapp á friðsam- lega lausn Falklandseyjadeikinn- ar. J0RUNDUR Morgunblaðid/ KÖE Dorgað í blíðunni Leiðtogi argentínska innrásarliðsins á Falklandseyjum: Kjarkur hermanna tekinn að bresta og birgðir þverra Skotar drekka langmest vodka Edinborg, 12. júní. AP. ÖLLUM á óvart er sá drykkur, sem Skotar drekka mest af, vodka en ekki viský eins og allir höföu talið. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem birt var í dag. Kemur ennfremur fram í könnuninni, að Skotar drekki meira af vodka en aðrar þjóðir á Bretlandseyjunum, en um leið er neysla gins minni þar en annars staðar á Bretlandseyj- um. London, 12. juni. AP. Að sögn fréttamanns BBC í Chile, hefur leiðtogi argentínska innrásarliðs- ins, Mario Menendez, nýlega kvartað undan því við herstjórnina í Buenos Aires, að engar birgðir hefðu borizt til Stanley um langan tíma vegna hafnbanns Breta, og varaði hann við hrunið, ef engar breytingar yrðu þar ; að bresta. Leopoldo Galtieri, forseti Arg- entínu, segir í viðtali við ítölsku blaðakonuna Oriönu Fallaci, sem birt var „The Times" í London í morgun, að Bandaríkjamenn hefðu svikið Argentínumenn í Falklandseyjadeilunni, og að lang- an tíma muni taka að endurreisa samskipti Argentínu og Banda- ríkjanna. I viðtalinu kveðst Galtieri bitur í garð Bandaríkjamanna fyrir að því að staöa argentínska liðsins gæti og væri kjarkur hermannanna tekinn hafa tekið afstöðu með Bretum. Þar sem hann er spurður hvort honum sé engin eftirsjá í þeim hundruðum ungra argentínskra hermanna, sem fallið hafa í átök- unura, svarar hann einfaldlega: „nei“. Varnarmálaráðuneytið brezka sagði Argentínumenn hafa flug- mann Harrier-þotu í haldi á meg- inlandinu, og væri hann eini brezki stríðsfanginn í haldi, því Harðar árásir ísraela á stöðvar PLO í Líbanon Beirut, 12. júnfi. AP. ísraelsmenn héldu uppi hörðum árásum úr lofti, af landi og af sjó á stöðvar Palestínuskæruliða í suðurhluta Libanon í morgun, laugardag, en vopnahlé þeirra við Sýrlendinga hefur ekki verið rofið. Jafnframt skýrði útvarpsstöðin „Rödd Líbanons" frá því að bygg- ingar og farþegaþota á alþjóða- flugvellinum í Beirut hefðu staðið í ljósum logum í morgun eftir árásir ísraela á hverfi Palestínu- manna í suðurhluta Beirut, og eld- flaugapalla PLO og stórskota- liðsstöðvar í nágrenninu. Lögreglan í Beirút sagði 207 Palestínumenn og óbreytta Líbani hafa fallið í loftárás ísraela á Beirut örfáum mínútum fyrir vopnahlé ísraela og Sýrlendinga. Meðal þeirra bygginga sem urðu fyrir sprengjum í þeirri aðgerð, voru stjórnstöðvar skæruliða- hreyfingar Yasser Arafats. ísraelar hafa lagt undir sig tæplega 2.900 ferkílómetra svæði í Líbanon í því markmiði að hrekja PLO-skæruliða það fjarri ísra- elsku landamærunum að þeir geti ekki skotið á stöðvar í norðurhluta ísrael. Á þessu svæði voru flest hezltu vígi Palestínuskæruliða. ísraelar ítrekuðu að þeir hyrfu ekki frá þessum svæðum fyrr en tryggt yrði að skæruliðar PLO héldu sig utan þeirra í framtíð- inni, með myndun öflugra alþjóð- legra friðargæzlusveita. Einnig er það skilyrði Israela að stjórnvöld í Líbanon hafi yfirstjórn borga og þorpa Palestínumanna í landinu í sínum höndum. löndin hafa jafnan skilað þeim sem teknir hefðu verið. Talið er að Argentínumenn reyni að rekja garnirnar úr flugmanninum, sem skaut sér út í fallhlíf þegar þota hans varð fyrir skoti yfir Stanley 21. maí. Bretar hafa tapað átta Harri- er-þotum við Falkland, þar af þremur, sem urðu fyrir óhappi, en fimm hafa Argentínumenn skotið niður. Talið er að 209 brezkir her- menn hafi fallið eða týnt lífi af öðrum orsökum, og 295 særst, en að 2.260 argentínskir hermenn hafi fallið. Saumað að friðar- hreyfingu í Sovét Moskvu, 12. júní. AP. SOVÉSKA lögreglan hefur nú hafið kerfisbundnar aðgerðir til að klekkja á fyrstu óháðu friðarhreyf- ingunni, sem stofnuð var þar í borg fyrir nokkrum dögum. Hefur hreyf- ingin verið vöruð við fundahöldum og ennfremur hafa símar meðlim- anna verið teknir úr sambandi. Tveir meðlimanna voru færðir til yfirheyrslu í gærdag og þeir varaðir við frekari aðgerðum. „Þegar ég spurðist fyrir hvaða lög við værum að brjóta,“ sagði annar mannanna, Sergei Rozenoer, „var mér sagt að hér væru það þeir, sem spyrðu spurninganna, en ekki við“. Snemma í morgun var einn meðlimanna, Sergei Batovrin, tek- inn til yfirheyrslu eftir að hann hafði fengið hvatningarsímtal frá hliðstæðum samtökum í Boston í Bandaríkjunum. „Það er trú okkar, að sovésk yf- irvöld vilji stuðla að friði í heim- inum,* sagði Rozenoer. „Allar að- gerðir gegn okkur hljóta því að vera á misskilningi byggðar." Pólverj- ar flýja Berlín, 12. júní. AP. I’HÍH Pólverjar náðu að flýja til V-Berlínar á rússneskri eftirlits- flugvél í nótt. Lentu þeir á Temp- elhof-nugvellinum, aðeins nokkr- um klukkustundum eftir að Konald Reagan hélt þaðan áleiðis til Bandaríkjanna. Þetta er þriðja sinn síðan her- lög voru sett í Póllandi, að pólsk- ir flóttamenn koma til V-Berlín- ar með flugvélum, sem þeir hafa rænt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.