Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 37
í sjóii, en voru að spyrja hvort hann væri ekki orðinn stúdent „sonur yðar hann Páll“. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 37 Lífsstarfið Ef ég hefði haldið áfram námi, hafði ég hug á því að gerast lækn- ir. En ég sé samt aldrei eftir þessu. Eg hef verið farsæll um dagana og lífsstarf mitt hefur veitt mér fullnægju í lífinu, svo ég held að skaparinn hafi beint mér á réttar brautir og gefið mér það sem mér bar og meira til. Árið 1933 gerðist ég sendisveinn hjá Ríkisskip og kynntist þar Guð- jóni Teitssyni, sem þá var skrif- stofustjóri, en vináttu okkar hef ég metið ákaflega mikils alla tíð. Hann sýndi mér mikla vinsemd strax, en sendisveinar voru nú ekki stórir kallar í þá daga. Þá vann ég eitt sumar hjá Alliance, áður en faðir minn tók að nefna það við mig hvort ég vildi ekki læra hjá sér rakaraiðn. Ég hafði áhuga á því og byrjaði sumarið 1935. Meðeigandi gerðist ég svo árið 1943. Faðir minn var afbragðs kennari. Hann var rakari góður og afburða kurteis maður. Hann vissi uppá hár hvernig átti að umgang- ast viðskiptamenn. Sá fyrsti sem ég klippti var eng- inn annar en Óli Maggadon. Hann var tilraunadýrið á stofunni, karl- inn. Nemendurnir lærðu að raka hann og klippa. Hann var stórt barn alla sína tíð. Mikið ljúf- menni, blessaður karlinn, og gerði aldrei nokkrum manni mein. Hins vegar borgaði hann aldrei krónu fyrir raksturinn — og þeir voru fleiri sem fengu ókeypis þjónustu á rakarastofu Sigurðar Ólafsson- ar. Páll kærir sig ekki um að telja upp fræga menn og ráðsetta sem hann hefur klippt og rakað á sinni hárskeratíð, og eru nú á lífi, þó gaman hefði verið að telja upp hóp ráðherra, alþingismanna, banka- stjóra og forretningsmanna. Páll segir að viðskiptamenn sínir komi úr öllum stéttum og vill ekki gera þar greinarmun á. — Mig langar aðeins til að geta fjögurra viðskiptamanna, sem all- ir eru látnir, segir hann. Það voru Sigurður Nordal, Snorri Hall- grímsson, séra Bjarni Jónsson og Ásgeir Ásgeirsson. Nordal Það var skóli fyrir mig að kynn- ast Sigurði Nordal. Margir sem lærðu hjá honum, sögðu að þeir hefðu lært mest, þegar þeir fóru í göngutúra með þessum gáfaða manni. Þá bar ýmislegt á góma, sem aldrei hefði gerst í kennslu- stund. Prófessor Nordal var heilsuveill síðustu árin. Ég kom í tvígang heim til hans að klippa hann og fannst hann langt leiddur. Ég bjóst varla við því að sjá hann aft- ur, þegar ég kvaddi hann í seinna skiptið. En eins og mánuði síðar er spurt eftir mér í símanum á stof- unni. Ég tók upp tólið og þá var sagt: Halló, er þetta Páll? Já. Það er draugur í símanum. Það kom auðvitað hik á mig við þessa kveðju, en þá heyrðist hlát- ur í hinum endanum. Nei, þetta er Sigurður Nordal. Nú ætla ég að koma labbandi til þín og láta þig klippa mig. Sigurður hafði þá fengið ný meðöl sem hjálpuðu honum mjög og lifði hann nokkur ár eftir þetta. Mikill húmoristi Nordal og elsku- legur í framkomu. Snorri Prófessor Snorri Hallgrímsson var einstakur mannvinur. Hann var mikill starfsmaður og kannski of samviskusamur í sínu starfi, þó það sé nokkuð sem síst er hægt að álasa menn fyrir, að vera of sam- viskusamir. Snorri sleit sér út langt um aldur fram. Hann kom jafnan síðla dags í klippingu til mín, og sá ég því oft á honum hversu þreytulegur hann var eftir strangan vinnudag. Þá sagði ég gjarnan við hann: Nú held ég að prófessorinn sé að yfirkeyra sig! Þjóðin má ekki við að missa yður strax. En svo fór, að Snorri Hallgríms- son lést um aldur fram og var harmdauði öllum sem hann þekktu. Það fólk sem bar gæfu til að kynnast prófessor Snorra, vissi best hvaða mann hann hafði að geyma og minnist hans sem frá- bærs læknis og einstæðs mannvin- ar. Séra Bjarni Séra Bjarni hafði þann sið, að staðnæmast á horni Tryggvagötu og Pósthússtrætis þar sem Ell- ingsen hafði áður verslun. Þetta gerði hann klukkan hálf ellefu á föstudagsmorgnum. Hann gekk yfir götuna þegar hann sá mig og inná stofu. I tvö ár eftir að séra Bjarni dó, stóð ég mig að því að líta í spegilinn klukkan hálf ellefu á föstudagsmorgnum, að vita hvort hann stæði ekki hinumegin Sigurður Ólafsson, faðir Páls. Snorri Hallgrímsson á horninu. Ég gleymi aldrei þess- um kirkjunnar höfðingja. Séra Bjarni Jónsson var heimil- isprestur foreldra minna, skírði okkur systkinin og fermdi, gifti okkur hjónin og skírði tvö börn okkar og var hann þá hættur sem prestur í Reykjavík. Séra Bjarni var einstakur maður. Hann gat glaðst með glöðum og syrgt með sorgmæddum. Ég minnist þess, hversu pabbi dáði hann fyrir þann stuðning sem hann veitti honum, þegar mamma dó. Ég tók fyrst að kynnast séra Bjarna persónulega, eftir að faðir minn fór að draga sig í hlé á rak- arastofunni. Séra Bjarni sagði oftar en einu sinni við mig: Ég vona, Páll minn, að það sannist ekki á þér og rakarastof- unni eins og svo mörgum fyrir- tækjum í gamla bænum, að þau hverfi þegar annar ættliðurinn tekur við stjórninni. Ég hef alltaf haft þessi orð séra Bjarna bak við eyrað og reynt að afsanna þessa kenningu um aldur íslenskra fyrirtækja. Séra Bjarni hafði djúp áhrif á þá sem kynntust honum persónu- lega. Eitt sinn var það, að ég klippti hann og rakaði og var óupplagður og illa sofinn. Þegar ég hafði lokið mínu verki brá ég mér afsíðis að þvo hendur mínar, en tek þá eftir að séra Bjarni er ekki farinn út, heldur gengur hann inn til mín og tekur í hönd mína, með sínu styrka og hlýja handtaki, en mælir ekki orð af munni. Handtakið var svo innilegt að það var eins og ég fengi kraft frá honum. Hann sá að mér leið illa og vildi sýna mér hlýju. Asgeir Mér er það minnisstætt hversu Séra Bjarni Jónsson mikið var talað um frú Dóru og Ásgeir Ásgeirsson á Alþingishá- tíðinni 1930. Þá voru þau hjón eins konar gestgjafar á Þingvöllum, en Ásgeir var forseti Sameinaðs þings. Gamalt fólk minnist þess með hve miklum sóma þau komu fram fyrir hönd þjóðarinnar, frú Dóra og Ásgeir. Þau voru þá á besta aldri og mjög glæsileg bæði. Ég sé alltaf eftir því að hafa ekki getað sótt þessa miklu hátíð í ís- landssögunni. Ég var þá tólf vetra og í sveit uppí Borgarfirði. Ásgeir var viðskiptamaður föð- ur míns og þekktust þeir vel, en skömmu eftir að Ásgeir var kjör- inn forseti, hringdi hann á stofuna og spurði eftir föður mínum. Pabbi var þá farinn að draga sam- an seglin og vann ekki nema part úr degi. Forsetinn spurði þá eftir syni hans. Ég kom í símann og Ásgeir kynnti sig og spurði hvort það væri rétt að faðir minn væri mikið til hættur að starfa og ég tekinn við rekstri stofunnar. Ég kvað það vera og þá spurði hann, hvort hann mætti ekki slá á þráð- inn til mín þegar hann vantaði klippingu og tilkynna komu sína. Ég taldi heppilegra að ég færi til hans með mín áhöld á skrifstof- una eða heim á Bessastaði, eftir því sem honum best hentaði. Mað- ur gat lent í vandræðum, ef drukknir menn sáu þjóðkunna menn í stólnum hjá manni og vildu gera sig merkilega. Það varð að ráði að Ásgeir hringdi, þegar hann þyrfti á klippingu að halda og ætti tíma aflögu, og þá myndi ég koma til hans á skrifstofuna. Ég fór nokkrum sinnum til Bessa- staða og mætti mikilli hlýju þeirra hjóna. Ég minnist þess, þegar ég kom til hans á forsetaskrifstofuna, að þar biðu oft menn eftir Ásgeiri, Páll með Halldór Laxness í stólnum. Páll hefur klippt nóbelsskáldið oftar en nokkurn mann annan á sinni hárskeraævi — eða á ca. 10 daga fresti í 40 ár. Morgunbi*«i«/ köe. Ásgeir Ásgeirsson stundum gamlir kjósendur að vestan, eftir því sem mér sýndist. Ásgeir gekk jafnan brosandi til þessara manna og sagði kannski: Nei, komdu blessaður og sæll, Jón minn! Seildist svo oní vasa sinn eftir tóbaksdósinni: Má ég ekki bjóða þér í nefið, Jón minn? Ásgeir missti mikið við lát konu sinnar. Sjaldan hef ég séð inni- legra hjónaband en þeirra Dóru og Ásgeirs, og ég held mér sé óhætt að segja, að Ásgeir hafi aldrei orð- ið samur eftir lát hennar. Hann hafði orð á því, eftir að hann lét af forsetaembætti, að þaðan í frá kæmi hann á stofuna til mín. Ég sagði honum að það væri engin breyting hjá mér þó hann hætti að vera forseti, ég myndi halda áfram að koma heim til hans og klippa hann þar. Og það gerði ég. Oft var það sem Ás- geir sagði eitthvað á þessa leið, þegar ég hafði lagt frá mér greið- una og skærin: Heyrðu, Páll minn, hefurðu ekki tíma til að rabba svolítið við mig fram á skrifstofu? Við sátum þar oft nokkra stund og röbbuðum. Þéringar Var ekki siður að þéra slíka fyrirmenn með þjóðinni, Páll? Jú. Ég þéraði þessa menn alla, utan síðustu ár þeirra. Og það tók sinn tíma að venjast því, að vera allt í einu orðinn dús við þessa menn. Þéringar voru mikið notað- ar hér áður fyrr, svo sem gamlir Reykvíkingar minnast. Maður þéraði flesta á rakarastofunni nema þá sem beinlínis fannst ami að því að vera þéraðir. Verslun- armenn hins vegar og ráðamenn þéraði maður jafnan, svo sem hæfði tímanum. Það var aldrei af snobbi sem maður þéraði, heldur var þessi vaninn — og ég held það hafi ekki verið slæmur vani. En það tók mörg ár að verða dús. Við máttum aldrei bjóða viðskipta- manni að vera dús og heldur ekki yngri maður sér eldri. Núorðið er enginn þéraður. Það breyttist með stríðinu, eins og fleira. Mér þykir slæmt að fólk skuli ekki lengur læra að þéra. Ég fór oft með konunni minni sálugu útá Skotsborg í Danmörku, þar sem hún naut aðhlynningar í erf- iðum sjúkdómi. Eitt sinn var það sem starfsfólkið spurði mig hvort íslendingar kynnu ekki að þéra. Ég spurði á móti, hvort ég þéraði ekki — jú, það var, en íslenskar gangastúlkur, sem störfuðu oft á sumrin á Skotsborg, kunnu ekki að þéra, sem kom sér iðulega illa í þessum stað, því þarna voru slíkir kallar sem sænskir hershöfðingjar af stórum ættum sem litu stórt á sig, og fannst það lágmarks kurt- eisi að vera þéraðir. Islensku gangastúlkurnar höfðu semsé ver- ið áminntar fyrir „ókurteisi", að ég held, en þær báru við að þér- ingar tíðkuðust ekki á íslandi. En það var sem sagt á stríðsár- unum sem menn fóru að hætta þéringum á Islandi. Það kom af því, að þá efnuðust fjölmargir, sem áður voru atkvæðalitlir í fjár- málum af braski í kringum her- inn. Þá varð til stétt efnamanna, SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.