Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
Útvarpa beint til Banda-
ríkjanna 21. júní nk.
BANDARÍSKIR útvarpsmenn frá
WJR-Radio í Detroit, sem er ein af
fjórum stærstu útvarpsstóðvum
Bandaríkjanna, eru væntanlegir
hingað til lands, en þeir hyggjast út-
varpa beint til Bandaríkjanna 21.
júní nk., þegar sólargangur er
lengstur, að sögn Sveins Sæmunds-
sonar, blaðafulltrúa Flugleiða, en fé-
lagið í samvinnu við Ferðamálaráð
og fleiri aðila hefur veg og vanda af
komu útvarpsmannanna hingað.
— Hinn þekkti útvarpsmaður
Warren Pierce mun verða með
tveggja klukkustunda langa
dagskrá. Hann verður með nokkur
viðtöl við Islendinga um jarð-
fræði, landafræði, lifnaðarhætti
Islendinga, sögu lands og þjóðar
og fleiri hluti. Þá verður tónlist
blandað í dagskrána. Þá mun for-
seti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, koma fram í þættin-
um. Eins og ég sagði er þetta ein
af fjórum stærstu útvarpsstöðvum
Bandaríkjanna og nær til liðlega
40 ríkja, auk þess sem útvarpað er
um stóran hluta Kanada, þannig
að ljóst er að dagskrá þessi héðan
frá Islandi mun ná til tuga millj-
óna manna. Þetta verður því gíf-
urleg landkynning fyrir ísland,
sagði Sveinn Sæmundsson.
Það kom fram hjá Sveini, að
sent yrði út á 50.000 vöttum, en
útvarpsmennirnir myndu koma
með allan búnað með sér til send-
inga. — Dagskránni verður út-
varpað klukkan 17.00—19.00 að
okkar tíma 21. júní, en tímamun-
urinn er 5 klukkustundir, sagði
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, að lokum.
Frá æfingu kammersveitar Listahátíðar í gærmorgun. Ljómm. Mbi. KÖE.
Kammersveit Reykjavíkur
heldur tónleika í dag
KAMMERSVEIT Listahátíðar beld-
ur tónleika í Háskólabíói í dag
klukkan 15. Stjórnandi er Guð-
mundur Emilsson. Kammersveitin
er skipuð um 40 íslenzkum hljóð-
færaleikurum og hefur rösklega
þriðjungur þeirra komið erlendis frá
gagngert vegna þessara tónleika.
Fjórir einleikarar koma fram á
tónleikunum: Sigurlaug Eðvalds-
dóttir, fiðluleikari, Ásdís Valdi-
marsdóttir, lágfiðluleikari, Sig-
urður I. Snorrason, klarinettuleik-
ari, og Hafsteinn Guðmundsson,
fagottleikari.
Á efnisskránni er frumflutning-
ur á íslenzku tónverki; Ad astra
eftir Þorstein Hauksson, tveir
duokonsertar eftir Mozart og
Strauss og konsert fyrir kamm-
ersveit eftir argentínska tónskáld-
ið Ginastera.
LEIFUR Sveinsson lögfræðingur
lagði á fimmtudag fram kæru á
hendur Jóni Steinari Gunnlaugssyni
lögfræðingi, umboðsmanni Sjálf-
stæðisflokksins hjá Yfirkjörstjórn,
fyrir að hafa sent mann i kjördeild 6
i Miðbæjarskólanum, en kæran er
byggð á 4. grein Tölvulaganna svo-
kölluðu, nr. 63/1981.
I samtali við Morgunblaðið
sagðist Leifur einnig hafa kært
nafngreindan starfsmann Sjálf-
stæðisflokksins, fyrir að hafa
komið á vinnustað og beðið þar
mann um að gefa sér upp lista
með upplýsingum um stjórnmála-
skoðanir samstarfsmanna sinna.
Kæran var afhent Benedikt Sig-
urjónssyni fyrrverandi Hæsta-
réttardómara, formanni Tölvu-
nefndar. Sú lagagrein, sem kæran
er grundvölluð á, kveður á um að
óheimilt sé að skrá upplýsingar
um stjórnmálaskoðanir, trúmál og
önnur einkamál. Sagði Leifur að
viðurlög við brotum á laga-
greininni væru varðhald og sektir.
Ástæðu þess að fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins einn væri kærður,
sagði Leifur að hann ætti eftir að
kæra umboðsmann Alþýðubanda-
lagsins. Hann ætlaði að geyma sér
þá kæru þar til ljóst væri hvort
formgalli væri á kærunni á hend-
ur Jóni Steinari, því ef svo væri
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Pétri
Reimarssyni, formanni Samtaka
myndi hann kæra Alþýðubanda-
lagið á réttan hátt. Leifur sagðist
á kjördag hafa óskað eftir því að
fá skriflegt hverjir væru fulltrúar
flokkanna i kjördeildinni, en þá
hefðu einungis fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags
verið viðstaddir, en fulltrúi Fram-
sóknarflokksins hefði verið farinn
heim. Því yrði sá flokkur ekki
kærður.
herstöðvaandstæðinga, vegna fréttar
sem birtist í blaðinu síðastliðinn
laugardag um friðarhreyfingarfund í
Hyde Park:
„Vegna fréttar í Morgunblaðinu
síðastliðinn laugardag um fjölda-
fund, „Campaign for Nuclear Dis-
armament", sem haldinn var í
Hyde Park í London 6. júní síð-
astliðinn, óskar undirritaður eftir
að taka fram eftirfarandi:
1. Á fundinum voru fluttar 23
ræður, sem hver um sig tók 5 mín-
útur í flutningi. Meðal þessara
ræðumanna var undirritaður.
2. í lok fundarins var . kynnt
sameiginlegt ávarp evrópskra
friðarhreyfinga og tóku fulltrúar
víðs vegar úr Evrópu við skraut-
rituðu skjali, þar sem ávarp þetta
var skráð. Meðal þeirra, sem tóku
við þessu skjali, var undirritaður.
Um leið og menn tóku við þessu
skjali fluttu þeir fundinum kveðj-
ur frá sínu landi í tveimur til
þremur setningum. Gerði undir-
ritaður það einnig og flutti fund-
inum þannig í tvígang kveðjur frá
Islandi. Þykir mér ljóst að við-
mælandi Morgunblaðsins í um-
ræddri frétt hafi heyrt þessar
kveðjur en ekki ræðuna sjálfa.
3. Auðvelt hefði verið fyrir
Morgunblaðið að afla þessara upp-
lýsinga með því að hringja í undir-
ritaðan."
12. júní 1982,
Pétur Reimarsson.
Rally-cross
á Kjalarnesi
Rallý-cross verður haldið á
Kjalarnesi í dag. Hefst keppnin kl.
14 og eru keppendur 15. Með síð-
ustu keppni fylgdust um 1.000
áhorfendur.
Stefiium að hreinum meiri-
hluta í næstu kosningum
- segir Richard Björgvinsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
— Ekki er deilt um að Sjálfstæðisflokkurinn vann sigur í kosningun-
um í Kópavogi og var fylgisaukningin 73,3% miðað við samanlagt fylgi D
og S listanna 1978 og hefur flokkurinn nú hæsta hlutfall sem hann hefur
nokkru sinni fengið eða 42,1%. Þetta er ákveðin vísbending um að
kjósendur vilja breytingu á stjórn bæjarins, sagöi Richard Björgvinsson
er Mbl. ræddi stuttlega við hann um myndun meirihlutans i Kópavogi,
sem vinstri flokkarnir standa að.
— Vinstri flokkarnir lýstu því
yfir fyrir kosningar og strax eft-
ir að úrslit lágu fyrir, að stefnt
yrði að áframhaldandi vinstra
samstarfi, heldur Richard
Björgvinsson áfram. — Þrátt
fyrir það skrifuðum við sjálf-
stæðismenn hinum flokkunum
og óskuðum eftir viðræðum. Al-
þýðuflokkur og Alþýðubandalag
svöruðu eftir viku og töldu
ástæðulaust að ræða saman að
sinni og Framsóknarflokkurinn
svaraði 10. júní og sagði myndun
vinstri meirihluta lokið. Töldu
hinir flokkarnir því ekki ástæðu
til að ræða við fulltrá 42% kjós-
enda og vildu ekki taka mark á
þessari ákveðnu vísbendingu
kjósenda.
Þessi meirihluti byrjar sinn
feril með þessum ósköpum við
bæjarstjóraskipti, sem þegar
hefur verið greint frá og minna
má á, að þrátt fyrir að hér sé um
sama vinstri meirihluta að ræða
tóku viðræður nærri 3 vikur og
gengu misjafnlega vel. Þá má
minna á, að þegar Alþýðuflokk-
urinn bætti við sig fulltrúa í
kosningunum 1978 taldi hann sig
eiga rétt á aðild að viðræðum.
Hins vegar tekur hann ekki
mark á því nú þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn bætir svo miklu við
sitt fylgi. Málefnasamningur
hefur verið gerður og þar eru
mörg mál sem sjálfstæðismenn
munu fylgja, en einnig önnur
sem við erum algjörlega andvíg-
ir. Benda má á að í niðurlagi
málefnasamningsins er vísað í
stefnuyfirlýsingar flokkanna
fyrir kosningar, en Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag gáfu ekki
út stefnu sína fyrir kosningarn-
ar, heldur aðeins Framsóknar-
flokkurinn.
Við sjálfstæðismenn höfum
reynslu af þessum flokkum og
teljum ekki ástæðu til að veita
þeim neinn umþóttunartíma. Við
tökum strax upp harða stjórnar-
andstöðu, gerðum það strax á
fundinum á föstudag. Vekja má
athygli á því, að Framsóknar-
flokkurinn lagði fram nokkuð
eindregna stefnu í skólamálum
og er því m.a. fylgjandi að 3kóla-
húsnæði verði nýtt betur, að
sameinuð verði nýting grunn-
skóla og gagnfræðaskóla. En á
fyrsta fundi bæjarstjórnar
höfðu framsóknarmenn að
mestu leyti gleymt þessari
stefnu og sagði oddviti þeirra að
sú stefna hefði verið túlkun þess
tíma, — nú virðast því vera
komnir aðrir tímar og fram-
sóknarmenn hafa kokgleypt alla
stefnu sína í skólamálunum á
fyrsta fundinum.
Sjálfstæðismenn eru ánægðir
með árangur sinn í kosningun-
um og við stefnum nú ótrauðir
að því að fá hreinan meirihluta í
næstu kosningum. Þetta er búin
að vera löng barátta, í Kópavogi
hefur fylgi Alþýðubandalagsins
lengi verið sterkt, en nú eiga þeir
aðeins 2 bæjarfulltrúa af 11 en
sjálfstæðismenn 5 af 11. Því telj-
um við það raunhæft að ætla að
við getum fengið hreinan meiri-
hluta í næstu kosningum. Mun
myndun þessa vinstri meirihluta
hjálpa okkur til þess, svo og
störf og stefna Sjálfstæðis-
flokksins og vil ég nota tækifær-
ið og þakka kjósendum stuðning
við flokkinn í síðustu kosning-
um.
Athugasemd frá
Pétri Reimarssyni
Breska popphljómsveitin Human League hélt vel heppnaða tónleika í Laugardalshöllinni. Hátt á þriðja þúsund
manns skemmtu sér hið besta. Á meðfylgjandi mynd má vel sjá sviðsbúnaðinn hjá hljómsveitinni en litskyggnu-
sýningar svo og mikil Ijósadýrð setti mikinn svip á tónleikana. MorgunhiaAið/ köe.
Kærir umboðsmann Sjálfstæð-
isflokksins hjá yfirkjörstjórn