Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
19
Framleiðandi á þessu hjónarúmi og
náttborðum er Ingvar og Gylfi sf.
Hönnuður er Þórdís Zoega. Serían
byggist á bogadregnum og beinum
línum. Efni: massíft og spónlagt
beyki. Áferð: glært lakk. Höfða- og
fótagafl: rammi úr massifu beyki
með innfelldu basti. Dýnur: íslensk-
ar springdýnur. Náttborð úr sama
efni.
Morgunblartið Gudjón.
gert og smekklegt þegar annað var
hreint hörmulegt. En 1975 stokk-
uðum við þessi mál sem sagt upp.
Við fengum bandarískan hönnuð
til liðs við okkur, sem þekkti
markaðinn og hvað gekk í fólk.
Fengum síðan til okkar innlenda
aðila, sem unnu að því að stórbæta
gæði framleiðslunnar og settumst
síðan niður og bjuggum til eina
heildarlínu yfir fatnaðinn. Afleið-
ingarnar eru þær að frá 1975 hef-
ur salan aukist á hverju ári fram á
þetta ár.
Línan er þannig samsett að hún
fullnægir þörfum sem flestra.
Akveðnar flíkur eru sígildar og ná
til mjög stórs hóps og einnig eru
flíkur, sem seljast í minna upp-
lagi. Þannig er það alltaf. Við höf-
um öll okkar skoðun á því hvað er
fallegt. Það þarf að hafa sérstaka
hæfileika í sér til að fullnægja
kröfum neytenda. Ekki er öllum
gefið að finna það út hvað fólk vill.
- O -
Á hverju hausti boðar Hilda hf.
til fundar, og boðið er ýmsum full-
trúum kaupenda í Evrópu og
Norður-Ameríku, en þar er aðal-
markaðurinn fyrir Hildu. Á þess-
um fundum, sem við köllum
„hönnunarfundi" er rætt við kaup-
endur um línuna eitt og hálft ár
fram í tímann. Með þessum fund-
um gerum við hönnuðum okkar
kleift að komast í náin kynni við
það fólk, sem skipt er við, kúnn-
ann. Oft hjálpa þessir fundir til að
leysa þau vandamál, sem upp
koma. Hönnunin er undirstöðuatr-
iði, svo er það framleiðslan og gott
sölukerfi. Erfiðleikarnir við hönn-
un í ullariðnaðinum er takmörkun
á litum. Það er aðeins um sauða-
litina að ræða og þeir takmarka
möguleika á fjölbreytni. Efnis-
hönnuðir okkar eiga því í stöðug-
um erfiðleikum með að koma fram
með eitthvað nýtt og ferskt. Ætli
þeirra draumur sé ekki að sjá
græna kind einhverstaðar.
Fyrir sjö árum seldum við hluti,
sem áttu einungis við um ísland
og á Islandi en er nú tíska úti í
heimi. Við gerðum það eitt sinn að
gamni okkar, að koma okkur fyrir
við breiðgötu í Toronto í Kanada
og það var hrein unun að sjá allar
vel klæddu konurnr í íslensku ull-
arfötunum. íslendingar eru farnir
að líta á ullarfatnaðinn, sem
eitthvað sem er aðeins fyrir ferða-
menn. Það gerðist fyrir stuttu að
kona kom inn í ullarfataverslun í
Reykjavík með dóttur sinni. Dótt-
irin segir við mömmu sína: „Mikið
er þetta falleg flík,“ og bendir á
ullarjakka. En þá segir móðirin:
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Framleiðandi: Smíðastofa Eyjólfs
Eðvaldssonar. Invite-system. Grind-
ur eru smíðaðar úr massífu Ijósu
beyki. Samsetning: allar grindur eru
grataðar saman. Lakkáferð: tvær
umferðir af glæru lakki. Hengi og
fylgihlutir eru úr nylonhúðuðu stáli.
Hönnuður: Pétur B. Lúthersson.
MorgunblartiA Gudjón.
sem gera eitthvað nýtt og frábært
og það eru aðeins nokkrir þannig.
Flestir leggja út af því, sem aðrir
hafa fundið út. Við höfum til sölu
30 mismunandi gerðir af jökkum
og það er hugsun á bak við hvern
einasta. Þannig á það að vera. Það
þarf líka að hanna línuna svo hún
passi á sem flesta.
Eftir 1975 var farið að hanna
hlutina skipulega hjá okkur. Áður
hannaði framleiðandi hjá hverri
verksmiðju flík eftir sínu höfði.
Það ríkti engin heildarlína.
Kannski var eitt stykki mjög vel
- O -
Úlfur Sigurmundsson er fram-
kvæmdastjóri Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins. Morgunblaðið
innti hann eftir mikilvægi hönn-
unar- og vöruþróunar í íslenskum
húsgagnaiðnaði og hvaða þýðingu
þessir tveir þættir hafa, þegar far-
ið verður að selja húsgagnafram-
leiðsluna úti í hinum stóra heimi.
Úlfur sagði:
„Hönnun og vöruþróun eru for-
senda þess að hægt sé að hefja
útflutning á vöru. Varan verður að
mótast af því, sem hönnuðurinn
álítur henta þörfum markaðarins
hverju sinni. Þess vegna er mikil-
vægt að komi til, eins fljótt og
hægt er, samstarf um gerð vör-
unnar milli hönnuða og hugsan-
legra markaðsaðila eða kaupenda.
Til þess að hönnun vöru geti
heppnast þarf að koma til gott
samstarf milli hönnuðarins og
framleiðandans. Enda þótt um
góða hönnun sé að ræða þá kemur
hún í langflestum tilvikum, sem
frumdrög frá hendi hönnuðarins.
Þau þarf að slípa til út frá sjónar-
miði framleiðandans, sem hefur
til aðstoðar verkstjóra og fulltrúa
frá hinum ýmsu deildum fyrir-
tækis síns. Þannig að þó hönnuð-
urinn sé grundvallaratriði er
hönnun í dag hópvinna. Það þarf
hóp manna til að fjalla um vöruna
til að öll sjónarmið komi fram.
Lífstími húsgagna á markaðnum
er ekki langur og þess vegna er
mikilvægt að öllum spurningum
og vandamálum sé svarað strax í
byrjun.
Gott dæmi um frábæra hönnun
og vel heppnaða hópvinnu er
Stacco-stóll Péturs Lúterssonar.
Hópvinna tryggði að varan kom
algerlega fullbúin fram á sjón-
arsviðið, enda var stólnum vel tek-
ið af öllum. í dag er óhugsandi að
koma með einn hlut á markaðinn
og búið. Hluturinn verður að geta
starfað á marga vegu og fullnægja
fleiri en einni þörf. Stacco-stóllinn
gerir það. Hægt er að tengja hann
- O -
Hjá forráðmönnum ullarút-
flutningsfyrirtækisins Hildu hf.
kom það fram að Hilda hf. var eitt
af fyrstu fyrirtækjunum, sem
þróuðu útflutning á ullarvörum en
það fyrirtæki hóf starfsemi sína
árið 1962. Álafoss, SÍS og Hilda
hf. hafa með höndum um 90 pró-
sent alls ullarútflutnings að sögn
Þráins Þorvaldssonar,
framkvæmdastjóra Hildu, en auk
Þráins spjallaði Morgunblaðið við
Tom Holton eiganda Hildu og
Hönnu Hilton sem er yfirmaður
könnunardeildar. Þau sögðu:
„Hönnun er mjög mikilvæg en
fólk misskilur yfirleitt hvað hún
þýðir. Alvöru hönnuðir eru þeir
Framleiöandi: Stáliðjan hf. Stoð-
stólar með lág- og hábaki. Stólar
fyrir skrifstofur og heimili úr rils-
anhúðuðu stáli, bólstraðir með ull-
aráklæði frá Álafossi hf. Hönnuður:
Helgi Halldórsson.
saman í raðir, hann getur verið
hægindastóll með örmum.
Markaðsstefnu þarf að taka inn
í dæmið eins fljótt og hægt er.
Eins og ég segi, helst í byrjun,
þannig að kúnninn geti haft áhrif
á vöruþróunina. Við erum nátt-
úrulega ekki komin það langt að
getað kallað á kúnnana, en
kannski það geti orðið einhvern
tíma.
Útflutningur á húsgögnum er á
tilraunastigi og erfitt er að spá
um hvort það breytist. En eitt er
víst. Hönnun og vöruþróun mun
hjálpa verulega til í samkeppninni
við innflutning á húsgögnum,"
sagði Úlfur í lokin.
Þessi húsgagnasamstæða er hönnuð af Gunnari Magnússyni.