Morgunblaðið - 13.06.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
27
Viðtal við
Hansínu Jensdóttur
— Hús hafa alltaf heillað mig,
sérstaklega gömul hús með hurð-
um og gluggum, sagöi Hansína
Jensdóttir og það kemur svo sann-
arlega fram í verkum hennar, sem
sjá má á nytjaskartssýningu ís-
lenzks heimilisiðnaðar um þessar
mundir. Formin í silfurskartgrip-
unum hennar minna á glugga og
Ijósmyndir af stórum útiskúlptúr-
um á hurðir og glugga. Hansína er
gullsmiður og er að auki að koma
heim frá námi í höggmyndalist frá
('algary í Kanada, þar sem hún
hefur m.a. unnið þrjá stóra skúlpt-
úra, þar af einn fyrir olíufélagið
Petro Canada, til að prýða nýbygg-
ingu þess.
Hansína á ekki langt að sækja
listfengnina. Hún er dóttir Jens
Guðjónssonar gullsmiðs og Ingi-
bjargar Ólafsdóttur, og hefur
starfað á verkstæði föður síns að
smíði skartgripa. Og bæði hún
og hálfbróðir hennar, Jón Snorri
Sigurðsson, sem líka er gull-
smiður og hefur áhuga á skúlpt-
úr, sýna verk sín ásamt Jens á
þessari sýningu í tilefni Lista-
hátíðar. — Ég býst við að þetta
umhverfi, sem ég er alin upp í,
hafi haft áhrif á mig, segir
Hansína. — Frá því ég var lítil
hafði ég mikinn áhuga á að
teikna og sá áhugi var endurvak-
inn þegar ég byrjaði í Handíða-
og myndlistarskóianum. En þá
var ég líka byrjuð á gullsmíð-
inni. Ég hefi alltaf haft mikinn
áhuga á skúlptúr og það tafði
mig dálítið í gullsmíðanáminu
að ég hafði svo mikinn áhuga á
myndlistinni sjálfri. En þar sem
þeir höfðu þá ekki höggmynda-
deild í Handíða- og myndlist-
arskóla íslands, var ég í 2—3 ár í
Myndlistarskóla Reykjavíkur og
fór svo til Kanada, þar sem ég
fékk inngöngu í South Alberta
Institute of Technology í Calg-
ary. Var þar í höggmyndadeild-
inni. Þetta er fjögurra ára skóli
og ég komst inn í þriðja árs
deildina, eftir að hafa sýnt þeim
verkin mín.
„Segðu frá stóra skúlptúrnum,
sem þú gerðir fyrir Petro Can-
ada.“
— Það var fyrir jólin í fyrra
að við vorum tvö fengin til að
gera tillögu að þessu. Petro
Canada er að reisa stórhýsi niðri
í miðbæ, og var að hugsa um að
fá skúlptúr í anddyrið, eða þá
fyrir utan bygginguna. I Calgary
er mikið gert af því að rífa
gömlu húsin og borgin er ekki að
verða neitt nema háhýsi. Og þá
hefur vaknað áhugi á að bæta
Hansína Jensdóttir við sýningarskáp með silfurskartgripum, sem hún hefur gert Ljiam. ói.K.Mag.
Stórir skúlptúrar
og skartgripir
Hvort tveggja myndlist
og um 4,60 metrar á lengd. Það
er byggt úr tveimur helmingum,
sem báðir hafa glugga en ekki á
sömu stöðum, og þegar þeir eru
settir saman þannig að myndin
verður um 20 sm á þykkt, þá
mynda þeir heildarform saman.
Þetta verk var til bráðabirgða
sett upp til eins árs í stórum
garði á skólalóðinni, og er ekki
endanlega ákveðið hvort það
rúmast í anddyrinu eða fyrir
utan Petro-bygginguna þegar
hún er tilbúin.
„Hvernig fer saman að vinna
svona risastór verk, eins og þessi
þrjú sem þú vannst í Kanada, og
svo litla skartgripi, sem konur
geta borið?"
— Skartgripirnir eru skúlptúr
út af fyrir sig. Ég fann það vel,
að það gaf mér ferskar hug-
myndir í skartgripi að læra í
höggmyndadeild í þessum skóla.
Mér finnst skipta mestu máli
hvernig heildaryfirbragðið er á
hlutnum og hvernig hann kemur
fyrir sjónir. Gullsmiðir líta oft
meira á handbragðið og iðnina
en hlutinn sjálfan. Fyrir mér er
hann myndlist.
„Og hvað tekur nú við hjá
þér?“
— Ég kunni vel við mig í
Kanada, en datt ekkert annað í
hug en að koma heim aftur. Og
ég vinn á vinnustofunni hjá
Pabba, Jens Guðjónssyni. Nú er
ég að vinna að módelum, geri
þau fyrst í pappa og svo breytast
þau heilmikið í meðförunum. Ef
eitthvert þeirra virkar nægilega
vel á mig, þá tek ég mér kannski
frí og fer að vinna það í stóra
höggmynd. Ég ætla bara að
vinna mínar hugmyndir, þar til
ég hefi einhverja sem mig langar
til að stækka.
- E.Pá.
Þennan skúlptúr gerði Hansína
fyrir Petro Canada-olíufélagið.
Hann er hátt í fjórða metra á hæð
og 4,60 á breidd.
útlitið og fá skúlptúra til að lífga
uppá borgina. En Kanadamenn
eiga marga góða myndhöggvara.
Þessi skúlptúr, sem Hansfna vann
í Kanada, er gerður úr hurðum og
gluggum úr gömlum húsum, og
komið fyrir í ramma.
Ég gerði tillögu og var látin
útfæra hana. Þetta er stórt verk
úr tré og stáli, 3,60 metrar á hæð
Hansína við eitt af verkum sfnum, sem er úr bronsi. Fyrir neðan er eitt af
verkum bróður hennar, Jóns Snorra, sem unnið er úr silfri.
URVAL
VID Al W.JRVOLI SÍMI 26O00
23. október — 16. nóvember
Fararstjóri: Sig. A. Magnússon
Ógleymanleg ferð um framandi lönd undir leið-
sögn frábærs fararstjóra.
London — Bombay — Fílahellarnir
Aurangabad — Ellorahofin — Pachora — Ajanta
Dehli — Agra — Taj Mahal — Gwalior -- Varansi
Gangesfljót — Bodh Gaya — Rajgir — Nalanda
Patna — Katmandu í Neapal — Ghatgaon
Calcutta — Bagdogra — Tígrishöfði með útsýni
til Himalayafjalla — Ghoom klaustrið
Darjeeling — Dehli — Bombay — London