Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 29

Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 29 á fjórtánda ári og þó svo hann hafi skroppið í land á milli og stundað ýmis stðrf með fast land undir fót- um í einhver ár, er lífshlaup hans sjómennska, því verður varla mót- mælt. „Ég reri þessa fyrstu vertíð á bát, sem bar hálft tonn. Einu sinni koraum við með 1100 pund af fiski. Þá var þrauthlaðið. Við vorum hæstir í Ogurnesinu, þeirri gömlu verstöð, þetta vor, bæði í afla og hlut, en það fer ekki alltaf saman þó menn gleymi því oft. Þetta var mikil vinna og oft fengum við ekki nema tveggja tíma svefn á sól- arhring. Mín frumraun var sú að róa heiman frá Eyri í ögurnes; sjö tíma lota. Við beittum kræklingi og fórum sjálfir á fjöru, um annað var ekki að ræða.“ Bjarni var síðan á ýmsum bát- um og skipum. 1924 réði hann sig á færaskip frá ísafjarðarkaup- stað, árið 1933 réði hann sig á tog- ara með Kristjáni Kristjánssyni á Andra, síðan Braga, sem Geir Thorsteinsson átti, hann var á norsku skipi og fleiri skip mætti nefna. Af ævintýrum og lífsháska hefur Bjarni persónuleg kynni. Nítján ára gamall tók Bjarni við formennsku á vélbátnum Von frá ísafirði og mörgum skipum hefur hann stjórnað, en smábátapróf tók Bjarni árið 1933. Árið 1947 keypti Bjarni Stíg- anda og reri margar vertíðir með handfæri frá Vestmannaeyjum. Þá voru iðulega Færeyingar með honum og lætur Bjarni vel af sam- skiptum sínum við þá. Bjarni hélt oftast frá Skagaströnd í janúar- mánuði áleiðis til Vestmannaeyja. Hann var gjarnan einn á bátnum á leiðinni suður, skipstjóri, háseti og allt þar á milli. í Reykjavik stoppaði hann iðu- lega í nokkra daga, leit á lífið í borginni og beið Færeyinganna sinna. Eitt sinn er hann gerði slík- an stanz, nánar tiltekið veturinn 1958, hitti Matthías Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, Bjarna að máli og átti samtal við sægarp- inn Ásmund Bjarna Helgason. Fyrirsögn þess var: „Ég vil heldur vera á framfæri Ægis konungs en Eysteins." Við grípum niður í samtalið: „GOTT AÐ HAFA ÆFINGU í AÐ DRAGA LÚÐUNA“ „Ég hitti Ásmund Bjarna nokkrum sinnum á meðan hann dvaldist hér í Reykjavík og beið eftir skipshöfn sinni, Hallgrími Sigurðssyni, Skagstrendingi og þremur Færeyingum. Eru þeir nú allir komnir á handfæraveiðar við Vestmannaeyjar. — Ásmundur Bjarni sagðist hafa keypt Stíg- anda 1947 til þess að stunda á hon- um snurvoð í Húnaflóa en varð að hætta, þegar landhelgin var færð út — Þá varð ég að snúa mér að línuveiðum, en hef stundað lítils háttar færaveiðar á sumrin. Og það get ég sagt þér, að marga lúð- una hef ég dregið vel feita. — Er ekki báturinn orðinn all- gamall, Bjarni? — Ójú, það er hann. En ágætur samt, þó að vélin sé farin að gefa sig. Ég keypti hann á 85 þúsund krónur af Friðriki Guðjónssyni á Siglufirði og þóttist gera ágæt kaup. — Það voru ekki svo litlir pen- ingar í þá daga. Þú hefur auðvitað átt nóg af þeim? — Jú, jú, peninga skorti mig ekki. Ég held það hafi verið 30 krónur í buddunni minni, þegar ég keypti bátinn. — Útgerðin hefur gengið vel? — Hún gekk vel fyrstu árin, meðan okkur var leyft að stunda snurvoðina. Eftir það fór að síga á ógæfuhliðina og nú má ég ekki við miklum skakkaföllum. — Ég gæti trúað, að þú ætlaðir þér að græða á handfæraveiðun- um í vetur? — Ojú, en það er ekki þar með sagt að ég geri það. Þar kemur margt til greina. Éf Færeyingarn- ir verða til dæmis einhverjir kjötrassar, getur olíukostnaðurinn farið upp úr öllu valdi. — Annars þarf ég að fá mér nýja vél í bátinn og hef verið að basla í því. Það er allt hægt að gera, ef maður á pen- inga, hérna megin að minnsta kosti. Nú á ég vél í pöntun. — En hún kostar mikla pen- inga? — Jú, jú, en ég sagðist ekki hafa neinar fjárfúlgur handa milli. Ég sagðist aðeins eiga vél í pöntun. — Hvað kostar slík vél? — Um 200 þúsund krónur með tolli, en tollurinn er algert auka- atriði í samanburði við þá ánægju, sem maður hefur af því að styrkja ríkissjóð. Annars lofuðu þeir, ef ég man rétt, að afnema þessa tolla, en ætli þeir efni það frekar en annað. Ekki dettur mér í hug að ætlast til svo mikils. — Ja, ríkis- styrk? Onei, ég held þeir hafi allir siglt fram hjá minni buddu. Ég er ekki heldur neitt hrifinn af slíkum styrkjum, hef meiri ánægju af því að vera á framfæri Ægis konungs en Eysteins. — En hefur þú ekki fengið lán úr bönkum? — ójú, en stundum reynist það erfitt. Sumir bankastjórarnir eru nefnilega dálítið á eftir tímanum. Þeir hrökkva við ef maður nefnir 10 þúsund krónur og sumir þeirra halda að 1000 krónur séu pen- ingar. Þegar sá gállinn er á þeim, er gott að hafa æfingu í að draga lúðuna. Það getur oft komið sér vel.“ Texti: Ágúst Ingi Jónsson Myndir: Ragnar Axelsson stoð til að leysa þessi mál. Við báðum Jórunni fyrst að segja álit sitt á niðurstöðum kann- ananna. Hún sagði: „Úrslit þess- ara skoðanakannana eru hreint ekki eins slæm og margir álíta. í Hafnarfirði eru það rúmlega 1.200 manns sem óska eftir að hunda- hald verði leyft og í Kópavogi eru það 68 af hundraði sem samþykkja hundahald í einhverri mynd. Þó eru auðvitað margir sem telja sig andvíga hundahaldi í þéttbýli og er ekki við öðru að búast í okkar þjóðfélagi þar sem viðhorf yfir- valda er mjög neikvætt og látlaust hamrað á því sem miður fer eða getur farið. Þetta leiðir til ein- hliða skoðanamyndunar hjá al- menningi, því fólk trúir blint á þessar furðulegu hugmyndir sem hér eru rikjandi viðvíkjandi hundahaldi og reyndar heimilis- dýrahaldi yfirleitt." — Nú er staðreynd Jórunn, að í þessum bæjarfélögum báðum er aragrúi hunda, þrátt fyrir að hundahald sé bannað. Hvað viltu segja um það? „Við skulum aðeins líta á þær forsendur er liggja til þess að bæj- um og sveitafélögum var heimilað að banna eða leyfa hundahald. Það var gert með lögum um hundahald og varnir gegn sulla- veiki frá 1953. Þessar forsendur eru nú löngu brostnar því sulla- veiki hefur verið útrýmt með bættri meðferð sláturúrgangs." — Fjöldi fólks segist vera á móti hundahaldi í þéttbýli hund- anna vegna. Þeim líði best uppi í sveit og að það sé illa gert þeirra vegna að vera með þá í þéttbýli? „Það hefur löngum verið okkur dýraverndunarfólki þyrnir í aug- um að margir þeir, sem telja sig á móti hundahaldi í þéttbýli, segjast vera það af því að þeir séu svo miklir dýravinir. Það hefur auð- vitað ekki við nein rök að styðjast að hundum þurfi að líða verr í þéttbýli en dreifbýli. Hundurinn er elsta húsdýr mannsins. Hann er svo tryggur manninum að hann fylgir honum glaður hvert sem maðurinn flækist. Þegar menn benda á íslensku sveitina sem það eina sæluríki sem hundi sé bjóð- andi sýnir það ótrúlega þröngsýni. Það er þá illa komið fyrir hundum veraldarinnar ef miðað er við hve lítið brot þeirra býr í íslenskri sveit. Nei, það eru allt aðrir hlutir sem gera hundinn hamingjusam- an en búseta hans, og geta þeir hlutir farið úrskeiðis bæði í sveit og borg. Til þess að hundahald sé í lagi þarf þekking og skilningur á þörf- um og eðli hundsins að vera fyrir hendi. Stjórnarmenn í SDÍ hafa farið út á þá braut að halda fyrir- lestra og svara fyrirspurnum í heimahúsum um grundvallar- atriði í hundahaldi og þau réttindi sem „réttlaus" hundaeigandi þrátt fyrir allt hefur. Ég vil nota þetta tækifæri til að benda fólki, sem áhuga hefur á að notfæra sér slíka þjónustu, að hafa samband við okkur." — En hvernig verða þessi mál best leyst í þéttbýli að þínu mati? „Ég á því láni að fagna að búa í Garðabæ og get átt minn hund þar í friði fyrir lögum og mönnum. Þar er hundahald leyft með ákveðnum skilyrðum og þeim fylgt eftir af mjög virkum hundaeftir- litsmanni. Hundahald í Garðabæ er til fyrirmyndar og þau tilfelli þar sem eitthvað fer úrskeiðis mjög fá. Þessi mál verða ekki leyst betur á annan hátt. En í sambandi við slíkar heim- ildir, þá er ég á móti óheyrilega háum sköttum sem lagðir eru á hundaeigendur víða þar sem hundahald er leyft. Það þekkist hvergi annars staðar í heiminum að slíkur refsiskattur sé lagður á fólk, þó það haldi hund. En hunda þarf auðvitað að skrá og tryggja. Einnig þarf að koma á heilsu- gæslu. Þar sem hún er einhver miðast hún við að hundarnir fái lyf gegn bandormi en engar bólu- setningar, ekki einu sinni gegn þeim sjúkdómum sem eru hundum hættulegastir. „Heilsugæzla" dýr- anna miðast sem sagt við að hreinsa þau af ormum er gætu borist í manninn, en ekki við að fyrirbyggja sjúkdóma er gætu lagt dýrið að velli. Þetta sýnir að mínu mati í hnotskurn viðhorf yfirvalda til hunda.“ Jórunn sagði að lokum: „Ég vil að endingu skora á hundaeigendur að gæta dýra sinna vel. Láta hundana ekki ganga lausa og kynna sér rétta meðferð þeirra. Ef lausir hundar heyrðu til algjörra undantekninga og hundar væru ekki bundnir úti langtímum sam- an, gjammandi, stæðu hundaeig- endur ekki í þessum erfiðu sporum í dag.“ — F.P. Hvalveiði í brennidepli Washington, 10. júni. AP. FRAMKVÆMDAKÁÐ Ronald Keagans, Bandaríkjaforseta, lýsti því yfir í gær aA þaA myndi beita þrýstingi á fundi alþjóAa hvalveiAiráAsins í næsta mánuAi, til þess aA banna hvalveiAar í fjáröfiunartilgangi, en talsmaAur friAunarsinna kvartaAi undan því aA framlag Bandaríkjanna til málsins væri „máttlaust". Fulltrúi Bandaríkjanna í Al- þjóðanefndinni, John Byrne, tjáði hins vegar bandarískri þingnefnd að bannkröfunni yrði fylgt eftir. Byrne kvaðst mundu reyna að fá eins marga af nefndarmönnum og hægt væri á sitt band, en bætti því við að það væri ekkert undarlegt að þau lönd, sem mestan hag hefðu af hvalveiðum hertu nú andstöðu sína gegn því, sem að hans mati væri óhjákvæmileg niðurstaða, fyrr eða síðar, þ.e. alþjóðlegt bann við hvalveiðum. Craig van Note, framkvæmda- stjóri Monitor, sem eru samtök hvalfriðunarhópa, segir að banda- rísk stjórnvöld hafa staðið sig slæ- lega á þessum vettvangi og telur frammistöðu þeirra í hróplegu ósamræmi við þann gtfurlega áróð- ur sem Japanir hafa undanfarna mánuði haft í frammi gegn Banda- ríkjunum á þessu sviði. En verði bannið samþykkt, sjá Japanir fram á að verða beittir efnahagslegum refsiaðgerðum, haldi þeir það ekki. Formaður þingnefndarinnar, repúblikaninn Don Bonker, sagði að hvalveiðiþjóðir yrðu að gera sér ljós bandarísk lög um hvalveiðar, ella kynnu þeir að missa réttinn til veiða innan 200 mílna lögsögu N-Ameríku og e.t.v. yrðu einnig afturkölluð innflutningsleyfi þeirra þjóða sem ekki virtu bann við veiðum á búrhvölum og notkun á „köldum" skutlum. Van Note deildi hart á Alþjóða hvalveiðinefndina, m.a. fyrir að láta Sovétmenn komast upp með „rányrkju og skilyrðislaus brot á alþjóðlegum reglugerðum ár eftir ár“. Sem dæmi tók hann Kaliforníu- gráhvelin 179, sem Sovétmönnum er leyft að veiða ár hvert. „Að nafninu til eru þessir hvalir fæða íbúa í nokkrum eskimóaþorpum í Síberíu," sagði Van Noten. En í raun og veru eru þeir aðaluppi- staðan í minkafóðri í geysistórum loðdýrabúum, sem staðsett eru víðs vegar á strönd Síberíu. Minka- skinnin eru síðan seld á Vestur- löndum og afla þannig Rússum gjaldeyris frá þeim löndum sem sum hver leggjast hvað harðast gegn rányrkju á hvalastofninum."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.