Morgunblaðið - 13.06.1982, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
43
ar tónlistar. Hvort sem kórinn
syngur í gregoríönskum stíl elleg-
ar djassættað rokk er sá söngur
aðeins tilbrigði við stef sem frum-
byggjar Afríku syngja við sínar
hátíðir."
Það var sannkallað fagnaðar-
efni, hve fyrri tónleikar Passíu-
kórsins að þessu sinni voru fjöl-
sóttir. Hvert sæti í íþróttaskemm-
unni á Akureyri var setið og eftir-
væntingin leyndi sér ekki. Hafi
einhverjir kviðið því, að hér væri
Roar Kvam að halda út á viðsjála
braut með kórinn, þá hvarf sá
kvíði brátt eins og dögg fyrir sólu.
Óneitanlega var allt með nýjum
brag, en sá bragur var heillandi og
heilsteyptur. Enn sem fyrr kom í
ljós hverjum viljastyrk stjórnand-
inn er gæddur auk ótvíræðra
hæfileika og menntunar. Hann
laðaði fram litríka töfra verksins
og gæddi það helgri reisn. Hlutur
hljóðfæraleikara og einsöngvara
var með ágætum og tæknistjórinn
og hljóðblandarinn, Sigurður Rún-
ar Jónsson, vann frábært verk.
Ætlun mín er alls ekki sú, að rita
hér gagnrýni um tónleikana, enda
alls ekki á mínu færi. Tilgangur-
inn með þessum línum er sá, að
vekja athygli höfuðborgarbúa og
annarra gesta Listahátíðar ’82 á
því tækifæri, sem þeim gefst að
kynnast athyglisverðu og nýstár-
legu verki í Gamla bíói nú í kvöld,
verki sem vel er til vandað. Það
hlýtur að verða markmið þeirra,
sem að hátíðinni standa, að reisn
hennar og áhrifamagn verði í
auknum mæli heimafengin, að
hún sé borin uppi af íslensku fólki
víðs vegar af landinu. Til þess
bendir Listahátíð þessa árs.
Meistarapróf
í heimilis-
lækningum
15. APRÍL sl. vardi Lúðvík Ólafsson
læknir ritgerð til meistaragráðu i
heimilislækningum við University of
Western Ontario, London, Kanada.
Kitgerð hans fjallaði um notkun
hægðalyfja. Lúðvík er fæddur 1944
og lauk stúdentsprófi frá MR 1964
og embættisprófi í læknisfræði frá
lláskóla íslands 1971.
Hann tók kanadíska sérfræði-
prófið í heimilislækningum 1979
og var viðurkenndur sérfræðingur
í heimilislækningum á Islandi
1981. Hann starfar nú við heilsu-
gæslustöðina í Breiðholti og sem
lektor í heimilislækningum við
Háskóla íslands. Foreldrar hans
eru Ólafur Tryggvason læknir og
Anna Lúðvíksdóttir, kona hans.
Hann er kvæntur Hildi Viðars-
dóttur lækni og eiga þau tvö börn.
Stofiifundur Menningarsamtaka Norðlendinga
Þann 18. júní nk. boðar félags- og
menningarmálanefnd Fjórðungs-
sambands Norðlendinga til stofn-
fundar Menningarsamtaka Norö-
lendinga í Stórutjarnarskóla í Ljósa-
vatnsskarði, S-Þing. Hefst fundur-
inn klukkan 13.15 og lýkur samdæg-
urs.
Á síðastliðnum árum hefur fé-
lags- og menningarmálanefnd
Fjórðungssambandsins unnið að
stofnun heildarsamtaka þeirra
sem vinna að menningarmálum á
Norðurlandi. Á það rætur sínar að
rekja til ályktunar Fjórðungs-
þings frá 1979 þar sem nefndinni
var falið „að stuðla að auknum
samskiptum í fjórðungnum, milli
áhugamanna um listir, í þeim til-
gangi m.a. að auðvelda gagn-
kvæmar heimsóknir og kynna
frekar stöðu þessara mála í fjórð-
ungnum." Þá hélt félags- og menn-
ingarmálanefnd ráðstefnu um
samskipti menningaraðila á Norð-
urlandi 6. des. 1980. Ráðstefnan,
sem var fjölmenn og skipuð fólki
víðs vegar að úr fjórðungnum,
samþykkti einróma, að rétt væri
að efna til samtaka um þessi mál.
Á ráðstefnunni var skipuð undir-
búningsnefnd til að vinna að þessu
í samvinnu við félags- og menn-
ingarmálanefndina. í undirbún-
ingsnefndinni eiga sæti: Kristinn
G. Jóhannsson, Akureyri, Njáll
Njálsson, Húsavík, Jón Hlöðver
Askelsson, Akureyri, og örn Ingi
Gíslason, Akureyri.
Sumarið 1981 var á vegum þess-
arar nefndar gerð könnun á að-
stöðu til listiðkunar og menning-
arstarfsemi vítt og breitt um
Norðurland. Ennfremur var kann-
aður vilji manna til stofnunar
heildarsamtaka um þessi mál.
Niðurstaða Arnar Inga, sem gerði
þessa könnun, var sú, að gífurieg-
ur mismunur væri milli listgreina
°g byggðarlaga hvað varðar að-
stöðu og iðkun. Ljóst er að fá-
mennar byggðir eiga mest undir
högg að sækja í þessum efnum.
Síðustu mánuði hefur markvisst
starf farið fram til að undirbúa
stofnun Menningarsamtaka Norð-
lendinga, að nokkru í samvinnu
við þær samstarfsnefndir, sem til-
nefndar voru sl. sumar víðs vegar
um Norðurland, um leið og fyrr-
nefnd könnun var gerð. I því starfi
hefur enn frekar verið staðfest að
stefna beri að þessari samtaka-
stofnun.
Á stofnfundi 18., júní nk., verð-
ur frumvarp til laga um Menning-
arsamtök Norðlendinga tekið til
umræðu og afgreiðslu. Ennfremur
verða umræður í hópum um hlut-
verk og starf væntanlegra menn-
ingarsamtaka. Formaður félags-
og menningarmálanefndar er
Björn Sigurbjörnsson á Blönduósi
og varaformaður Anton V. Jó-
hannsson á Siglufirði.
Vegna ótrúlega hagstæðra samninga við verksmiðjumar getum við nú boðið nýjan Skoda á
59.700
kr.
aðeins
Við fengum ekki nema 200 bíla á þessum vildarkjörum svo nú er um að gera að panta strax
Þetta er tilboð sem talandi er um