Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Hin umdeilda útsetning þjóðsöngsins: Sé ekkert athuga- vert vid þetta — segir Jón Ormur Halldórsson aðstoðar- maður forsætisrádherra ENN ER til athugunar hvort utsetningin a íslenska þjódsöngnum i kvik- myndinni Okkar a milli i hita og þunga dagsins brýtur í bága við lög eða almennt velsæmi. í fyrrakvöld var myndin skoðuð af ýmsum aðilum með tilliti til þessa. Meðal þeirra, sem viðstaddir voru, voru Kristinn llallsson frá menntamálaráðuneytinu, Tómas Karlsson úr utanríkisráðuneytinu, Jón Ormur Halldórssson aðstoðarmaður forsætisráðherra, Jón bórarinsson tónskáld, Stefán íslandi óperusöngvari og fleiri. Máliið hefur verið til athugunar í menntamálaráðuneytinu, sem vísaði því til forsætisráðuneytis- ins til umsagnar, en utanríkisráðuneytið kemur inn í myndina vegna þess að kvikmyndin hefur verið valin til sýninga á norrænu sýningunni Scand- inavia Today í Kandaríkjunum í haust. Atli Heimir Sveinsson formaður Tónskáldafélags íslands er ekki á landinu um þessar mundir og var hann þvi ekki viðstaddur sýninguna. Jón Þórarinsson tónskáld sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði verið búinn að heyra hljómplötu með lögum kvikmyndarinnar, og það að sjá myndina hefði ekki breytt neinu um álit sitt til eða frá. Málið væri til athugunar hjá stjórnvöldum og hann vildi ekki tjá sig um það. Hrafn Gunnlaugsson höfundur myndarinnar sagði í gær í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, að „ég trúi því að hér fái mannleg skynsemi ráðið fremur en para- gröf og pappírar. Svo sannarlega vona ég að hér sé ekki nýtt andlegt Geysisgos eða „heimshneyksli" í uppsiglingu. Það vakir síður en svo fyrir mér að gera lítið úr þessu tónverki. Þetta atriði myndarinn- Drengurinn sem lést DKENGURINN, sem lést sl. mið- vikudag, þegar hann lenti í sláttu- þyrlu við bæinn Syðri-Hamra í Ása- hreppi í Kangárvallasýslu, hét llrafnkell Gislason. Hann var fædd- ur 28. október árið 1969. ar undirstrikar hið gagnstæða, hversu mikinn hlut þjóðsöngurinn á í hjarta hvers manns, miklu meiri en nokkurt annað lag. Það gladdi mig sem Stefán Islandi, hinn mikli listamaður, sagði eftir sýninguna og sagði að hafa mætti eftir sér, að það væri djúp með- aumkvun í þessu atriði myndar- innar. Þetta væri spurning um listrænan skilning og ef þannig væri á málið litið væri ekkert at- hugavert við það.“ Jón Ormur Halldórsson aðstoð- armaður forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að „mér finnst kvikmyndin mjög góð. Senurnar tvær þar sem þjóð- söngurinn kemur við sögu eru nauðsynlegar fyrir skilning minn á myndinni, eins og ég sé hana eru þær nauðsynlegar. Ég sé útaf fyrir sig ekkert athugavert við þetta og með tilliti til myndarinnar sem heildar er það fullkomlega verj- andi að mínu mati.“ Málið er enn til athugunar í menntamálaráðuneytinu sem fyrr segir, og er niðurstöðu trúlega að vænta allra næstu daga, enda verður kvikmynd Hrafns frum- sýnd um heigina. „Eina lausnin að reisa nýja byggingu“ — segir Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli í TILEFNI af samtali sem Morgunblaðið átti í gær við Svein Eiríksson slökkviliðsstjóra á Keflavíkurflugvelli, vegna skýrslu sem hann hefur lagt fram um ástand eldvarna og öryggismála í flugstöðvarbyggingunni á Kefla- víkurflugvelli, þar sem fram kemur að mikið vantar á, að þar sé allt eins og það á að vera, hafði Morgunblaðið samband við Pétur Guðmundsson flug- vallarstjóra og leitaði álits hans á því, sem fram kemur í fréttinni. Pétur sagði: „Ég hef ekki séð skýrsluna og get þar af leiðandi ekki komið með neinar athuga- semdir við hana, en ég hef verið og er í sumarfríi. Slökkvilið flugvall- arins hefur með höndum eftirlit með eldvörnum og gerir sínar at- hugasemdir, sem við reynum að fara eftir, eins og hægt er, en það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að koma við að gera. Ég vil taka það fram að þetta eftirlit hjá slökkviliðinu er mjög strangt, vel að því staðið og það unnið mjög samviskusamlega. Við reynum að gera það sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við þær kröfur sem eldvarnaeftirlitið setur, en byggingin setur okkur takmörk vegna þess hvernig hún er, hún er alls ekki reist fyrir svona um- fangsmikla starfsemi. Það fer ekkert á milli mála, að það er stór- vandamál þarna á ferðinni, bygg- ingin er komin yfir leyfilega há- marksstærð timburhúsa, því við höfum stöðugt þurft að bæta við hana og þetta er illleysanlegt vandamál. Byggingin var tekin í notkun 1948, en þá var nánast ekk- ert farþegaflug, svo að það er ekki nema eðlilegt að þessir vankantar og ágallar komi í ljós. Þetta kemur ekki á óvart, því okkur er full- kunnugt um, að þegar álagið er mest í byggingunni, er þetta nán- ast eins og síld í tunnu. Við höfum alltaf talið að eina færa lausnin væri að byggja nýtt hús og að það borgaði sig ekki að lappa upp á þetta, þar sem við teljum það óframkvæmanlegt. Það var á ár- inu 1968, ef ég man rétt, sem við töldum okkur sjá fyrir þetta ástand, og þá er farið að ræða um að byggja nýja byggingu, það er það langt um liðið. Það er mitt mat að eina lausnin á þessu máli, sé að reisa nýja byggingu og það hefur verið svo frá 1968.“ Ýmsir aðilar hafa að undan- förnu samþykkt ályktanir um, að þegar verði hafist handa um bygg- ingu nýrrar flugstöðvar, þeirra á meðal Ferðamálaráð og Samtök íslenskra ferðaskrifstofa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.