Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
E Hvað ættum við að lesa I
I i E í sumarleyfinu? I
texti JÓHANNA
KHISTJÓNSDÓTTIH
Kndurminningabækur hafa
löngum verið vinsælt lesefni, og þá
ekki aðeins innlendra aðila, heldur
síðustu árin ekki hvað sízt endur-
minningar kvikmyndaleikara, ann-
arra listamanna og stjórnmála-
manna. Nýlega hef ég lesið tvær
kvikmyndakvennabækur, sem eru
að gæðum og skemmtilegheitum
jafn ólíkar og viðkomandi leikkon-
ur báðar.
Lana og Kate
Lana Turner og Katherine
Hepburn hafa báðar getið sér
mikið orð í kvikmyndaheiminum
og hvorug þessara bóka er alveg
ný af nálinni. Bókina um Lönu
Turner skrifa Joe Morella og
Kdward Z. Epstein. Einhverjir
eru væntanlega þeir sem enn
muna Lönu Turner, hún var
kyntákn Hollywood á árunum
upp úr 1940, en eftir að blóminn
fór að fölna hefur hún leikið
nokkur alvöruhlutverk og farizt
það dável úr hendi. Einkalíf
hennar hefur — andstætt við
Katherine Hepburn — jafnan
verið meira í sviðsljósinu en
hæfileikar hennar og hún hefur
gifzt sex eða sjö sinnum og átt
sér ótal elskhuga. Af þeim
ævintýrum er sjálfsagt frægast
ævintýri hennar með smá-
krimmanum Johnny Stompan-
ato sem ung dóttir hennar, Cher-
yl, stakk hnífi fyrir einum tutt-
ugu og fimm árum, með þeim
afleiðingum að hann hafði bana
af. Mikil skrif urðu um þetta
manndráp, bollaleggingar og
vangaveltur og þeir sem dýpstir
voru þóttust hafa eitthvað fyrir
sér í því að Cheryl hefði tekið á
sig sökina: Lana sjálf hefði verið
ódæðismaðurinn. Bókin gengur
ekki út frá öðru en Cheryl hafi
stungið Stompanato og raunar
er sá kafli ekki öðrum fyrirferð-
armeiri í bókinni. Lana Turner
er heldur óviðkunnanleg persóna
í bókinni, en þó kannski umfram
allt afskaplega óraunveruleg það
sem það er. Hið eina, sem les-
andi fær að vita svo að ekki fer
milli mála, er að hún hefur frá
unga aldri haft afskaplega mikla
náttúru til karla. Um manneskj-
una sjálfa að öðru leyti verður
VEJEN TIL
Lagoa Santa
Roman af
Henrik Staiigeni[)
CVU)F.NOAI.
maður ekki mikils vísari.
Bókin Kate er eftir Charles
Higham. Katherine Hepburn er
eins og allir vita einhver sér-
stæðasta og merkasta leikkona
margra síðustu áratuga og hún
hefur um margt einnig haft þá
sérstöðu að standa vörð um
einkaiíf sitt eins og vé. Að vísu
er flestum kunnugt um ljúft og
angurvært ástarævintýri hennar
og Spencer Tracy, en þar er lík-
lega flest upp talið og t.d. hafði
ég ekki hugmynd um að hún
hefði einhvern timann í árdaga
verið í hjónabandi. Höfundurinn
Charles Higham skrifar af mik-
illi nærfærni og aðdáun um líf
Katherine Hepburn og sú mynd
sem af henni fæst er bæði hlý og
manneskjuleg, hugrekki hennar
til að sýna sjálfstæði í gjörðum
sínum alla tíð vekur aðdáun og
baráttu hennar til að ná þeim
árangri sem hún gerði er sögð á
þann hátt að hvergi vottar fyrir
væmni né óeðlilegri upphafn-
ingu. Býsna ánægjuleg bók.
Hver myrti Casanova?
er léttur danskur reyfari eftir
Arne Hartmann. Söguþráðurinn
er í stuttu máli sá að Tony Oxn-
er, listmálari og hænsnaræktar-
frömuður, er drepinn í upphafi
sögunnar. Hann var kvennamað-
ur mikill og líklegt að hann hafi
átt vingott við ýmsar fínar frúr í
nágrenninu, þ.á m. prestsfrúna,
herragarðsfrúna og ýmsar fieiri.
Henrik Sander rannsóknarlög-
reglumaður fer á stúfana ásamt
mönnum sínum og komast þeir
m.a. í kynni við hálfruglaða
nágrannakonu listmálarans, Evu
Jæger, hálfsjötuga dömu, sem er
fyrrverandi kennslukona og
drekkur hvern meðalmann undir
borðið þegar á að fara að fiska
upp úr henni það sem hún veit —
iíklega. Áreynslulaus bók af-
lestrar með húmorsku ívafi.
Höfundurinn Arne Hartmann
var lengst af sjómaður, en hefur
síðustu 20 ár eingöngu unnið við
ritstörf. Sú lausn sem hann fær-
ir okkur í lokin er ekki fráleitari
en hver önnur. Enda þótt þáttur
Evu Jægers sé kannski gerður
óþarflega dularfullur i bókinni
— trúlega til að villa um fyrir
lesendum — er bókin sem sagt
Ijómandi boðleg afþreyingar-
saga.
Vejen til Lagoa Santa
eftir Henrik Stangerup
er kannski ekki beinlínis bók,
sem allir hefðu með sér í sumar-
leyfið, ég verð að viðurkenna að
ég þurfti að taka nokkur tilhlaup
áður en hún gagntók mig, en þá
var líka björninn unninn. Vejen
,til Lagoa Santa var lögð fram
önnur danskra bóka til Norður-
landaráðsverðlauna nú á sl.
vetri. Hér er á ferð þroskasaga
mannsins Peter Wilhelm Lund,
náttúrufræðings, menningar-
saga og ferðalýsing — ailt
þrennt í senn. Ég veit ekki til að
Henrik Stangerup hafi skrifað
sögulega skáldsögu áður en hann
má vel við árangurinn una.
Ungur og metorðasamur vís-
THE NA'nONAL iiESTSEI.EEIi
nw, UFKOV KATH.AKINE HFCBLHN
‘WCtt wmi WKR'Víft' AWD 'R%%$ÍW!fS/Xí'l .
\M > A i 'EKI'LY M< )VING i J >VK STOKY’'
CHAIÍÍJES HIGHAM
KXI’ANDKD WW KDITION
indamaður fer Peter Wilhelm
Lund til Brasiliu og ferðaðist á
árunum upp úr 1820 um landið
þvert og endilangt. Hann gerði
þar margar vísindalegar upp-
götvanir sem síðari tíma sér-
fræðingar hafa notið góðs af.
Lund hlaut óumdeilanlega viður-
kenningu fyrir verk sín á þeim
tíma, en í miðju starfinu varð
hann gripinn þunglyndi og hug-
sýki, settist að í bænum Lagoa
Santa og bjó þar unz hann lést
79 ára að aldri.
Menn velta fyrir sér hver voru
örlög þessa manns. Henrik
Stangerup hefur safnað að sér
öllum tiltækum heimildum um
hann, bæði bréfum og ferðalýs-
ingum og rannsóknum. Enn lifir
goðsögnin um hann og manna á
meðal var hann kallaður „Hvíti
kögglasafnarinn". Henrik Stang-
erup reynir að gefa svarið i
formi þessarar skáldsögu —
skáldsögu um hinn klassíska
Norður-Evrópubúa sem er gagn-
tekinn af hugsuninni um að setja
í kerfi menningu kynblend-
inganna í Brasilíu.
Vejen til Lagoa Santa er skrif-
uð af yfirgripsmikilli þekkingu
og lipurð og vekur ekki undrun
þótt þessi bók hafi vakið mikla
athygli og þyki sýna alveg nýjar
hliðar á bókmenntaiðju Henrik
Stangerup. Hvort lausnin, sem
hann kemst að varðandi Lund, er
kórrétt er kannski ekki kjarni
málsins. En hún gæti allténd
verið það.
12418
Opiö 12—17
í dag
KRUMMAHÓLAR
Góö 2ja herb. ca. 55 Im íbúö.
BRÆÐRABORGAR-
STÍGUR
Stórglæsileg sem ný 3ja herb.
íbúö á 1. hasö. JP-innréttingar.
Góö teppi. Sér hiti. Litað gler.
2 svalir, 2 geymsluherb., bíl-
skúr. Frágengin löð.
VATNSSTIGUR
Góö 4ra herb. íbúö í steinhúsi
(lítll). Ekkert áhvílandi. Hag-
stætt verö.
LAUGARNESVEGUR
Góð 5—6 herb. íbúö í blokk.
HAFNARFJÖRÐUR
4ra—5 herb. sér hæö í tvíbýl-
ishúsi. Góð eign. Bilskúrsréttur.
TJARNARBÓL
Vönduð 6 herb. ca. 140 fm íbúö
á 2. haBÖ. Góö sameign.
Skemmtileg fullfrágengin lóð.
TÚNGATA
Mjög gott parhús tsspir 200 fm.
Kjallari og tvsar hæöir. Falleg-
ur garöur. Bílskúrsréttur. Vel
staðsett eign. Ákveöin sala.
Fasteignir sf.
Tjarnargötu 10B, 2. h.
FriSrik Sjgurbjörnsson, Mtgm.
Friðbert Njslsson. söiumsdur.
Kvöldsími 12460.
Ágúst Guömundsson sölum.
Helgi H. Jónsson viöskiptafr.
Opiö 1—3
í dag
Bergstaðastræti
Góö einstaklingsíbúö. Verö 500
þús.
Hlíðarvegur Kóp.
3ja herb. ibúð.Verö 670 þús.
Krummahólar
3ja herb. 90 fm íbúö á 6. hæö í
lyftuhúsi. Gott útsýni. Verð 900
þús. Laus, samkomulag.
Vesturberg
3ja herb. 85 fm íbúö á 7. hæö í
lyftuhúsi. Verö 870 þús.
Engihjalli
3ja herb. 95 fm íbúö á 5. hæö.
Verö 900 þús.
Kóngsbakki
4ra herb. 110 fm íbúö á 3. hæö.
Verð 1050 þús. Laus samkomu-
lag.
Sæviöarsund
120 fm efri sérhæö. Bílskúr.
Verö 1700 þús.
Arnartangi Mos.
100 fm vlölagasjóöshús á einni
hæö. Bein sala. Verö 1100 þús.
Laus samkomulag.
Granaskjól
Fokhelt einbýlishús fæst í skipt-
um fyrir einbýlishús vestan
Elliöaáa.
Heimasími aölumanns:
Ágúst 41102.
43466
Barmahlíð — 3ja herb.
90 fm risíbúö í þríbýlishúsi.
Laus strax.
Hraunstígur Hf.
3ja herb. björt risíbúö. Laus
fljótiega.
Kópavogsbraut—
3ja herb.
70 fm björt kjallaraibúö. Laus
fljótlega.
Miöstræti — tvær íbúöir
Tvær samliggjandl rlsibúölr.
Lausar strax.
Glæsilegt einbýlishús
á Arnarnesi
Höfum fenglö til sölu glæsilegt einbýlishús á 2 hæöum, samtals um
400 fm. Tvöf. bílskúr. Vandaöar innréttingar. Fallegur stór garöur.
Mikiö útsýni. Bein sala. Einnig kæmu skipti á sérhæö í Rvík eöa
raöhúsi og einbýlishúsi í Garöabæ vel til greina. Teikningar og
frekari upplýslngar á skrifstofunni (ekki í sfma).
EKnmraÐLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
Engjasel —
3ja—4ra herb.
100 fm glæsileg íbúö á 4 hæö.
Bilskýli. Mlklö útsyni.
Birkihvammur —
sérhæó
3ja herb. sérhæö ásamt 30 fm
bílskúr. Laus í okt.
Arnarnes
einbýlishús
Hjaliabraut Hf.
6 herb. 147 fm í fjölbýlishúsi.
Laus fljótfega.
Nýbýlavegur — sérhæö
140 fm míöhæö í tvíbýlishúsi
ásamt bfiskúr. Laus fljótlega.
Einbýli Kópavogur
140 fm einbýlíshús á einni hæö
ásamt 30 fm bílskúr. Laus fljót-
lega.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf
Hsmrsborg l 200 Kópavogwr Slmat 4346« 6 43*05
150 fm fallegt einbýlishús á einum besta staö á Arn-
arnesi. Húsiö er ekki alveg fullbúiö. Verð 1,9 millj.
Opiö 1—3
FASTEIGNA
HÖLUN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Sölum: Jóhann Hálfdanarson,
Vilhjálmur Einarsson,
Þórólfur Kristján Beck hrl.
............... s'S'i'Trj.' j u'i. J
MIÐBÆR-HÁALEITISBRAUT 58-60
SÍMAR-35300&35301