Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 5
i
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
Úr myndaflokknum um Jóhann Kristófer.
Sjónvarp kl. 21.50 í kvöld:
Fyrsti þáttur framhalds-
myndaflokksins um
Jóhann Kristófer
Á dagskrá sjónvarps kl.
21.30 í kvöld er fyrsti þáttur
myndaflokksins „Jóhann
Kristófer" sem er byggður á
samnefndri sögu eftir Romain
Rolland. Myndaflokkurinn er í
níu þáttum.
Sagan hefst árið 1880 við
ána Rín. Jóhann Kristófer er
af tónlistarfólki kominn, og
sjálfur lærir hann að leika á
píanó. Faðir hans er drykk-
felldur og sviptir sig lífi. Jó-
hann Kristófer tekur á sig
ábyrgð og skyldur fjölskyldu-
föðurins.
Þýðandi er Sigfús Daðason.
Hljóövarp kl. 13.20:
Arnþrúdur KsrlsdóUir
Hægt að bregða
sér á þjóðhátíð
í huganum
Á dagskrá hljóðvarps kl. 13.20 í
dag er „Á þjóðhátíð í Eyjum",
þáttur í umsjá Arnþrúðar Karls-
dóttur. Arnþrúður lýsti þættinum
með eftirfarandi orðum: „Þetta er
40 mínútna þáttur sem fjallar,
eins og nafnið bendir til, um þjóð-
hátíðina í Vestmannaeyjum. Það
verða ýmsir Vestmanneyingar
sem segja okkur eitt og annað í
sambandi við þjóðhátíðina, þann-
ig að við ættum að geta brugðið
okkur á þjóðhátíð a.m.k. í hugan-
um. T.d. getum við tekið lagið því
það fer hvert lagið á fætur öðru á
fóninn og alveg örugglega lög sem
mikið hafa heyrst á þjóðhátíðum
fyrri ára.“
Hljóövarp kl. 10.25:
Sagt frá björgun flug-
vélaráhafnar sem týnd-
ist á Vatnajökli árið 1950
Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25 í
dag er þátturinn „Út og suður" í
umsjá Friðriks Páls Jónssonar.
Sagði Friðrik Páll að þetta væri
fyrri þátturinn af tveimur þar
sem Þorsteinn Svanlaugsson á
Akureyri segir frá björgun áhafn-
ar millilandaflugvélar Loftleiða,
„Geysis", sem týndist 14. sept-
ember 1950 og fannst fjórum dög-
um síðar, þ.e. 18. september. „Þá
bárust þau gleðitíðindi að flugvél-
in hefði sést á norðanverðum
Vatnajökli og áhöfnin á ferli við
flakið," sagði Friðrik Páll. „Þor-
steinn Svanlaugsson var í hópi
leiðangursmannanna sem lögðu af
stað frá Akureyri 18. september
og tókst þeim að bjarga fólkinu af
jöklinum. Áður hafði bandarísk
skíðaflugvél reynt að bjarga fólk-
inu en ekki komist á loft aftur og
þurftu leiðangursmennirnir því
að bjarga áhöfnum beggja vél-
anna.
Frásögnin í fyrri þættinum
endar uppi á jöklinum þegar þeir
Þorsteinn og félagar eru í þann
mund að leggja af stað til byggða
með fólkið. En þó er síðari hluti,
frásagnarinnar sem verður á
sunnudaginn kemur og sem segir
frá heimferðinni af jöklinum,
jafnvel ennþá meira spennandi,"
sagði Friðrik Páll að lokum.
Friðrik Páll Jónsson fréttamaður.
Orlof aldraöra
23. september Grikkland. Örfá
sæti laus.
2. september Portoroz. Biölisti.
3. vikna feröir, dvöl á hóteli
meö hálfu fæöi. Fararstjóri:
Ásthildur Pétursdóttir.
Portoroz
12. ágúst 3 sæti laus
2. september biölisti
Grikkland
12. ágúst 3 sæti laus
2. september biölisti
Toronto
16. ágúst örfá sæti laus
26. ágúst örfá sæti laus
Rimini
19. ágúst biðlisti
30. ágúst örfá sæti laus
Sumarhús í Danmörku
13. ágúst biðlisti
20. ágúst Karrebæksminde í 1
eöa 2 vikur
27. ágúst Karrebæksminde í 2
vikur
Kaupmannahöfn flug og bíll
13. ágúst 4 sæti laus
20. ágúst örfá sæti laus
27. ágúst örfá sæti laus
Amsterdam
Flug og bíll, verö frá 4.000,-
Flug og hótel í 4 daga. Verö frá
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
á Islandi Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 38772.
honda hefur aflað sér alþjóöaviöurkenningar
vegna frábærrar hönnunar, tæknilegrar yfirburða
og sérstakrar sparneytni í akstri.
honda er 5 gíra eöa sjálfskipt meö „over-
drive“ og aflstýri.
honda framhjóladrif, sjálfstæð fjöörun á öll-
um hjólum og tannstangarstýri er trygging fyrir
öruggum akstri.
A HONDA
ÆCORD
honda bifreiöir eru hannaðar með eftirfarandi
í huga:
Fagurt útlit.
Vandaöan frágang.
Trausta yfirbyggingu.
Sparneytna vél.
Þessir eiginleikar eru hróöur honda og
einmitt þaö sem eykur traust eigandans.
Kynnist sjálf hvaö honda býöur.
Verö frá kr. 157.000.—
(gengl 27.7. '82).