Morgunblaðið - 08.08.1982, Page 26

Morgunblaðið - 08.08.1982, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Eilífðar- vélar Fjölmargir eru þeir sem i gegnum tiöina hafa tekið ser fyrir hendur að reyna að smíða svokallaðar eilífðarvélar. Hér áður fyrr var því almennt trúað að ekki þyrfti neitt að vera því til fyrirstöðu að slík maskína gæti oröið að raunveruleika. Og jafnvel enn í dag eru til svo miklir bjarLsýnismenn, að þeir leggja heilann í bleyti við að leysa þetta verkefni, sem samkvæmt orkulögmálinu er órökrétt og óframkvæmanlegt. I>ær kröfur eru nefnilega gerðar til eilífðarvélar, eða perpetuum mobile eins hún nefnist á latínu, að hún geti snúist undir álagi án þess að taka til sin orku í nokkurri mynd. Engin furða er þótt það hafi vafist fyrir mönnum að smíða slíka vél, en ómæld andleg orka hefur verið lög í bollaleggingar og tilraunir viö að leysa þessa þrant. I*á hefur það komið fyrir að menn hafa orðið svo bjartsýnir á hugmyndir sínar varðandi einhverja tiltekna gerð af eilífðarvél, að þeir hafa sótt um einkaleyfi á þeim. A.m.k. ein slík einkaleyfisum- sókn hefur verið lögð fram hér á landi, en ófært mun hafa þótt að veita það einkaleyfi — af skiljanlegum ástæðum. Jón Mýrdal og l'orsteinn á Kjörvogi Á öldinni sem leið munu menn hafa verið mun bjartsýnni á ei- lífðarvélar en þeir eru nú og hef- ur þekkingarskortur á orku- lögmáli eðlisfræðinnar sennilega búið að baki þessu jákvæða hug- arfari. Hér á landi sem annars staðar voru menn sem reyndu að leysa þetta verkefni í fullri al- vöru. Mun Jón Mýrdal skáld (1825—1899) hafa verið einn þeirra, en hann var smiður og kunni margt fyrir sér. Brösulega hefur honum þó gengið að koma saman eilífðarvélinni sem öðr- um, því samkvæmt munnmælum á hann að hafa leitað ráða og fulltingis hugvitsmannsins Þorsteins á Kjörvogi um smíð- ina. Þorsteinn Þorleifsson (1824—1882) bjó lengst af á Kjörvogi við Reykjarfjörð á Ströndum og er jafnan kenndur við þann stað. Hann var völund- ur á járn og tré, og einhver mesti hugvitsmaður sinnar samtíðar. „Hann smíðaði fyrstur bátavind- ur á Ströndum, hann smíðaði jafnt kaffikvarnir sem fæðingar- tengur, og hann sinnti lækning- um og sat yfir konum, þegar í nauðir rak í læknisleysinu. Veð- urglöggur var hann með afbrigð- um, og það orð lagðist á, að hann væri forvitri sem Njáll,“ segir í þætti um Þorstein eftir Jón Helgason ritstjóra, en þátturinn birtist í 1. bindi bókaflokksins „íslenzkt mannlíf". Svo mikla trú höfðu menn á Þorsteini, að þeir töldu víst að hann gæti smíðað eilífðarvél væri það á annað borð unnt, og urðu margir til að hvetja hann til að spreyta sig á þessu verk- efni. Þorsteinn var hins vegar það fróður og athugull að hann gerði sér ljóst að ómögulegt væri að smíða vél, sem gengi af sjálfri sér, án aflgjafa. En viðfangsefn- ið heillaði hann engu að síður — um það vitnar bréf sem hann skrifar Jóni forseta Sigurðssyni 1875, en sá kafli bréfsins sem fjallar um eilífðarvélina er á þessa leið Segulaflsvél Þorsteins á Kjörvogi „... Ég nú í undanfarin 34 ár fengist við járnsmíði og haft mikið gaman af að hugsa um ýmsa hluti, er að smíðum lýtur. Nokkrir menn hafa skorað á mig að leggja hugann að þeirri, fyrir mér svokölluðu, eilífu maskínu, er gengið gæti með þeim kraftl, er henni væri frá fyrstu hendi afmældur, án annars kostnaðar en endurbóta af sliti. Ég hef mjög lítið fengizt við þetta, því mér finnst það vera A Sir William Congreve (1772—1828) reyndi að smíða eilífðarvél er skyldi hagnýta hárpípukraftinn. Byggðist eilífðarvél þessi á reim úr svampi, abcd á myndinni, en utanum hana var önnur reim úr þungu efnr, sem skyldi pressa vatnið út úr svampreiminni á vegalengdinni AD. Þessi tvöfalda reim lá á þrem hjólum en u.þ.b. helmingur hennar var niðri i vatni. Hárpípu krafturinn dregur vatn upp í svampreimina á vegalengdinni AB, en þsð getur ekki gerst á AD hluta reimarinnar þar sem þungi ytri reimarinnar pressar vatnið út. Sir Congreve taldi þvi að með þessum útbúnaði yrði hluti AB alltaf þyngri en hluti AD, og myndi þvi reimin skríða áfram af sjálfri sér og snúa hjólunum þremur. Hjólin tvö á myndinni áttu að vera eilífðarvélar — áttu að snúast sjálfkrafa og án þess að nokkuð utanaðkomandi afl annað en aðdráttarkraftur jarðar kæmi til. Á vinstra hjólinu eru stengur með lóðum á endunum. Þær eru á hjörum og geta slegizt út til annarrar hliðarinnar. Aleiðingin er sú, að lóðin hægra megin eru lengra frá snúningsásunum en þau lóð sem eru vinstra megin — hefur uppfinningamaðurinn litið svo á að þess vegna hlyti hjólið að snúast og borið fyrir sig vogarstangarregluna. í hjólinu hægra megin eru kúlur, er geta runnið eftir brautum, sem hafa þá lögun að kúlurnar hægra megin velta lengra frá snúningsásnum en þær sem eru hægra raegin — þetta hjól átti því að snúast af sjálfu sér af sömu ástæðu og hitt. En hvorugt hjólið snýst! eitt af því ómögulega, þegar ég þó undantek tvo hluti, sem þetta kynnu að afreka. Það annað er skorsteinn eða strompur svo hár, að loftþyngdarmismunurinn frá neðra opi hans og upp að hinu efra yrði svo sterkur sem með þyrfti, en fyrir því hef ég enga sönnun. En annan kraft hefur mér nýlega komið til hugar að nota, og er það segulaflið. En þegar ég fór að lesa um það í eðlisfræðinni, sá ég, að það hefur lítið skertan kraft, þó borið sé á milli þess og járnsins tré, látúm, silfur, eir eða horn, og yfirhöfuð þeir hlutir, sem ég hef föng á að reyna. Nú er því spurningin, hvort það sé enginn sá hlutur til, sem renna mætti milli stálsins og járnsins, en hefði þann eigin- leika, að segullinn gæti ekki verkað gegnum hann eða út fyrir hann, því væri þessi hlutur til, mætti búa til vél, er stöðugt gengi með jöfnum krafti, ef seg- ullinn dofnaði ekki, og liggur sú hugmynd ljóst fyrir mér, því ég er búinn að teikna hana. „Eins og á glíöara í gufuvél“ Ég veit vel, að þér verðið að hafa talsvert fyrir þessu, en ég vil fúslega borga yður fyrirhöfn yðar. En máske hugmynd mín sé hégómi einn og hafi ekkert við að styðjast, og bið ég yður þá að gera svo vel að skrifa mér það. En skyldi nú einhver sá hlutur vera til, sem gæti gert áður- nefnda verkun — hann má ekki vera mjög þykkur, því fjarlægð- in minnkar kraft segulsins —, þá bið ég yður enn fremur að útvega mér tvær dálitlar segulhlöður, sem hefðu hér um bil fjögurra punda kraft hvor, og þar með þennan hlut, ef hann er til, og þarf þá að vera svo mikið af hon- um, að ég fái í tvær plötur, sem ég ætlast til, að hlaupi á milli seglanna á víxl og loki þannig öðrum kraftinum, um leið og opnast fyrir hinum, eins og á glíðara í gufuvél...“ Ekki er vitað hverju Jón Sig- urðsson svaraði bréfinu, né hvort hann hefur getað veitt Þorsteini nokkra úrlausn i þessu máli. Sjálfur átti Þorsteinn ekki langt eftir ólifað þegar hann skrifaði bréfið, því hann fórst sjö árum síðar í sjóslysi á Húna- flóa. Samantekt: Bragi Óskarsson smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Til sölu gullfallegt málverk eftir Sverri Haraldsson, málað 1971. Stærð 140x90. Upplýsingar í síma 22719. Óvenjufalleg sérsmiðuð J P -eldhúsinnrétting (notuö. lamel. antikgler) til sölu ásamt Electrolux eldavél. viflu og Ivöföldum stálvaski. Einnig nýjar sturtugræjur (hitastillir), notaðar innihuröir. skáphurðir, gólfteppi, lampar og húsgögn (hálfviröi eða ódýrara). Simi 45198. Hey til sölu Vélbundiö hey til sölu. Uppl. í síma 93-4111 beöiö um Geirmundastaöi. húsnæöi óskast Sjúkraliða Vantar íbúö 2ja—3ja herb., get- ur veitt heimilisaöstoð. Upplýs- ingar i síma 31447. Einhleyp kona ,á miö)um aldri óskar eftir aö taka á leigu litla ibúð. Reglusemi og góöri umgengni heitiö. Uppl. i síma 10925. Ung kennarahjón meö eitt barn óska eftir aö leigja. 3ja herb. íbúö i Reykjavík. Má I þarfnast viöhalds. Fyrirfram- greiösla ef óskaö er. Uppl. í sima 39004 eöa 20973. Utanbæjarmaður óskar eftir aö taka á leigu íbúö sem næst miöbænum. Meömæli frá fyrri leigusölum. Upplýsingar í sima 18114. þjónusta ^ .._j Húsráöendur Nafnskilti á póstkassa og úti- og innihuröir. Sendum um land allt. Skilti & Ljósrit, Hverfisgötu 41. Sími 23520. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferðir sunnudaginn 8. ágúst. 1. kl 08 00 Bláfell á Bláfellshálsi. Verö kr. 200 - 2. kl. 13.00 Hvalfjaröareyri (fjöruferö). Verö kr. 100 - Fariö frá Umferöamiöstööinni, austanmegin. Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna. Farmiöar v/bil. Feröafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Sumarleyfisferðir: 1. 13.—18. ágúst (6 dagar): Landmannalaugar — Þórs- mörk. Gönguferö meö svefn- poka og nesti. Gengiö milli sæluhúsa. 2. 14.—18. ágúst (5 dagar): Barkárdalur — Tungna- hryggur — Skíöadalur Svarf- aöadalur. Flogiö til og frá Akureyri. Gönguferö meö viöleguútbúnaöi (tjöld). 3. 19.—23. ágúst (5 dagar): Höröudalur — Hítardalur — Þórarinsdalur — Hreöavatn. Gönguferö meö viöleguútbún- aö (tjöld). 4.26.-29. ágúst (4 dagar): Noröur fyrir Hofsjökul. 5. Berjaferö um mánaöarmótin ágúst—sept. Nánar augl. síö- Ráölegt er aö leita upplýsinga á skrifstofunni, Öldugötu 3 og tryggja sér farmiöa tímanlega. Feröafélag Islands. Hörgshlíð 12 Samkoma i kvöld kl. 8. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík I dag, sunnudag, veröur almenn samkoma kl. 11.00. Veriö velkomin. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Helgarferðir, 13.—15. ágúst: 1 Tindafjallajökull — Gist í tjöldum/húsum. 2. Alftavatn á Fjallabaksleiö syöri. Gist i húsi. 3. Þórsmörk. Skoðunarferöir um Mörkina. Gist i húsi. 4. Landmannalaugar — Eldgjá. Gist i húsi. 5. Hveravellir — Þjófadalir. Gist í húsi. Fariö í allar feröirnar kl. 20.00 föstudag. Farmiöasala og allar upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Feröafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Miövikud. 11. ágúst: Kl. 08.00 Þórsmörk. Aðeins 3 miövikudagsferöir eftir á þessu sumri, notiö tækifæriö og dveljiö 'A viku í Þórsmörk. Feröafélag íslands. Hjálpræðisherinn i kvöld kl. 20.00 bæn, kl. 20.30 samkoma. Laut Miriam Óskars- dóttir og fleiri stjórna og tala. Velkomin. Kristniboðsfélag Karla í Reykajvík Fundur veröur í Kristniboöshús- inu Betaníu, Laufásvegi 13, mánudagskvöldiö 9. ágúst kl. 20.30. Allir karlmenn velkomnir. Stjórnin. Krossinn Almenn samkoma i dag kl. 16.30 aö Alfhólsvegi 32 Kóp. Willy Hansen Jnr. talar og syngur. All- ir hjartanlega velkomnlr. Fíladelfía Safnaöarguösþjónusta kl. 14.00. Almenn guösþjónusta kl. 20.00. Ræöumaöur John Peterson frá USA. Fórn fyrir kristniboöiö. Organisti Árni Arinbjarnarson. Fjölskyldudagur KFUM og K viö Holtaveg er i dag kl. 14.00. Utileikir, veitíngar og samveru- stund. Fjölmennum og tökum gesti meö. íl UTIVISTARFERÐIR Dagsferöir sunnudaginn 8. égúst: 1. Þórsmörk. Brottför kl. 8.00. Verö kr. 250. 2. Herdisarvík — Selvogur — Strandakirkja. Brottför kl. 13.00. Verö kr. 150. Brottför frá BSÍ bensinsölu. Frítt f. börn m. fullorönum nema f Þórsmörk greiðist hálft gjald fyrir 7—15 ára. Sumarleyfisferöir: 1. Eldgjá Hvannagil. 11.-15. ágúst. 5 daga bakpokaferö um nýjar slóölr. Fararstj. Hermann Valsson. 2. Gljúfurleit — Þjórsárver — Arnarfell hió mikla. 17.—22. ágúst. 6 dagar. Fararstj. Höröur Kristinsson. 3. Laugar — Þórsmörk. 18,—22.ágúst. 5 daga bakpoka- ferö. Fararstjóri Gunnar Gunn- arsson. 4. Sunnan Langjökuls. 21,—25. ágúst. 5 daga bak- pokaferö 5. Arnarvatnsheiöi. 6 daga hestaferðir. Fullt fæði og útbún- aöur. Brottför alla laugardaga. Uppl. og farseölar á skrifst. Lækjargötu 6a, s. 14606. SJÁUMST. Feröafélagiö Utlvist. AUCLVSINOASÍMfNN ER: 522480 IMtrgunbUibíb I • i« • • ■ • ■ • ■ •

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.