Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 30

Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Máiverk þetta sýnir eWgöngu 40 Brahmína sem fram fór f Indlandi 1912 til skemmtunar evrópsku valdhöfunum. Þeir bera helga gripi til að auka ónæmi sitt fyrir eldi og hita. „Fakírinn" Jatoo Bhai frá Calcutta dansar {eldi án þess að kippa sér upp við hitann — klæði hans virðast einnig ónæm fyrir eldi. Eldganga Geta menn orðið ónæmir fyrir hita? „.. .Periya pujari veður fram að eldinum. Hann tekur ofan þetta kynlega höfuð- fat sitt, líkneski gyðjunnar, lyftir öðrum fæti eins og hann ætli að stíga út í glóðina, en hikar við og hefur yfir bænir um stund. Síðan stígur hann út á eldinn. Hann hraðar sér ekki neitt. í miðri eldgröfinni nemur hann staðar um stund, beygir sig niður, fer höndum um glóðina og tekur upp glóandi eimyrjuna og hendir í loft upp. Um leið gefur hann frá sér hljóð, sem ekki virðist geta komið úr nokkrum mennskum barka. Hann gengur síðan eldþróna á enda, snýr við aftur og kemur sömu leið líkt og hann gengi á mjúku flosteppi. Hann hefur vígt eldinn. Nú getur hver, sem vill, gengið til altaris Maríönnu. Þessi gamli, sinaberi maður er með öllu óskaddaður eftir þessa eldraun. Hann er aðeins móður og dasaður. Nú ganga hofmeyjarnar ein af annarri. Þær halda á rís, tákni frjóseminnar, í hendinni. Þær Kanga allar yfir með róleKum en þó léttum ok ákveðnum skrefum. Enga þeirra sakar neitt. Áhorfendum er einnig boðin þátttaka. Ung móðir með korna- barn á armi stendur skyndilega upp og leggur barnið frá sér. Hún Kenjíur eldinn. Fætur hennar eru með öllu óbrenndir. Skömmu síðar fer ttamall maður yfir eldinn og sakar ekki. Maður er farinn að halda, að þessi eldur brenni ekki. Hávaxinn maður með harðan og einbeittan svip stígur út í glóðina en hrökklast jafnskjótt út af henni aftur. Það blæðir úr fótum hans. Eins fer fyrir tveimur þeim næstu. Fleiri reyna ekki. Gyðjan Maríanna veitir ekki öllum bless- un sína. „Hvernig er þetta gert?“ spurði ég Motley á heimleiðinni. „Það þarf að lyfta öðrum fætin- um fram fyrir hinn“, svaraði hann spaklega. „Þetta geta allir. Jafnvel þeir á Norður-Indlandi. Ég hef heyrt um mann þar, Swami Swan- and hét hann, sem gat látið hvern sem var ganga eld. Ég á mynd af því heima hjá mér.“ „Hefur þú reynt?“ spurði ég. „Nei, þeir hálfsvelta sig vikum og mánuðum saman á undan eld- göngunni og lifa meinlætalífi." „Eg skil,“ sagði ég. „Gangið þíð eld á íslandi, shab?“ spu'rði Motley. „Nei,“ sagði ég. „Ekki einu sinni prestarnir?" „Nei.“ Motley hristi höfuðið. „Þið eruð heiðingjar,“ sagði hann, spýtti rauðu og fékk sér aðra pan- tuggu...“ Þannig segir Gunnar Dal, skáld, frá eldgöngu er hann varð vitni að í Indlandi, og birtist frásögnin í bókaflokknum „Því gleymi ég aldrei". Eldtraust fólk Eldganga hefur verið tíðkuð víða um heim, sérstaklega meðal frumstæðra þjóða og er þá oft einskonar hreinsunarathöfn. Hlið- stæður siður tíðkaðist reyndar hér á Norðurlöndum til forna — að menn báru glóandi járn til að sanna sakleysi sitt. Fræg er sú saga er Grettir sterki skyldi bera járn í Noregi til að sanna sakleysi sitt af brennu Þórissona, en um þetta segir í Grettis sögu: „Ólafur konungr mælti þá: ‘Unna viljum vér þér at bera járn fyrir þetta mál, ef þér verðr þess auðit’. Gretti líkaði þat allvel. Tók hann nú at fasta til járnsins, ok leið til þess, er sá dagr kom, er skírslan skyldi fram fara. Þá gekk konungr til kirkju og byskup ok fjöldi fólks, því at mörgum var forvitni á at sjá Gretti, svá mikit sem af honum var sagt. Síðan var Grettir til kirkju leiddr ...“ Nú á tímum draga menn það hins vegar mjög í efa að menn geti vaðið eld eða borði glóandi jám án Gunnar Dal. þess að hljóta brunasár, hvort sem þeir eru sekir eða saklausir, eða hvernig sem hugarfari þeirra er yfirleitt háttað. Sögur af eldgöngu , eins og sú sem birt er hér að framan, vekja þá spurningu hvernig fólk komist hjá því að hljóta brunasár er það gengur á glóðum og glóandi grjóti, og hand- leikur jafnframt hvort tveggja. Sumir sem um þessi mál hafa skrifað fullyrða að þetta séu prett- ir einir og sjálfsefjun, en aðrir hailast að dulrænum eða yfirskilvitlegum skýringum. Evrópumenn vaða eld í Pólynesíu Um miðjan tíunda áratug nítj- ándu aldar ákváðu nýsjálenskur embættismaður, Gudgeon að nafni, og vinur hans, læknirinn Hocklen, að komast að því hvað væri hæft í eldgöngusögum einu sinni fyrir allt. Þeir horfðu van- trúaðir á mikla eldgöngu í Póly- nesíu ásamt nokkrum félögum sínum, en þarlendum töframaður stóð fyrir athöfninni. Hann skor- aði á þá að viðurkenna mátt „mönu“ sinnar — eða orku — og vaða eldinn sjálfir. Þeir félagar tóku áskoruninni. Gudgeon hafði vissulega sínar efasemdir er hann nálgaðist eldgryfjuna. „Ég hafði það á til- finningunni," skrifaði hann síðar, „að skinnið myndi stikna af fótum mínum.“ Hann sakaði þó ekki hið minnsta í eldinum, en einn þeirra félaga „sem leit aftur eins og kona Lots“, en það hafði töframaðurinn bannað, hlaut alvarleg brunasár. Þegar Hocken læknir hafði Iokið eldgöngu sinni hóf hann þegar nákvæmt rannsóknarstarf. Hann hafði haft meðferðis hitamæli sem gat mælt allt að 205 gráður á Celsíus, og var hann hengdur í tveggja metra hæð yfir eldgryfj- una. Kvikasilfrið þaut upp kvarð- ann og hefði mælirinn sprungið ef lóðning hefði ekki gefið sig, eftir því sem Hocken sagði síðar. Þá grandskoðaði hann fætur hinna innfæddu en fann hvergi votta fyrir brunasárum. Hann skóf fæt- Andstæðingar. Edward Clodd (til vinsíri) taldi eldgöngur byggjast á ómerki- legum brögðum. Andrew Lang (til hægri) bað hann staðfesta kenningu sína persónulega með eldgöngu, en Clodd kærði sig ekki um það.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.