Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
31
ur nokkurra í því skyni að leyta að
efni sem hugsanlega verndaði þá
fyrir hita en fann engin merki um
neitt slíkt efni. Niðurstaða hans
var á þá leið að óhugsandi væri að
nokkur brögð hefðu verið notuð
við eldgönguna.
Þræta Clodds
og Langs
Þrátt fyrir hina vísindalegu
rannsókn Hockens læknis vildu
ekki allir fallast á niðurstöðu
hans. E. Clodd, virtur þjóðhátta-
fræðimaður, talaði t.d. í niðurlæg-
ingartón um eldgöngusögur í ræðu
sem hann flutti 1895 og prentuð
var. „Þetta eru ekki annað en
blekkingar og svik,“ sagði hann,
„Ég þykist vita hvernig þeir fara
að þessu. Það vita allir að iljar
fólks sem gengur berfætt dags
daglega verða þykkar og sigggrón-
ar, sem gerir því mögulegt að þola
hita sem við myndum ekki þola þó
við værum í stígvélum." Þá benti
hann á að hugsanlega hefðu fætur
eldgöngumanna verið gerðir
ónæmir með efnum sem hann til-
tók hver væru. „Og það er vel
þekkt,“ sagði hann ennfremur, „að
menn geta haldið hendi niður í
bráðnu járni svo lengi sem hún er
rök. Hinn mikli hiti veldur því að
rakinn myndar einskonar gufusvið
umhverfis hendina — þannig
myndast einangrunarlag á milli
handarinnar og málmsins, sem
verndar hörundið fyrir hitanum."
Þekktur sagn- og mannfræðing-
ur, Andrew Lang, mótmælti þess-
ari yfirlýsingu Clodds harðlega.
eldgöngu. Samkvæmt frásögn
Englendingsins 0. Leroy leigði
mahrajann „múhameðskan fakír"
nokkurn til að varpa andlegum
verndarhjúp um alla þá sem tóku
þátt í athöfninni.
Eldgangan hófst með dunandi
lúðrablæstri og fyrstu sjálfboða-
liðarnir gengu út í eldinn. Fakír-
inn kastaði nokkrum viðstaddra
nauðugum út í eldhafið en „skelf-
ingarsvipur þeirra breyttist fljótt
í sigurbros" að sögn Leroys. Éini
skugginn sem bar á þessa glæsi-
legu sýningu varð þegar maharaj-
ann kallaði: „Hættið." Þá rak fak-
írinn upp kvalaöskur og varpaði
sér emjandi til jarðar. Þetta var
útskýrt þannig fyrir biskupnum
að öllum sársauka eldgöngufólks-
ins hefði samanlögðum verið
hleypt í fakírinn.
Vísindalegar
eldgöngutilraunir
Réttum 14 árum síðar var svo
gerð gangskör að því að setja upp
vísindalega tilraun um eldgöngu
við Lundúnaháskóla. Sjö metra
löng eldgryfja var útbúin í Carls-
halton í Surrey og var meðalhit-
inn í henni 430 gráður meðan á
tilrauninni stóð. Kuda Bux, ungur
indverskur múhameðstrúarmað-
ur, þrammaði berfættur yfir
eldgryfjuna fjórum sinnum og
virtist ekki finna fyrir hitanum.
Þrátt fyrir nákvæma rannsókn
fannst ekkert efni á fótum hans er
verndað gæti þá fyrir hitanum, né
nokkuð sem benti til að um svik
væri að ræða.
Frá eldgöngutilraunum i Carlshalton i Englandi 1937, þar sem bcAi Ind-
verjar og Evrópumenn gengu yflr eldgryfjuna án þess að verða fyrir bruna.
Ahmed Hussein (á vinstri myndinni) lagði fyrstur í þrekraunina en á hæla
honum fór Reginald Adcock (hægri myndin). Fætur beggja voru grandskoð-
aðir fyrir og eftir gönguna en á þeim fundust hvorki brunasár né verndar-
efni.
„Ég skil ekki hvers vegna mann-
fræðin á að hundsa sagnir um eld-
göngur sem urmull er til af, bæði
gömlum og nýjum. Margir sam-
tímamenn okkar segjast hafa
fylgst með slíkum athöfnum og
hafa borið því vitni margir sam-
an.“ Lang segist alls ekki vera að
halda því fram að nokkuð yfir-
skilvitlegt þurfi að vera við eld-
göngur, og auðvitað gæti verið um
pretti að ræða. „En séu það ein-
hver brögð, þá eru þau bæði forn
og kunn víða um heim — og það
yrði ómaksins vert að komast að
hver aðferðin er.“ Þá hvetur hann
hr. Clodd til að reyna sjálfan að
vaða eld með þeim brögðum er
hann þættist kunna skil á.
Eldgangan í
Madras 1921
Eldgangan sem fram fór í
Madras á Indlandi 1921 telst ein-
hver sú stórkostlegasta sem sögur
fara af. Það var rómversk-ka-
þólski biskupinn í Mysave sem bað
vin sinn maharaja, indverskan
valdsmann, að stofna til þessarar
H. Price, þekktur reimleika-
rannsóknarmaður, var viðstaddur
þessa eldgöngu, en taldi að síður
en svo þyrfti að vera um neitt
kraftaverk að ræða. Hann dró þá
ályktun að Kuda Bux væri fær um
að sleppa við hitann með því að
stikla hratt yfir brennandi viðinn,
en viðurinn hefði sjálfur litla hita-
leiðni. Annar áhorfandi, læknir-
inn S.W. Chibbett, lét sér fátt um
finnast og fullyrti að þetta gætu
allir gert, en vildi þó ekki vaða
eldinn sjálfur þrátt fyrir áskoran-
ir — vegna þess að hann væri ekki
heppilega klæddur til þess arna,
eins og hann sagði.
Síðar var þessi eldgöngutilraun
endurtekin á sama stað árið 1937
og gengu þá nokkrir Indverjar og
Evrópumenn eldgryfjuna á enda
án þess að saka hið minnsta. En
þrátt fyrir þessar tilraunir eru
menn alls ekki á einu máli um
hvað gerir fólki fært að vaða eld
án þess að saka — og þræta ennþá
um hvort skýringin sé efni eða
andi.
(Samantekt — bó.)
VERKTAKAR—
RÆKTUNARSAMBÖND
Getum boöiö örfáar jaröýtur
frá International Harvester
til afgreiöslu strax frá Bretlandi.
Tegund TD8B.
Verö kr. 635.000.-
Tegund TD15C.
Verö kr. 1.750.000.-
Véladeild
Sambandsins
Ármú!a3 Reykjavik Simi 38900
SPUJNKUNÝR
Verð aðeins
kr. 78.500-
tilbúinn á götuna.
FIAT 125P er sterkur og
sparneytinn fjölskyldubill
meö mjög góöa aksturs-
eiginleika. Vélin er 85 ha.,
og eyösla aöeins c.a. 9 I. pr.
100 km. Afl-diskahemlar á
öllum hjólum, Halogen-ljós
og tvöföld framljós, raf-
magnsþurrkur og rúðu-
sprauta, hitanleg afturrúöa
o.m.fl. Mikill bíll á ótrúlega
hagstæöu veröi.
Þaö er eingöngu undir sjálf-
um þér komið, þegar þú
kaupir nýjan bil hvernig þú
ferð meö hann og hvernig
hann endist.
Nú er tækifæri til þess að
eignast splunkunýjan FIAT
125P á verði, sem er lægra
en á mörgum notuðum bíl-
um.
Hver vill notaðan bíl, þegar
hægt er aö fá nýjan á lægra
verði hjá okkur?