Morgunblaðið - 08.08.1982, Page 36
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Sími á rifsfjórn og skrifsfofu:
10100
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum:
Fólk dansaði í regn-
göllum í fyrrinótt
Sól og fallegt veður í Eyjum í gær
VfHtmannaeyjum, 7. ágÚHt.
MIKIL rigning var hér í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og fram á nótt, en um
klukkan 2.30 stytti upp og var þá fullt tungl og stirndur himinn. Fólkið lét
ekki rigninguna á sig fá, það ætlaði að halda þjóðhátíð á hverju sem gengi.
Mestan part dagsins í gær var
dagskránni fylgt, enda hélst þurrt
um daginn. Þegar kom að kvöld-
dagskránni sem hefjast átti um
klukkan 8.30, þá var byrjað að
rigna og var skýfall þar til klukkan
var 2.30, en dansað var til 4.30. Því
var kvölddagskránni sleppt að öðru
leyti. Fólkið dansaði allan tímann
þótt rigndi, það gallaði sig upp og
var fullt á danspöllunum allt þar
til dansleiknum lauk. Ekki sat fólk
úti í rigningunni, en geysileg
stemmning var í tjöldunum.
í dag er sól hér í Vestmannaeyj-
um og mjög fallegt veður og er
mikill hugur í fólki. Búið er að
hreinsa allt hátíðarsvæðið, þannig
að ekki er hægt að sjá að haldin
hafi verið þjóðhátíð.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar gekk allt vandræðalaust
fyrir sig, en talsverð vinna var hjá
lögreglumönnum vegna rigningar-
innar. Engin slys urðu á fólki, en
lögreglan aðstoðaði þá sem áttu í
erfiðleikum vegna rigningarinnar.
— Sigurgeir
Range Rover á kaf í
Blöndu við Hofsjökul
„V11) vorum heðnir um aðstoð við Frakka, sem voru í vandræð-
um við Blöndu inni við Hofsjökul um tíuleytið í gærkvöldi, en
þeir höfðu fest einn bíl af þremur, sem þeir voru á úti t Blöndu,“
sagði Gunnar Sig. Sigurðsson, formaður Björgunarsveitarinnar
Bliindu á Blönduósi, í samtali við Mbl. í gærmorgun.
— Það var þarna á ferð hópur ána þvera og endilanga, því það
Frakka á þremur bílum, Range
Rover, Lada Sport og Toyota
Landcrusier. Þeir voru á leið
austur á Seyðisfjörð og ætluðu
að stytta sér leið fyrir norðan
Hofsjökul. Þeir fóru hins vegar á
rongum stað, langt fyrir ofan
Blönduvöðin. Þeir skelltu sér
beint út í ána, þar sem þeir
komu að.
Áin er 3—400 metrar á breidd
þar sem þeir fóru út í og þegar
þeir voru að komast upp á sand-
eyri um miðja vegu í ánni festu
þeir Range Roverinn í sand-
bleytu. Það fór síðan strax að
grafa undan honum að aftan og
þegar við komum að honum um
þrjúleytið í nótt voru aðeins um
30 sentimetrar upp úr að aftan,
en stuðarinn hins vegar upp úr
að framan. Við gátum hins vegar
lítið að gert fyrstu 1—2 klukku-
tímana vegna myrkurs, en þegar
við komumst að bílunum um
fimmleytið var bíllinn allur und-
ir vatni að aftan.
Annars tók það okkur um
klukkutíma að finna færa leið út
að honum á frambyggðum
Rússajeppa. Það varð að vaða
eru þarna sandbleytupyttir um
allt. Eftir töluverða fyrirhöfn
tókst okkur síðan að ná honum
upp úr, sagði Gunnar Sig. Sig-
urðsson.
Gunnar sagði aðspurður, að
bíllinn væri töluvert skemmdur,
t.d. væru innrétting og sæti
ónýt. Þá hefði vatn komizt í olíu-
kerfi bílsins. Hins vegar sæi ekki
alvarlega á bílnum að utan.
Gunnar sagði ennfremur, að
fólkinu hefði ekki orðið meint af
volkinu, en í Range Rovernum
voru hjón með tvö börn, 2ja ára
og 4ra ára. — Eigandinn var að
vísu orðinn anzi blautur og hrak-
inn, en hann var með okkur í
þessu í nótt, sagði Gunnar.
— Annars vil ég endilega vara
fólk við svona ferðum. Það er í
raun glapræði að fara um þetta
svæði, nema fyrir þaulkunnuga,
auk þess sem það er auðvitað
ekki gæfulegt að leggja í jökul-
vötn seinnipart dags eins og í
þessu tilfelli, sagði Gunnar Sig.
Sigurðsson, formaður Björgun-
arsveitarinnar Blöndu, að síð-
ustu.
Hanna tæki sem grein-
ir hringorma í fiski
ÍSLENZKIR vísindamenn hafa um nokkurt skeið starfað
að frumrannsóknum varðandi greiningartæki er greint
gæti hringorm og aðskotahluti í fiskfiökum.
Erlendir aðilar hafa boðist til
að hanna slíkt tæki fyrir íslend-
inga og jafnframt vélmenni
(robota) sem tíndu hringorminn
úr fiskinum. Er það mál nú til
athugunar, en það sjónarmið
hefur komið fram að eðlilegra
væri að þetta verkefni yrði leyst
hér heima. Hugmynd hefur kom-
ið fram um greiningartæki af
þessu tagi er byggði á notkun
leysiljóss og myndgreiningar-
tækni, og hugsanlegt talið að
með þessum hætti mætti smíða
hagkvæmt greiningartæki er
greindi alla aðskotahluti í fiski.
Sjá nánar viðtal á bls. 46—47.
Þjóðhátíðargestir létu ekki úrhellið aftra sér frá dansinum.
Dollari hefur hækkað
liðlega 50,7% á árinu
Pundið hefur hækkað um 34,5%, danska kr. um 27% og markið um 36%
því hálfa þriðja ári, sem núver-
andi ríkisstjórn hefur setið að
völdum, eða frá því í febrúar 1980.
Frá áramótum hefur sölugengi
pundsins hækkað um 34,54%, en
það var skráð 15,652 krónur síð-
asta dag ársins 1981, en 21,058
krónur í gærdag. Á einum mánuði
hefur sölugengi pundsins hækkað
um 4,87%, eða úr 20,080 krónum í
21,058 krónur.
Danska krónan hefur hækkað
nokkru minna frá áramótum, eða
um tæplega 27%, en sölugengi
hennar var skráð 1,1189 krónur
síðasta dag ársins 1981, en í gær
var danska krónan skráð 1,4206
krónur. Á einum mánuði hefur
danska krónan hækkað um 4,74%,
eða úr 1,3563 krónum í 1,4206
krónur.
Loks má geta þess, að vestur-
þýzkt mark hefur hækkað um lið-
lega 35,74% frá áramótum, en síð-
asta dag ársins 1981 var sölugengi
þess skráð 3,6418 krónur, en í
gærdag var það skráð 4,9433 krón-
ur. Á einum mánuði hefur vestur-
þýzkt mark hækkað um 5,5%, eða
úr 4,6861 krónu í 4,9433 krónur.
DÖLLARAVERÐ hefur hækkað um
liðlega 50,7% það sem af er árinu, en
síðasta dag ársins 1981 var sölu-
gengi hans skráð 8,185 krónur, en í
gær var það skráð 12,336 krónur.
Á einum mánuði hefur dollara-
verð hækkað um tæplega 6%, en 6.
júlí sl. var sölugengi hans skráð
11,644 krónur, en 12,336 krónur í
gærdag eins og áður sagði.
Þá má geta þess, að dollaraverð
hefur hækkað um liðlega 207% á