Morgunblaðið - 08.08.1982, Page 6
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
Bandaríska tímaritið
MAD er þrjátíu ára á
þessu ári og hafa menn
oft fagnað af minna til-
efni því MAD er ekkert
venjulegt tímarit. Frá
upphafi hefur blaðið
haldið uppi merki heil-
brigðrar skynsemi og
barist gegn hinum
hvimleiðustu eiginleik-
um í fari manna svo sem
snobbi, hégómaskap,
hroka, heimsku og tví-
skinnungshætti. Að vísu
hefur blaðið notað harla
óvenjulegar aðferðir í
baráttu sinni þar sem
miskunnarlausu háði er
beitt til að sýna fórnar-
lömbin í sínu rétta ljósi
og þar hefur vissulega
oft verið skotið yfir
markið. En í MAD er
einnig brugðið upp hin-
um skoplegri hliðum á
lífinu og tilverunni og
engin ástæða er til að
taka blaðið of alvarlega,
enda ekki ætlast til þess.
Tímaritið
MAD
ÞRJÁTÍU
ÁRA
Alfred E. Neuman, persónugerv-
ingur og vörumerki MAD.
Harry Truman var forseti
Bandaríkjanna þegar MAD
hneykslaði fyrst þarlenda for-
eldra, en nú eru margir þeirra ein-
lægustu aðdáendur blaðsins. Þetta
var í maí árið 1952, og síðan þá
hafa önnur háðrit frá þessum
tíma lagt upp laupana. En „gamli,
góði hálfvitahópurinn" eins og
höfundar og teiknarar MAD kalla
sig sjálfir, eru enn önnum kafnir
við þá þokkalegu iðju sína að „af-
skræma veruleikann, slöngva sví-
virðingum á samborgara sína og
skjóta á þá eiturörvum". í þeim
efnum eru fáir óhultir og höfund-
um MAD hefur vissulega liðist
ýmislegt sem engum öðrum myndi
líðast. Vinsælustu fórnarlömb
þeirra eru stjórnmálamenn,
kvikmyndastjörnur og aðrir, sem
eru áberandi í bandarískum fjöl-
miðlum.
Forsetar Bandaríkjanna, vinsæl
fórnardýr í skopmyndum MAD,
hafa komið og farið, en ekkert fær
haggað veldi Alfred E. Neuman,
sem er í senn persónugervingur
MAD og vörumerki og andi hans
endurspeglast á hverri síðu tíma-
ritsins. Og MAD malar enn gull,
án þess að hafa nokkrar auglýs-
ingatekjur, sem eru fjöregg flestra
annarra blaða og tímarita. Blaðið
er nú hluti af útgáfudeild hinnar
risavöxnu Watner-samsteypu og
ef litið er í nýjustu fjármála-
skýrslu þess mikla fyrirtækis
kemur í ljós að blaðið, „skilar enn
miklum hagnaði“, eins og það er
Kvikmyndastjörnur verða oft fyrir barðinu á MAD og hér má m.a.
þekkja l’aul Newman.
Krossfarar
VieiWmgíttat
skynsemi
Don Martin er ómissandl i hverju MAD-blaði.
Bandaríkjaforsetar eru vinsæl fórnardýr í skopteikningum MAD. Fyrir
framan ræðustólinn má sjá baksvipinn á Alfred E. Neuman.