Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 57 möguleikum sem hægt er að vir- kja með góðu skipulagi. Og þess vegna vilja SATT-menn stefna að því að koma upp félagslegri að- stöðu með því að reisa félags- miðstöð fyrir popptónlistarmenn þar sem þeim verður sköpuð að- staða til að vinna að sínum áhuga- málum og sérsviði, sem er lifandi tónlist. Verkefni fyrir okkur SATT- menn blasa alls staðar við. Eitt er til dæmis að leiðrétta ákveðna þætti í kjaramálum í sambandi við dansleikjahald, en nú er svo um hnútana búið að það er næst- um ógerlegt fyrir hljómsveitir að halda dansleiki vegna kostnaðar. Ég held að óhætt sé að fullyrða að svona dansleikir séu eina fyrir- brigðið sem er skattlagt á brúttó- tekjur og það er auðvitað ekki for- svaranlegt. Þetta viljum við leið- rétta enda er það grundvöllurinn fyrir því að lifandi tónlist geti þrifist í landinu. Hljómlistarmenn eru með rándýr atvinnutæki sem þarfnast endurnýjunar, þeir skapa miklar tekjur fyrir ýmsa aðila og það hlýtur að vera lágmarkskrafa að þeir geti lifað af þessu sjálfir." „Mikið í húfi að happ- drættið takist vel“ „En svo að ég komi aftur að höf- uðverkefni samtakanna, að reisa félagsmiðstöð, þá höfum við hleypt af stokkunum byggingar- happdrætti sem við bindum mikl- ar vonir við. Til að ná upp ein- hverjum styrk í félaginu er mikið í húfi að vel takist til með þetta happdrætti og við höfum þegar fengið til liðs við okkur flestar starfandi hljómsveitir í landinu, sem nú eru komnar með miða og merki frá SATT, sem þær bjóða í sumar á samkomum og skemmt- unum um land allt. Markmiðið er að selja 50 þúsund miða þar til dregið verður í októ- ber. Hver hljómsveit þarf þá að selja um það bil 660 miða á mán- uði. Auk þess erum við með sölu- fólk á okkar snærum þannig að með sameiginlegu átaki ætti okkur að takast að ná því marki að selja alla miðana. En það reynir á, að félagsmenn leggi sig fram við að sinna þessu verkefni í þágu þeirra sjálfra. Það er vissulega til mikils að vinna, bæði fyrir fram- tíðarskipulag SATT og svo ekki síður fyrir aðstöðu íslenskra dæg- urtónlistarmanna í framtíðinni. Þess vegna viljum við endilega sjá einhvern árangur af þessu starfi þannig að hægt sé að koma festu og formi á málefni hljómlistar- manna í næstu framtíð. Ég spái því að okkur takist þetta og lifandi tónlist eigi framtíðina fyrir sér hér á landi. Ég nefndi það áðan, að þegar ég var í Englandi gerði ég mér grein fyrir að íslenskir dægurtónlist- armenn gáfu þeim, sem voru að gera garðinn frægan þar, ekkert eftir hvað getu snerti. Það eina sem skildi á milli var aðstöðumun- ur. I Bretlandi er popptónlist við- urkennt menningarlegt fyrir- brigði auk þess sem hún er álitin nauðsynlegur hlekkur í efnahags- lífinu. Bítlarnir fengu orðu á sín- um tíma vegna þeirrar gífurlegu tekjuöflunar sem popptónlist var orðin í bresku efnahagslífi. Miðað við aðrar Norðurlandaþjóðir eru íslenskir popptónlistarmenn mjög góðir og ég leyfi mér að fullyrða að þeir séu mun betri en gerist og gengur í Skandinavíu. Samt hafa Svíar til dæmis náð umtalsverðum árangri á alþjóðavettvangi. Ef SATT verður að afli í íslensku þjóðfélagi er ég ekki í nokkrum vafa um að okkur tekst þetta líka. Þetta unga og efnilega fólk sem nú er að koma fram á sjónarsviðið hjá okkur býr hins vegar við að- stöðuleysi sem er ekkert sambæri- legt við það sem gerist og gengur hjá öðrum þjóðum. Það er þetta sem við SATT-menn ætlum okkur að lagfæra og með samstilltu átaki tekst okkur það.“ — Sv.G. SÓL ÉG SÁ í tilefni af áttræðisafmæli Steindórs þann 12. þ.m. höfum við iátið sérbinda 80 tölusett eintök bokarinnar, árituð af höfundi. ÓmogOrlygur Síðumúla 11, sími 84866. Sjálfcævisaga Steindórs Steindórssonar tra niooum í haust munum við gefa út fyrsta bindi sjálfsævisögu Steindórs Steindórssonarfrá Hlöðum, sem hann nefnir SÓL ÉG SÁ Þessi 80 tölusettu og árituðu eintök eru til sölu í verslun okkar að Síðumúla 11. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta pantað hana í síma og fengið síðan senda í póstkröfu. i Mazda Tímamótabíllinn 929 frá Japan. Mazda 929 — Örugglega bestu bflakaupin í dag. Mazda 929 Sedan uppfyllir aflar óskir þeirra kröfu- hörðustu um glæsilega hönnun, þægindi og spar- neytni. Eftirtalinn búnaður er innifalinn í verði á MAZDA 929 Limited. Útispeglar beggja vegna Viðvörunartalva. Snúningshraðamœlir. Tölvuklukka. Stokkur milli framsæta með geymsluhólfi. Opnun á benzínloki og far- angursgeymslu innan frá. Barnaöryggislæsingar. Halogenframljós. Rafknúnar rúður. Rafknúnar hurðarlæsingar. 5 gira gírkassi. Veltistýri. Vökvastýri. Innilýsing með tímarofa. Stillanlegir höfuðpúðar á aftursætum. 60A rafgeymir. Litað gler i rúðum. Ljós i hanskahólfi og skotti. Farangursgeymsla teppa- klædd í hólf og gólf. Diskahemlar á öllum hjól- um. Hitastokkur aftur í. Innfelld rúllubelti á fram og aftursætum. Framsæti stillanlegt á 8 mismunandi vegu. Fáanlegur aukabúnaður: Sjálfskipting. Rafknúin sóllúga. Álfelgur. BÍLABORG HF Smiöshöföa 23, sími 812 99.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.