Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 7
orðað í skýrslunni, þrátt fyrir samdrátt í útbreiðslu. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 43 MAD á myndbandi MAD-tímaritið er áreiðanlega eitt „ósjálfvirkasta" fyrirtæki í heiminum. Framkvæmdastjórinn, William M. Gaines, notar enn gamaldags reiknivél við bókhaldið og spjaldskráin yfir áskrifendur er handskrifuð. En til að halda upp á þrítugsafmælið hefur nú verið ákveðið að flytja hluta út- gáfustarfseminnar á hið „æðra plan“ tæknivæðingarinnar. Þessi „minningarútgáfa" MAD verður í formi myndbands, sem í alþjóð- legu tali nefnist „video“, og er þetta tregablandin viðurkenning herra Gaines á því að listin að lesa sé á undanhaldi vegna áhrifa sjón- varps. „En við viljum koma til móts við þetta fólk sem nennir ekki að lesa lengur," segir herra Gaines, „og þess vegna fær það MAD á sjónvarpsskerminn." Myndbandið mun innihalda lífleg „meistaraverk" úr þriggja áratuga sögu blaðsins, þau verk sem útgef- endur telja að staðið hafi upp úr og er þar af mörgu að taka. Herra Gaines, sem er 62 ára gamall, feitlaginn náungi sem heldur síðu gráu hárinu í skorðum með fagurlega skreyttum hár- spennum, hefur starfað við MAD- tímaritið frá upphafi. Hann hefur alla tíð verið á móti auglýsingum í blaðinu, þótt blaðið hafi á fyrstu árunum stuðst við auglýsingatekj- ur. En eftir að MAD tók á sig nú- verandi mynd, rétt fyrir 1960, hafa engar auglýsingar birst í blaðinu. „Tímarit sem byggja á auglýsingatekjum geta orðið háð auglýsendum, en við viljum hafa óbundnar hendur í þeim efnum,“ segir Gaines. MAD er þó engan veginn á flæðiskeri statt. Upplag blaðsins hvern mánuð er rúmlega 1,2 millj- ónir eintaka í Bandaríkjunum ein- um, en að auki selst það vel víða um heim og sérstök útgáfa er í 12 öðrum löndum. Þá eru ónefndar MAD-bækur, en a.m.k. níu slíkar eru gefnar út á hverju ári. Aðeins þrjú prósent af sölu blaðsins eru til fastra áskrifenda en þótt mörg- um kunni að þykja sú tala óeðli- lega lág heldur það ekki vöku fyrir útgefendum MAD. Blaðið hefur haldið velli í þrjá áratugi og að sögn Gaines er ekki til umræðu að breyta rekstrinum eða grípa til einhverra verslunarklækja til að auka tekjurnar. „Alfred E. Neuman stendur fyrir sínu og vel það,“ segir hann. Heiður að vinna fyrir blaðið Ein af ástæðunum fyrir því að MAD skilar umtalsverðum hagn- aði er að fast starfsfólk er í lág- marki og þar hefur aldrei mynd- ast „yfirbygging", eins og oft vill verða í stórfyrirtækjum. Á aðal- skrifstofunni í New York eru að- eins níu fastir starfsmenn. Flestir höfundar og teiknarar eru laus- ráðnir, eða það sem kallað er „free-lance“ í blaðaheiminum, og að sögn Gaines fá þeir í mörgum tilfellum minna fyrir sinn snúð en þeir gætu fengið annars staðar. Ástæðan er sú, að þeim líkar vel að vinna fyrir MAD og vilja hvergi annars staðar vera. „Þeim finnst heiður að því að vinna fyrir blaðið," segir Gaines. Besti mánuðurinn í sögu MAD var júní árið 1973, en þá seldist blaðið í 2,3 milljónum eintaka. Síðan hefur orðið nokkur sam- dráttur i sölunni og að sögn Gain- es má einkum kenna þrennu um: Hækkun útsöluverðs úr 25 sentum í 90 sent, myndbandvæðingunni og þeirri staðreynd að „fólk les ekki eins mikið nú og áður“. Við skulum þó vona, að enn um sinn haldi almenningur við lestr- arkunnáttu sinni, hvort heldur menn lesa sér til fróðleiks eða af- þreyingar og á meðan verður allt- af þörf fyrir tímarit á borð við MAD, til að lífga upp á gráan hversdagsleikann. Sýnishorn af skopþáttum úrMAD OUT TO LAUNCH OEPT. AHTtftT R WRITEN SERGIO ARAGONES Skopþáttur eftir Sergio Aragones. You’re votcd “The Most ... and now, all the guys are 36 Popular Girl In School” too insecure to talk to you! Jafnvel þótt þú vinnir, þá taparðu: „Þú ert kosin vinsælasta stelpan í skólanum ... og nú eru allir strákarnir of feimnir til að tala við þig.“ OON MARTIN OEPT PART IM ONE FINE DAY CROSSTOWN Þættir teiknarans Don Martin eru með vinsælasta efni blaðsins. í MAD er fastur þáttur sem ber heitið „Bjartari hliðin á tilver- unni“. Hér sjáum við bjartari hliðina á „Stefnumótum”. í lauslegri þýðingu er textinn þessi: „Judy, elskan, geturðu fyrirgefið mér að vera 20 minút- um of seinn á stefnumótið. — Ég veit það ekki, ég þarf að hugsa um það. — Okei, ég hef hugsað um það. Þótt þú eigir það ekki skilið skal ég fyrirgefa þér. Komdu inn og sestu. Ég verð tilbúin eftir um það bil klukku- tíma.“ DATING — Sv.Q.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.