Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 18
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Umsjón: Séra Karl Sigurbjömsson Séra Auöur Eir Vilhjálmsdóttir A U DROTTINSDEGI Einhver var að segja að við héldum að við hefðum aldrei (íma til að gera neitt. Skyldi það vera satt? Ég má ekki vera að því sem er nauðsynlegt, vanrækt það svo að sums kunnum við ekki lengur að njóta og annað stendur okkur ekki lengur til boða þegar við svo þurfum á því að halda. Eg held að þótt vinnusemi sé iofsverð og vinnusemi okkar ís- lendinga sé okkur sjálfum einatt lofgerðarefni, þá hafi hún gengið út í miklar og hrikalegar öfgar. Ég heid að við séum meira en lítið upp með okkur hvert og eitt af okkar eigin annríki. En í rauninni erum við trúlega í aðra röndina að flýja þann vanda að hafa sjálfstætt framtak í frítím- um og sækjast eftir og sinna tengslum við annað fólk. Ég má ekki vera að því — og ég lofa alls ekki að koma þótt mér sé boðið Núna rétt um daginn hitti ég góða og skemmtilega konu á förnum vegi. Við vorum sam- ferða upp að dyrum hjá henni og hún bauð mér inn í kaffisopa. „Ég má bara ekki vera að því,“ sagði ég, kvaddi og flýtti mér áfram. Þar með svipti ég sjálfa mig tækifæri til að spjalla við hlýlega manneskju í stundar- korn. Ég dreif mig til að gera það, sem ég þurfti, það tók allan daginn. Ég hugsa að það hefði frekar tekið styttri tíma ef ég hefði haft vit á að eflast og gleðjast við gott en stutt samtal. Ég fer að minna mig á manninn, sem sagði þegar honum var boð- ið á góðra vina fund: „Ég lofa engu.“ Ekki er nú hrokinn lítill. Ætli það sé ekki vegna dræmra undirtekta, sem við veigrum okkur títt við að bjóða öðrum — og aðrir gefast upp á að bjóða okkur. Handprjónaðir dagar og vélprjónaðir Dagar okkar eru misjafnir. Sumir eru fleytifullir. Aðrir tómlegir. Líklega er þó réttara að tala um mismunandi tímabil í ævi okkar. Sum þeirra líða allt of hratt, við erum allt of önnum kafin og finnst tíminn hverfa frá okkur án þess okkur auðnist að gera nema lítið eitt af því, sem við ætluðum. Önnur líða hægt og silalega og það er erfitt að finna upp á einhverju til að fylla tím- ann. Ég kalla þetta stundum handprjónaða daga og vélprjón- aða. Vélprjónuðu dagarnir eru miklu auðveldari, held ég. Það eru þeir, sem þeysast áfram, verkefnin koma af sjálfu sér upp í hendurnar á okkur og við höf- um ekki við að sinna þeim. Á handprjónuðu dögunum gerist fátt af sjálfu sér, við verðum sjálf að láta það gerast, sem ger- ist. Ég held að það sé mun erfið- ara. Vinnan ræður ferð- inni og við fylgjum Því meir sem við sökkvum okkur niður í vinnu okkar því óviðbúnari verðum við líklega hinum hæggengari tímabilum lífsins. Við höfum vanið okkur á að láta verkefnin, sem berast að okkur, ráða ferðinni, án þess að ákveða sjálf hvenær við ætlum að vinna og hvenær við ætlum að eiga frí. Við höfum vanrækt svo margt, Jesús var alltaf í boðum Enn einu sinni rifja ég það upp fyrir sjálfri mér að Jes- ús var alitaf í boðum. Hann heimsótti vini sína og fólk úti í bæ. Og hann gaf sér tíma til að ganga með strönd Galíleuvatnsins og ráfa inn í óbyggðir, einn eða með vinum sínum. Ef einhver spyrði mig hvað mér þætti hvað brýnast að ræða í kirkju okkar, myndi ég svara: Við skulum ræða um streituna og hvíldina, um menninguna og vináttuna. I slíkum samræðum verður okkur það ljósara að upp- haf allrar lífsgleði, lífsfyllingar og jafnvægis er að leita fyrst ríkis Drottins og réttlætis. Hvernig getum við gefiÖ okkur meiri tíma? Séra Hjalti Gpðmundsson dómkirkjuprestur hló þegar ég lagði spurninguna fyrir hann. „Það er rétt að spyrja mig, sem hef varla nokkurn tíma frá morgni til kvölds," sagði hann, og ég svaraði: „Það er nú ein- mitt þess vegna, sem ég spyr þig.“ „Við eigum að skipuleggja tímann vel,“ sagði séra Hjalti svo. „Margir þeir, sem hafa mikið að gera, eru svo yfir- þyrmandi þrúgaðir af öllu, sem á þeim hvílir, að þeir vita ekki hvar þeir eiga að byrja. Það er ágætt ráð að taka eitt mál fyrir í einu og ljúka því, ganga svo á röðina og ljúka hverju máli fyrir sig. Óg þá sjá menn að það er nógur tími fyrir þau hugðarefni, sem þeir vilja una sér við í ró og næði og geta þannig skapað sér betra og skemmtilegra líf.“ Hvernig getum við fyllt tíma okkar? En það eru ekki allir í vinn- unni frá morgni til kvölds. Sumir eru komnir á þann aldur að þeir eru hættir þeirri vinnu, sem þeir hafa sinnt um ára- tugi. Ég hringdi til séra Óskars J. Þorlákssonar, sem lengi var önnum kafinn frá morgni til kvölds í vinnu fyrir dómkirkju- söfnuðinn. Hvernig líður tími hans núna? „Það er enginn vandi að láta tímann líða þegar fólk á sín hugðarmál," svaraði séra Óskar. „Það er enginn vandi þegar menn eiga heimili. Ég er líka í ýmsu félagslífi og eftir að ég hætti störfum hef ég allt of lítinn tíma til að sinna hugð- armálum mínum. Já, það eru auðvitað vandræði ef hugð- armálin eru engin. En þá verða menn að eignast þau. Menn mega ekki búast við að allt komi til þeirra á silfurfati. En það er margt í boði, bæði í list- um og öðru. En menn verða að sinna því.“ Hugsaðu þér ef Móses hefði sagt: Ég hef bara ekki tíma, Guð, ég er alveg upptekinn af fénu. „Seljið eigur yðar og gefið ölmusu .. “ 9. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Lúk. 12, 32-48 Þú kannast ef til vill við þessi fleygu orð guðsmanns- ins: „Sumir eru að tala um að það sé svo erfitt að skilja Biblíuna. Sjálfur á ég í mest- um vandræðum með það sem ég skil.“ „Seljið eigur yðar og gefið ...“ Það er ekki erfitt að skilja þessi orð Jesú. Krafan er ótvíræð. Jafnvel þótt við reynum að umtúlka þau. Svo sem eins og það, að það geti enginn fylgt þeim bókstaf- lega í nútímaþjóðfélagi. Eða þannig, að það megi túlka þetta orð „eigur" svo að það nái yfir annað en peninga, þýði t.d. það að maður gefi sinn dýrmæta tíma til að skreppa til kirkju á sunnu- dögum. Nei, siíkar túlkunar- tilraunir gagna ekkert, því að við skiljum þessa kröfu alltof vel. Okkur er það deginum Ijósara að Kristur krefst þess að maður hafi þá afstöðu til eigna sinna, já og tíma síns, og annarra verðmæta, að maður sé FRJÁLS, algjörlega óbundinn. Og það skiljum við líka, að um er að tefia að hlotnast hin æðstu verðmæti og stórkostlega auð sem er ríki Guðs, það svið þar sem vilji Guðs verður að fullu og öllu, og gleðin og kærleikur- inn og friðurinn sem hann gefur. Nei, það er ekki erfitt að skilja þessi orð, en það er erf- itt að fást til að reyna að lifa samkvæmt þeim. Það er erf- itt að fylgja Jesú Kristi, þeg- ar kemur til lífs og breytni og krafna hversdagsins. Þá er erfitt að miða allt sitt líf við það að lifa fyrir aðra, í lífs- afstöðu kærleikans. „Verð ég þá að gefa eigur mínar tii að geta kallast kristinn?" „Hvað má ég þá eiga?“ „Verð ég hitt?“ „Verö ég þetta?" Nei, þetta eru eng- in lög, ekkert lögmál. Lögin þvinga og neyða. Þetta er engin kvöð. Þetta er gleði- boðskapur, fagnaðarerindi frelsarans, sem þekkir þig og elskar. Hann setur þetta ekki sem nein skilyrði sem þú verður að uppfylla til að geta kallast verður. Hann vill vekja kærleikann í hjarta þínu. Kærleikann til Guðs og manna. Hann sem gaf líf sitt til lausnargjalds fyrir þig, vill að þú sért frjáls til að þjóna, gefa og elska. Frjáls undan kvöð sjálfrar elskunn- ar, sem krefst þess, að hver sé sjálfum sér næstur. Frjáls til að „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra". Frjáls til að lifa lífi kær- leikans. Því eins og Páll segir í óði sínum um kærleikann í 13. kafla 1. Korintubréfs: „ög þótt ég deildi út öllum eigum mínum, og þótt ég framseldi líkama minn til að verða brenndur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bætt- ari.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.