Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 28
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 5? Of 5tÓr ?" / f ... að leyyja kinn vid kinn. TM Reo U S Pat Oft -all riflhts reserved ®1982 Los Angeles Tlmes Syndicate Með m orgnnkaffin u vw Kg fór til rakarans og við lentum í hörkurifrildi. Blessaður vinur. — Hvernig geng- ur að láta endana ná saman á þess- um erfiðu tímum? Á götumarkaði i Dyflini. Aðdragandi að ferða- lagi — og lítið meira Sólveig Pálsdóttir frá Niku skrif- ar: „Velvakandi. Mig langar að segja hér litla sögu um hvað er hægt að gera, ef allir eru samtaka og vilja vel. Náttúrlega er fyrsta skilyrðið að vera ekki alveg rúmliggjandi. Eg er að nafninu til búsett á Selfossi, þó ég dvelji þar ekki, og er í félagi með aldraða fólkinu þar. Nú er það orðin föst regla hjá félaginu að efna til utanlands- og innanlandsferðar á hverju sumri. Svo er það einn daginn, að ég fæ bréf með tilboði um að fara til írlands. Þangað hafði mig alltaf langað að fara, en nú var ekki gott í efni. Samt lét ég skrifa mig á listann; það var eiginlega ekkert annað framundan hjá mér en að fara á Vífilsstaði, svo léleg var ég til heilsunnar. En um þetta leyti var verið að hálftæma öll sjúkra- hús vegna verkfalls hjúkrunar- fólks, og var þá næsta ráðið að fara til Brynleifs læknis á Sel- fossi. Eg hafði oft farið til hans áður og alltaf reynst það mjög vel. Hann skrifaði lyfseðil og ég sagði honum af fyrirhugaðri ferð. Ég sá hann varð svolitið áhyggjufuilur, sem hann er nú ekki vanur að vera, og hann sagði: Heldur þú það sé ekki nóg fyrir þig að fara í inn- anlandsferðina, var það ekki ágætt í fyrrasumar? Víst var það, og varð ég að samþykkja það. Ég lét strika mig út af írlandslistan- um. Það hagaði svo til, að ég þurfti að vera á Selfossi í þrjár vikur, aðallega til að líta eftir einum stálpuðum krakka og einum litlum hundi. Þetta var nokkuð líflegur félagsskapur og náttúrlega tók ég lyfin, sem Brynleifur hafði skaff- að mér. Nema það er ekki að orð- lengja það: Mér fer að batna dag frá degi. Það var meira en ég gat búist við. Svo ég hringdi aftur og spurði hvort það væri ekki búið að ráðstafa í Irlandsferðina. Og mér var sagt það væri búið og ég gæti ekki fengið pláss. Það var ekkert við því að gera. Svo fór ég í Hveragerði þar sem ég dvel, Það var 13. júní. Morgun- inn eftir er hringt til mín og sagt ég geti verið með, það hafi tveir hætt við að fara. Og næsta morg- un er dóttir mín komin kl. 10 að sækja mig. Ég þurfti að fá vega- bréf (hafði aðeins farið til Norður- landanna áður) og fara í banka til að fá gjaldeyri. Allt var þetta komið í kring kl. 12, nema að sækja vegabréfið á sýsluskrifstof- una, en það vefst ekki fyrir þeim á Selfossi að afgreiða svona smá- muni. Við áttum að mæta kl. 4.00 að- faranótt 18. júní, í Tryggvaskála, og vorum komin í loftið kl. 7.15 eða því sem næst. Og Eyjan græna framundan, með millilendingu í Glasgow. Dvalist var tvo daga í Dublin og borgin skoðuð og nágrenni. Svo var ekið vítt og breitt um landið, gist á fimm hótelum, og svo aftur þrjár nætur í Dublin í bakaleið- inni. Mér fannst þetta svo dásamlegt ferðalag, það gat ekki verið betra. Stundum var ég dálítið þreytt, en fólkið var svo gott og hjálpsamt. Allir sem einn. Samt var hún Kristín alveg einstök. Ég þurfti stundum að doka við og sækja í mig veðrið eða loftið, og alltaf beið Kristín. Mér fannst landið yndislega grænt og fallegt, og öll blómin í borgunum og meðfram vegunum. Og öll þjónusta svo góð sem hægt var. Svo fylgja hér nokkrar vísur af þeim sem urðu til í ferðinni. Ann- ars var hún Marta miklu duglegri að yrkja en ég. Maður býr að svona ferð allt ár- ið. Mig langar til að senda öllum sem þarna áttu hlut að máli kærar þakkir og bestu kveðjur. Vísur úr írlandsferö Til bílstjórans: Við höfum engar áhyggjur, allt er í traustum höndum. Blessaður veri bílstjórinn, hann ber af sínum löndum. Og sídasta daginn:. Ég er nú í illum ham angrið sárt mig plagar hefði viljað sjá hann Sam en svarti hlerinn bagar. f/m Höllu: Mér fannst gott að halda í Höllu, hún var alltaf brosandi, gerði líka gott úr öllu gegnum sneitt á írlandi. Hún var okkar hjálpardís; hún er eins og alparós, aldrei tínd, en alltaf vís á hún skilið margfalt hrós. Fararstjórinn Úlfar Þormódsson: Fararstjórann fullkominn flest við munum telja. Flf við ferðumst annað sinn öll hann skulum velja. íllfar Þormóðsson Hann var mikiil sagnasjór og sagan hefur gildi; en það sem kom því miður fór, þó ég muna vildi. Ef allir væru eins og þú, alltaf svona góðir. Um heiminn mætti byggja brú og bjargast allar þjóðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.