Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 22
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 „Við eyddum um 40 tímum í stúdíóinu og ég heid aö það só vel sloppíð,“ sagði Adolf Frið- riksson, framkvæmdastjóri Akra- nessflokksíns Tíbrár, er Járnsíð- an ræddi víð hann fyrir skemmstu. Adolf er sennilega kominn til Hondúras þegar þetta birtist nú, þar sem hann mun dvelja a.m.k. til áramóta. „Við reyndum að fara eins spart með tíma og viö gátum," hélt hann áfram, „og þrátt fyrir reynsluleysi okkar í stúdíói held ég að við get- um verið ánægðir meö útkom- una. Hljómurinn er með því besta sem gerist, þökk sé Geoff Valver, sem skar plötuna." Tíbrá er, eins og fram hefur komið á Járnsíöunni, 6 manna flokkur frá Akranesi og sá eini þar í bæ, auk Dúmbó og Steina, sem gefið hefur út plötu. Nefnist 6 laga framlag piltanna „í svart-hvítu". Agætur titill og umslagiö smekk- legt og í fullu samræmi við nafn- giftina. poppfréttir „Við tókum upp 4 lög i Kaupmannahöfn, svona alveg á óvart“ sögöu þeir kumpánar Sigtryggur trymbill, og Hilmar bassaleikari, meðlimir Þeys- flokksins er þeir ræddu viö umsjónarmann Járnsíðunnar fyrir skemmstu. „Þannig var mál með vexti að við hittum þarna mann, sem vildi endilega allt fyrir okkur gera. Hann bauö okkur uppi- hald og afnot af hljóðveri fyrir smápening svo viö gátum eig- inlega ekki annaö en tekiö þessu kostaboði hans. Tókum því upp 4 lög.“ — Er svo ætlunin að gefa þetta út á næstunni? „Já, við erum með plötu í sigtinu. Reyndar eigum viö nokkur lög, sem voru tekin upp hér heima áður en við fórum út, þannig að við eigum oröiö efni á plötu. Líkast til verður þaö Fálkinn, sem gefur hana út því útgáfufyritæki okkar, Eskvimó, hefur ekki bolmagn öllu lengur til að standa í þessu. Þetta hef- ur verið þungur róður og erfiö- ur fyrir lítiö fyritæki.“ — Steinar hafa ekki verið inni í myndinni? „Nei, það kom aldrei til greina. Það hefði veriö þvert ofan í okkar „prinsipp" aö leita ásjár hjá því fyrirtæki.“ — Hvernig eru þessi lög, sem þiö eruö meö núna? „Það kveður nokkuð við annan tón að þessu sinni. Já, þetta er talsvert annað en viö höfum verið aö gera.“ — Hvað um utanreisuna, sem varð hálf endaslepp? „Það var fínt aö vera í Sví- þjóð og viö förum aftur út 10. október og þá til Danmerkur einnig. Bæði útvarp og sjón- varp eru inni í myndinni í þess- um löndum. Viö fengum þátt í sænska útvarpinu og heilsíöu viðtal í hinu sænska „NME“. Blaðamennirnir þar urðu svo uppveðraðir að þeir koma hingað í ágústbyrjun. Síöan er ætlunin aö viö leikum á tónleikahátíð í Helsinki dagana 29. og 30.‘október.“ — Hvaö brást í fyrirhugaöri Englandsferö? „Það var fyrst og fremst skortur á tengiliöum, sem varð okkur að falli. Við gerum okkur nú engu að síöur vonir um að komast þangað eftir Noröur- landareisuna, e.t.v. fyrr ef vel tekst til.“ — Hvaö hefur flokkurinn verið aö sýsla undanfariö? „Við erum búnir að vera mik- iö í myndbandapælingum með Sigurjóni Sighvatssyni. Þar höf- um við verið aö fikta meö þau gömlu færði, að hver litur eigi sér sinn tó og öfugt. Út úr þessu hefur komið býsna margt skemmtilegt. Þessa dagana er verið að ganga frá ýmsum laus- um endum, bæöi i sambandi við Svíþjóð og England." — Engir tónleikar hér heima á döfinni? „Nei, ekki að svo stöddu. Það er reyndar aldrei aö vita hvað kemur upp, en eins og er, hafa myndböndin forgang." Af Vonbrigdum, Jonee og Steina Áður en mjög langt um líður geta menn átt von á því aö heyra í hljómsveitinni Jonee Jonee á plasti. Hljómsveitin hefur lokiö við LP-plötu, sem er þessa dagana í skuröi. Ætti hún að lita dagslns Ijós í síðari hluta þessa mánaöar. Á henni eru 14 lög. Þá mun plötu Vonbrigða einnig vera að vænta en lengra er í hana. Tekin voru upp 9 lög, en síðan er eftir aö velja 4 þeirra úr og þrykkja i plast. Kunnugir telja aö þar sé um áhugaveröa plötu að ræða. Var hún tekin upp í Stúdió Hanagal. Síöast en ekki síst fer nú aö styttast í sólóplötu Þorsteins Magnússonar. Eins og við höfum áður skýrt frá er hér um ákaflega óheföbundna tónlist aö ræöa og fer Þorsteinn ótroönar slóöir í eigin hljóðfæraleik. Allar þessar plötur eru gefnar út á vegum Gramms. Segir stjóri Tíbrár um nýútkomna plötu flokksins Poppinu vex ás- megin erlendis — Hver gefur gripinn út? „Það er Dolbít, sem sér um allt í sambandi viö plötuna. Enginn fékkst til að gefa þetta út, en við nutum góðrar hjálpar Steina hf. við dreifingu. Við dreifum sjálfir en fengum holl ráð þaðan.“ — Hvernig hefur sala plötunnar gengið? „Viö létum bara pressa 500 ein- tök til aö byrja með. Viö þurfum um 900 plötur til aö fyrirtækið standi undir sér og til þessa hefur platan selst þokkalega. Málið er bara þaö, aö öll plötusala er mjög dauf eins og er. Við höfum jafnvel verið með þá hugmynd í kollinum aö ganga meö plötuna í hús á Akranesi og selja hana þannig. Ætlunin er, ef af því veröur, að láta hluta andviröisins renna til bif- reiöasöfnunar dvalarheimilisins Höfða." Þaö er Valgeir Skagfjörö, sem er skráöur fyrir öllum lögum plöt- unnar og hann á aö auki helming textanna, þá þrjá, sem eru á ensku. „Þótt hann sé skráöur fyrir lögunum má ekki skilja þaö sem svo, að hinir meölimirnir eigi ekk- ert í lögunum. Venjulega er þaö þannig, að hann kemur meö hugmynd að lagi og síöan er hún fullunnin í sameiningu af allri hljómsveitinni." — Hvaó er framundan hjá Tíbrá? „Það er nú ekki svo gott fyrir mig að segja til um þaö, þar sem ég er á förum af landinu, en vissu- Fyrir skömmu mátti sjá aö margar platnanna voru komnar í dreifingu hjá fyrirtækinu, sem hef- ur um 40—50 manns í vinnu hjá sér. Járnsíðunni barst í hendur pöntunarlisti frá þessu ágæta fyrir- tæki og mátti þar m.a. sjá plötur Grafík, sem reyndar var mælt með af hálfu fyrirtækisins, Start, Þeys, Þursaflokksins, Graham Smith, Purrks Pillnikks, auk þess sem lög- in úr Rokk í Reykjavík eru þarna til sölu. „But mom, they’re gonna be playing Thursaflokkur" segir m.a. á kápu listans yfir innfluttu plöturn- ar. Með hverri plötu fylgir stutt ávarp, þar sem Green World fylgir viökomandi úr hlaði með nokkrum oröum. Þar er reynt að varpa Ijósi á viökomandi listamann/ hljóm- sveit í sem allra fæstum orðum. Fylgir siðan í lok umsagnar „re- commended” eða „strongly re- commended” (mælt með — sterk- lega mælt með) ef fyrirtækinu þyk- ir sérstök ástæöa til aö vera at- hygli á plötunni. Hins vegar er ekki lagður frekari dómur á plöturnar nema í einstaka tilvikum. Þannig er t.d. sagt um Start, aö platan bjóöi upp á „beautiful vocal harmonies (in lcelandic!)”. Um Þeysara segir „Sounds a bit like Killing Joke". Er þaö nú? Ummælin skipta e.t.v. ekki öllu máli, hitt er mikilvægara að einhver hreyfing er komin á málin. Þá hefur Járnsíöunni áskotnast Ijósrit af norskum plötukynningar- lista, svo og einum frá Englandi. Þar er í báöum tilvikum um Purrk Pillnikk að ræða. Segir í norsku kynningunni að tónlist Purrks Pillnikks sé „et spennende be- kjentskap”. Er þar átt við þlötuna Ekki enn. Koma þessi ummæli þvert ofan i umsögn í einu norsku blaðanna þar sem sagöi aö PP væri 5 árum á eftir Norðmönnum, en þeir væru aftur 5 árum á eftir tímanum í poppinu. Norömenn hafa alltaf verið skrýtnir. lega er önnur plata í sigtinu. Þaö gæti jafnvel orðið stór plata. Sumariö er ekki rétti tíminn til plötuútgáfu þótt viö höfum farið út í slíkt. Þessi plata er að vissu leyti uppgjör viö liöna tíma, en það er margt að gerjast." — SSv. Tíbrá í spariklæöunum. Frá vinstri: Eðvarö, Eirfkur, Jakob, Floai, Finnur og Valgeir. Eins og skýrt var frá hér á Járnsíöunni fyrir talsveröum tima, var hér á landi á ferö í vor maóur frá bandaríska dreifingar- fyrirtækinu Green world, sem hefur aðsetur sitt í Kaliforníu aó okkur minnir. Hvaó um þaö. Þessi ágæti maður, sem hér var á feró, tók meó sér einar 1000 plötur meö hinum og þessum íslensk- um aóilum. Einar Örn Benediktsson, raddari Purrksins. Hróöur flokksins berst víóa, ef marka má erlenda plötu- lista. Sá feiti situr fast Það er alltaf jafn fróóleg og skemmtileg lesning að fylgjast með hræringum á ensku vin- sældalistunum, þeir bandarísku eru mjög staónaóir frá einni viku til annarrar. Algengt er aó eldri breióskífur taki skyndilegt hopp inn á listann og svo varð nýverió meó bæói plötu Dire Straits, Making Movi- es, sem læddi sér upp í 89. sætiö á „Topp-100 listanum". Hún var ekki sú eina sem kom á ný inn á listann. For Those About to Rock með AC/DC tók mikiö stökk og situr nú i 59. sæti. Þá má nefna að bæði The Wall með Pink Floyd og The Rise and Fall of Ziggy Stardust með David Bowie, sem báöar eru á ný á listanum eftir nokkurt hlé. Ekki verður skiliö við þessa klausu án þess að minnast á Bat out of Hell með Meatloaf, sem set- ið hefur á listanum í 185 vikur, þótt undirritaöan gruni reyndar að það eigi að vera 175. Engu að síður makalaust afrek feita kallsins. Bleik brugðið Frank Zappa sagði fyrir nokkru í viðtali við tímaritiö Guitar World, sem gefiö er út í Bandaríkjunum, að útvarps- stöðvar virtu plötur hans ekki viðlits lengur. Sem dæmi um slíkt, sagði hann plötuna „You Are What You ls“ aðeins hafa verið spilaöa í tveimur fylkjum. Bætti hann við að hann seldi fleiri plötur í gegnum póstkröfu en í verslunum. Bleik er brugð- ið. „AÐ VISSU LEYTI UPP- GJÖR VIÐ LIÐNA TÍMA“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.