Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 31

Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 67 Fréttabréf úr Breiöuvíkurhreppi: Stirð heyskapartíð — Breytt síma- þjónusta — Slæmir vegir og fleira Landbúnaður Sauðburður í vor gekk vel að kalla má. Tíðin var mjög góð um sauðburð, en gróður kom frekar seint vegna þurrka. Tíðarfar var með eindæmum gott frá því snemma í maí og fram um mánaðamót júní-júlí. Ég man ekki eftir svo stöðugu hægviðri og sólskini svo langan tíma, en þetta tíðarfar var ekki heppilegt uppá grassprettu á þurrlendum túnum, og notaðist seint að áburðinum vegna þurrka. Þegar bændur voru að byrja að heyja brá til vætutíðar, sem hefur haldist síðan, og úrfelli verið mik- ið, oft flóðrignt, og eru tún orðin mjög blaut, gras er orðið mikið víða og farið að spretta úr sér. Þeir, sem hafa votheysgeymslur, hafa verið að reyna að heyja í vot- hey, en það hefur gengið illa vegna bleytu. Það horfir nú til vandræða ef ekki bregður til þurrka fljót- lega. Útgerö Fiskafli hefur verið mjög tregur í sumar síðan í maí, en fyrst eftir að róðrar byrjuðu í byrjun maí var ágætur afli. Róðrar byrjuðu seinna en venjulega vegna ótíðar, gæftir hafa verið með eindæmum góðar nema nú síðustu viku. Um 20 bátar hafa róið frá Stapa og Hellnum þegar þeir hafa verið flestir. Aflinn er verkaður í salt í fiskverkunarhúsinu á Arnarstapa. FLF Stapi kaupir fiskinn. Komið er hátt á annað hundrað tonn af fiski í húsið. Einn bátur hefur stundað grásleppuveiðar, en afli verið frekar tregur. Verið er að byrja að pakka salt- fiski þessa dagana. Póstur og sími Breyting hefur orðið á póst- og símaþjónustu hér. Breytingin var framkvæmd um mánaðamótin apríl-maí. Símstöðin á Arnarstapa var lögð niður og einnig pósthúsið. Við eigum nú að hafa símaþjónustu allan sólarhringinn, frá 9 að morgni til 9 að kvöldi í gegnum Stykkishólm, en frá 9 að kvöldi til 9 að morgni í gegnum Búðardal. Þetta er mikil breyting til batnað- ar frá því sem áður var, því við höfðum símaþjónustu aðeins 4 tíma á sólarhring áður. En fátt er svo með öllu gott að ekki boði nokkuð illt. Sveitinni er skipt í þrennt, þannig að Hellnar og Malarrif hafa eina línu, Arn- arstapi eina, en Arnarstapi og Hellnar geta náð saman beint eft- ir kl. 9 á kvöldin til 9 að morgni. Mjög mikið hefur borið á slæmu sambandi og bilunum á þessu inn- ansveitarsímasambandi og hefur ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU \1 Gl.YSIXG V SIMIW EU: 22180 sambandið milli Breiðuvíkur og Hellna verið svo slæmt stundum að lítið sem ekkert hefur heyrst. Þá hefur nú síðustu vikuna verið sambandslaust milli bæja á Helln- um, og hefur þá orðið að fá sam- band við næstu bæi í gegnum Stykkishólm eða Búðardal. Ekki hef ég heyrt neitt sem hægt er að byggja á um það af hverju þetta stafar en raddir hafa heyrst um það að línan væri ónýt, eða tækin á bæjunum, en það sem um það er, þá er þetta óviðunandi ástand sem þarf að ráða bót á hið allra fyrsta. Þá er póstþjónustan mjög slæm siðan pósthúsið á Stapa var lagt niður. Mjólkurbíllinn sem sækir og flytur mjólkina í sveitina flytur póstinn til okkar og eru þessar ferðir tvisvar í viku á föstudögum og mánudögum. Aðalpósturinn kemur á föstudögum, sáralitið á mánudögum, svo segja má að við fáum öll dagblöðin einu sinni í viku. Nú fáum við ekki póstkröfur fyrr en seint og síðar meir. Kröfu- pakkinn liggur á pósthúsinu í Borgarnesi þar til að búið er að greiða kröfuna. Svo ég taki dæmi; nú fæ ég tilkynningu um kröfu með póstinum á föstudag. Þá get ég í fyrsta lagi sent greiðslu með mánudagsferðinni og þá fæ ég kröfuna næsta föstudag. Svo getur farið svo að ég fái ekki kröfuna fyrr en hálfum mánuði eftir að kröfutilkynningin er send. Svona póstþjónusta er alveg óviðunandi, og verður að fást bætt hið bráð- asta. Samgöngur Samgöngur eru slæmar eins og áður. Sérleyfisrútan fer aldrei um sveitina og hefur engan bíl í sam- bandi við rútuna. Það er kostnað- arsamt fyrir þá sem ekki hafa ráð á bíl að kaupa sér bíl frá Heiðar- kasti útí Breiðuvík eða úr Breiðu- vík á rútuna. Það væri víst ekki vanþörf ástandi. á að bæta úr þessu Þjóðvegurinn hér um nesið er mjög slæmur og þyrfti hann mik- illar lagfæringar við svo að hann gæti talist akfær. Það fer mjög illa með bíla að aka á slíkum veg- um. Ég er undrandi yfir hversu slæmur ofaníburður er látinn í vegina eins og það kostar mikið að keyra efnið ofaní vegina, og mætti því álíta að ekki væri hagkvæmt að keyra slæmt efni og síst er það hagkvæmt fyrir vegfarendur. Framkvæmdir Nú er verið að breyta gripahús- um og hlöðu á Arnarstapa í vikur- verksmiðju, og er meiningin að steypa þarna milliveggjaplötur úr brúnamöl, og stendur til að hefja þessa framleiðslu á næsta vetri ef undirbúningi verður lokið. FLF Stapi stendur fyrir þessari fram- kvæmd. Sveitarstjórnarkosningar I sveitarstjornarkosningunum 26. júní komu 3 nýir menn inn í sveitarstjórnina. Þessir menn komu nýir: Ingólfur Guðmunds- son, Jón Jónsson og Matthías Björnsson. Varamenn í hreppsnefnd eru þessir: Reimar Karlsson, Reynir Bragason, Ingjaldur Indriðason, Olgeir Þorsteinsson og Guðmund- ur Georgsson. Sýslunefndarmaður er Ingjald- ur Indriðason. 28. júlí, Finnbogi G. Lárusson. fyrir þá sem vilja vera svolítid „spes Alfa Romeo verksmiðjumar hafa frá upphafi framleitt bíla sem þurft hafa að ganga í gegnum hinar erfiðustu raunir á kappakstursbrautum um allan heimr Hin fjölmörgu gullverðlaun sem Alfa Romeo hefur sótt á þessar brautir eru ótvíræð sönnun þess að vel hefur til tekist. Við framleiðslu á fóiksbilum fyrir almennan markað hafa verksmiðjumar gætt þess fullkom- lega að viðhalda hinum ótrúlega góðu eiksturs- eiginleikum kappakstursbflanna, kraftinum og öryggisbúnaði. Ennfremur vekur hin sérstæða og fallega ítalska teikning þessa bíls alls staðar verðskuldaða athygli. Verð aðeins frá kr. 134.975 Þú ert svolítið mikið „Spes* ef þú ekur á Alfa Romeo JÖFUR HF. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.