Morgunblaðið - 18.08.1982, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
13
Tel nauðsynlegt að leita nýrra
leiða ef bæta á atvinnuhorfur hér
— segir Gunnar Ragnars, fulltrúi í atvinnumálanefnd Akureyrar
„1>AÐ eru engin ný sannindi að
slæmar horlur eru í atvinnumálum
byggingarmanna hér á Akureyri.
I*að hefur verið vitað í langan tíma
og mikið var rætt um þetta fyrir
kosningar í vor og bent á þessa stað-
reynd. Það er alveg Ijóst að verulega
hefur dregið úr húsbyggingum og
þessar stóru opinberu framkvæmdir,
sem hafa verið i gangi, eru flestar á
lokastigi, eða fjármagn, sem til
þeirra var ætlað i ár, er upp urið og
ekkert er nýtt framundan," sagði
Gunnar Ragnars, fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í atvinnumálanefnd Ak-
ureyrar, í samtali við Morgunblaðið.
„Þess ber þó að geta, að nú er
hér ekkert atvinnuleysi, en þegar
líður á haustið og veturinn er
óvissa um áframhaldandi atvinnu
um 400 byggingarmanna. Þá er
rétt að geta þess, að þetta hefur
keðjuverkandi áhrif og nú hafa
vörubílstjórar hér í bæ mjög lítið
að gera. Atvinnumálanefnd hefur
gert úttekt á þessu ástandi og
málið er í raun tvíþætt. Annars
vegar hvort hægt er að leysa ein-
hvern vanda til bráðabirgða og
hins vegar hvað gera þarf til
frambúðar og það skiptir mestu
máli. í framhaldi úttektar á stöð-
unni í opinberum framkvæmdum
hér er ljóst að nú vinna um 130
iðnaðarmenn við þær fram-
kvæmdir og að hægt væri að
tryKffla þeim áframhaldandi at-
vinnu ef nægilegt viðbótarfjár-
magn fæst, en það er talið vera um
25 til 30 milljónir króna.
Það er hins vegar ljóst að at-
vinna verður ekki tryggð hér til
frambúðar með opinberum fram-
kvæmdum. Það þarf að koma ein-
' ver undirstöðuatvinnuvegur til
og þá ekki bara á Eyjafjarðar-
svæðinu, heldur landinu í heild.
Það er því skoðun okkar sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórn Akureyrar
að til þurfi að koma einhver nýr
iðnaður og þá helzt í tengslum við
virkjun Blöndu. Við teljum það
réttara að rafmagn frá Blöndu-
virkjun verði notað norðanlands
frekar en sunnan. Þá erum við
með það í huga að viðkomandi iðn-
aður kæmi sem flestum íbúum
Eyjafjarðarsvæðisins til góða.
I síðustu viku var sameiginlegur
fundur atvinnumálanefndar og
þingmanna kjördæmisins um
þetta ástand og niðurstaðan varð
sú að atvinnumálanefnd tilnefndi
tvo úr sínum hópi og alþingis-
mennirnir einnig. Þessir menn
skyldu svo ásamt bæjarstjóra
vinna þær upplýsingar, sem fyrir
l*Kgja. nákvæmar og ráðgast um
það hvað til bragðs ætti að taka og
í framhaldi af þvi væntanlega ein-
hverjar viðræður við stjórnvöld,"
sagði Gunnar.
Ef byggja þarf upp nýjan iðnað,
verður þá ekki að skapa honum
viðunandi starfsskilyrði?
„Jú það er rétt. Það nægir ekki
að byggja upp iðnað, ef honum er
ekki séð fyrir viðunandi starfs-
skilyrðum. Ef litið er á gengismál
og gengisþróun undanfarinna
missera kemur það meðal annars í
ljós að á einu og hálfu ári hefur
innlendur kostnaður hækkað um
80% en gengið á Evrópugjaldmiðl-
unum um 40%. Það er ágætur
mælikvarði á það við hvað iðnað-
urinn á að búa hér. Bæði ef ætlun-
in er að flytja út til Evrópu, eða
keppa við evrópskan iðnað, enda
er það ljóst að gjaldeyrir hefur
verið hér á útsölu. Nú erum við í
hörku samkeppni við Vestur-
Evrópu og höfum við verið sam-
keppnisfærir fyrir einu og hálfu
ári hefðum við þurft að auka af-
köstin umfram keppinautana um
25 til 30% til þess að vera sam-
keppnisfærir nú.
Eg held að við verðum hér á
þessu svæði að fara að taka ein-
hverja afstöðu í þessum málum og
hætta að slá þessu eilíflega á frest
og segja aðeins að það þurfi að
athuga þetta og athuga hitt. Það
fer að koma að því að við verðum
að taka á honum stóra okkar og
marka einhverja ákveðna stefnu
og ég vona að það verði sem breið-
ust samstaða um það, því þetta er
ekki bara Akureyri, sem um er að
ræða, heldur allt Eyjafjarðar-
svæðið. Þeir finna það núna, sem
þetta mæðir á, en hinir ekki enn,“
sagði Gunnar.
Helgafellssveit:
Sjálfvirk-
ur sími
Stykkishólmi, 14. ágúst, 1982.
NÚ ER unnið að því að leggja sjálf-
virkan síma um alla Helgafellssveit.
Vinnuvélar eru komnar sem plægja
strengina niður í jörð og áður er búið
að mæla út fyrir hvar línan á að
liggja.
Með þessu verki verða yfir 20
handvirkir símar tengdir við
sjálfvirku símstöðina í Stykkis-
hólmi. í júní sl. var stöðin hér
stækkuð um 100 nr. svo nú eru 500
nr. tengd við símstöðina í Stykk-
ishólmi. Þegar eru farin mörg af
þessum númerum og svo um leið
og viðbótin frá Helgafellssveit
kemur, má búast við að ekki verði
mörg númer til ráðstöfunar. Þá er
fyrirhugað að setja litla stöð í
Flatey og hefir þegar verið unnið
að því að koma þar upp litlu húsi
fyrir tækin.
Fréttaritari
Dalvík:
Góður tog-
araafli, en
afli á hand-
færi rýr
Dalvik, 12. áfSÍsL
Góður afli hefur verið hjá togur-
unum á Dalvik. f dag kom Björgvin
inn með 190 tonn eftir vikuveiðiferð,
en í síðasta kasti í túrnum fékk tog-
arinn 40 til 50 tonn.
Dalborg togari Söltunarfélags
Dalvíkur er nýkominn inn með 80
tonn og í síðustu viku var landað
úr togskipinu Baldri um 100 tonn-
um af vænum og góðum fiski. Afli
á handfæri hefur verið heldur rýr
undanfarið og eru nú sex bátar að
búa sig netaveiði sem hefst núna
um helgina.
Fréttaritararx
Framleibslu
leyndarmal
** sem þú nýtur
góðs af...
SPRED Latexlakk er bandarískt framleiðslu-
leyndarmál sem HARPA H/F hefur
umboð fyrir hér á landi.
SPRED Latexlakk er árangur snjallrar
hugmyndar og þrotlausra rannsókna þarsem
niðurstaðan er þrælsterkt lágglansandi
vatnsþynnt lakk, sem auðvelt er að
mála með pensli eða rúllu.
[tó)j
jrf
©
Litmyndir samdægurs
Komdu meö filmuna fyrlr kl. 11 að morgnl og
þú færö myndirnar tilbúnar kl. 5 síödegis.
Skýrar og fallegar myndir, þriðjungi stærri
en gengur og gerist.
Afgreiöslustaöir okkar eru:
Glögg mynd, Suöurlandsbraut 20, sími 82733,
Glögg mynd, Hafnarstræti 17, sími 22580 og
Magasín, Auöbrekku 44—46, Kópavogi, sími 45300.
í LEIÐINNI BJÓÐUM VIÐ ÞÉR SAKURA-
FILMUR MEÐ 50% AFSTÆTTI.
VÖRULISTAVERSLUN,
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.