Morgunblaðið - 18.08.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
29
Þessir hringdu
Þakklætisvottur
Gunnar Sverrisson, Freyjugötu
8b, hringdi og vildi koma á fram-
færi ljóði, sem til varð vegna
kvikmyndarinnar „Okkar á milli
— í hita og þunga dagsins" eftir
Hrafn Gunnlaugsson. Ljóðið er
ort 28. júlí, en kveikjan að því var
þáttur í fréttaauka útvarpsins,
þar sem fólk var hvatt til að geta
upp á lagi sem spilað var og þeim
er rétt gátu var lofað miða á
kvikmynd Hrafns. Ljóðið er
þakklætisvottur til Hrafns og er
einfaldlega nefnt „Hrafn".
(iuó hefur gefið þér gæfunnar lind,
dygjjð til að gleðja, bæU.
Í4J vænti svo verði um þína kvikmynd,
þann boðskap allt illt uppræta.
<*uð hefur gefið þér gáfur og ráð,
hressa og fræða þegna,
brátt uppsker þú jákvætt, svo til hefur sáð,
nýjasU kvikverki vegna.
(■uð hefur gefið þér gæfunnar dyggð,
þakka þér fyrir mig góði,
ég vænti að þitt kvikverk á íslandsbyggð,
verði lofað og sungið í Ijóði.
Krakkarnir
verða að komast
heim til sín
Kona úr Breiðholtinu hringdi:
„Ég var að hugsa um krakkana,
sem eru að skemmta sér niðri í bæ
um helgar og eiga erfitt með að
komast áleiðis heim til sín, vegna
þess að „strætó" hættir að ganga
klukkan eitt, en það er kannski
svolítið snemmt fyrir suma. Væri
það nokkuð mikið fyrirtæki, að
einn strætisvagn færi hringleiðina
um bæinn á klukkutíma fresti
fram eftir nóttu, þannig að krakk-
arnir kæmust am.k. í hverfin sem
þau búa í. Mér finnst þetta þarfur
hlutur því margir hverjir eiga
ekki mikinn vasapening og
hrökkva þeir því skammt fyrir
leigubílakostnaði. Þetta er orðið
verðugt umhugsunarefni, sér-
staklega þegar borgarstjórn er
farin að veita leyfi til unglinga-
skemmtanahalds í miðbænum og
vitað er að þangað sækja krakkar
úr úthverfum bæjarins."
Vandið betur
textasetningu
Gömul kona frá Húsavík hringdi:
„Ég vil endilega koma á framfæri
vinsamlegum tilmælum til sjón-
varpsins, að það vandi betur til
textasetningar mynda er það sýn-
ir. Ég var að horfa á framhalds-
myndina „Kristófer", sem ég er
nokkuð spennt fyrir, en það olli
mér vonbrigðum hve erfitt var að
fylgjast með íslenska textanum,
vegna þess hve hratt hann var
keyrður í gegn. Ásamt mér var
ungt fólk að horfa á myndina og
var það mér sammála um þetta
atriði. Það er betra að textinn sé
styttri en lengri, ef annar val-
kostur er ekki fyrir hendi, til að
fólk geti fylgst með söguþræði."
Tvær stór-
móðgaðar
Tvær ungar stúlkur höfðu sam-
band við Velvakanda og kváðust
stórmóðgaðar eftir að hafa ætlað
að sjá myndina „Amerískur var-
úlfur í London", sem sýnd er í Bíó-
höllinni. í auglýsingu Bíóhallar-
innar í dagblöðunum stendur, að
hún sé bönnuð börnum. Við héld-
um auðvitað að hún væri bönnuð
börnum innan 12 ára eða 14 ára
aldurs. Við brugðum okkur í Bíó-
höllina og ætluðum að kaupa miða
— en nei, við fengum ekki af-
greiðslu vegna þess að hún er
bönnuð innan sextán ára aldurs.
Við viljum beina því til
kvikmyndahúsanna, að þau skrái
aldurstakmarkið á auglýsingarn-
ar. Þá viljum við koma því á fram-
færi, að við bíðum spenntar eftir
því að lækurinn í Nauthólsvík
verði opnaður."
Stórmerki-
leg grein
um kosninga-
réttinn
Aðeins nokkrar línur til að
koma á framfæri kæru þakklæti
til Guðjóns Lárussonar læknis
fyrir stórmerkilega grein hans í
Mbl. þann 14. þ.m. um kosn-
ingaréttinn. Jafnframt vil ég
hvetja þá, sem ekki lásu þessa
grein, að gera það nú þegar.
Unga fólkinu, sem er svo
frjálslynt í hugsun, vil ég benda
á eftirfarandi í grein Guðjóns:
„Nú eiga 18 ára unglingar að fá
kosningarétt — en ekki allir jafn
mikinn." Það væri verðugt verk-
efni fyrir unga fólkið að kynna
sér ástæðuna fyrir þessu órétt-
læti og gera eitthvað í að leið-
rétta það. Að endingu vildi ég
koma því á framfæri hvort ekki
væri nú full ástæða til, að koma
á borgarfundi til að ræða þetta
furðulega fyrirbrigði, að árið
1982 þurfi að vera til umræðu
hvort við Islendingar eigum
(ekki) allir að hafa jafnan at-
kvæðisrétt!
2461—8420
AUGLYSING ASIMEVN ER;
22480
JM«r«nnliIahíb
Kosningaréttur
— hvað er það?
eftir Gudjón
Lárusson, lœkni
Stjórnarskrárnefnd er nú langt
komin með stórf sín, að þv{ er fjól-
miðlar sejua. Þótt störf hennar
hafi dregist nokkuö á langinn, hef-
ur hún ekki saett verulegri gagn
rýni. Ekkert bendir til annars en
að í henni sé samviskusamlega
unnið og setning stjórnarskrár er
vissulega vandasamt verk, því að
vcntanlega líða áratugir, kannski
aldir, áður en önnur verður sett.
Almenningur hefur lítið látið á
sér bera i fjölmiðlum um stjórn-
arskrármálið, ef undan eru skilin
skrif, sem þó hafa veriö furðu fá,
um misvaegi atkvseða. Það hefur
öllum verið Ijóst árum og áratug-
um saman, að ekki hafa allir
landsmenn setið við sama borð
hvað atkvæðisréttinn snertir. Nú
er svo komið, að mismunur á at-
kvaeðum manna eftir búsetu er
orðinn það mikill, að varla dettur
neinum i hug annað en að ein-
hverja leiðréttingu verði að gera.
Deilurnar hafa snúist um að
„rnmnka misréttið". 1 þvi felst, að
þessu landi. „öll dýr eru jöfn, en
sum eru jafnari en önnur,“ segir í
Félaga Napoleoni. Það hafa líka
alltaf verið til menn, sem telja sig
eiga að vera Jafnari en aðrir".
Á íslandi fer kosningarétturinn
eftir búsetu í landinu. Sá þegn,
sem býr á einum stað, hefur öðru-
vísi kosningarétt en hinn, sem býr
á öðrum stað Nú eiga 18 ára ung-
lingar að fá kosningarétt — en
ekki jafn mikinn. Ungmenni, sem
býr í Reykjavlk og gengur þar í
skóia, verður með minni koan-
ingarétt en jafnaldri þess, sem
gengur í skóla á Akureyri eöa ísa-
firði. Einn unglingur hefur allt að
fimmfalt meiri áhrif á stjórn
landsins, þar með taiin utanrik-
ismál, en annar. Mismunun eftir
búsetu. Tvennskonar þegnar í
landinu. Enginn skortur er á þeim,
sem vilja viöhalda þessu ranglæti
og rökin svipuð og þeirra, sem áð-
ur hafa barist gegn lagfæringu á
kosningarétti. Hvað er verið að
halda i? Svarið er völd. En hver á
að hafa valdið? Svarið er, að á
kjördegi verða allir þegnar lands-
ins að hafa jafn mikiö vald. Þann-
ig er lýðræðið
Ef ástæða er til hverju sinni að
hygla mönnum vegna kynferðis,
ættemis, búsetu, atvinnu, litar-
hætti o.s.frv., o.s.frv., verður að
gera það eins og hefur verið og er
G3? SIGGA V/öGA t \HVtRAN
vú \iÉm o&
r % 'öíw mi\úúouA
V(AN5 <Ö066I\ WAláföT, VA
&LÚ66Am
CJZL.
k(
öKAIGW,
Utsala
Karlmannaföt frá kr. 300.
Terylinebuxur frá kr. 150.
Gallabuxur, flauelsbuxur, úlpur o.m.fl. ódýrt.
Andrés Skólavörðustíg 22,
sími 18250.
Hjartans þakkir votta ég fíllum vinum og vanda-
mfínnum, nær og fjær, sem meö gjfífum, símskeyt-
um og heimsóknum geröu mér 80 ára afmælisdag-
inn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Einar Einarsson,
Hveragerði
Innilegustu þakkir færi ég ykkur fíllum sem á
margvislegan hátt glfíddu mig og heiðruðu á 70
ára afmæli mínu 5. ágúst sl. með heimsóknum,
stórgjfífum og heillaskeytum.
Lifið fíll heil.
Arnór A. Guðlaugsson,
Digranesvegi 83,
Kópavogi.
ALLTAFA FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
KOMA
Viknskammtur af skellihlátri
AUGLÝSINGASTÖFA KRtSTINAR MF