Morgunblaðið - 19.08.1982, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982
27
Toluca-mótið fer
rólega af stað
Skák
Margeir Pétursson
ANNAÐ millisvKÖamótið af þrem-
ur hófst í síðustu viku í Toluca í
Mexíkó. I'ar tefla fjórtán skák-
menn hvaðanæva að úr heiminum
um tvö sæti í næstu áskorenda-
keppni. Undanfarin ár hefur
breiddin á toppnum í skákinni
aukist jafnt og þétt og það er orðið
hartnær vonlaust að spá nokkru
um hverjir verði hlutskarpastir. Ég
undirritaður ætti að vita þetta allra
manna bezt, því ég spáði því fyrir
millisvæðamótið í Las Palmas að
kynslóðaskipti væru í uppsiglingu
á toppnum. Niðurstaðan á mótinu
varö hins vegar sú að aldursforseti
þess, hinn 61 árs gamli Smyslov,
varð annar þeirra sem komust
áfram.
Þótt Alþjóðaskáksambandið
hafi gætt þess vandlega að milli-
svæðamótin þrjú séu sem jöfn-
ust að styrkleika hefur þess lítt
verið gætt að reyna að hafa mót-
in öll jafn lífleg, enda auðvitað
enginn mælikvarði til á það hver
tefli skemmtilegast. Frægustu
kanónurnar, þeir Kasparov og
Tal, lenda t.d. saman á mótinu í
Moskvu 1. september, enda
hlakka flestir skákáhugamenn
mest til þess. Timman og Larsen
voru báðir í Las Palmas, en á
Toluca-mótinu sem nú stendur
yfir eru aftur á móti margir af
rólegri skákmönnunum saman
komnir.
Þegar þetta er ritað eru búnar
fjórar umferðir af mótinu og af
þeim 26 skákum sem er lokið
hafa 17 orðið jafntefli. Fjórir af
þeim sem búist var við að berð-
ust um annað af sætunum tveim
hafa gert allar skákir sínar jafn-
tefli, þeir Spassky, Poluga-
Stærsta
terta heims:
325 metrar
hurfu á
einu kvöldi
Belgrad, 16. ágúst. AP.
MATREIÐSLUMENN fjögurra
hótela unnu i heila viku við að
fullgera tertu, þá stærstu, sem
um getur. Gripurinn mældist 325
metra langur og var seldur ferða-
mönnum á ströndinni í Portoroz,
en sá staður er íslendingum að
góðu kunnur, eitt góðviðriskvöld-
ið í síðustu viku. Hvarf kakan að
sögn eins og dögg fyrir sólu.
Fyrir þá, sem e.t.v. hefðu
áhuga á að spreyta sig á slík-
um bakstri látum við upp-
skriftina fylgja með til gam-
ans. í tertuna fóru 9180 egg,
eitt tonn af sykri, 620 kíló af
smjörlíki, 304 kíló af smjöri,
244 kíló af hveiti og 31 kíló af
kaffi. Ekki fylgdi sögunni
hvernig rúllutertunni var kom-
ið fyrir á ströndinni.
jevsky, Nunn og Jusupov. Staðan
í mótinu er þessi:
1. Igor Ivanov, Kanada 3 v. af
4 mögulegum.
2.-3. Andras Adorjan, Ungverja-
landi, og Yasser Seirawan,
Bandaríkjunum, 2'A v. og bið-
skák sín á milli.
4. Juri Balashov, Sovétríkjun-
um, 2 'k v.
5.-9. Lajos Portisch, Ungverja-
landi, John Nunn, Englandi,
Boris Spassky, Sovét., Lev
Polugajevsky, Sovét., Artur
Jusupov, Sovét, og Krunoslav
Hulak, Júgóslavíu, 2v.
11.-12. Jorge Rubinetti, Argent-
ínu, og Eugenio Torre, Filipps-
eyjum, l'A v.
13. Amador Rodriguez, Kúbu, 1
v.
14. Bachar Kouatly, Líbanon,
'k v.
Igor Ivanov, sá sem trónar nú
á toppnum, flýði til Kanada árið
1979 er hann var á heimleið frá
alþjóðlegu skákmóti á Kúbu, en
hann er eins og nafnið bendir til
fæddur og uppalinn í Sovétríkj-
unum. Hann hefur, eins og fleiri
landar hans sem hafa söðlað um,
blómstrað eftir flóttann en það
er í meira lagi ótrúlegt að hann,
sem fyrir þremur árum var gjör-
samlega óþekktur utan Sovét-
ríkjanna, nái að komast áfram
þrátt fyrir þessa góðu byrjun.
Hann hefur lagt Kouatly og
Torre að velli, en gert jafntefli
við Seirawan og Jusupov.
Yasser Seirawan, 22ja ára
gamall frá Seattle í Bandaríkj-
unum, hefur gengið mjög vel á
kappmótum undanfarin ár og
hefur t.d. lagt bæði Karpov og
Korchnoi að velli. Hann var að-
stoðarmaður Korchnois í síðustu
Landflótta
Rússi efst-
ur á milli-
svæðamóti
Toluca, 16. áfnÍNt. AP.
IGOR Ivanov, Kanada, er efstur á
millisvæðamótinu i skák i Toluca í
Mexíkó eftir að fjórum umferöum er
lokið. Ivanov, sem baðst hælis sem
pólítiskur flóttamaður í Kanada fyrir
tveimur árum, hefur hlotið þrjá vinn-
inga af fjórum mögulegum, en fast á
hæla hans fylgja Seirawan, Banda-
ríkjunum, og Adorjan, Ungverja-
landi, með tvo og hálfan vinning og
biðskák sín á milli. Balashov, Sovét-
ríkjunum, hefur einnig tvo og hálfan
vinning, en þeir Portisch, Ungverja-
landi, Boris Spassky, Nunn, Eng-
landi, og Rússarnir Jusupov og Pol-
ugajevsky hafa allir tvo vinninga.
Tvö efstu sætin á mótinu gefa rétt
til þátttöku í áskorendakeppninni
sem hefst á næsta ári.
Little Fingers, tónatöframaður-
inn Mike Oldfield sem léikur af
fingrum fram úr hljóðgerflum
sinum og spinnur skemmtileg-
ustu þræði, enda er söngurinn
Five Miles Out víða vinsæll og er
reyndar eitt af hans beztu lög-
um.
Þá er þarna astralska
hljómsveitin Mental as Any-
thing, sem sannar að áströlsk
popptónlist er enginn eftirbátur
frænku hennar í Bretlandi og
þannig halda Ástralíumenn
reyndar jafn styrkum takti bæði
í leiklist og kvikmyndagerð þeg-
ar bezt lætur.
Það er bæði þung og létt tón-
list á plötunni Á fullu, en létt
rneti í ríkari mæli eins og vera
ber og þeir eru tii dæmis létt-
lyndir í meira lagi og hressir
þremenningarnir í hljómsveit-
inni Fun Boy Three, sem gerðu
garðinn frægan fyrir skömmu
með laginu The Lunatics, en
plötur þeirra renna nú út eins og
heitar lummur í Bretlandi og
það er einmitt orðið yfir plötuna
Á fullu, það eru margar nýbak-
aðar og heitar lummur á henni
og það er líklega það sem til
stendur hverju sinni á vettvangi
dægurflugunnar.
heimsmeistarakeppni og lausa-
fregnir herma að áskorandinn
fyrrverandi hafi undanfarnar
vikur endurgoldið honum það
með því að hjálpa honum við
undirbúning fyrir Toluca-mótið.
Það þyrfti því engan að undra
þótt Seirawan kæmist áfram og
hann gæd nú þegar náð efsta
sætinu af Ivanov, því hann á inni
betri biðskák gegn Adorjan.
Hann hefur því fengið óska-
byrjun og stóð fyrir fréttnæm-
ustu úrslitum mótsins er hann
lagði hinn geysisterka ung-
verska stórmeistara, Lajos Port-
isch, að velli í annarri umferð.
Hvitt: Portisch
Svart: Seirawan
Nimzoindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
Bb4, 4. e3 — c5, 5. Bd3 — Rc6, 6.
Rf3 — Bxc3
Húbner-afbrigðið, sem þótti
mjög framúrstefnulegt þegar
það fyrst kom fram fyrir rúmum
áratug. Svartur lætur biskupa-
parið ótilkveðinn til að veikja
hvítu peðastöðuna.
7. bxc3 — d6, 8. 0-0
í hinni frægu áttundu einvíg-
isskák þeirra Spasskys og Fisch-
ers lék hinn fyrrnefndi hér 8. e4
— e5, 9. d5, en það er algengasta
framhaldið. Það er athyglisvert
að Seirawan hefur náð góðum
árangri með afbrigðinu með
svörtu, en Portisch oft unnið á
því með hvítu.
— e5, 9. Rd2J?
Þannig lék Ungverjinn einnig
gegn Timman í Wijk aan Zee
1978, sem svaraði með 9. — cxd4,
10. cxd4 —. exd4, 11. exd4 —
Rxd4, 12. Hel+ — Re6, en eftir
13. Ba3! hafði hvítur góðar bæt-
ur fyrir peðið og vann skákina.
Seirawan gín ekki við agninu.
— 0-0, 10. Rb3 — De7, 11. a4 —
b6, 12. Khl — Ba6, 13. Ba3?!
Menn hvíts á a3 og b3 berja
höfðinu við stein í framhaldinu
þár sem peðið á c5 er. Nær virð-
ist fyrir hvít að þreifa fyrir sér á
kóngsvæng, en Portisch veit jú
manna bezt hvernig tefla á með
hvítu gegn Nimzoindversku
vörninni, eða hvað?
— Hfc8, 14. Dd2 — e4, 15. Be2 —
Rb8!
Svartur hefur liðsflutninga yf-
ir á kóngsvæng.
16. f4 — exf3!, 17. gxf3 — Rbd7
Hér og í næstu leikjum er ekki
vænlegt fyrir svart að reyna að
vinna peðið á c4. T.d. nú 17. —
cxd4? 18. Rxd4 og hótar 19. Rf5.
18. Hgl — Rf8, 19. Hg2?! — Rg6,
20. a5
20. Hagl hefði haldið svörtum
niðri á kóngsvæng, en þá á
svartur 20. — Dd7!, 21. a5 —
Da4. Nú hrifsar Seirawan frum-
kvæðið:
— Rh4!, 21. Hf2 — cxd4
Nú fyrst má leyfa sér að taka
peðið. I framhaldinu reynir
Portisch af örvæntingu að afla
sér gagnfæra, en staða hans
reynist of losaraleg.
22. Rxd4 — Bxc4, 23. e4 — De5,
24. Hgl — Bxe2, 25. Hxe2 — Rg6,
26. a6!?
Hæpinn leikur og Seirawan er
vel með á nótunum:
— d5!, 27. Hg5 — Df4, 28. exd5 —
Hxc3!, 29. Dxc3 — Dxg5, 30. d6 —
h5, 31. Dc6 — Hd8, 32. Db5 —
Df4, 33. Dd3 — Hc8, 34. De3 —
Hc4, 35. Rb5
Þessu hefur hvítur ekki efni á,
en staðan var í rúst.
— Df5, 36. Rxa7 — Rh4, 37. Bb2
— Rg4!, 38. d7 — Rxe3, 39. d8-D+
— Kh7 og hvítur gafst upp, því
40. Hxe3 er svarað með Dbl+.
Vel tefld skák af hálfu Seira-
wans, en Portisch, sem hefur
verið mjög mistækur það sem af
er árinu, verður heldur betur að
taka sig á ef hann ætlar að kom-
ast áfram, þó fyrir mótið hafi
margir álitið hann öflugasta
þátttakandann.
ARANGURSRIKAR
STJÓRNUNARAÐGERÐJR
Námskeiö fyrir stjórnendur fyrirtækja
og stofnana.
„Most prevalent and hardest to
discover is the waste of human lab-
or. because it doesn’t ieave any
scrap behind which has to be
cleaned up.a
(Henry Ford)
Mr. Edward H. Hartmann
Preskient of Maynard
Menagement Institute.
Ráðgjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgðahald
Upplýsingakerti — Tölvuráðgjöf
Markaðs- og söluráðgjöt
Stjórnenda- og starfsþjálfun
Fyrirlesarinn E.H. Hartmann er yfirmaöur Maynard Manage-
ment Institute USA og í stjórn H.B. Maynard & Co.
Hjá M.B. Maynard & Co. starfa um 300 manns og er þaö
meöal virtustu ráögjafafyrirtækja í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Allt frá stofnun þess 1934 hefur fyrirtækiö veriö braut-
ryöjandi í þróun nýrra stjórnunaraöferða.
E.H. Hartmann hefur langa reynslu á aiþjóölegum vettvangi
sem ráögjafi og fyrirlesari.
Modern Managment Methods for Achieving Quick
Results
1. What is your real productivity?
A useful formula that considers your available produc-
tivity factors.
2. The key to improved productivity.
3. Using standards to set realistic goals.
4. A performance reporting system for more scientific man-
agement.
5. "Activity Value Analysis" for controlling overhead costs.
Námskeiö þetta er hnitmiöað yfirlit úr fimm
tveggja daga námskeiöum um árangursríkar
stjórnunaraögeröir.
Aðferöir þær sem veröa kynntar eru nýjar hér á
landi en hafa margsannaö gildi sitt í Bandaríkj-
unum og víöar.
Fundarstaður: Hótel Loftleiöir.
Tími: Fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13.30—18.00.
Verö: Kr. 2000,-
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 44033
sem fyrst. Fjöldi takmarkaöur.
REKSTRARSTOFAN
— Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum —
Hamraborg 1
202 Kópavogi
Sími 91-44033