Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 20

Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND HALLDÓRSSON Stríðsþreyta í Irak en Khomeini hafnar friði MÚHAMEÐSTRÚARMENN af trúflokki shíta í íran minnast morðsins á einum fyrsta ieiðtoga þeirra fyrir 1.300 árum, pislarvottinum Hussein, á hverju ári um þetta leyti, í mánuði þeim sem þeir kalla muharram. Eins og við var búizt notaði Khomeini erkiklerkur tækifærið til þess að hefja nýja sókn inn i írak til þess að refsa írökum fyrir innrásina, sem þeir gerðu í íran í september 1980. Þar sem ófriðurinn er trúarstríð i augum Irana telja ýmsir að tilgangur þeirra sé auk þess sá að ná á sitt vaid bænum Karbala suður af Bagdad, inn. úsundir íranskra hermanna og byltingarvarða réðust á stöðvar Iraka, vestur af íranska bænum Dezful í suðurhluta landsins, 2. nóvember með öllum þeim vopnum, sem nútímaher hefur yfir að ráða, en með litlum stuðningi flugvéla. Sóknin gekk undir nafninu „Muharram" og fylgdi í kjölfar annarrar sóknar réttum einum mánuði áður, við Sumar á miðvígstöðvunum. I árásunum tókst tíu þúsund manna liði Irana að hrekja Iraka yfir landamærin, ná aftur nokkrum hernaðarlega mikil- vægum hæðum, þar sem íraksk- ar fallbyssuskyttur höfðu hreiðrað rammlega um sig, og komast um 10 km inn í Irak. íranar héldu því fram að frá stöðvum þeim, sem þeir náðu aftur á sitt vald, gæti stórskota- lið þeirra ógnað birgðaflutn- ingaleiðum íraka og skotið á nokkra bæi og olíusvæði í Irak. Barizt er á hrjóstrugum svæðum og áður en írakski herinn hörf- aði yfir landamærin lagði hann íranska landamærabæi í rúst og skildi eftir sviðna jörð og það hefur enn aukið gamalt hatur ír- ana á Irökum. Þegar sóknin fjar- aði út gat Khomeini haldið því fram að sigur hefði unnizt og herforingjar hans sögðu að leið- in til Bagdad, sem er í um 300 km fjarlægð, hefði verið opnuð. Æ fleiri menn hafa verið kvaddir í íranska herinn og tugir þúsunda unglinga og miðaldra Irana hafa boðið sig fram til herþjónustu á vígstöðvunum. Ungir íranir, sem hafa fallið í stríðinu, skipta áreiðanlega tug- um þúsunda. Fréttaritari blaðs í Bagdad kveðst hafa talað við nokkra fanga á aldrinum níu til 16 ára, sem hafi verið teknir með valdi í herinn. Þegar fréttaritari AP á vígstöðvunum spurði ír- anska unglinga hvað foreldrum þeirra fyndist um að vita af þeim á vígsstöðvunum sögðu þeir: „Þeir telja að Guð hafi gef- ið þeim barn og ef Guð vilji taka það frá þeim endurgjaldi þeir gjöfina." Nálægt vígvöllunum standa stór áróðursspjöld með myndum af Khomeini. „Þetta er ekki venjulegt stríð," sagði Sayy- ed Shirazi ofursti. „Þetta er trú- arstríð ... Með Guðs hjálp vinn- um við lokasigur." þar sem Hussein píslarvottur er graf- Herlið islamskra byltingar- varða, sem mun skipað 150.000 mönnum, reynir að sitja við sama borð og herinn á vígstöðv- unum og byltingarverðirnir telja sig yfir hermennina hafna, þar sem Bandaríkjamenn þjálfuðu þá (hins vegar fá flestir verðirn- ir aðeins þriggja mánaða þjálf- un). Nú vinna byltingarverðirnir að því að koma á laggirnar brynsveit, skipaðri skriðdrekum (45 talsins að þeirra sögn), sem hafa verið teknir herfangi af Ir- ökum. Þeir segja að samvinna þeirra og hersins sé með ágæt- um. „Yfirburðatækni hersins og baráttuþrek og trúarkraftur byltingarvarðanna leggjast á eitt um að gera okkur að mátt- ugu herliði," sagði taLsmaður byltingarvarðanna. Saddam Hussein íraksforseti hefur samþykkt friðarviðræður í meginatriðum og líklega félst í samþykki hans, að hann sé fús að greiða stríðsskaðabætur, en Khomeini hefur neitað að sam- þykkja friðartillögur annarra múhameðstrúarríkja. Khomeini hefur strengt þess heit að halda baráttunni áfram þar til stjórn Saddam Husseins og Baathista- flokks hans hefur verið steypt af stóli. Hann bíður og vonar að hrun írakska hersins leiði til þess og að shítar, sem eru í meirihluta í írak, nái völdum. Vestrænir sérfræðingar telja að ófriðurinn muni dragast á lang- inn þangað til íranir lýsi sig fúsa til samningaviðræðna. Ef friður kemst á geta Iranir aukið olíuframleiðslu sína, sem nemur nú um tveimur milljónum tunna á dag, og flutt inn hráefni og varahluti, sem mikill skortur er á. Auk þess gætu þeir fengið aðstoð erlendra sérfræðinga í at- vinnumálum, sem eru í kalda koli. Um fimm milljónir Irana, af 36 milljónum alls, eru at- vinnulausar, biðraðir eru dag- legt brauð vegna skömmtunar, verð á matvælum er hátt og al- menningur býr við þröngan kost. Spilling er svo útbreidd í íran, að keisarastjórnin virðist heið- arleg í samanburði við Khom- eini-stjórnina að sögn eins sér- fræðings. Nýlega munaði minnstu að vítur væru sam- þykktar á þingi á Muhammed- Javad Gonabady húsnæðismála- ráðherra vegna afleits ástands í húsnæðismálum. En ólíklegt er að efnahagsleg rök fái Khomeini til að semja frið, enda sagði hann á fyrsta ári byltingarinnar: „Við gerðum ekki byltingu til að lækka verð á vatnsmelónum." Stríðsþreytu gætir í írak, enda er sagt að hver fjölskylda eigi einhvern á vígstöðvunum, eða fallinn eða særðan. Talið er að írakar hafi misst 30—60.000 menn og 50.000 hafi verið teknir til fanga, en það er meira mann- fall en Bandaríkjamenn urðu fyrir í öllu Víetnam-stríðinu (Ir- akar eru um 14 milljónir). Enn sem komið er hefur stríðið ekki leitt til röskunar í efnahagsmál- um, enda hafa Irakar fengið a.m.k. 12 milljarða dollara að- stoð á ári frá Saudi-Arabíu og öðrum íhaldssömum Arabaríkj- um. Olíuútflutningur hefur minnkað úr 3,5 milljónum tunna á dag í um 650.000 síðan stríðið hófst, en ýmsum þróunaráætlun- um er haldið áfram. Það er talið einstætt afrek, að þróunarríki hafi getað háð styrjöld í tvö ár og haldið áfram þróunarfram- kvæmdum á sama tíma. Tvennum sögum fer af því hvort Hussein stafar alvarleg ógnun frá stríðsþreytunni. Flest- ir efast um að shítar (sem eru átta milljónir) muni verða við uppreisnaráskorun Khomeinis, sumir telja að shítum finnist Khomeini verri en Hussein og að jafnvel shítar vilji ekki islamskt lýðveldi eins og í Iran. Aðrir telja að Hussein hafi þungar áhyggjur af ástandinu. í síðustu viku var sjónvarpað ræðu, sem hann hélt á ríkisstjórnarfundi. Þar varði hann stríðsreksturinn og kenndi Irönum um að átökin hefðu dregizt á langinn. Síðan lagði hann til að þjóðaratkvæða- greiðsla færi fram um traust eða vantraust á stjórnina í írak, ef Khomeini gerði slíkt hið sama í íran. Á laugardaginn var haldinn fjöldafundur í Bagdad og ríkis- fjölmiðlar sögðu að hann sann- aði vinsældir Husseins. Ræða Husseins og fundurinn voru mjög óvenjulegir atburðir, sem þóttu ekki einkennandi fyrir Hussein. Ástæðan getur hafa verið sú að Hussein telji nauð- synlegt að sýna Irönum og hugs- anlegum andstæðingum heima fyrir að hann njóti stuðnings meðal almennings. Þegar íranir þjörmuðu að Basra í sumar kenndu írakar Khompini um stríðið. Nú eru þeir farnir að skella skuldinni á Hussein. Bók um líf og list Nínu Tryggvadóttur KOMIN er út bók um Nínu Tryggvadóttur, þar sem fjallad er um líf hennar og list. Þar er að finna listprentanir af málverkum frá öll- um skeiðum listferils Nínu. Iceland Review gefur bókina út, og er frumútgáfan á ensku og nefnist N. Tryggvadóttir — Serenity and Power. Samtímis kemur bókin út á íslensku með titilinn Nína — í krafti og birtu. Er íslenska útgáfan í dreifingu hjá Bókaklúbbi Al- menna bókafélagsins. Samstarf Iceland Review og Almenna bóka- félagsins um þessa útgáfu er hliðstætt því sem var um Kjar- valsbókina í fyrra. Bókin um Nínu er í sama broti — og eru þessar tvær bækur vísir að stærri flokki um íslenska listamenn. I bókinni um Nínu er inngangur eftir Halldór Laxness, en Hrafn- hildur Schram, listfræðingur, skrifar megintexta bókarinnar og hún hafði og umsjón með mynda- vali. Hefur bókin að geyma 58 litmyndir af málverkum, gler- myndum og mósaikverkum lista- konunnar. Auk þess er þar að finna svart-hvítar myndir: teikn- ingar, grafík og myndir af lista- konunni sjálfri. Hönnuður bókarinnar er Guð- jón Eggertsson, sem einnig hann- aði bókina um Kjarval, sem sömu útgefendur sendu frá sér í fyrra. Færði Hringnum 50 þúsund kr. að gjöf KVENFÉLAGIÐ Hringurinn hefur átt óteljandi stuöningsmenn og kon- ur, þau 78 ár sem það hefur starfaö að hinum ýmsu líknar- og menning- armálum. Nú fyrir skömmu boðaði Tómas A. Tómasaon, eigandi veitinga- staðanna „Tomma hamborgarar", formann Hringsins á sinn fund. Tilefnið var að afhenda Barna- spítalasjóði Hringsins kr. 50.000,- að gjöf. Peningarnir eru ágóði af rekstri barnahringekju í matstof- unni að Grensásvegi 7. Tómas keypti þetta leiktæki og ber allan kostnað af rekstri þess, svo allt það fé sem inn kemur rennur óskipt í Barnaspítalasjóð Hrings- ins. Stjórn félagsins þakkar þessa höfðinglegu gjöf. Meðfylgjandi mynd er tekin þegar formaður Hringsins, frú Sigríður Johnson, tekur við lyklinum að peninga- kassa leiktækisins úr hendi Tóm- asar A. Tómassonar. (FrétUtilkynninj!)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.