Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Deilt um heilsu Diönu prinsessu l/4>ndon, 16. nóvember Al*. ORÐRÓMUR hefur verið um það í Bretlandi að Iliana prinsessa gangi ekki heil til skógar en i fréttum það- Grikkir heimila nekt- arnýlendur Aþenu, 16. nóvember Al*. ÁKVEÐIÐ hefur verið að koma á fót nektarnýlendum í Grikklandi svo fremi veraldleg og geistleg yf- irvöld á viðkomandi stað láti sér það lynda, að því er haft var eftir frammámanni í ferðamannaiðn- aðinum í dag. Ferðamönnum í Grikklandi hefur faekkað mjög á síðari árum og þess vegna skal nú brugðið á þetta ráð til að auka aðdráttar- aflið fyrir náttúrudýrkendur og þá, sem vilja helst spranga um á evuklæðunum einum. Árið 1980 voru sams konar áætlanir lagðar á hilluna eftir að grískir prestar gerðu aðsúg að vestur-þýskum náttúrubörnum, sem tekið höfðu á leigu hótel nokkurt á Pelops- skaga. Einnig er að því stefnt að gera Aþenu að alþjóðlegu ráðstefnu- setri en þar hefur lítil nýting fyrsta flokks hótela lengi verið vandamál. í því skyni verða reistar tvær ráðstefnumiðstöðv- ar, önnur fyrir 7.000 gesti en hin fyrir 1.000. í fyrra komu 5,6 milljónir ferðamanna til Grikklands en eru heldur færri í ár þótt ekki muni miklu. Tekjur af ferða- mönnum hafa hins vegar hrap- að. Frá upphafi árs til ágústloka í ár eru þær 18,4% minni en í fyrra eða 974 millj. dollara á móti 1,19 milljörðum. an i dag segir, að hún hafi farið í læknisskoðun og þá komið i Ijós, að ekkert amaði að henni. Bresku síðdegisblöðin halda því hins vegar fram, að Díana þjáist af anorexia nervosa en það er sjúkdómur, sem stundum skýtur upp kollinum þegar konur fara í stranga megrun. I dag tóku þau hjónin, Díana og Karl, á móti Beatrix Hollandsdrottningu og Claus prinsi þegar þau komu í opinhera heimsókn til Englands og lék þá Díana á als oddi, brosti og kankaðist á við Karl, en var þó dálítið föl og þynnri á vangann en verið hefur. Það var blaðið Daily Mirror, sem flutti fregnina um veikindi Díönu, og segist það ekkert mark taka á þótt sögunni sé neitað í Buckingham-höll. Kveðst það hafa það eftir ættingja hennar ónefnd- um, að fjölskyldan sé mjög áhyggjufull yfir heilsufari Díönu. Læknir hennar hefur þó lýst því yfir, að hún sé stálhraust og vel á sig komin að öllu leyti. Fanfani falin stjórnarmyndun Kóm, 16. nóvember. Al*. SANDRO PERTINI, forseti Ítalíu, fól í dag fyrrum forsætisráðhorra landsins, hinum 74 ára gamla Amit- ore Fanfani, að hefja stjórnarmynd- un. Fanfani hefur fjórum sinnum verið forsætisráðherra ítala. Ákvörðun þessi var tekin eftir 20 mínútna fund forsetans og Fanfani. Fanfani, sem er forseti öldungadeildar ítalska þingsins, lýsti því yfir í dag að hans biðu umtalsverðir erfiðleikar við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Fimm Úokka ríkisstjórn Gio- vanni Spadolini féll fyrir þremur dögum. LECH Walesa sést hér yfirgefa verustað sinn í Arlamow í Suður-Pól- landi, en þar hafði hann verið hafður í haldi i nokkurn tíma. Áður hafði hann verið i varðhaldi í Varsjá. Mikill mannfjöldi beið alla helgina fyrir utan heimili hans i Gdansk og var honum innilega fagnað þegar hann loks kom. Fangelsid yfirgefid Sex manns handtekn- ir á Ítalíu Miklar aðgerðir gegn Rauðu herdeildinni Tórínó, 16. nóvember. Al*. LÖGREGLAN i Tórínó á Ítalíu handtók í dag sex manns, sem grun- aðir eru um aðild að Rauðu herdeild- inni. Hafa þá verið handteknir alls 24 menn frá því um helgina, en þá byrjaði ítalska lögreglan umfangs- miklar aðgerðir um allt landið í því skyni að brjóta á bak aftur þessi hryðjuverkasamtök. ítalska lögreglan handtók um helgina 18 manns í borgunum Tór- ínó, Mílanó og Napólí, sem allir eru taldir tilheyra Rauðu her- deildinni. Var haft eftir lögregl- unni, að þessir menn hefðu áform- að að gera árásir á stöðvar Atl- antshafsbandalagsins á Italíu og myrða tvo stjórnmálamenn í Tór- ínó og Mílanó. Krónprins í klípu Amsterdam, 16. nóvember AP. WILLEM Alexander, 15 ára gam- all krónprins Hollendinga, tafðist í þrjá tíma á Heathrow-flugvelli í London sl. sunnudag, vegna þess að lífvörður hans neitaði að af- henda öryggisvörðum á flugvellin- um byssu sína til geymslu. Stóð lengi í miklu stímabraki en að lok- um féllst lífvörðurinn þó á, að flugstjórinn passaði byssuna með- an á fluginu stæði. Komst þá krónprinsinn heim til sín. 100% kosninga- þátttaka Vín, 16. nóvember. AP. HVER einn og einasti kjósandi skilaði sér á kjörstað í þingkosn- ingum, sem nú nýlega fóru fram í Albaníu. Svo segja að minnsta kosti albanskir embættismenn og samkvæmt upplýsingum þeirra greiddu 1.627.968 manns atkvæði. Þar af voru átta atkvæði ógild og einn var á móti! Habib sendur til að Kohl i heimsókn hjá Reagan forseta. Ilelmut Kohl kanslari Vestur-Þýska- lands er nú i Bandaríkjunum til viðræóna við bandaríska ráðamenn. I gær, mánudag, heimsótti hann Reagan forseta í Hvíta húsið og þá var þessi mynd tekin. flýta fyrir viðræðum Wa.shint’ton, Beirút og Tel Aviv, 16. nóvember. AP. ÁKVEÐIÐ HEFUR verið að Philip Habib, sérlegur sendifulltrúi Reag- ans Bandaríkjaforseta í Miðausturlöndum, haldi til Beirút, Damaskus og Tel Aviv síðar í þessari viku. Hlutverk Habib er að reyna að flýta fyrir gangi samningavið- ræðna Israela, I.íbana, Palestínu: manna og Sýrlendinga um brott- flutning erlends herliðs frá Líban- on. Til þessa hefur Morris Draper sendiherra stýrt viðræðunum, en með takmörkuðum árangri. Fulltrúar þjóðanna hafa til þessa látið deilur um hver stjórni viðræðunum standa þeim fyrir þrifum. Hafa þeir ekki verið ánægðir með frammistöðu Draper og þá ekki síður vegna þeirrar staðreyndar, að þeim finnst hann ekki nægilega háttsettur. Ariel Sharon, varnarmálaráð- herra Israels, sagði í dag, að ísra- elski herinn færi hvergi fyrr en allt herlið Sýrlendinga væri á Kohl ítrekar stuðning sinn við Atlantshafsbandalagið ti’ i.: i«i —A. k ti> “ Washington, 12. nóvember AP. IIELMUT KOHL, kanslari Vestur- Þýzkalands, ítrekaði i dag fyrri stuðningsyfirlýsingar sínar við Atlantshafsbandalagið og lýsti yfir áhyggjum sínum yfir þeim tillögum, sem fram hafa komið um að Banda- ríkjamenn fækki í herliði sínu í Evr- ópu. Gerðist þetta á fundi, sem Kohl átti í dag með þingmönnum úr öld- ungadeild Bandarikjaþings. Richard Lugar, öldungadeildar-- þingmaður frá Indiana, sem er formaður þeirrar nefndar öld- ungadeildarinnar, er fer með utanríkismál sem varða Vestur- Evrópu, sagði eftir fundinn, að Kohl væri þeirrar skoðunar, að sérhveV brottflutningur á banda- rísku herliði frá Vestur-Þýzka- landi væri neikvæður með tilliti til samninga við Sovétríkin um fækkun á kjarnorkuvopnum. Lagt hefur verið til af einni nefnd öldungadeildarinnar, að fækkað verði um 20.000 manns í herliði Bandaríkjanna í Vestur- Þýzkalandi. brott frá Líbanon. Þá krafðist Sharon þess að skipst yrði á föng- um og að líkum ísraelskra her- manna, sem látið hafa lífið í átök- um í Líbanon, yrði skilað. Sharon sagði 7.000 palestínska hermenn enn vera í Líbanon. Sagði hann þá halda kyrru fyrir að baki varnarlínu Sýrlendinga í norðurhluta Líbanon. Þá sagðist Sharon óska eftir því, að alþjóð- lega gæsluliðið í Líbanon taki sér stöðu í fjöllunum í miðju landsins til að fylla það tómarúm, sem Sýrlendingar myndu skilja eftir sig er þeir færu. Til harðra átaka kom í fjalla- þorpinu Aley í nótt. Áttust þar við sveitir kristinna hægrimanna í Líbanon og hermenn Drúsa. Deil- ur á milli þessara flokka hafa nú varað í fimm vikur. Israelski her- inn greip í taumana í nótt þegar hæst lét og tókst að kveða niður átökin. Var útgöngubann fyrir- skipað. Oþekktir menn vörpuðu í gær handsprengju að hópi ísraelskra ERLENT hermanna, sem voru á eftirlitsferð suður af Beirút, með þeim afleið- ingum, að einn hermannanna lést. Talið er að hér hafi menn úr röð- um Drúsa verið á ferð. New York: Varð eldi að bráð hlekkjuð í kjallara New York, 16. nóvember AP. MADUR nokkur í New York hef- ur verið ákærður fyrir að eiga óbeinan þátt í dauða 18 ára gam- allar dóttur sinnar með því að hafa hlekkjað hana niðri í kjallara á heimili þeirra. Eldur kom upp í húsinu og varð stúlka honum að bráð þar sem hún gat ekki forðað sér. Þegar slökkviliðsmönnum hafði tekist að slökkva eldinn í húsinu, sem er einnar hæðar einbýlishús, fundu þeir lík stúlkunnar, Marilyn Nabriet, í kjallaranum og var augljóst, að hún hafði reynt að forða sér en ekki getað þar sem hún var hlekkjuð við einn loftbitann með þriggja metra langri keðju. Faðir stúlkunnar var ekki heima þegar eldurinn kom upp en hann hefur viðurkennt að hafa skilið við stúlkuna eins og áður er lýst. Kvaðst hann hafa gert það vegna þess, að hann óttaðist, að dóttir sín yrði vænd- iskona.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.