Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
23
Fréttabréf frá Peking:
Voru börnin falin fyr-
ir talningarmönnum?
Kínverjar taldir rúmlega milljarður
I'eking, frá Kristjáni (iuðlaugssyni.
KÍNVERJAR eru orðnir fleiri en einn milljarður. Þessar upplýsingar voru
gefnar hér í Peking í lok októbermánaðar, eftir cinhverja umfangsmestu
manntalningu sem fram hefur farið. Nánar tiltekið eru Kinverjar
1.031.882.511, þ.e.a.s. þegar manntalið var tekið, klukkan 24:00 þann 1.
júlí í ár. Innifalið í þessari tölu, eru Kínverjar þeir sem búa í Hong Kong,
á Formósu og á portúgölsku nýlendunni Macao. Það hefur vakið athygli
erlendra fréttamanna, að yfirvöld á Formósu hafa veitt meginlands Kín-
verjum upplýsingar um mannfjölda á eynni. Telja ýmsir að þar sé á
ferðinni upphafið að einhvers konar samstarfi, sem síðar muni leiða til
sameiningar þessara fornu fénda.
Síðast var tekið manntal í
Kína árið 1964, en þá reyndust
Kínverjar vera rúmlega 694
milljónir. Aukningin á þessum
18 árum svarar því til rúmlega
313 milljóna, en árleg aukning
hefur verið 17,5 milljónir eða
2,1%.
Skýrsla um manntalið er
væntanleg í árslok, en þar mun
að finna tölur um mannfjölda í
sérhverju héraði og borg og
einnig tölur um stærð minni-
hlutaþjóðflokkanna. Tölfræði-
legar upplýsingar um skiptingu
milli kynja, sveita og borga auk
annars munu og verða. Þá hafa
Kínverjar í fyrsta skipti gefið
upp fjölda hermanna í fasta-
hernum, en hann svarar til 4,23
milljóna. Ber þess þá að gæta, að
heimavarnarlið mun til staðar á
flestum stöðum í landinu og allir
vopnfærir Kínverjar leggja
stund á einhvers konar hernað-
aræfingar.
Vandamálið við talningu þess-
arar stærstu þjóðar heimsins
voru gífurleg. Stærð landsins er
sem svarar Evrópu allri ef
Rússland er ekki talið með. Og
víða á útjöðrum ríkisins eru tor-
færar eyðimerkur, hálendir
fjallgarðar og frumskógar. Það
varð því víða að grípa til fornra
ferðamáta, þegar manntalningin
fór fram. Ferðast var á hestum,
úlföldum og öðrum þeim far-
arskjótum er tiltækir voru og
henta þóttu. Margir hafa orðið
til að bera brigður á talningu
kínversku þjóðarinnar. Þykjast
sumir sjá, að Kínverjar muni
vera talsvert fleiri og leiða að
þessari skoðun ýmis rök. Þar á
meðal er því haldið fram, að
heildarstefna kommúnista-
flokksins í fólksfjölgunarmálum
hafi hrætt ýmsa frá því að gefa
upp raunverulega stærð fjöl-
skyldunnar, af ótta við einhvern
eftirmála ef fjölskyldustærðin
væri í andstöðu við flokkslínuna.
Því er nefnilega svo farið, að
kínverski kommúnistaflokkur-
inn hefur ákveðið að Kínverjar
skuli vera komnir niður undir
700 milljónir árið 2000. Því hafa
stjórnvöld tekið upp refsiaðgerð-
ir sem þykja heldur harkalegar,
gegn fjölskyldum sem eiga fleiri
en eitt barn. Um þetta má að
sjálfsögðu deila, en Kínverjar
hafa sjálfir bent á að ef mann-
fjölgunin fengi að þróast óáreitt,
myndu vandamálin sem henni
fylgdu vaxa kínverskum stjórn-
völdum yfir höfuð og hungur-
sneyð eða almenn vansæld koma
í kjölfarið. Ein refsiaðgerðanna
er að annað barn fær ekki ókeyp-
is skólagöngu eða önnur samfél-
agshlunnindi sem fyrsta eða
eina barn. Vera má að einhver
brögð hafi verið að slíkum felu-
leik, en kínverskir talningamenn
halda því fram að óvissuhlutfall-
ið í talningunni sé óvenjulega
lítið og að almenningur hafi tek-
ið manntalningunni með skiln-
ingi. Afleiðingar fólksfjölgun-
arstefnu kínverskra stjórnvalda
eru þegar sýnilegar á götunum
hér í Peking. Fátt er um unga-
börn, en miðaldra og gamlir fjöl-
margir. Vandamálin sem þessu
fyigja eiga þó eftir að vaxa þegar
fram í sækir. Ein afleiðingin er
þó þegar komin í ljós, hvergi
mun geta um annað eins barna-
dekur og hér í Kína, einfaidlega
af því hve fátt er um börn.
Víetnamar nota eitur-
efni frá Sovétríkjunum
„Gula regninu“ beitt jafnt gegn óbreyttum borgurum sem hernaðarmannvirkjum
Útvarp Rauðu Khmeranna:
Hangkok, l<*. nótemlHT. Al\
ÚTVARPSSTÖÐ Rauðu Khmeranna í Kambódíu ásakaði í dag rannsóknar-
nefnd frá Sameinuðu þjóðunum um að neita að verða við tilmælum um að
ganga úr skugga um sannleiksgildi frásagna um eiturefnahernað Víctnama í
Kambódtu.
Nefnd þessi er skipuð 7 mönnum
og kom hún til Thailands 25.
október sl. í umboði Allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna til þess
að kanna ásakanir Bandaríkja-
manna þess efnis, að Víetnamar
notuðu eiturefni frá Sovétríkjun-
um, sem gefið hefur verið heitið
„gula regnið" og beittu því jafnt
gegn óbreyttum borgurum sem
hernaðarlegum skotinörkum.
Hefði þetta verið gert bæði í Kam-
bódíu og Laos.
Útvarpsstöð Rauðu Khmeranna
benti á, að tveir af nefndarmönn-
unum hefðu ekki þrátt fyrir til-
mæli viljað fara inn í Kambódíu
og hefðu þeir borið það fyrir sig,
að til þess hefðu þeir ekki haft
neina heimild frá Sameinuðu
þjóðunum. Útvarpsstöðin sagði, að
hinir nefndarmennirnir „hefðu að-
eins farið 300 metra inn í
Kambódískt land frá landamær-
um Thailands". Sönnunum Rauðu
Khmeranna, er sýndu notkun
efnavopna, hefði verið komið fyrir
lengra inni í Kambódíu. Dæmi um
það hefði verið veikt fólk á sjúkra-
húsum eftir slík vopn og eiturduft,
sem Rauðu Khmerarnir hefðu
komizt yfir.
Þá sagði útvarpsstöðin enn-
fremur: — Nefndarmennirnir
voru þrábeðnir af kambódískum
læknum um að koma og kynna sér
þessi sönnunargögn, en án árang-
urs. Það hefði þó tekizt að láta
nefndarmönnunum í té „áþreifan-
leg sönnungargögn" um efnahern-
að Víetnama.
Noregur:
Ríki og kirkja
fyrir rétti
Tromsö, 16. nóvember. AP.
NORSKA stjórnarskráin og sambandið milli ríkis og kirkju hafa verið til
meðferðar fyrir dómi undanfarna viku í Noregi. Mál þetta er rekið fyrir
áfrýjunardómstóli í Hálogalandi og er tilefnið það, að presturinn séra Borre
Knudsen hefur ekki sætt sig við lög um frjálsar fóstureyðingar, sem sam-
þykkt hafa verið í Noregi. Knudsen kallar lög þessi „óguðleg" og hefur
neitað að framkvæma hjónavígslur og skírnir, opnar ekki lengur bréf þau,
sem honum berast frá kirkjumálaráðuneytinu og hefur krafizt þess, að
launagreiðslur til hans frá rikinu verði
Asamt konu sinni og börnum
hefur Knudsen lifað á framlögum
frá sóknarbörnum sínum. Heimili
þeirra er um 95 km fyrir sunnan
Tromsö (en um 1.750 km fyrir
norðan Osló). Ragnar Gammel-
gaard, formaður sóknarnefndar-
innar, þar sem Knudsen er prest-
ur, hefur lýst því yfir fyrir dómi,
að sóknarbörn Knudsens óski þess
eindregið, að hann haldi starfi
sínu áfram.
Þetta er barátta manns, sem
reynir að þjóna tveimur húsbænd-
um, annars vegar stjórnvöldunum
og hins vegar kirkjunni, sagði
Knudsen í réttarhöldunum. Þegar
ríkisstjórnin lét samþykkja þessi
óguðlegu lög, þá glataði hún um
leið rétti sínum til þess að stjórna
kirkjunni.
Afrýjunardómstóllinn er
skipaður þremur löglærðum dóm-
urum og fjórum leikmönnum og
eiga þeir að kveða upp dóm um,
hvort Knudsen skuli sviptur kalli.
Ekki er enn vitað, hvenær dómur
verður kveðinn upp.
Þetta er í annað sinn á þessu
ári, sem Knudsen mætir fyrir
dómi út af þessu sama tilefni.
Hann var sýknaður í fyrra sinnið.
Þar var dómarinn forsvarsmaður
trúflokks eins og með honum sátu
í dóminum tveir leikmenn, sem
báðir eru þó kunnir sem ákafir
trúmenn. Dómur þeirra var um
100 vélritaðar síður. Þar er ráðist
á „hættulega undanlátssemi", sem
gegnumsýri norskt samfélag og
Veður
Akureyri -4j snjókoma
Amsterdam 8 heiðskirt
Aþena 20 rigning
Barceiona 16 hálfskýjað
Berlín 5 skýjað
BrUssel 8 rigning
Buenos Aires 22 skýjað
Caracas 27 heiðskírt
Chicago 1 skýjað
Dyllinni 7 heiðskirt
Feneyjar 12 léttskýjað
Frankfurt 7 skýjað
Færeyjar 0 snjóál
Genf 7 skýjað
Helsinki 6 skýjað
Jerúsalem 18 skýjað
Jóhannesarborg 23 heiðskírt
Kaíró 23 skýjað
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Lissabon 13 skýjað
London 11 rigning
Los Angeles 23 rigning
Madrid 12 skýjað
Malaga 17 lóttskýjað
Mallorca 14 lóttskýjað
Mexíkóborg 23 heiðskfrt
Miami 27 rigning
Montreal 2 skýjað
Moskva 8 rigning
New York 8 heiðskirt
Ósló 2 skýjað
Parfs 6 rigning
Peking 15 heiðskírt
Reykjavík 5 snjókoma
Rio de Janeiro 33 skýjað
Rómaborg 18 heiðskfrt
San Francisco 11 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Tókýó 21 skýjað
Vancouver 4 skýjað
Vínarborg 7 heiðskfrt
settar inn á lokaðan bankareikning.
eru fóstureyðingarlögin þar veru-
legur þáttur.
Dómur þessi hefur verið for-
dæmdur harðlega af samtökum
kvenna, lögfræðingum, frjálslynd-
um menntamönnum og stjórn-
málamönnum í Noregi. Því er
haldið fram af mörgum, að þetta
dómsmál eigi eftir að verða til
þess að reka mikinn fleyg milli
ríkis og kirkju.
Maður myrtur
á N-írlandi
BelfaMt, 16. nóvember AP.
MAÐUR nokkur ruddist inn í
grænmetisverslun í Suður-Belfast í
dag og skaut til bana 63ra ára gaml-
an, kaþólskan mann, sem þar var
staddur. Engin samtök hafa enn lýst
víginu á hendur sér en að sögn lög-
reglunnar ber morðið öll merki þess
að vera runnið undan rifjum hryðju-
verkamanna úr röðum mótmælenda.
Morðið var framið í hverfi, sem
mótmælendur byggja að mestu, og
sloppið hefur hingað til við óöld-
ina 4 Norður-írlandi. Á þessu ári
hafa 69 menn verið myrtir í land-
inu og a.m.k. 2.241 frá því mann-
vígin hófust árið 1969. Fyrir
nokkrum dögum féllu þrír IRA-
menn i átökum við lögregluna og
er nú óttast, að samtökin hyggist
hefna þeirra með nýjum mann-
fórnum.
Móðir Shcharanskys
skrifar Andropov
Moskvu, 16. nóvember. AP.
MÓÐIR Shcharansky, sovéska
andófsmannsins, sem verið hefur í
hungurverkfalli að undanförnu í
fangelsinu þar sem hann er hafður
í haldi, hefur sent Andropov, nýj-
um aðalritara kommúnistaflokks-
ins, skeyti og biður þar um að fá
að heimsækja son sinn. Segist hún
óttast um líf hans vegna hungur-
verkfallsins en með því vill
Shcharansky mótmæla banni við
heimsóknum til sín. Móðir
Shcharansky, Ida Milgrom, bar
margsinnis sömu bón fyrir
Brezhnev heitinn en hann sinnti
henni í engu.
Kínverskur eðlis-
fræðingur flýr
Taipei, Kormósu, 16. nóvember. AP.
DAGBLAÐ á Formósu skýrir
frá því í dag, að eðlisfræðingur frá
meginlandinu hafi flúið til eyjar-
innar fyrir þremur mánuðum og
vinni nú að rannsóknastörfum
þar. Er hann annar kinverski eðl-
isfræðingurinn, sem brugðið hefur
á þetta ráð á árinu. Furðu vekur,
að ekki skuli hafa verið sagt frá
þessu fyrr því að Formósustjórn
er ekki vön að láta það liggja í
þagnargildi þegar henni berst
liðsauki frá meginlandinu.
Pólverji flýr
Stokkhólmi, 16. nóvember AP.
ÁTJÁN ára gamall pólskur hnefa-
leikamaður hefur beðist hælis í
Svíþjóð sem pólitískur flóttamað-
ur en þar var hann á ferð með
löndum sinum og félögum í íþrótt-
inni. Pólverjinn, Marian Duda að
nafni, er frá Wroclaw en var
staddur í Uddevalla í Svíþjóð þeg-
ar hann yfirgaf hópinn og leitaði
til lögreglunnar.