Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 38

Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 FRÁ HELGU JÓNSDÓTTUR, FRÉTTARITARA MBL. í BURGOS, SPÁNI. Ieð komu nýrrar árstíðar ryð- ur ný tíska sér til rúms með nýjan stíl, ný snið og aðra liti en tískan árið á undan. Fyrir haustið og veturinn 1982—1983 hafa tísku- hönnuðir leitað hugmynda til náttúr- unnar. Árangurinn er fágaðar og snotrar flíkur; frjálslegar og sportleg- ar. Á sama tíma eru einnig notuö íburðarmikil og skrautleg efni. Hér er þaö eftirtektarverðasta sem tísku- hönnuðir á Spáni bjóða upp á: Helstu nýjungar í kventískunni eru stuttir jakkar, slár (ponchos), víö pils og eins buxnapils, buxur strekktar í mittið (styttri en venjulega; ná niður á kálfa) og blússur með stórum blúndukraga. Vesti eru mikið notuö sem aukaflíkur til skrauts yfir eða þá innan undir jökkum. Kven-smoking, þykkir jakkar og samfestingar eru mjög vinsælir. Efnin eru mjög mismunandi; létt tweed-efni eða þá sterkari eins og rifflað flauel og leðurefni. Einnig venjulegt flauel og þunn silkiefni. I ár er skraut eins og slaufur, stór sjöl og breið belti úr náttúrulegu leöri í tísku. Ullarsokkabuxur í sterkum og líflegum litum, skór með slaufu og lágum hælum, svo ekki sé minnst á baskahúfur (alpahúfur), húfur eins og flugmenn notuðu áður fyrr og flóka- hattar eru það sem nota skal þannig að ekkert ósamræmi verði í klæða- burðinum í haust og vetur. Glæsileiki og íburður „viðreisnarstefnu“ Elena Benarroch og Josetta Nahmias hefur tekist að ná fram miklum glæsileik í flíkum sínum meö því að blanda saman gömlum og nýjum hugmyndum. Benarr- och og Nahmias nefna haust- og vetrar- tísku sína „endurreisnarstefnu". Flikurnar koma hver yfir aöra (fjölmarg- ar!) og ná fullkomnu jafnvægi og sam- ræmi. Þær eru fínlegar, glæsilegar, lífleg- Herratískan í haust Hvað karlmannatískuna varðar hafa tískufrömuðir einnig leitað til náttúrunnar, því efnin eru sveitalegl! Fallegir „haustlit- ir“ eins og gulur, brúnn, rauöur og grænn eru alls ráöandi og bláir tónar njóta sín einnig. Hugmyndir um snið koma aöallega frá Bretlandi að þessu sinni. El Corte Ingl- és hefur kynnt sína herra-, haust- og vetr- artísku 1982—1983. Jakkafötin eru létt og litadýrö mikil. Þau hafa sígilt snið; breitt bak, og eins og áður segir eru litirnir mismunandi. Jakk- arnir eru sportlegir. Það eru brot í þeim og þeir eru yfirleitt hnepptir. Buxurnar úr flónel, ýmis snið, eru hafð- ar sem þægilegastar. Sportfatnaður er fjölbreyttur; víðar flíkur. Flugmannastíllinn frá 4. áratugnum ræður ríkjum: úlpurnar fóðraðar með ull, mjög þægilegar og notalegar. Skyrtur eru í rjómalit, gráleitar og grænar, með litlum krögum og broti í baki. Frakkarnir eru klassískir, bæöi hvaö varðar snið og efni. Ullartreflar og húfur í sama stíl og llt eru nýjung í haust, svo og kuldastígvél sem eru dæmigerö fallhlífarmannastígvél. Tískan næsta vor Tiskufrömuöir sitja ekki auðum hönd- um þessar vikurnar þótt tískufötin fyrir þennan vetur sé komin í verslanir. Það er ekki seinna vænna að hugsa fyrir næstu vor- og sumartísku. Fyrstu vikuna í októ- ber var haldín í Madrid II „Vika tískunnar". 48.000 gestir, allt atvinnufólk úr tísku- heiminum; hönnuðir, klæðskerar, sýning- arfólk, kaupmenn innlendir og erlendir og tískuljósmyndarar heimsóttu þessa glæsi- legu tískukaupstefnu. Vel á minnst; tísku- litirnir næsta vor verða hvítur, blár, rauður og Ijósfjólublár. Falleg og lát- laus tíska fyrir herra. Laus við allan íburð. Á II „Viku tískunnar“ í Madrid >' þsssum mánuði kynntu spænskir tískuhönnuðir og fataframleiöendur vor- og sumartískuna ’83. iimHaust-og vetrartískaná Spáni Kjólar með síðum púffermum og stórri slaufu í hálsmálinu eða „smoking"; hvort tveggja glæsilegur kvöldklasðnaður. Haust- og vetrartískan gegn kuldanum; þykkir hlýir jakkar og víð pils í stíl við sjaliö, hattinn, hanskana, stígvélin ... tískufrömuðir gleyma engu. Josetta Nahmias mælir með að klæð- ast hverri flíkinni yfir aðra (til þess að verjst kuldanum?). Ekki slæm hug- myndl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.