Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 44

Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 r Ketill Jónsson Minningarorð Fæddur 11. janúar 1904 Dáinn 9. nóvember 1982 Fraendi minn, Kétill Jónsson frá Hausthúsum, Eyjahreppi, lést í Landakotsspítala 9. nóvember eft- ir skurðaðgerð og alllanga legu. Þótt dauðinn sé okkur öllum vís, kemur brotthvarf vina og ættingja misjafnlega mikið á óvart. En við ættum að vera viðbúin að eldri kynslóðin gangi lokaveg kynslóð- anna, svo er þó ekki alltaf. Til dæmis á mér eftir að finnast vanta í tilveruna að Kalli muni ekki framar heimsækja okkur svona einu sinni í viku, eins og hann gerði oftast áður en hann veiktist. /Ketill var „samnefnari" foreldra sinna í góðvild og öðrum góðum kostum. Faðir Ketils var Jón Þórðarson bóndi í Hausthúsum, Einarssonar bónda í Mýrdal. Móð- ir Jóns var Helga Hallbjörnsdóttir frá Höfða, Eyjahreppi. Móðir Ket- ils var Kristrún Ketilsdóttir, hús- freyja í Hausthúsum, Jónssonar frá Vörðufelli, Skógarströnd. Móð- ir hennar var Ingibjörg Jónsdótt- ir, Jónssonar hreppstjóra í Hlíð, Hörðudal. Jón í Hausthúsum fæddist 22. desember 1878 og lést 23. mars 1962. Kristrún fæddist 20. mars 1869 og lést 7. janúar 1960. Foreldrar Ketils tóku í fóstur og ólu upp 3 börn, sem óneitanlega sýnir að þau höfðu „hjartað á rétt- um stað“, enda erfðu bcrnin þá kosti, eins og líf þeirra vitnar um. Uppeldissystkin Ketils voru: Alex- ander Kristjánsson, f. 11. septem- ber 1910, d. 30. janúar 1949, sonur Kristjáns Lárussonar frá Gerðu- bergi og konu hans, Þóru Björns- t Eiginmaöur minn, KARL GUÐMUNDSSON frá Valshamri, Svalbarði 12, Hafnarfiröi, andaöist í Borgarspítalanum 15. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Ingibjörg Sumarliðadóttir. t Otför mannsins míns, fööur okkar og tengdafööur, JÓNASARTHORODDSEN fyrrverandi borgarfógeta, veröur gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavik fimmtudaginn 18. nóv- ember, kl. 15. Björg M. Thoroddsen, Magnús Thoroddsen, Sólveig Kristinsdóttir, María Thoroddsen, örn Ingólfsson, Soffía Thoroddsen, Sigurður Kristinsson. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, SIGURBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Ásbraut 7, Kópavogi, fyrrum húsfreyju á Litla Ármóti. Bjarni Ellert Bjarnason, Guöbjörg Bjarnadóttír, Sigríöur Bjarnadóttir, og aörir aöstandendur. t Einlægar þakkir færum viö öllum þeim sem auösýndu okkur sam- úö og vinarhug viö andlát og útför sonar okkar, bróöur og mágs, MAGNÚSAR ÖFJÖRÐ VALBERGSSONAR, og heiöruðu minningu hans. Guö blessi ykkur öll. Áshildur Öfjörö Magnúsdóttir, Þórdís Eövaldsdóttir, Bergur Ketilsson, Rögnvaldur Valbergsson, Aöalbjörg Valbergsdóttir, Valdís Valbergsdóttir, Hannes Valbergsson, Snæbjörn Valbergsson. Valberg Hannesson, Ólafur Haraldsson, Gunnur Gunnarsdóttír, Hrönn Gunnarsdóttir, Sveinn Steingrimsson, Jóhannes Snorrason, dóttur frá Þverfelli; Ingólfur Kristjánsson rithöfundur, f. 12. desember 1919, d. 27. mars 1974, sonur Kristjáns Pálssonar og konu hans, Dannfríðar Brynjólfs- dóttur er lengi bjuggu í Hólslandi, Eyjahreppi; Þóra Árnadóttir, ekkja Eymundar Magnússonar skipstjóra. Þóra er dóttir séra Árna Þórarinssonar prófasts og konu hans, Elísabetar Sigurðar- dóttir frá Skógarnesi, en eins og kunnugt er bjuggu þau að Stóra- hrauni. Óbeint má segja að Hausthúsa- fjöiskyldan hafi alið upp langtum fleiri börn. Þá á ég við hin mörgu börn sem dvöldu í lengri eða skemmri tíma í Hausthúsum flest að sumri til. Dagar barnanna sem þar dvöldu voru fljótir að líða t.d. í leik í Klettakoti, auk þess sem þau kynntust ýmsum sveitastörf- um og sérstakri hjartahlýju Rúnu í Hausthúsum, en það nafn var meira en nafn, það var nokkurs- konar heiðurstitill í huga þeirra, sem þekktu hana. Jón bóndi og Ketill höfðu alltaf mikið að starfa, störf sem voru langtum erfiðari en nú tíðkast. Dvöl okkar barnanna í Haust- húsum voru ævintýradagar. Það var til að mynda ekki ónýtt að fá að fara með Kalla, ríðandi á eld- fjörugum hestum eftir hinum stóru og rennsléttu fjörum út í eyjar til að reka burt trippastóð, sem stolist hafði út í eyjarnar. Þegar foreldrar Ketils brugðu búi 1947 vegna heilsubrests, fluttu þau hingað til Reykjavíkur. Ketill stundaði eftir það vinnu við höfn- ina, og þá lengst af hjá Eimskip, eða þar til hann hætti þar fyrir aldurssakir, þá 75 ára. I viðtali við Ketil í Tímanum 5. mars 1975, sem Jónas Guðmunds- son átti við hann, segir frá áhuga Ketils á bóka- og málverkasöfnun og ummælum erlends Iistamanns, Rudolf Weissauer, þar sem hann lýsir undrun sinni á að fyrsti mað- urinn, sem keypti mynd af honum hér á landi, var Ketill, „verkamað- ur við höfnina". Weissauer segir þar. „Verkamenn í Þýskalandi kaupa ekki kúnst. Slíkt gerist hvergi, — nema á íslandi." Jónas minnist á myndlistarsafn Ketils og segir. „í rauninni verður maður orðlaus við að sjá svona listasafn. Listasafn Alþýðu er reyndar til á Laugaveginum (nú Grensásvegi), prýðilegt safn. Þetta er líka listasafn alþýðu ...“ (og á hann við safn Ketils). „Hver einasta mynd keypt fyrir fé, sem unnið var inn með því að bera varning á sjálfum sér við að losa togara og skip. I raun og veru er það hneisa, að enginn skuli gang- ast fyrir sýningu á þessu einstæða listasafni." Jónas telur upp mál- verk eftir þessa listamenn: Hösk- uld Björnsson; Jóhannes Kjarval; Jóhannes Geir; Guðmund frá Miðdal; Valtý Pétursson; Nínu Try£Evadóttur; Arboe Clausen; Ólaf Tubals; Jón Engilberts; Egg- ert Guðmundsson; Eyjólf Eyfells; Weissauer; einhvern Rússa; Hall- dór Pétursson; Freymóð og margir fleiri. Ekki veit ég hvað enn er til af þessum myndum, því hann gaf oft myndir í afmælisgjafir. Þriðja safnið átti Ketill og það var það stærsta og dýrmætasta, en það var ómæld tryggð og góð- vild, fyrir að njóta þessa vil ég og vinir hans þakka. Að lokum votta ég Þóru, uppeldissystur Ketils, Ingveldi Jónsdóttur, frænku hans, og hinum mörgu vinum hans samúð mína. Blessuð veri minning Ketils Jónssonar og foreldra hans, hjón- anna Kristrúnar Ketilsdóttur og Jóns Þórðarsonar frá Hausthús- um. (Útför Ketils fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudag 17. nóvember kl. 3 e.h.). Sig. H. Ólafsson Vel farið með stríðsfangana Genf, nóvember. AP. YFIRVÖLD í íran og írak hafa lýst yfir aö fariö veröi vel meö stríös- fanga í yfirstandandi stríöi þjóð- anna, stuðst þar vió ákvæði þar um í Genfarsáttmólanum. íranir segjast hafa í haldi 45.000 íraska striösfanga, en írakar segj- ast hafa náö 5000 írönskum stríösföngum. Sendinefndir Rauöa krossins hafa feröast um fanga- búöir i báöum löndum, en hættu því í íran í ágúst þar sem fangarnir neituöu viötölum, sögöu þau ástæöulaus þar sem vel væri farið meö þá. Samkvæmt reglugeröum Rauða krossins mega fangar ekki neita slíkum viötölum, en þau hafa gengiö snuröulaust í írak og þar- lend yfirvöld hafa undirstrikaö samvinnuvilja sinn meö því aö heimila Rauöa krossinum aö líta á nýjustu stríösfangana og ræöa viö þá. sv A\ El MITT eftir Billy Graham Ur fjötrum sjálfshyggjunnar Ég finn, að ég er eins og aðrir nútímamenn: Hugur minn snýst ekki um annaö en skemmtanir, langanir, áhyggjur og vandamál. Ég þrái að elska Guð og tilbiðja hann, en hvernig get ég breytt til? Vitur maður sagði einhverju sinni: „Minnsti bögg- ull sem til er, er maður sem er vafinn inn í sjálfan sig.“ Þetta virðist vera sú klemma, sem þér eruð kominn í. Eitt af því dásamlegasta, sem við njótum, er við trúum á Jesúm, er það, að við erum leyst úr „vef“ sjálfshyggjunnar. Jesús sagði: „Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér.“ Þeir, sem „týna“ sjálfum sér vegna hans, finna sig ævinlega. Þér eruð skýrt dæmi um það, hvílíkt víti líf manna er, þegar Guði er úthýst. Eg heyrði einu sinni sagt um mann, sem hafði heillandi framkomu: „Þegar hann kemur inn í her- bergi, er engu líkara en nýtt ljós lýsi það upp.“ Hvað gerði þessi maður? Hann hafði lag á að leiða hugi fólks frá því sjálfu, láta það hvílast og hjálpa því að vera eðlilegt. Þegar Kristur kemur inn í mannshjartað, er eins og lífið fái birtu. Hann veit, hvernig hann getur fengið okkur til að gleyma okkur sjálfum, byrðum okkar, áhyggjum og kvíða. Helgið allt, sem þér eigið, Kristi og málefni hans. Gefið yður honum á vald. Týnið yður sjálfum, og þér finnið yður. „Sá, sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það,“ sagði Jesús. t Útför eiginmanns míns, SIGURJÓNS BÖDVARSSONAR, Vogatungu 4, Kópavogi, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. nóvember, kl. 13.30 Fyrir hönd vandamanna, Ólöf Helgadóttir. t Bróðir minn og mágur minn, ÞORSTEINN MARINÓ SIGURÐSSON, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. nóvem- ber. kl. 15. Fyrir hönd ættingja, Steinunn Siguróardóttir, Finnur Árnason. t veröur jarðsungin frá Isafjaröarkirkju laugardaginn 20. nóvember, x HILDIGUNNUR JÓAKIMSDÓTTIR, Hrannargötu 9, ísafirði, veröur jarösungin frá Isafjaröarkirkju, laugardaginn 20. nóvember kl. 2. Halldór Kristjénsson, Jón Halldórsson, Sóley Siguröardóttir, Auóur Halldórsdóttir, Mikael Ragnarsson, Ólína J. Halldórsdóttir, Arnaldur Arnason, Sigrún Halldórsdóttir, Björn Björnsson, og barnabörn. ^^skriftar- síminn er 830 33

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.