Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 45

Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 45 Minning: Jónína Guðjóns- dóttir Framnesi Sólbjartan vordaginn, hinn 9. dag júnímánaðar síðastliðinn, var borin til hinstu hvílu, frá Kefla- víkurkirkju, heiðurskonan Jónína Guðjónsdóttir á Framnesi. Jónína andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs 2. júní sl., eftír langvarandi sjúkdómsstríð, nær 87 ára að aldri. Jónína fæddist á Stóru- Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd 11. júlí 1895. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Jónsson, skipa- smiður, og Guðrún Torfadóttir, en hún fluttist með foreldrum sínum og systur, Guðlaugu Ingibjörgu, til Keflavíkur laust eftir síðustu aldamót, og hér átti hún heima síðan. Skömmu eftir að fjölskyldan fluttist til Keflavíkur, byggði Guð- jón faðir hennar íbúðarhús sitt á Vatnsnesklettum sunnan við byggð í Keflavík. Hús sitt nefndi hann Framnes. Þar ólust þær systurnar upp, og við það nafn voru þær systur jafnan kenndar. Þótt Jónína nyti ekki annarrar skólamenntunar en barnaskóla, sem þá var stundum af skornum skammti, þá hafði hún aflað sér þeirrar fræðslu og menntunar með sjálfsnámi, að hún var full- fær til starfa við uppfræðslu barna. Hún hélt lengi smábarna- skóla heima á Framnesi, en eftir að skólaskyldan var færð niður, þá hóf hún kennslu við barnaskólann í Keflavík og fór það vel úr hendi. Hún kenndi þar einnig um tíma handavinnu stúlkna og var eftir að hún hætti kennslu lengi próf- dómari í þeirri grein. Jónína var listhneigð og bera því vitni margar svartkrítar- og vatnslitamyndir, sem prýddu veggi stofunnar á Framnesi. Þegar Guðlaug systir hennar var sjötug, skrifaði ég nokkrar lín- ur í Faxa, og vegna þess að þær voru að nokkru tileinkaðar þeim systrum báðum, þá vil ég endur- taka þær hér. „Framnes, litli bærinn á klett- unum norðan til á Vatnsnesinu, á sína sögu í óskráðri byggðasögu Keflavíkur. Inn á milli gróður- snauöra klettanna varð til einhver fyrsti vísir að skrúðgarði í Kefla- vík. Systurnar á Framnesi skipu- lögðu og ræktuðu reitinn um- hverfis bæinn, sem girtur var hlöðnu grágrýti, til, skjóls fyrir svalri norðanáttinni. í reitnum gróðursettu þær systurnar ís- lenskar jurtir, er þær gátu fundið hér nærlendis, einnig ræktuðu þær margt af útlendum jurtum. Trjágróður reyndu þær einnig að rækta, en vegna sjávarseltu, er berst yfir reitinn í norðanveðrum, lánaðist sá gróður eigi. Innan dyra á Framnesi var einnig gróður að finna. Um langan tíma mun óvíða í Keflavík hafa verið jafnstórt og gott bókasafn og þar. Þær systur lásu mikið og fylgdust með öllu nýju á sviði bókmenntanna. Frá Framnesi sér vítt til allra átta og víðast út á Víkina, til hafs. Þar er fagurt á sólbjörtum sumar- dögum. Hér hefur engin tilviljun ráðið um bæjarstæðið. Frá þess- um litla bæ, sem um langan tíma var eins og vin á gráu brimsorfnu Vatnsnesklettunum sunnan við Keflavík, hefur æska þessa byggð- arlags notið sterkra og hlýrra strauma, hollra áhrifa síðustu áratugina." Á sama hátt og systurnar hlúðu að blómum í 'garðinum sínum heima á Framnesi, þá ræktuðu þær annan reit tengdan uppeldi barnanna. En þar á ég við störf þeirra systra við barnastúkuna Nýársstjörnuna í Keflavík, en þar var Jónína gæslumaður ásamt Guðlaugu systur sinni um 50 ára skeið eða frá skírdegi 1919 til 1968. Þessi barnastúka var um tíma fjölmennasta barnastúka landsins eða um 500 börn. Þær systurnar urðu því að skipta hópnum í tvær deildir, yngri og eldri stúku. Þetta hefur verið mikið starf, sem allir gera sér ekki grein fyrir. Hér fóru ekki aðeins fram fundarstörf, heldur einnig leikstarfsemi, sem þær systurnar lögðu mikla rækt við og vinnu. Ekki aðeins við æfingarnar heldur einnig við búningana, sem þær saumuðu alla sjálfar. Það er að sjálfsögðu engin til- viljun, að við Keflvíkingar höfum átt afburða leikara á fjölum Þjóð- leikhússins og einnig hér heima um árabil. Þeir hafa margir stigið fyrstu sporin á leiksviði Nýárs- stjörnunnar í Keflavík, undir stjórn systranna á Framnesi. En þáttur Jónínu í félagsmálum er ekki hér með allur talinn. Hún gekk snemma í Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Kefla- vík, og var síðar formaður félags- ins í 28 ár eða frá 1943—1971, er hún óskaði að hætta formanns- störfum, en félagar voru þær syst- urnar báðar meðan þær lifðu. Heiðursfélagi var Jónína gerð í Slysavarnafélaginu 1971. Á nýársdag 1972 var þeim systr- um báðum veitt viðurkenning fyrir störf þeirra að félagsmálum og voru þær þá sæmdar riddara- krossi Hinnar íslensku fálkaorðu. Þessi veiting var sannarlega verðskulduð. Hér er kvödd sérstæð kona, vel gerð og dugmikil, sem beindi störfum sínum að uppeldi æsk- unnar og einnig, og ekki síður, að slysavörnum sjómanna. Minning: Gísli Konráðsson Hnífsdal — Minning Þær FramnessyStur voru þeirr- ar gerðar, að þær vildu sem minnst láta á sér bera, voru hlé- drægar. Þær sóttust ekki eftir mannvirðingum eða völdum. Sá hvati hefur því ekki verið ráðandi er Jónína tók að sér formennsku í Slysavarnadeildinni. En ég get mér þess til, að hér hafi miklu ráðið um afstöðu hennar, er hún var kölluð til starfsins, atburður í lífi þeirra systra, er hér skal greina: í byrjun árs 1932 var að þeim systrum, meðal annarra, kveðinn þungur harmur, þegar systurson- ur þeirra og uppeldisbróðir, Magn- ús Sigurðsson, drukknaði, er vél- báturinn Hulda fórst með allri áhöfn á leið frá Reykjavík til Keflavíkur. Um leið og við hjónin kveðjum góðan vin með þökk fyrir samstarf á mörgum liðnum árum, þá færum við ættingjum og vinum samúð- arkveðjur. Ragnar Guðleifsson Fæddur 27. september 1903 Dáinn 24. september 1982 Er svo vildi til að ég var í lok sjötta áratugsins að vinna á ísa- firði og Bolungarvík ásamt bróður mínum, Birni Konráðs, og við höfðum komið okkur fyrir á hóteli til dvalar, að til okkar kom maður er nefndi sig hinu landskunna nafni og umtalaða í okkar ætt: Gísli Konráðsson. Kunnugt var honum um ættar- tengsl okkar. Allir vorum við komnir frá Konráði Konráðssyni í Bjarnarhöfn og Margréti dóttur séra Bjarna á Mælifelli í Skaga- firði, en Konráð var Konráðsson frá Völlum og því albróðir Gísla sagnaritara, er endaði ævistörf sín í Flatey með eftirminnilegum sporum. r Konráð sonur Konráðar í Bjarn- arhöfn fæddist og ólst upp hjá afa sínum að Mælifelli, en fórst á fyrsta búskaparári sínu eftir að hann kom vestur, drukknaði í Miðá 22. júlí 1836. Konráð sonur hans var kunnur maður í Stykk- ishólmi, verzlunarmaður í Kon- ráðsbæ, og þar virðist afi Gísla vera fæddur 1870. Gísli lét sér nú ekki nægja að heilsa uppá okkur bræður, heldur taldi sjálfsagt að leiða okkur heim á heimili sitt í Hnífsdal sem vær- um við bræður hans. Þar var okkur tveim höndum tekið og ekki lét Sigurborg kona hans sitt eftir Edvald Friðjóns- son — Kveðjuorð Edvard Friðjónsson verzlunar- stjóri á Akranesi lézt langt um aldur fram. Hann var fæddur hér á Akranesi, 15. september 1922, sonur hjónanna Helgu Jónsdóttur og Friðjóns Runólfssonar. Hann lézt 15. september sl. þá staddur á erlendri grund, þar sem hann ætl- aði að halda upp á merkisafmæli, og fá sér smáhvíld frá erilssömu starfi. Lífsstarf Edvards var allt tengt verzlunarstörfum milli 35 og 40 ár. Samstarf okkar hófst 1945 hjá Kaupfélagi Suður-Borgfirðinga, og hélst til 1962 er hann keypti verzlunina Andvara hér í bæ, og rak til ársins 1971 en þá gerðist hann verzlunarstjóri hjá Sláturfé- lagi Suðurlands hér í bæ og gegndi því starfi til hinstu stundar. Edvard gerðist bifreiðarstjóri hjá KSB 1945, en innan tveggja ára varð hann afgreiðslumaður í aðalbúð félagsins, og gerðist brátt verzlunarstjóri, en þá og næstu ár voru umsvif félagsins hér allmikil, bæði í verzlun og á ýmsan annan hátt, svo sem bygging og rekstur mjólkurstöðvar, bygging slátur- húss, olíusala og vöruflutningar, bæði frá Reykjavík og til við- skiptamanna hér upp í sveitunum. Þá var verzlun mjög ólík því sem nú er, vöruskortur var mikill, sumar vörur svo sem ávextir sáust vart nema einu sinni á á,ri, og þá oftast rétt fyrir jól. Það var ekki alltaf vinsælt starf að skipta slík- um vörum á milli viðskiptamanna, en allt gekk þetta með góðum vilja starfsfólksins. Árið 1955 fór Edvard tll Kaup- mannahafnar á vegum kaupfé- lagsins til þess að kynna sér rekst- ur kjörbúða, var hann part úr sumri hjá HB í Kaupmannahöfn og kynnti sér starfsemi þeirra þar. Það kom því af sjálfu sér að þegar kaupfélagið setti á stofn kjörbúð 1967 í nýbyggðu húsi, þar sem nú er veitingahúsið Stillholt, að hann tók við stjórn hennar og mótaði í upphafi, var það fyrsta kjörbúðin sem stofnsett var í Vesturlands- kjördæmi, og þriðja eða fjórða kjörbúðin á landinu. Sýndi hann þá, sem fyrr og síðar, að hann var mjög fær og lipur verzlunarmaður sem allir höfðu ánægju af að skipta við, hann var ætíð léttur í skapi og ræddi við viðskiptavini sína í léttum og gamansömum tón. Á þessum árum hafði kaupfé- lagið árlega Húsmæðrakvöld, voru þar veitingar og oftast einhver fræðsla um samvinnumál svo og kvikmyndir undir borðum, síðan var jafnan stiginn dans, sá Edvard þá alltaf um músíkina, en hann var mikill harmonikkusnillingur sem flestir vita, voru samkomur þessar alltaf haldnar í félagsheim- ilum hér í bænum eða nágranna- hreppunum. Voru samkomur þess- ar vel sóttar, oftast milli eitt og tvö hundruð manns, stóð Ebbi þá alltaf einn með nikkuna lVi—2 tíma. Þótti þetta góðar samkomur og hvíldu þær mikið á hans herð- um. Það var nefnilega sama hvað þurfti að gera, Ebbi var alltaf til- búinn til hvaða starfs sem var, hans er því gott að minnast. Edvard tók mikinn þátt i félags- skap verzlunarmanna, og var um tíma formaður Kaupmannafélags Akraness, þá var hann og mjög virkur félagi í Lionsklúbbi Akra- ness, og vann þar mikið starf, þar sem hann gegndi stjórnarstörfum og var formaður hans um skeið. 21. júní 1947 kvæntist Edvard eftirlifandi konu sinni, Laufeyju Runólfsdóttur úr Borgarnesi, eignuðust þau 5 mannvænleg börn, en þau eru: Sigrún, gift Ein- ari Þorgeirssyni, garðyrkjumanni, Friðjón, verzlunarstjóri, giftur Guðrúnu Kristjánsdóttur, sjúkra- liða, Helga Björk, gift Guðjóni Kristinssyni, véltæknifræðing, Berglind, gift Þorgeiri Jóhanns- syni, sjómanni og Ingi Þór, verzl- unarmaður en unnusta hans er Eybjörg Guðmundsdóttir nemi. Já, Ebbi, eins og hann var oftast kallaður af kunningjum sínum, er horfinn langt um aldur fram. Hann var mikill Akurnesingur, hér var hann fæddur, hér voru æsku- og unglingsárin og hér starfaði hann allt sitt líf, hann var hvers manns hugljúfi sem honum kynntust. Akranes er fátækara eftir fráfall hans, hann setti svip á bæjarlífið um langt skeið, hann var bæ sínum og stétt til sóma hvar sem hann fór, stétt verzlun- armanna á Akranesi er svipminni en áður. Um leið og ég sendi aldraðri móður, eiginkonu, börnum og öðr- um aðstandendum innilegustu samúðarkveðjur, þakka ég Ebba langt og gott samstarf, sem gott er að minnast, og aldrei bar skugga á. Blessuð veri minning hans. Sveinn Kr. Guðmundsson + Þökkum af alhug auösýnda samúö vlð andlát og útför KRISTJÁNS GUDLAUGSSONAR hœstaréttarlögmanns. Bergþóra Brynjúlfsdóttir, Anna Kristjánsdóttir, Haukur Steinsson, Grétar Br. Kristjónsson, og barnabörn. liggja að taka við okkur á heimilið og ekki síður af bræðralagshug en maður hennar. Nokuð oft bar mig á sömu slóðir næstu árin og ávallt voru þar sömu viðtökurnar. Gísli gladdi okkur hjónin líka með heimsókn til okkar í Reykja- vík, færandi hreint íslenskt sæl- gæti, harðmeti fiskjar, sem hann kunni svo listilega með að fara frá blautum sjó og njóta þess að gefa og gleðja. Raunar hafði ég frá barnæsku heyrt Gísla getið, bæðr vegna nafnsins, sem ef til vill hefur stutt að því, að Brynjólfur föðurbróðir minn tók hann ungan í fóstur, eins og Hjörtur Sturlaugsson segir svo prýðilega vel frá í grein sinni í Morgunbl. núna 2. nóvember. Ætla ég ekki að endurtaka neitt af því, heldur þakka þann sonarlega hug og þakkarvirðingu sem Gísli bar svo höfðinglega til fósturfor- eldra sinna, er hann kallaði svo, Guðrúnar og Brynjólfs, er sjálf eignuðust ekki barn. Gísli heiðraði minningu Brynjólfs með því að gefa fyrsta barni sínu nafn hans og gladdist yfir því að drengurinn væri „myndarstrákur". Vissi ég vel hvað hann meinti, því að Brynjólfur Björnsson, fóstrinn, var með allra stærstu mönnum og dró ekki framburður máls hans þar úr, heldur fylgdi óvenjulega vel eftir. Einn bræðra minna kom líka í fóstur til Brynjólfs á síðustu búskaparárum hans og var þar samtíma Gísla. Þótt við kynnum að hafa notið þeirra frændkynna hjá Gísla, held ég að eðli hans hafi þó ráðið þar mestu, meðfæddur eiginleiki að vilja vera hverjum manni sem best, og vel tek ég undir með Hirti (sem ég vísa enn til) að aldrei heyrði ég Gísla hallmæla neinum. Nafns og föðurnafns held ég að hann hafi líka heldur notið en goidið. Bæði var gamli Gísli Kon- ráðsson í Flatey mjög vinsæll þar samkvæmt ævisögu Snæbjarnar í Hergilsey og Konráð í Bjarnar- höfn líka samkvæmt kirkjubókum sinnar sveitar, þar sem hann virð- ist hafa verið vel liðtækur til „ljósmóðurstarfa" og því oft talinn sjálfsagður við skírn barna „sem guðfaðir". Svo virðist mér, að Gísli í Hnífsdal hafi með nafnburði sín- um, þar engum góðminningum spillt, því að engan heyrði ég hall- mæla honum. Ég leit svo til, að þeir sem erfitt áttu hefðu ekki síst notið og þakk- að Gísla samfylgdina og hefðu húsdýrin hans mátt mæla, hefði þaðan ekki andað köldu til hans. Og að lokum, hvíl þú rótt minn gamli og góðtryggi frændi, vitandi fleiri en mig hugsa vitnisburð þinn þannig: Mér var Ijúfur maðurinn minning gvvmi kæra. Kftir langan lífsdaginn lofud sé hans æra. Ingþór Sigurbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.