Morgunblaðið - 17.11.1982, Side 46

Morgunblaðið - 17.11.1982, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Góður árangur á Spáni ÍSLENSKA kvennalandsliöið í handknattleik tók þátt í tjögurra landa móti á Spáni um helgina og stóó liðið sig mjög vel. Eftir því sem við komumst næst lentu stúlkurnar í öðru sæti á mótinu. Sigruðu þær ítalíu og Vestur- Þýskaland örugglega en töpuðu síöan úrslitaleiknum fyrir Spán- verjum. Mjög illa hefur gengið að fá upp- lýsingar um mótið þar sem HSÍ hafði ekki símanúmer á þeim staö er liðið bjó, og hafa forráðamenn handknattleikssambandsins ekki heyrt neitt um úrslitin. Nánari frá- sögn af mótinu verður því að bíða þar til liðiö kemur heim. Átta liö í tveimur flokkum kepptu í Borgarfjarðarmótinu SVOKALLAO Borgarfjaröarmót í knattspyrnu var haldiö á sunnu- dag og mánudag. Keppt var á íþróttavellinum í Borgarnesi og kepptu fjögur lið í hvorum flokki frá öllum framhaldsskólunum í Borgarfiröi að Hússtjórnarskólan- um á Varmalandi undanskildum. Fóru leikar þannig að Hvanneyr- ingar fóru með sigur af hólmi í piltaflokki en stúlkurnar úr Borg- arnesi í sínum flokki. Hlutu þessi líð í verölaun farandbikara sem KB og Mjólkursamlag Borgfirð- inga gáfu til keppninnar. Var drengilega keppt og var keppnin mjög skemmtíleg í alla staöi. • Lið Hvanneyringa sem sigraði í Borgarfjaröarmótinu. • Stúlknalið frá Borgarnesi sigurvegari í kvennaflokki. Arsþing siglingasambandsins: Skotland vann í Sviss Eftir því sem Mbl. hefur fregnaö gæti svo farið að Bjarni Sigurðs- son, markvörður Skagamanna skipti um félag á næstunni og hefur hann verið orðaður við lið Njarðvíkur. Bjarni hefur leikið meö ÍA í nokkur ár en hann er af Suðurnesjunum og lék áður með Keflavík. Eins og Lens vann á útivelli Lið Teits Þóröarsonar, Lens, sigraði St. Etienne 1:0 á útivelli í gærkvöldi í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu og er Lens nú í 3. sæti. Karl Þórðarson og félagar hans í Laval geru jafntefli viö Lyon (1:1) á heimavelli sínum. Urslit leikja í gær uröu þessi: Tours — Nantes 0:4 Sochaux — Bordeaux 0:2 St. Etienne — Lens 0:1 Lille — Paris S.G. 1:0 Toulouse — Brest 2:2 Rouen — Nancy 1:0 Auxerre — Monaco 1:0 Laval — Lyon 1:1 Strasbourg — Bastia 2:1 Metz — Mulhouse 3:0 Nantes er nú í efsta sæti, Borde- aux í öðru og Lens í þriðja. Laval er í 9. sæti. fram hefur komiö verður Kristján Olgeirsson ekki með Skaga- mönnum næsta sumar þar sem hann veröur líklega þjálfari og leik- Skipta Bjarni og Friörik? TVEIR landsleikir líða undir 21 árs fóru fram í gær. Englendingar og Grikkir léku í Aþenu og sigr- uðu Grikkir með einu marki gegn engu. Sigurmarkiö var skorað á 86. mínútu og var Lysander Georgamlis þar að verki. 10.000 horfðu á leikinn og þar af voru 30 ungir Englendingar. Það var sér- staklega tekið fram í frétta- skeytum aö ekki hafi verið um neinar óspektir aö ræöa á vellin- um. Þá léku Svisslendingar og Skot- ar í Sviss og sigruöu Skotarnir meö fjórum mörkum gegn þremur. Þeir voru komnir í 3—0 eftir 73 mínútur, en þá skoruðu Svisslend- ingar þrjú mörk á níu mínútum og jöfnuöu leikinn. Skotar tryggöu sér síöan sigur í leiknum er þeir skor- uðu sitt fjóröa mark. maður með Völsungi á Húsavík ásamt Helga Helgasyni, sem áöur lék með Víkingi, en þeir eru báðir gamlir Völsungar. Þá hefur okkur einnig borist til eyrna sá orðrómur að Friðrik Frið- riksson, hinn stórefnilegi mark- vörður Fram sé að hugsa um að færa sig um set, og tjáöi heimildar- maðurinn okkur að Akurnesingar væru á eftir honum í stað Bjarna. Önnur félög munu einnig hafa áhuga á Friðriki. Leiðrétting: Lokatölur 104—101 j FRÁSÖGN Morgunblaðsins í gærdag af leik KR og Fram, slæddist sú leiða villa inn, aö leikurinn heföi endað 104—102, en það er ekki rétt. Leiknum lauk með sigri KR 104—101. Eru les- endur, svo og leikmenn liðanna, beðnir velvirðingar á þessu. Það er rétt aö geta þess, aö leikinn dæmdu þeir Gunnar Val- geirsson og Kristinn Albertsson og dæmdu þeir mjög vel. Höfðu allan tímann góð tök á leiknum og dæmdu af festu. — ÞR Duk Koo Kim úrskurð- aður svo gott sem látinn eftir keppni við Mancini Hnefaleikameistarinn í léttvigt, Bandaríkjamaðurinn Ray „Boom-Boom" Mancini, varöi heimsmeistaratitil sinn á laug- ardaginn í Las Vegas er hann sigraði Suöur-Kóreubúann Duk Koo Kim. Sigraöi „Boom-Boom“ Kóreubúann í 14. lotu með geysi- föstu vinstrihandarhöggi og lá hann meðvitundarlaus eftir. Áhorfendur réðu sér ekki fyrir kæti en stuttu síðar kárnaöi gam- anið heldur því Kim var úrskurö- aöur svo gott sem látinn. „Heilinn starfar ekki. Við finnum engin viðbrögð hjá Kim, enga hreyfingu, alls ekkert," sagöi einn læknanna sem reyndu aö halda líf- inu í hnefaleikamanninum eftir þriggja klukkustunda langan upp- skurð. Mikiö blæddi inn á heila Kim — hvort sem um er að kenna öllum þeim höggum sem hann fékk í keppninni eöa síöasta högginu sem hann var rotaöur með. Það skiptir heldur ekki máli núna þegar svona er komiö. Framkvæmdastjóri sigurvegar- ans, Mancinis, sagöi eftir keppnina að meistarinn biöi á hótelherbergi sínu ásamt fjölskyldu sinni og presti einum, og vonaöi allt hið besta í sambandi viö Kóreubúann. „Hann tekur þetta mjög nærri sér og getur ómögulega talað við fréttamenn núna,“ sagði fram- kvæmdastjórinn. Þetta var í annað skiptiö sem Mancini varði heimsmeistaratitilinn í léttvigt, áöur haföi hann sigraö Bandaríkjamanninn Art Frias meö rothöggi í fyrstu lotu í viöureign þeirra í mai. í fyrstu virkaði Mancini óöruggur í keþþninni við Kóreubúann á laug- ardaginn, og kom það honum greinilega á óvart hvernig hann hagaði sér. Duk Koo Kim var óhræddur aö berjast í návígi, en honum tókst þó ekki að skaða Bandaríkjamanninn — sem hafði örugga forystu á stigum. í uþþhafi 13. lotu sló Mancini Kim 40 sinnum án þess aö hann næði aö svara fyrir sig og rothögg- ið lá í loftinu. i byrjun 14. lotunnar kom Mancini svo askvaöandi úr sínu horni og byrjaöi á því að senda vinstri hnefann tvisvar af krafti í andlit Kims. Suöur-Kóreu- búinn féll í gólfið, stóö uþþ til hálfs, en féll síðan niður aftur. Hann var meövitundarlaus er dómarinn stöövaði leikinn er aöeins 19 sek- úndur voru liönar af næstsíðustu lotu. Kim var færður í snatri í sjúkrahús en læknar töldu nær enga von um að bjarga honum. 6.500 áhorfendur voru mættir í hina nýju Caesars Palace-íþrótta- höll í Las Vegas til aö fylgjast meö þessari viðureign. Mancini fókk 250.000 dollara fyrir sinn snúö (það eru rúmar fjórar milljónir ís- lenskra króna), en hann hefur sigr- að í síðustu 25 keþþnum sinum, og þar af í 20 með rothöggi. Kim átti að fá 20.000 dollara (um 325.000 ísl. kr.) fyrir að berjast við meistar- ann. Hann hafði sigraö í 17 viöur- eignum og þar af einni með rot- höggi. Þetta var í annaö skiþti sem hann var rotaður — og einnig þaö síöasta. Evrópumót haldið hér á landi næsta sumar ÁRSÞING Siglingasambands ís- lands var haldið að Hótel Esju í Reykjavík laugardaginn 13. nóv- ember. Þingið sátu 25 fulltrúar frá 4 héraðssamböndum ásamt fjölda gesta. Umræður voru aö venju mjög líflegar. í skýrslu frá- farandi formanns kom fram að starf Sambandsins á síðasta ári var blómlegt og fjárhagur traust- ur. Einnig kom fram að á næsta ári sem er 10. afmælisár Sam- bandsins er ákveöið að Evrópu- mót á Topper-bátum fari fram hér á landi 16. og 23. júlí nk. og mun keppnisleiðin veröa á Skerjafirði. Búist er viö þátttöku 80 til 100 báta. Eftirtaldir stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér til endurkjörs: Bjarni Hannesson formaöur, Stein- ar Gunnarsson gjaldkeri og Ingi Ásmundsson erl.ritari. Voru þeim þökkuö vel unnin störf á liönum árum. Nýr formaöur var einróma kjör- inn Jóhann Gunnarsson, aörir í stjórn eru Ari Bergmann Einars- son, Erling Ásgeirsson, Símon Kjærnested og Páll Hreinsson. Varamenn Baldvin Einarsson, Stefán Stefensen og Sævar Örn Sigurðsson. • Fólkið fagnar, en stuttu síðar kárnaði gamanið heldur betur. Hnefaleikakappinn sem liggur í hringnum, Suöur-Kóreubúinn Duk Koo Kim, var úrskurðaöur svo gott sem látinn. Keppnin var í beinni útsendingu í bandaríska sjónvarpinu og er talið aö um 20 milljónir manna hafi fylgst meö henni. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.