Morgunblaðið - 17.11.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.11.1982, Qupperneq 48
^^skriftar- síminn er 830 33 □5 juglýsinga- síminn er 2 24 80 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Fárvidrid sem dundi yfir landiA { gær setti víða strik í reikninginn. Á Norðurlandi bar það við að menn þurftu að róa á bátum milli húsa, en þótt ekki flæddi á Suðurlandi, gekk erfiðlega fyrir fólk að komast um götur eins og sjá má á myndinni sem Ólafur K. Magnússon Ijósmyndari Mbl. tók í Reykjavík i gær. Olíuverðshækkunin kostar útgerðina 180—200 milljónir króna: Ástandið verra en nokkru sinni fyrr _ OArfiA rfiiot l?inoi*DDAn ItorrfaxnAínmiv ¥ ¥FT segir Agúst Einarsson, hagfræðingur LÍU „ÁHRIF hækkunarinnar á útgerðina eru gífurleg, en kostnaðaraukinn á ári vegna hennar er á bilinu 180—200 milljónir króna. I>að er því alveg Ijóst, að staðan í árslok verður mjög slæm. Reyndar man ég ekki eftir verri stöðu útgerðarinnar," sagði Ágúst Einarsson, hagfræðingur Landssambands ís- lenzkra útvegsmanna, LIÚ, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir áhrifum 19,2% hækkunar á gasolíu og 16,7% hækkun svartolíu fyrir útgerð- ina. „Við lögðum mikla áherzlu á það, þegar umræður fóru fram um vanda útgerðarinnar í haust, að olíuverð myndi ekki hækka fyrir 1. desember, þegar nýtt fiskverð tek- ur gildi, en það hefur reyndar ver- ið ákvarðað með lögum,“ sagði Ág- úst Einarsson ennfremur. „Það er því Ijóst, að staða út- gerðarinnar er mjög slæm nú í lok ársins. Aflabrögð voru mun lakari í októbermánuði en þau voru á sama tíma í fyrra, auk þess sem stór hluti flotans liggur nú í karfa. Reyndar er þessi árstími sá erfið- asti fyrir útgerðina í venjulegu ár- ferði, hvað þá nú þegar aflabrögð eru minnkandi og svo þessi mikla olíuverðshækkun. Óneitanlega hrýs manni hugur við ástandinu," sagði Ágúst. „Auk olíuverðshækkunarinnar hækkuðu vextir á dögunum, sem kom auðvitað illa við útgerðina, sérstaklega í sambandi við van- skil. Því til viðbótar hefur gengis- þróunin gert okkur erfitt fyrir, því hún hefur áhrif á fleira en olíu- verð. Allur erlendur tilkostnaður útgerðarinnar hækkar stöðugt. Þessu til viðbótar hefur afli verið mun minni í ár, en hann var í fyrra. Síðan er búið að lögbinda fiskverðshækkunina 1. desember nk. og hún er því aðeins eins og dropi í hafið á móti þessum aukna tilkostnaði," sagði Ágúst Einars- son, hagfræðingur LÍU að síðustu. Milljónatjón í flóðum víða á Norðurlandi MIKLAR skemmdir urðu af völdum sjávargangs í bæjum á Norðurlandi i gær í fárviðrinu sem gekk yfir jafn- hliða stærsta straumi. Á llúsavík, í Siglufirði, á Sauðárkróki, Hofsósi og í Hrísey, flæddi sjór yfir mannvirki og olli stórskemmdum og sums staðar voru götur undir allt að 60 sm djúpum sjó. Hafnarmannvirki urðu fyrir skemmdum á öllum þessum stöð- um, nokkrar trillur sukku, skemmdir á húsmunum og íbúðum urðu i tugum húsa og einnig flæddi sjór inn í fisk- verkunarhús þannig að skemmdir urðu á fiski og mannvirkjun. Talið er, að mest tjón hafi orðið í Hrísey, en þar urðu miklar skemmd- ir á hafnargarðinum og öðrum mannvirkjum við höfnina, m.a. í fiskvefkunarhúsi og trésmiðju. Er talið, að tjónið í Hrísey nemi millj- ónum króna, en þegar verst lét í gærmorgun reru menn á árabátum milli þeirra húsa sem neðst standa í þorpinu. Þorskárgangurinn frá árinu 1976 finnst ekki Hafrannsóknarstofnun leggur til 350.000 lesta hámarksafla þorsks í stað 450.000 lesta 1982 — 350.000 lesta veiði þýðir 2% samdrátt þjóðartekna HAFRANNSÓKNASTOFNUN legg- ur nú til að hámarks þorskafli næsta árs verði 350.000 lestir i stað 450.000 lesta á þessu ári. Ekki er reiknað með að nema 380.000 til 390.000 lestir veiðist á þessu ári. Stafar þetta aðallega af því, að árgangurinn frá 1976, sem álitinn var mjög sterkur, finnst ekki nema að litlu leyti nú. Verði aðeins leyfður 350.000 lesta hámarksafli þýðir það um 2% sam- drátt þjóðartekna. „Þetta er ákaflega alvarlegur boðskapur og ennþá verra en ég átti von á. Það veldur náttúrlega miklum vonbrigðum, að áætlanir þeirra um 1976-árganginn virðast ekki hafa staðizt. Það hefur nú verið svo mikið um hann talað og styrkleika hans. Þarna er náttúr- lega ýmsum spurningum ósvarað. Þeir telja að hann hafi komið fram i veiðinni í fyrra og að sjálf- sögðu í athugun á þriggja ára fiski, en af einhverjum ástæðum finnst hann ekki nú. Mér finnst Banaslys á Blönduósi Bldnduósi, 16. nóvember. BANASLYS varð við grunn nýju sjúkrahússbyggingarinnar á Blöndu- ósi um klukkan 11 í morgun. Slysið varð með þeim hætti að vörubíll, sem var að flytja steypu- styrktarjárn í grunninn, festist í snjó og hálku. Bílstjórinn hugðist losa kerru, sem járnið hvíldi á og gerð er til' þessháttar flutninga, aftan úr bílnum og létta þannig á honum. Þegar hann hafði losað beisli kerrunnar, reistist hún upp að aftan og klemmdist maðurinn á milli vörubílspallsins og beislisins. Hann lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi skömmu síðar. Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu. Menn, sem unnu við byggingar- framkvæmdir, sáu þegar slysið varð og var bílstjórinn samstundis fluttur á sjúkrahúsið, en lést þar skömmu síðar, eins og áður sagði. - B.V. þetta þurfi nú nánari rannsóknar við, en þetta eru engu að síður mjög alvarleg tíðindi fyrir þjóðar- búið. Þjóðhagsstofnun reiknaði með 400.000 lestum í útreikning- um sínum fyrir næsta ár og ef það fer niður í 350.000 lestir þýðir það allt að 2% minni þjóðartekjur. Ég mun síðan ræða við fiskifræðinga og hagsmunaaðila sjávarútvegsins áður en ég geri mínar tillögur til ríkisstjórnarinnar," sagði Stein- grímur Hermannsson, sjávarút- vegsráðherra, er Morgunblaðið innti hann álits á tillögum Hafrannsóknastofnunar. „Hafrannsóknastofnun hefur ekki hirt um að senda LÍÚ þessar niðurstöður sínar, þannig að ég get ekki tjáð mig nema hafa til þess einhver gögn. Eftir fréttum sýnist mér þetta mest getgátur um það, hvað hafi skeð og hvað hafi ekki skeð. 1976-árgangurinn átti að vera sá sterkasti, sem fram hefur komið, en nú finnst hann ekki. Þetta skapar nú ekki traust á þessum vísindum, minnugir þess, að við höfum alltaf veitt meira en þeir hafa mælt með og þá hafa þeir alltaf hækkað sig. Nú veiðum við minna og þá lækka þeir sig,“ sagði Kristján Ragnarsson, for- maður LÍÚ. Sjá nánar á miðopnu blaðsins í dag Sjá nánar á miðsíðu Mikfar skemmdir urðu í Siglufirði, en samkvæmt upplýsingum frétta- ritara Morgunblaðsins þar fór að flæða inn í bæinn milli kl. 7 og 8 í gærmorgun. Ekki leið á löngu þar til Aðalgatan, Grundargata, Norður- gata, Lækjargata, Vetrarbraut og fleiri götur voru umflotnar vatni og dóluðu þar um á reki drumbar neðan frá höfn og m.a. sigldi um göturnar 10 tonna vatnsgeymir sem lenti í reiðileysi í óveðrinu. Miklar skemmdir urðu á saltfiski í Siglu- firði og sama er að segja um Hrísey þar sem fiskur fyrir hundruð þús- unda króna var umflotinn vatni. í Siglufirði flaut vatn inn í nær 20 íbúðarhús og var þar um að ræða allt að 50 sm djúpan sjó. Urðu víða skemmdir á teppum, húsmunum og heimilistækjum og eitt gamalt hús í eigu Shell skemmdist nokkuð. Brim- ið var slíkt að það gekk óbrotið yfir flóðavarnargarðinn, en þar sem sjór- inn gekk nú óhindraður inn í bæinn austur af Eyrinni, voru áður bryggj- ur sem tóku af höggið við slíkar að- stæður. Þessar trébryggjur voru fjarlægðar fyrir skömmu. Víða varð að taka rafmagn af hús- um vegna sjávargangsins og jók það á vandræði fólks. Innanlandsflug lá niðri í gær og engin umferð var um Keflavíkurflugvöll fyrr en síðdegis. Sjá nánar á miðopnu og bls. 2. Flöt þök í Árbæjarhverfi: Krafist bóta vegna skipulagsskilmála BORGARYFIRVÖLDIIM og Hús- næðismála.stjórn og fleiri aðilum hefur verið stefnt til greiðslu bóta vcgna skipulagsskilmála í hluta Ár- bæjarhverfis, en í skilmálunum var áskiiið að þök húsa yrðu flöt. Stefn- endur telja fyrrgreinda aðila hafa þvingað sig til að hafa flöt þök á húsunum, með þeim afleiðingum að setja hefði þurft ný þök þar ofan á, en nauðsyn þess hafi ekki verið við- urkennd fyrr en árið 1979. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Magnúsi Öskars- syni, borgarlögmanni, fer einn húseigandi í Árbæjarhverfi í mál- ið, en jafnframt er tilkynnt að á málið sé litið sem prófmál fyrir öll húsin sem um ræðir, en þau skipta tugum. Bótakröfur í mál- inu nema um 155 þúsunir krón- um fyrir hús það sem um ræðir. Málið verður þingfest 23. nóv- ember nk. Lögfræðingur stefn- anda er Gunnlaugur Þórðarson hrl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.