Morgunblaðið - 26.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
3
Á röskum mánuði hefur fimm sinnum verið ráðist á konur í Reykjavík og þær rændar handtöskum sínum. í flestum tilvikum
hefur verið um rosknar konur að ræða. Fyrsta árásin var í Skipholti upp úr miðjum október og nokkrum dögum seinna var
ráðist á konur á Klapparstíg og Ægisgötu. Fyrir 10 dögum var ráðist á konu á Ásvallagötu og í fyrrakvöld var ráðist á þá
fimmtu á Skólavörðustíg. Morgunblaðið ræddi í gær við tvær af þessum konum og fara samtölin hér á eftir:
Höggið mikið og ég gat hvorki
hreyft mig né komist á fætur
— segir Stefanía Sigurðardóttir sem er enn á sjúkra-
húsi en réttur mánuður er frá því ráðist var á hana
„ÞETTA gerðist allt svo snögglega
að ég áttaði mig ekki alveg hvað var
á seiði. Varð þó svolítið hrædd er ég
gat ekki reist mig upp og þetta var
heldur óskemmtileg reynsla. Það
hafði aldrei hvarflað að mér að
svona lagað ætti eftir að koma fyrir
mig, og það við Nýlendugötuna þar
sem ég hef búið í rúm 40 ár, en þar
hefur alltaf verið mikil rósemd,"
sagði Stefanía Sigurðardóttir, 73
ára gömul kona, sem varð fyrir árás
tveggja unglingspilta skammt frá
heimili sinu í októberlok. Var hún
rænd veski sínu og henni hrint í
götuna með þeim afleiðingum að
fGrímuklædd-
ur maður réð-
ist á konu
log rændi
(ti.Tr fjrir klukkan níu í gærkvöldi
^réðwt grímukl«ddur maður á 66 ára^
gamla konu á SkólavörAustíg. Árán-
armaóurinn felldi konuna í götuna.
Þrjár full-
orðnar kon-
ur rændar
IINDANFARNA da|[a hefur rer
» rádist á ^rjár fullorAnar konur
•*
hún slasaðist og hefur síðan verið á
sjúkrahúsi.
„Ég var að koma ofan af
Landakotsspítala, úr heimsókn
til svilkonu minnar, sem átti að
fara heim daginn eftir. Veðrið
var gott og ég hraðaði mér því
ekkert, enda stutt heim niður á
Nýlendugötu. Þegar ég svo var
komin rétt niður fyrir Vesturgötu
heyri ég einhver hlaup á eftir
mér. Svo er veskinu allt í einu
kippt af mér og mér ýtt aftur á
bak og skall ég í götuna. Piltarn-
ir, sem mér er sagt að séu 17 og 20
ára, hurfu jafn skjótt út í myrkr-
ið. Ég sá bara fjóra fætur hlaupa
og áttaði mig ekki á því hvernig
þeir litu út, en það er víst búið að
hafa hendur í hári þeirra.
Höggið var mikið og ég gat
hvorki hreyft mig né komist á
fætur. Ég var með viðgerða
mjöðm á þeirri hlið sem kom
fyrst niður og sársaijkinn því
mikill. Það var ekki nokkur máð-
ur þarna nálægt og gat ég enga
björg mér veitt. Þó veifaði ég
stafnum þegar bílar óku fram
hjá, en náði ekki athygli þeirra
sem í fyrstu bílunum voru, og það
var ekki fyrr en þriðji bíilinn
kom, sem hjálp barst. Tveir menn
voru í bílnum og fóru með mig
niður á lögreglustöðina í Mið-
bænum, en þar var strax hringt á
sjúkrabíl og mér ekið á Slysa-
varðstofu.
í ljós kom að nokkrir hryggj-
arliðir höfðu sprungið í högginu,
og segja iæknarnir að sumar
sprungurnar hafi verið ljótar. Ég
var ekki nógu sterk í bakinu fyrir
og er þetta því ekki upplífgandi.
Ég hef verið í endurhæfingu hér á
Grensásdeildinni í þrjár vikur og
veit ekki hvenær ég verð útskrif-
uð, verð hér áreiðanlega út næstu
viku. Vonandi næ ég mér sæmi-
lega eftir þetta, en það tekur
tíma, ég get til dæmis ekki gengið
nema lítið í einu ennþá og verð þá
að styðjast við stafinn. Ég er að-
eins byrjuð að ganga upp stiga,
en þetta gengur hægt og hreyf-
ingunum fylgja enn miklir
verkir."
Stefanía Sigurðardóttir styðst við
stafinn á göngum Grensásdeildar
þar sem hún er í endurhæfingu.
Leiðinlegt að svona lagað skuli
eiga sér stað í landinu okkar
vinnunni. Veðrið var gott og ég
því ekki að flýta mér sérstaklega.
Ég veitti honum enga sérstaka
athygli, að vísu var hann með
trefil upp að nefi, enda átti ég
mér einskis ills von. Svo þegar
hann kom á móts við mig þá
hrinti hann mér og um leið og ég
datt greip hann töskuna.
sallaróleg en fékk svo einhver
óþægilegheit þegar ég kom heim.
— segir Þóra Björnsdóttir, sem ráðist var á í fyrrakvöld
„ÉG VAR ákaflega heppin að því
leyti að ég meiddi mig ekkert sem
heitið getur, en maðurinn hreinlega
henti mér í götuna. Þetta er nátt-
úrulega ekki skemmtileg né þægi-
leg reynsla,“ sagði I>óra Björnsdótt-
ir í samtali við Mbl. Hún varð fyrir
árás á Skólavörðustígnum í fyrra-
kvöld og handtösku hennar rænt.
Þóra er 66 ára. Ég hafði ekki ráðrúm til að
verða hrædd þegar ráðizt var á
mig, var í raun og veru alveg
„Þessi maður kom á móti mér
þar sem ég var að labba heim úr
Leið mér ekki sérstaklega vel í
gærkvöldi, en er búin að ná mér
vel eftir þetta, blessaður vertu,
eins og ekkert hafi í skorizt.
Það kom maður þarna að
stuttu seinna og veitti hann árás-
armanninum eftirför, en hann
hvarf niður Óðinsgötuna og hefur
ekki fundist. Hins vegar fannst
taskan og allt sem í henni var
nema veskið, á bak við hús númer
13 við Bergstaðastræti.
Ég vil brýna það sérstaklega
fyrir fólki að hafa ekki nein verð-
mæti meðferðis og ég mun hér
eftir ekki hafa tösku meðferðis að
kvöldlagi. Ég hef aldrei orðið
fyrir lífsreynslu af þessu tagi og
hef aldrei ætlað meðborgurunum
annað en allt það bezta. Mér
finnst leiðinlegt að svona lagað
skuli yfirleitt eiga sér stað á
landinu okkar,“ sagði Þóra.
Gott tilboö
MUNAR UM MINNA
V4 og 1/1 ný svínslaeri Okkar verö 98,70 Leyft verö 115,70
Útbeinuö ný svínslaeri 139,00 204,00
Útbeinaöir nýir svínabógar 110,00 148,00
Útbeinuö hamborgarasvínslæri 175,00 265,00
Útbeinaöir svínahamborgarabógar 135,00 164,00
Sínalundir 288,00 316,00
Svínakótilettur 187,00 248,00
1/1 svínahryggur nýr 170,00 225,00
Svinahamborgarahryggir 198,00 252,00
Svínakambur nýr útbeinaöur 138,00 170,25
Svínahnakki hamborgarareyktur útbeinaöur 169,00 190,25
Svínahakk 96,00 133,00
Svínahamborgaralæri V6 og 1/1 129,00 160,25
Svínahamborgarabógar m. beini 109,70 124,70
Bacon á hálfviröi í sneiöum 119,00 242,00
Bacon i stykkjum 115,00 190,00
Ennþá nautahakk 96,00 133,00
I 10 kg pakka 79,00 133,00
Kindahakk 38,50 82,00
Folaldasnitchel Folaldagullasch 158,00 145,00
Opiö til kl. 7 í kvöld
og til hádegis á morgun
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk l.s.86511