Morgunblaðið - 26.11.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir SIGURÐ SVERRISSON
Kínverski herinn i viðbragösstöðu, sem fyrr.
Brottvikning Huang Hua úr embætti:
Engin breyting á utan-
ríkisstefnu Kínverja
MIKLA athygli vakti í síöustu viku er það fréttist, aö Huang Ifua,
utanríkisráöherra Kínverja, heföi verið vikið úr embætti, aðeins einum
degi eftir að hann kom frá Sovétríkjunum. Huang Hua fór til Moskvu til
þess að vera viðstaddur útför Leonid I. Brezhnevs eins og fjöldi annarra
háttsettra embættismanna viöa að úr heiminum.
nefndar kínverska þjóðþingsins
að víkja Huang Hua úr embætti.
Sumir þeirra eru þeirrar skoð-
unar, að embættissviptingin hafi
ekki verið neinn ærumissir Hu-
ang Hua. Hún þurfi alls ekki að
tákna, að óánægja hafi verið
með störf hans og enn síður að
breyting verði á utanríkisstefnu
( Kínverja.
Þeir hinir sömu eru þeirrar
skoðunar, að ákvörðunin um að
víkja Huang Hua hafi í sjálfu
sér ekki komið á óvart. Hann
hefði sjálfur um nokkurt skeið
óskað þess að verða leystur frá
jafn ábyrgðarmikilli stöðu vegna
heilsubrests þannig að þarna
hafi aðeins verið um nokkurra
vikna spursmál að ræða.
Huang Hua sneri heimleiðis á
fimmtudag í síðustu viku. Degi
síðar hafði hann misst embætti
sitt og hafði verið gerður að rík-
isstjóra, jafngildi þess að vera
aðstoðarforsætisráðherra. Við
embætti utanríkisráðherra tók
hinn sextugi Wu Xuerian.
Áður en hann hélt til Sovét-
ríkjanna fór hann mjög lofsam-
legum orðum um Sovétmenn.
Höfðu jafn vingjarnleg orð ekki
heyrst úr þeim herbúðum í garð
Sovétmanna um langt skeið.
Nefndi hann Brezhnev m.a.
„framúrskarandi fulltrúa ríkis-
Aberandi þótti hversu vel
honum var tekið í Moskvu.
Er hann hitti Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, var sem þar hittust alda-
gamlir vinir, en ekki fulltrúar
fjandmanna sem lítt eða ekki
hafa ræðst við í meira en áratug.
Eftir útförina átti Huang Hua
90 mínútna viðræðufund við
Gromyko. Þrettán ár eru síðan
svo háttsettir embættismenn
þessara stórvelda hafa átt sam-
an fund.
Eftir viðæðurnar sagðist Hu-
ang Hua vera „bjartsýnn" á
batnandi sambúð ríkjanna, sem
hafa átt í síendurteknum landa-
mæraskærum á undanförnum
árum, auk þess sem málefna-
legur ágreiningur hefur orðið
átylla til „hárbeittra skeyta" á
milli stjórnanna. Svo wirtist,
sem fundur þessi markaði tíma-
mót í tveggja áratuga erjum.
Með hverjum deginum, sem
liðið hefur frá honum hafa efa-
semdir vestrænna fréttaskýr-
enda fengið aukinn meðbyr og
margir eru nú þeirrar skoðunar,
að fundur þeirra Gromykos og
Huang Hua hafi verið orðagjálf-
ur eitt og hin raunverulegu
ágreiningsefni þjóðanna ekki
verið tekin til umfjöllunar. Af-
staða Kínverja til Sovétmanna
hafi ekki breyst hót.
Fréttaskýrendur eru ennfrem-
ur þeirrar skoðunar margir
hverjir, að þau ummæli Huang
Hua, að hann væri „bjartsýnn"
segðu í raun ekki alla söguna.
Hann hefði einungis valið heppi-
legt órð til að lýsa skoðun sinni
eftir fundinn. Með þessum um-
mælum sínum hefði hann verið
að reyna að hvetja Sovétmenn til
að sýna viðbrögð af einhverju
tagi. Þrátt fyrir að hann notaði
orðið „bjartsýni" virðist það
hafa gleymst, að hann tönnlaðist
þess á milli í sífellu á þeim
„hindrunum", sem væru í vegin-
um fyrir bættri sambúð.
Vestrænum fréttaskýrendum
hefur reynst erfitt að geta sér til
um hinar raunverulegar ástæður
fyrir þeirri ákvörðun fasta- Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kínverja.
ins“ og annað í þeim dúr. Hvatti
hann hina nýju forystu í Sovét-
ríkjunum eindregið til að vinna
að bættri sambúð á milli þjóð-
anna.
Forsætisráðherra Kína, Zhao
Ziyang, varð tíðrætt um „hindr-
anir“ í bættri sambúð Sovét-
manna og Kínverja í viðræðum
sínum við forsætisráðherra
Thailands, Tinsulanonda, á
föstudag. Minntist hann ítrekað
á öflugan herafla Sovétmanna
meðfram landamærum ríkjanna
og kvað hann valda kínverskum
ráðamönnum þungum áhyggj-
um. Ástandið í Afganistan og
stuðningur Sovétmanna við
íhlutun Víetnama í Kampútseu
ykju enn frekar á áhyggjur kín-
verskra ráðamanna.
Sumir fréttaskýrendur hafa
túlkað þessi ummæli Ziyang á
þann veg, að þarna komi i raun
hin sanna afstaða Kínverja
fram. Þeir noti einfaldlega önn-
ur áhersluatriði í viðræðum sín-
um við aðrar þjóðir en Sovét-
menn. Allt þjóni þetta þeim til-
gangi einum, að styggja ekki
„stóra bróður" eins og Sovét-
menn hafa oft verið nefndir í
Kína. Vitað er, að Thailending-
um stendur ekki á sama um
íhlutun Víetnama í Kampútseu.
Haft er eftir Ziyang, að hann
hafi hughreyst Tinsulanonda
með þeim orðum, að Kinverjar
veittu nærveru Sovétmanna þar
engu síður athygli en við eigin
landamæri. Afstaða þeirra hafi
ekkert breyst. (Heímíid ap.)
I kvöld og
næstkomandi kvöld,
bjóðum við
Villt kvöld
í Torfunni
Innbökuð dýrakæfa chasseur
Terrine de Gibier en croute chasseur
★ ★ ★
Dýrakjötseyði Diana
Consomme de gibier Diana
★ ★ ★
Hreindýrabuffsteik Baden-Baden
Noisette de renne Baden-Baden
★ ★ ★
Kjúpur aö hætti hússins
Perdrix blanche maison
★ ★ ★
Steikt villigæs Au Jus
Oie Sauvage Rotie Au Jus
★ ★ ★
Súkkulaðiskál með bláberjafyllingu
Timbale de chocolat aux mirtilles
OMRON búðarkassar fyrir minni og
stærri fyrirtæki fyrirliggjandi.
Verðfrá 8.560 kr.
(gengi 1.11. ’82).
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33
Simi 20560