Morgunblaðið - 26.11.1982, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Tvær nýjar barnabækur
BÓKAÚTGÁFAN Salt sendir í ár frá
sér tvær nýjar íslenskar barnabæk-
ur, Tröllin í tilverunni eftir Hreiðar
Stefánsson og Áfram Fjörulalli eftir
Jón Viðar Guðlaugsson.
Fyrsta bókin um Fjörulalla og
ævintýri hans kom út árið 1980 og
í þessari nýju bók heldur Jón Við-
ar Guðlaugsson áfram að segja frá
Fjörulalla og vinum hans og
spaugilegum uppátækjum þeirra.
Sögusvið Fjörulalla er „innbær-
inn“ á Akureyri, enda er höfund-
urinn frá Akureyri og tekst hon-
um ekki síður að skemmta
mönnum með þessari nýju bók um
Fjörulalla og í hinni fyrri. Sem
fyrr eru fjölmargar myndir í bók-
inni og hefur Búi Kristjánsson
teiknað þær. Bókin er 111 blaðsíð-
ur.
Tröllin í tilverunni er ný bók
eftir verðlaunarithöfundinn
Hreiðar Stefánsson. Er hann
löngu kunnur fyrir fjölmargar
barna- og unglingabækur sem
hann hefur samið einn eða ásamt
konu sinni Jennu Jensdóttur. í
þessari bók leiðir Hreiðar lesend-
ur í afmælisveislu þar sem allt
endar með slagsmálum, við kynn-
umst strák sem er hræddur við
dularfullan brúarstólpa og segir
Hreiðar frá mörgum atburðum í
bók sinni. Ragnar Lár myndlistar-
maður hefur teiknað fjölmargar
myndir í bókina, svo og kápu-
mynd. Tröllin í tilverunni er 84
bls.
Báðar þessar bækur eru unnar
að öllu leyti hjá Prentverki Akra-
ness hf.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA
28. og 29. nóv. 1982
Skrifstofa stuðningsmanna
Jónasar Elíassonar, prófessors
Suöurlandsbraut 12, 3. hæð.
Símar 84003 og 84367.
Bílaþjónusta á kjördag.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Jón Ásbergsson
Páll Dagbjartsson
Jón ísberg
Ólafur B. Óskarsson
Pálmi Jónsson
Sjálfstæðismenn í Norðurlandi vestra:
Sex frambjóðendur í
prófkjörinu sem hefst
á morgun, laugardag
Utankjörstaðakosning á Akureyri og í Reykjavík
SEX frambjóðendur eru í prófkjöri
Sjálfstæöisflokk.sins i Norður-
landskjördæmi vestra, sem fram fer
nú um helgina vegna vals á fram-
bjóðendum flokksins fyrir næstu al-
þingiskosningar.
Frambjóðendur eru: Eyjólfur
Konráð Jónsson, alþingismaöur, Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri, Jón
ísberg, sýslumaður, Ólafur B.
Oskarsson, bóndi, Páll Dagbjarts-
son, skólastjóri, Pálmi Jónsson,
landbúnaðarráðherra.
Prófkjörið fer fram dagana 27.
til 30. nóvember. Atkvæðisrétt
hafa allir félagar sjálfstæðisfé-
laga í kjördæminu, sem þar eiga
lögheimili og náð hafa 16 ára aldri
prófkjörsdagana. Auk þeirra hafa
atkvæðisrétt þeir, sem eiga kosn-
ingarétt í kjördæmi og undirritað
hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfé-
lag í kjördæminu fyrir lok kjör-
fundar, eða hafa skráð sig á próf-
kjörsskrá fyrir lok 2. kjördags
(þ.e. 28. nóvember).
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
vegna prófkjörsins er í gangi og
geta þeir, sem þess óska, greitt at-
kvæði utan kjörstaðar hjá eftir-
töldum aðilum á venjulegum
skrifstofutíma: í Siglufirði hjá
Óla J. Blöndal, á Sauðárkróki í
Sæborg, á Blönduósi hjá Steindóri
Jónssyni í Blöndugrilli, á Skaga-
strönd hjá Adolf H. Berndsen, á
Hvammstanga hjá Karli Sigur-
geirssyni og í Staðarskála hjá Ei-
ríki Gíslasyni. Einnig er hægt að
greiða atkvæði utan kjörstaðar á
Akureyri hjá Birni Jósef Arnvið-
arsyni (sími 25919) og á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Sjálfa prófkjörsdagana verða
opnir kjörstaðir í öllum kauptún-
um og kaupstöðum í kjördæminu,
og jafnframt í Varmahlíð, á
Húnavöllum, í Flóðvangi, Víðihlíð,
Vesturhópsskóla og á Lauga-
bakka. Laugardaginn 27. nóvem-
ber og sunnudaginn 28. nóvember
verða allu- kjörstaðirnir opnir frá
kl. 14 til 19, en tvo síðari kjördag-
ana verða kjörstaðirnir á Siglu-
firði, Sauðárkróki, Blönduósi og
Hvammstanga opnir frá kl. 15 til
kl. 20, en aðrir kjörstaðir opnir að
kvöldi kl. 20 til kl. 22.
Sveitahreppunum hefur verið
skipt niður í kjörstaði þannig:
Kjósendur í Hofs- og Haganes-
hreppi, Fellahreppi, Hofshreppi,
Hólahreppi, Viðvíkurhreppi og á
Hofsósi eiga kjörstað á Hófsósi.
íbúar Akrahrepps, Lýtingsstaða-
hrepps og Seyluhrepps eiga að
kjósa í Varmahlíð, en íbúar Ríp-
urhrepps, Skefilsstaðahrepps,
Skarðshrepps og Staðarhrepps
eiga kjörstað á Sauðárkróki.
í A-Húnavatnssýslu kjósa íbúar
í Skagahreppi á Skagaströnd, en
Engihlíðarhreppur og Vindhæl-
VINDURINN og ég, nefnist bók
sem bókaútgáfan Salt hefur nýlega
sent frá sér. Segir þar frá ævi banda-
rísks indíána, Crying Wind Stafford.
Höfundur lýsir lífi sínu í æsku, upp-
vexti hjá ömmu sinni meðal indíána,
en síðar flyst hún til stórborgar og
fjallar meginhluti bókarinnar um
baráttu hennar við sjálfa sig og hið
nýja framandi umhverfi i borginni.
Crying Wind Stafford hefur
sjálf myndskreytt bók sína, en
hún hefur eftirfarandi að segja
um sjálfa sig:
„Eg er ólánsafkvæmi tveggja
einstaklinga sem hötuðu hvort
annað. Ég hef aldrei séð föður
ishreppur tilheyra kjördeildinni á
Blönduósi. Torfalækjar-, Svína-
vatns- og Bólstaðarhlíðarhreppar
eiga kjörstað á Húnavöllum, en
kjörstaður fyrir Áshrepp og
Sveinsstaðahrepp er í Flóðvangi.
í V-Húnavatnssýslu á Þorkels-
hólshreppur kjörstað í Víðihlíð,
Þverárhreppur í Vesturhópsskóla,
Torfustaðahreppar og Staða-
hreppur eiga kjörstað á Lauga-
bakka, en Kirkjuhvammshreppur
tilheyrir kjördeildinni á
Hvammstanga.
Samkvæmt ákvörðun kjördæm-
isráðs Sjálfstæðisflokksins í Norð-
urlandskjördæmi vestra fer próf-
kjörið þannig fram, að kjósendur
setja tölustafi fyrir framan nöfn
manna á prófkjörsseðlinum í
þeirri röð sem óskað er að þeir
skipi framboðslista flokksins við
næstu alþingiskosningar. Merkja
þarf við minnst fjögur nöfn til að
prófkjörsseðill verði gildur.
minn, því hann yfirgaf móður
mína áður en ég fæddist og hún
hataði hann vegna þess. Móðir
mín var ung og vildi ekki vera
fjötruð af barni, sem hún hafði
engan áhuga á að eiga, og skildi
mig því eftir hjá ömmu minni á
friðlandinu. Ég er einskis verður
kynblendingur, tvær mannverur
sem reyna að lifa í sama líkama.
— Þetta er það sem Crying Wind
er — ekkert."
Þýðendur eru Gunnar J. Gunn-
arsson og Sigrún Harðardóttir.
Bókin er 189 bls. og er unnin að
öllu leyti hjá Prentverki Akra-
ness.
Vindurinn og ég
Bók um ævi bandarísks indíána