Morgunblaðið - 26.11.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1982
15
Keppinaut-
arnir sagðir
hafa grafið
undan Laker
Lundúnum, 25. nóvember. Al*.
SKIPTARÁÐANDI í þrotabúi Lak-
er-flugfélagsins hefur lagt fram
kæru þar sem hann sakar sam-
keppnisaöila flugfélagsins um sam-
særi gegn hinum lágu fargjöldum
Lakers, sem á endanum hafí orðiö
flugfélaginu að falli.
Þau flugfélög og fyrirtæki sem
um ræðir eru British Airways,
British Caledonian, Pan Améric-
an, TWA, Lufthansa, Swissair og
f lugvélaverksmiðj urnar
McDouglas-Donnell.
Vinni Laker málið eru allar lík-
ur á að skaðabæturnar verði nægi-
legar til að greiða allar skuldir
fyrirtækisins, en hætt er við að
lokaúrskurður verði ekki kveðinn
upp fyrr en eftir 3—4 ár.
„Málið snýst um það, að flugfé-
lögin og flugvélaverksmiðjurnar
tóku höndum saman og aðgerðir
þeirra leiddu til falls Lakers," seg-
ir lögfræðingur fyrirtækisins.
Talsmaður British Airways sagð-
ist vita af þessum málaferlum, en
taldi ákærurnar ekki eiga við nein
rök að styðjast.
Ætla 25 km
í loft upp í
loftbelg
Lundúnum, 25. nóvember. Al*.
TVEIR þaulvanir menn, sem hafa
mikla reynslu í loftbelgjaflugi, sögöu
í dag aö þeir ætluðu að setja nýtt
hæðarmet á loftbelg. Kváöust þeir
félagar ætla sér í 70—80.000 feta
hæö (21,3—24,4 km hæö), en gætu
reyndar farið enn hærra aö sögn
annars þeirra, Mike Kendrick.
„Ferðin ætti ekki að taka okkur
meira en 2—4 klukkustundir, allt
eftir því hvernig aðstæður verða,
og við vonumst til að fara þvert
yfir Bretland á þessum tíma og
lenda á Ermarsundinu," sagði
hinn ofurhuginn, Per Lindstrand
frá Svíþjóð.
Loftbelgurinn, sem þeir félagar
ætla að nota til verksins, er 70
metra langur og með fullkomn-
asta útbúnaði sem völ er á. Gera
þeir sér vonir um að komast 1200
metra á hverri mínútu. Þeir
Kendrick og Lindstrand verða
báðir í einöngruðum búningum til
að verja þá fyrir kulda og þrýst-
ingsbreytingum.
Þeir félagar hafa enn ekki
ákveðið hvenær þeir leggja upp, en
bíða betri skilyrða en hafa verið
að undanförnu. Hæðarmetið í
loftbelg á Bretinn Julian Nott.
Hann komst í 16.805 metra hæð í
Colorado í októbermánuði 1980.
Nýir tímar, nýir menn
S jálfstæðismenn hafa að undanfömu horft til fram-
tíðarinnar og valið unga menn til ábyrgðarstarfa.
Geir H. Haarde er 31 árs gamall hagfræðingur og
formaður Sambands ungra sjálfstæöismanna.
í því starfi og öðrum sem hann hefur gegnt hefur
hann notið vinsælda og virðingar
þeirra sem til þekkja, fyrir
hæfni og dugnað.
Geir hefur víðtæka þekkingu á
þjóðmálum. Festa hans og lipurð
munu koma að gagni á Alþingi.
\
Styðjum Geir H. Haarde í prófkjörínu
Veljum þingmenn framtíðarinnar
00“
Stuðningsmenn
Metsöluplatan skemmtilega
VIÐ DJÚKBOXIÐ
Fyrsta lagiö á þessari plötu “Rabbarbara-Rúna“ hefur veriö vinsælasta lagiö í flestum óskalagaþátt-
um útvarpsins sem og á diskótekum síöustu vikurnar. En þaö eru tíu önnur lög á plötunni sem eru
alveg eins skemmtileg. Og söngurinn er ekki af verri endanum: Björgvin Halldórsson, Helga Möller,
Ólafur Þórarinsson, Erna Gunnarsdóttir, Haraldur Sigurösson, Siguröur Dagbjartsson og Jóhann
Helgason.
Semsagt: Eldhress rokklagaplata þar sem söngur og hljóöfæraleikur er í hæsta gæðaflokki.
SG-hljómplötur
Heildsala — smásala,
Ármúla 38, sími 84549.