Morgunblaðið - 26.11.1982, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1982
25
Biðskýlið við Ásgarð í nýtt húsnæði
BIÐSKÝLIÐ viö Ásgaró í Garðabæ
flutti fyrir skömmu í nýtt húsnæöi.
Jafnframt var nafni þess breytt og
heitir það nú Bitabær.
I Bitabæ fást allar aigengar
vörur, sem fást í söluturnum, auk
þess sem seldar eru heitar og
kaldar samlokur og hamborgarar.
Þá er nú boðið upp á mjólkur- og
niðursuðuvörur, en þær hafa ekki
fengizt áður.
Eigendur eru Sigurður Gunn-
laugsson (t.h. á meðfylgjandi
mynd) og Kristinn Sigurðsson.
Gunnar Benediktsson rithöfundur.
Séra Oddur V. Gíslason.
Oddur frá Rósuhúsi
Ævisaga séra Odds Gíslasonar
eftir Gunnar
Benediktsson
ODDUR frá Rósuhúsi nefnist nýút-
komin bók frá Sögufélaginu, eftir
séra Gunnar heitinn Benediktsson
rithöfund, en bókin er ævisaga séra
Odds V. Gislasonar. Bókin er 162
blaðsiður að stærð, auk 16 mynda-
siöna.
I ritinu er greint frá viðburða-
ríkum og ævintýralegum lífsferli
sr. Odds V. Gíslasonar frá Rósu-
húsi i Grjótaþorpi (1836—1911),
sem lengi var prestur að Stað í
Grindavík. Hann var landsfrægur
fyrir forgöngu sína í slysavarna-
málum sjómanna, flutti fyrir-
lestra, stofnaði bjargráðanefndir
og gaf út blað og bækiinga í þessu
skyni. Sjálfur stundaði hann sjó-
mennsku með prestskap og var
formaður á bát sínum.
Sr. Oddur varð þjóðsagnaper-
sóna í landinu, þegar sú fregn
barst út, að hann hefði „rænt“
brúði sinni frá Kirkjuvogi í Höfn-
um. Nær sextugu fluttist sr.
Oddur vestur um haf og stundaði
þar prestskap. Hann lenti í harðri
andstöðu við vestur-íslensk
kirkjuyfirvöld, er hann tók að
stunda svonefndar „huglækn-
ingar". Oddur lauk læknaprófi þar
vestra og varð félagi í læknafélagi
í Bandaríkjunum.
Gunnar Benediktsson, höfundur
þessa rits, var þjóðkunnur rithðf-
undur og prestur. Skömmu áður
en hann lést, 1981, hafði hann lok-
ið við að rita ævisögu Odds frá
Rósuhúsi, þessa „heillandi ævin-
týramanns" eins og hann nefnir
Odd. Einar Laxness bjó ritið undir
prentun.
Vilja stóriðju
á Suðurnesjum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum:
„Aðalfundur Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum haldinn í
Keflavík 30. október 1982, fagnar
þeirri niðurstöðu, sem fram kem-
ur í frumkönnun Staðarvalsnefnd-
ar, að þrír staðir á Suðurnesjum,
Helguvík, Vogarstapi og Vatns-
leysuvík komi sterklega til greina
fyrir næstu stóriðju á íslandi.
Aðalfundurinn hvetur til þess
að rannsóknum á svæðum þessum
verði hraðað eftir mætti og mælist
til að sveitarstjórnir á Suðurnesj-
um veiti alla þá aðstoð og stuðn-
ing, sem nauðsynlegur er og óskað
verður eftir."
Kirkjur á landsbyggðinni
Messur á sunnudag
Fyrsti sunnudagur í jólaföstu
INGJALDSHÓLSKIRKJA: Messa
kl. 14. — Organisti Kay Wiggs.
Sóknarprestur.
STYKKISHÓLMSKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Sókn-
arprestur.
BUÐARDALSKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Friörik
Hjartar.
HJARÐARHOLTSKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 14. Sr. Friðprik
hjartar.
PATREKSFJARÐARKIRKJA:
Barnaguösþjónusta kl. 11.
Messa kl. 14. Altarisganga. Sr.
Þórarinn Þór.
SUÐUREYRARKIRKJA: Messa
kl. 14. — Altarisganga. Safnaö-
arfundur aö lokinni messu. Sókn-
arprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Kirkju-
skóli á morgun, laugardag, kl.
11. Messa sunnudag kl. 14. Sr.
Ölafur Jóhannsson skólaprestur
þjónar fyrir altari. Organisti Sig-
ríöur Norðkvist. Sr. Jakob Hjálm-
arsson.
BLÖNDUÓSSKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guösþjónusta
kl. 14. Organisti: Sólveig Sövik.
Sóknarprestur.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA: Hátíö-
armessa í tilefni af 90 ára afmæli
Guðspjall dagsins:
Matt. 21.:
Innreiö Krists í Jerúsal-
em.
kirkjunnar, klukkan 14. Siguröur
Guömundsson vígslubiskup á
Grenjaöarstaö prédikar. Prest-
arnir sr. Þórir Stephensen dóm-
kirkjuprestur, sr. Tómas Sveins-
son prestur Háteigskirkju og sr.
Hjálmar Jónsson sóknarprestur
þjóna fyrir altari. — Organisti
Jón Björnsson. Afmælisins verö-
ur minnst í félagsheimilinu Bif-
röst meö samkomu. Ræöumenn
sr. Þórir og sr. Tómas. — Friö-
björn G. Jónsson syngur einsöng
viö undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar. Sr. Hjálmar Jónsson.
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sóknarprest-
arnir þjóna báöir. Organisti Jak-
ob Tryggvason. — Vænst er
þátttöku fermingarbarna og fjöl-
skyldna þeirra. Sóknarprestar.
DVALARHEIMILIÐ HLIÐ: Messa
kl. 15.15. Sr. Birgir Snæbjörns-
son.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ:
Messa kl. 17. Sr. Þórhallur Hösk-
uldsson.
HÚSAVÍKURKIRKJA: Aöventu-
stund kl. 17 meö dagskrá og
mun sr. Haukur Ágústsson
skólastjóri flytja hugleiðingu.
Sóknarnefnd.
NORÐFJARDARKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 14. Börn úr
barnastundinni aöstoöa. Organ-
isti Ágúst Ármann Þorláksson.
Sóknarprestur.
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vík kl. 11. — Reynis-
kirkja. Fjölskyldumessa kl. 14.
Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA VE: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Aöventuhátíö kl. 14.
Sr. Gylfi Jónsson rektor Skál-
holtsskóla prédikar. Organisti
Guömundur H. Guðjónsson. Nk.
miövikudagskvöld Biblíulestur kl.
20. Sóknarprestur.
KIRK JUHVOLSPREST AK ALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjarkirkju
kl. 10.30. Guösþjónusta í Kálf-
holtskirkju kl. 14. Bókakynning
aö messu lokinni. Sr. Auöur Eir
Vilhjálmsdóttir sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Stefán
Lárusson.
BiírarmótTTC
Endurútgáfu Ævintýrabókanna lokið
hefst í dag
ÞÓRIK Sæmundsson varö sigurveg
ari á Haustmóti Taflfélags Kópa
vogs, sem nýlokið er. Hann hlaut t
vinninga af 7 mögulegum, gerði að
eins tvö jafntefli. Þess má til gam
ans geta, að Þórir hefur ekki tekif
þátt í skákmóti síðan 1961, en þt
tefldi hann í landsliðsflokki Skák
þings íslands. Þórir hefur lagt stunc
á bréfskák hin síðari ár.
I öðru sæti á haustmótinu varf
Sigurður Kristjánsson með 5VS
vinning, en þeir Þröstur Einars-
son og Haraldur Baldursson hlutu
3.-4. sæti, með 5 vinninga.
í mótslok var síðan haldið
hraðskákmót, og sigraði þar
Þröstur Einarsson, með 10 vinn-
inga af 12 mögulegum.
Bikarmót Taflfélags Kópavogs
hefst föstudaginn 26. nóvember,
og er teflt í Hamraborg 1. Teflt
verður á föstudags- og mánu-
dagskvöldum, og falla menn út
eftir 5 töp á mótinu, en jafntefli
jafngildir Vi tapi. (Krétutilkynning.)
IÐUNN hefur gefíð út í nýrri útgáfu
tvær síðustu „Ævintýrabækur“
breska höfundarins Enid Blyton.
Eru það Ævintýraskipið og Ævin-
týrafljótið. Þetta eru sjöunda og átt-
unda bókin í þessum flokki sem nú
er allur kominn út að nýju.
Bækur þessar birtust fyrst í ís-
lenskri þýðingu á sjötta áratugn-
um og urðu vinsaelar, jafnt af
drengjum sem atúlkum. Söguhetj-
ur í þeim eru krakkarnir fjórir,
Jonni, Anna, Finnur og Dísa,
ásamt páfagauknum Kíkí. I hverri
bók lenda krakkarnir í miklum
háska og eiga í höggi við .misind-
ismenn, en vinur þeirrá, Villi
leynilögreglumaður, kemur jafnan
við sögu.
Myndir í bækurnar gerði Stuart
Tresilian. Sigríður Thorlacius
þýddi sögurnar. Prisma prentaði.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
Við styðjum
GIIÐMUIIID H.
GARÐARSSON
vegna þess
að liann hefui* staðið í fylkingarbrjósti
iyrir vestrænu varnarsamstarfi.
STUÐNINGSMENN
SKRIFST0FAN - STIGAHLÍÐ 87 - SÍMAR 30217 & 25966