Morgunblaðið - 28.11.1982, Page 24

Morgunblaðið - 28.11.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 25 JWgurpj Útgefandi ttMofrifr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 10 kr. eintakið. Verum Enginn vogaði sér þó að minnast að ráði á her- namið og útrýmingarstríðið í Afganistan, slíkt hefði getað spillt hinu friðsamlega and- rúmslofti á ráðstefnunni." Ýmsir halda ef til vill, að í þessari tilvitnun, sem tekin er úr íslensku blaði, sé verið að lýsa ráðstefnu í Moskvu eða á vegum Menningar- og friðar- samtaka íslenskra kvenna, svo er þó ekki, höfundur er að segja frá landsráðstefnu Sam- taka herstöðvaandstæðinga, sem haldin var hér í Reykjavík í byrjun október og lýsingin birtist í nýjasta tölublaði Verkalýðsblaðsins. Það er átakanlegt að lesa slíka lýs- ingu af samkomu íslenskra manna ekki síst þegar haft er í huga, að þessir sömu menn hafa til skamms tíma að minnsta kosti gert til þess kröfú, að á þá sé litið sem ein- á verði örðustu gæslumenn íslensks sjálfstæðis. Fyrir réttri viku birtist hér í blaðinu frásögn af valdaráninu í Afganistan eftir Vladimir Kazichkin, landflótta útsend- ara KGB, sovésku leynilögregl- unnar sem til skamms tíma laut beinni stjórn Yuri Andro- povs, hins nýja leiðtoga Sov- étríkjanna. Af orðum hins lándflótta KGB-manns má ráða tvennt: I fyrsta lagi stað- festir lýsing hans, að Kreml- verjar svífast einskis í valda- fíkn sinni. í Afganistan hafa þeir beitt öllum tiltækum ráð- um, þegar launmorð duga ekki er gripið til grímulausrar valdbeitingar gegn heilli þjóð. I öðru lagi reynir þessi starfs- maður Yuri Andropovs að bera blak af KGB og gefur til kynna, að þessi ógnvekjandi stofnun sé raunsærri og jafn- vel „friðsamari" en „stjórn- máiamennirnir" í Kreml. Afganar voru svo glám- skyggnir, að þeir treystu hátíð- legum yfirlýsingum Kreml- verja, þegar þeir sögðust hafa í heiðri yfirlýsingar Leníns um að samskipti Sovétríkjanna og Afganistan ættu að vera til fyrirmyndar um tengsl milli nágrannaríkja, þar sem ólík þjóðfélagskerfi fengju að þró- ast í bróðurlegri virðingu fyrir friðhelgi landamæra, fullveld- isrétti og sjálfsákvörðunar- rétti þjóða. Afganar treystu því, að Kremlverjar myndu virða þá ákvörðun þeirra að standa utan hernaðarbanda- laga og skipa sér í sveit hlut- lausra ríkja. Andvaraleysi Afgana varð til þess að þeir urðu sífellt háðari Sovétríkj- unum á flestum sviðum og ekki síst í hvers kyns viðskiptum. Þeir færðu sig sífellt upp á skaftið sem báru blak af Kremlverjum og í skjóli þess seildist fámennur hópur harð- snúinna kommúnista til æ meiri áhrifa með dyggri aðstoð sovéska sendiráðsins í Kabúl. Og nú hefur Rauði herinn bar- ist við Afgana í tæp þrjú ár. Það er furðulegur barna- skapur hjá Kremlverjum, ef þeir halda, að þeim takist að sannfæra Vesturlandabúa um það, að KGB sé í raun rödd skynseminnar í sovéska vald- akerfinu. Þessi árátta hefur magnast á undanförnum mán- uðum og líta má á lýsingu hins landflótta KGB-manns á af- stöðu leynilögreglunnar sem lið í þeirri herferð að draga upp sem mildasta mynd af þessari ófyrirleitnu stofnun í sama mund og yfirmaður hennar, Yuri Andropov, tekur við æðstu völdum í Sovétríkj- unum. Kjarninn í þessum áróðri er sá, að Andropov sé í raun mun víðsýnni og þar með velviljaðri í garð Vesturlanda en Leonid Brezhnev. Að óbreyttu er skynsamlegast að líta á þessa herferð sem nýjan þátt í tilraunum Kremlverja til að skapa andvaraleysi á Vesturlöndum. Til marks um það, hve langt ýmsir Vesturlandabúar vilja ganga til móts við heimsvalda- stefnu Sovétríkjanna, er sú Igær hófst prófkjör sjálf- stæðismanna í Norður- landskjördæmi vestra og lýkur því þriðjudaginn 30. nóvember. I dag og á morgun fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík. Valdir eru menn til að skipa framboðslista flokks- ins í komandi alþingiskosning- um, sem efna verður til fyrr en seinna til að bjarga þjóðinni út úr þeirri pólitísku sjálfheldu sem nú ríkir. Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði þegar hann var spurður um prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík: „Við sem tökum þátt í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins er- um ekki mótframbjóðendur heldur meðframbjóðendur og samherjar. Við erum staðráðin í því öll að vinna að sigri Sjálfstæðisflokksins." Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík, sagði í grein hér í blaðinu í gær: „Verkefni okkar staðreynd, að á landsráðstefnu Samtaka herstöðvaandstæð- inga, sem haldin var í Reykja- vík í byrjun október 1982, er það talið spilla friði, ef menn voga sér að minnast að ráði á innrás Sovétmanna í Afganist- an og blóðbaðið þar. Og af sama meiði er sú fullyrðing í forystugrein Þjóðviljans í gær, að Grikkir séu í Atlantshafs- bandalaginu af ótta við yfir- gang Tyrkja. Það er svo sann- arlega ástæða til að vera á verði. kjósendanna í því prófkjöri sem hefst á morgun er í raun- inni aðeins eitt. Við eigum að leggja drög að skipan efstu sæta á lista Sjálfstæðisflokks- ins við næstu alþingiskosn- ingar, sigurstranglegum lista manna, sem líklegir eru til góðra verka að kosningum loknum.“ Það er svo sannarlega mikið í húfi, að vel takist til í próf- kjöri sjálfstæðismanna og niðurstaða kjósenda staðfesti þá samstöðu sem er forsenda þess, að flokkurinn verði sem sigurstranglegastur í alþing- iskosningunum. Á þeim ör- lagaríku óvissutímum, sem nú ríkja, er síst af öllu þörf á upp- lausn í stjórnmálalífinu, að- eins ein leið er fær út úr þeirri íslensku neyð sem vinstri flokkarnir hafa skapað, þessi eina leið er að efla Sjálfstæðis- flokkinn. Prófkjör sjálfstæðismanna Ég hitti mann. Þegar ég sem blaðamaður kom í fyrirtæki hans fyrir nokkrum árum, var þar stór hópur starfsfólks að keppast við að framleiða tízku- varning af ýmsu tagi úr íslenzkri ull upp í pantanir á erlendum mörkuðum og ríkti mikil bjart- sýni. Enda búið að vinna upp sambönd. Um síðustu áramót lögðu þessi athafnamaður og fé- lagi hans niður fyrirtækið og sögðu upp starfsfólki. Gátu ekki lengur haldið áfram að fram- leiða við aðstæður, þar sem gengisfellingar bæta stöðugt og óvænt á erlendar skuldbindingar og verðbólgan skýtur okkur út úr samkeppninni á crlendum mörk- uðum og kostnaði upp fyrir um- samið verð. Útkoman verður alltaf tap. Nú sagði hann: Við vorum heppnir að hætta um sl. áramót, því okkur hefur tekizt að selja síðustu vélina. Núna hefði ekki verið möguleiki á að losna við neitt. Enginn byrjar eða eykur við sig við þessar að- stæður. Og hvað gera svo þessir ágætu menn? Þeir verða að nýta . þekkingu sína á mörkuðum í inn- flutningi á erlendum vörum. Hvað annað? Það er víst þetta sem er að gerast hjá okkur. Samdráttur á útflutningi 11%. Hér er um að tefla framleiðsluna og atvinn- una, sem á að standa undir öllu sem við viljum gera í landinu. En ef atvinna er að minnka um leið og þörf er fyrir 12.000 ný atvinnutækifæri á 10 árum á Reykjavíkursvæðinu, þá er ekki að furða þótt uppvaxandi ung- mennum lítist ekki á blikuna — og stjórnmálamennina. Þarf nú ekki snör handtök? Að frátöldum fullnýttum atvinnu- greinum eigum við a.m.k. tvennt í pokahorninu, orku í vatni og orku í fólkinu. í því fyrra höfum við dregið lappirnar, hið síðara höfum við verið að byggja upp með betri menntun og dýru skólakerfi, án þess svo að nýta það almennilega til framleiðni. Oft þvert á móti. Við Islendingar erum svo heppin að eiga fjöll. Og hvað eig- um við að gera með fjöll? Jú, þau eru nefnilega þeirrar náttúru að vatn hoppar og skoppar niður af þeim og getur í fallinu snúið hverflum og búið til rafmagn. Og við eigum helling af vatni. Eins og góðglaðir Finnar segja: Við búum til áfengi úr trjám, og við eigum sko nóg af trjám í Finn- landi! Hugsið ykkur vatnsgusu, sem losnar úr ísfjötrum uppi í jökli og leggur af stað út í heim eftir Köldukvísl eða kvíslunum úr Hofsjökli niður í Þórisvatn. Hún gæti á leið sinni þaðan snú- ið með systkinum sínum svona rétt í framhjáhlaupi hverfli í 70 m fallinu við Vatnsfell áður en hún gusast inn í Sigölduvirkjun. Úr hverflunum þar er henni spýtt út í Hrauneyjafosslón til að leggja sitt til enn einu sinni í virkjunina þar, og síðan í gömlu Búrfellsvirkjun. Eftirkomendur hennar gætu sem best lagt enn lóð á vogarskálarnar í nýrri 140 MW Búrfellsstöð. Allt sem þessi „Þekkingarforði mannkyns hefur hundraðfaldazt frá upp- hafi 20. aldar. Meira hefur bætzt við á nokkrum áratugum en á þeim 40 milljónum ára, sem liðu frá því Homo sapiens kom til sögunnar og til loka 19. aldar. Um næstu aldamót verður þekk- ing mannkyns eflaust þúsund- föld. Við vitum að helmingur þess varnings, sem við neytum eftir 10 ár, verður vörur sem enn er ekki byrjað að framleiða." Þessi vísindalandfræðingur færði rök að því að í stórkostleg- um hagvexti alls staðar í heim- inum 1949—60 hafi skipt veru- legu máli aukin verklagni, kunn- átta og skipulagning. Mannlegt hugvit skipti orðið meira máli en fjárfesting. Og að það, sem verð- ur ofan á í framtíðinni og geri þjóðum fært að lifa við beztu kjör, sé færni þeirra til að geta nýtt menntun og hugvit. Að vera í fararbroddi og á undan með allar nýjungar og þróun. Sem- sagt: Hafi maður vel menntað fólk, eins og við höfum verið að koma okkur upp, þarf líka að beina því til arðbærra verka, eins og læknum. P.s. Ekki hefi ég hugmynd um hvers vegna þessari vísu hans Káins er alltaf að skjóta upp í hugann með lestri morgunblað- anna. Losna við hana hér á blað- ið: Einlægt þú talar illa um mig, aftur ég tala vel um þig. En það bezta af öllu er að enginn trúir þér-né-mér. sama vatnsgusa getur gert til að framleiða rafmagn er stórkost- legt, ef við bara höfum nægilegt verksvit til að beina henni í rétt- an farveg. Og þannig er helling- ur af vatnsgusum í öllum fljót- um um allt land, sem geta búið til orku og útvegað ný verkefni handa heilmörgum ungmennum. Svona vatnsgusur geta sagt eins og kerlingin, þegar hún datt niður stigann úr baðstofunni: Ég ætlaði niður hvort eð var! En fall Þjórsár- og Tungnaárvatnsins fór bara til einskis í 50 ár eftir að Einar Benediktsson vildí nýta það. Og það gerir mest af vatn- inu á Islandi enn. Ef ekki er fé til, verðum við bara að leigja um sinn út frá okkur, eins og hús- byggjendur gera ef þeir geta ekki borgað slotið sitt. Þrátt fyrir of lága leigu, verður álverið áður en langt um líður búið að borga Búrfelisvirkjun og við eig- um hana skuldlausa. Hugsið ykkur öll þau ógrynni af vatni sem rennur niður landið okkar án þess að snúa nokkrum hreyfli, áður en það skoppar áfram. „Orð, orð/innantóm/fylla storð/fölskum róm, sagði Hann- es Hafstein í ljóðinu „Vantar menn“. Ja, menn? Önnur ónýtt orka er í mannskapnum. Alice nokkur Saunier-Seite heitir fyrrv. franskur ráðherra og nýkjörin meðlimur vísindaráðs Frakka. Kona þessi hélt í sumar fyrir- lestur um landafræði vísinda og tækni í Norræna húsinu. Hún sagði m.a. um framtíð velmegun- ar: „Styrkur hverrar þjóðar verður ekki lengur metinn í kornökrum, fiskimiðum, nám- um, landrými, sem er að verða fullnýtt, eða íbúafjölda, heldur fyrst og fremst í rannsóknastof- um vísindamanna og getu þeirra til að fitja upp á tækninýjung- um. Það er þetta sem ég leyfi mér að kalla iðnað framtíðarinn- ar.“ Því miður er ekki rúm til að rekja fyrirlesturinn, en aðeins teknar fáar glefsur: f Reykjayíkurbréf Laugardagur 27. nóvember Viðburöarík þingvika Það sem af er vetri hefur Al- þingi Islendinga verið heldur ris- lágt og sviplítið. Sú „samvirka for- ysta“, sem fann sig kjörna til að „bjarga virðingu Alþingis" í skammdegi áramóta 1979—1980, hefur löngu lagt „björgunarstörf" að baki, enda ekki samvirk lengur, hafi hún nokkru sinni verið það. Þeir eru raunar til sem halda því fram, með nokkrum rökum, að stjórnarmyndunarviðræðum meintra samstarfsaðila í ríkis- stjórn hafi aldrei lokið, en séu nú, seint og um síðir, að renna út í sandinr Það hefur og sagt til sín í þing- störfum, eða réttara sagt starfs- leysi þingsins, að ríkisstjórnin er stríðandi innbyrðis, án starfhæfs þingmeirihluta og „samstarfsaðil- ar“ bíðandi eftir hentugu tækifæri til að yfirgefa hið sökkvandi skip. Sú þingvika, sem senn er liðin þegar þetta bréf er skrifað á skjá, spannaði þó tvær „uppákomur", sem sýndu nokkurt lífsmark: fyrstu umræðu um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar (frá í ágúst- mánuði sl.) og umræðu um van- traust á ríkisstjórnina, sem þing- flokkur Alþýðuflokks bar fram, heill og óskiptur ( vel að merkja: daginn áður en hann klofnaði). I hinni fyrri umræðunni var m.a. upplýst að engin þingnefnd í efri deild Alþings, en þar vóru bráðabirgðalögin lögð fram, hefði þá fundað það sem af var vetri, ef undan vóru teknir þeir fundir sem þingnefndarmenn skiptu með sér verkum, þ.e. kusu sér formann, varaformann og ritara. Sú stað- reynd sagði í raun allt sem segja þurfti um verkstjórn og hand- leiðslu skammdegisstjórnarinnar, sem „bjargaði" sóma Alþingis í febrúarmánuði annó 1980. Hin síðari umræðan var sjón- varpsumræða, hin fyrsta sinnar tegundar hérlendis. Hún geymist væntanlega framtíðinni á mynd- böndum, svo börnin okkar og barnabörn, sem stjórnvöld hafa fyrirfram hengt á drápsklyfjar er- lendra skulda, geti heyrt og séð þá forsjármenn, sem eftirlétu þeim þvílíkar skuldaviðjar í arf, þegar að greiðsludögum kemur. Þrettán verd- bótaskerð- ingar Alþýðu- bandalags Frá því að ráðherrasósíalisminn hélt innreið sína í stjórnsýslu á íslandi með stjórnaraðild Alþýðu- bandajagsins 1978 hefur félagi flokksformaður, Svavar Gestsson, staðið að hvorki meira né minna en 13 verðbótaskerðingum launa, til staðfestingar slagorðinu: „kosningar eru kjarabarátta"! Þessi staðreynd minnir enn á sig í 10% kaupskerðingu í upphafi jóla- mánaðar, sem fer í hönd. Helzta röksemd stjórnarliða, þessa gjörð varðandi, hefur verið sú, að hér sé farið í fótspor Geirs Hallgrímssonar sem forsætis- ráðherra 1978, en þá þótti félaga Svavari og handbendum tilefni til ólöglegra verkfalla og útflutnings- banns á sjávarfurðir, sem kom sér einkar illa fyrir þjóðarbúið í harðri sölusamkeppni við aðrar fiskveiðiþjóðir. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, benti rétti- Iega á það í sjónvarpsumræðu í vikunni, að sitthvað skilur á milli efnahagsaðgerða 1978 og bráða- birgðalaga 1982, en verðbótaskerð- ing í hið fyrra skiptið kom í kjöl- far milli 20—30% grunnkaups- hækkunar. • 1978 voru tekjutrygging og barnabætur hækkaðar, en slíkt er ekki kortlagt í bráðabirgðalögun- um. • Þá vóru skattar jafnframt lækkaðir eins og vörugjald, en nú er það hækkað og skattar þyngdir. • Þá vóru ríkisútgjöld lækkuð en nú eru þau aukin. • Þá var um að ræða áfanga- hækkanir launa, sem vógu upp á móti verðskerðingu en því er ekki með sama hætti að dreifa nú. • Þá hafði verðbótaskerðingin ekki í för með sér kaupmáttar- rýrnun miðað við árið áður, en boðuð er 6% kaupmáttarrýrnun 1983 í kjölfar bráðabirgðalaganna. Hér er því ólíku saman að jafna, bæði hvað varðar efnisatriði, hlið- arráðstafanir og viðbrögð verka- lýðssamtaka. Það er engin furða þó Guð- mundur J. Guðmundsson, formað- ur VMSÍ og þingmaður Alþýðu- bandalags, telji sér vants viðbits, ef sporðrenna eigi kjaraskerðing- unni nú, ítem öllum stóryrðunum frá 1978. Láir manninum enginn! Verdþættir stjórnvalda Verðbólga, sem samkvæmt stjórnarsáttmála átti að vera komin niður í 7—10% ársvöxt, er meiri en nokkru sinni. Öllum er ljóst að verðþættir stjórnvalda í verðlagsþróun eru mikilvirkir. Kemur þar hvortveggja til: verð- lagning opinberrar þjónustu ým- iskonar, sem í flestum tilfellum er eðlilegt að selja á kostnaðarverði, og svokallaðir neyzluskattar: inn- flutningsgjöld, vörugjöld, sölu- skattur og benzínskattar. Núver- andi stjórnarflokkar hafa hækkað vörugjald og söluskatt verulega (og þar með vöruverð og verð- bólgu). Hver olíuhækkun erlendis eykur og skatttekjur ríkissjóðs í benzínverði. Á sama tíma sem rík- isstjórnin telur tímabært að skera niður álagningu verzlunar og framlengja sérstakan skatt á verzlunarhúsnæði, stóreykur hún eigin álagningu í vöruverði. Eyjólfur Konráð Jónssón, al- þingismaður, setti fram þá kenn- ingu í umræðu um bráðabirgða- lögin, að ríkisstjórninni bæri að ganga á undan með raunhæfar verðbólguhömlur, bæði um niður- skurð ríkisútgjalda og lækkun á neyzlusköttum, sem „verði svo ríf- legar að verðlagshækkanir stöðv- ist um sinn, eða svo verulegar að vextir verði jákvæðir, þótt þeir lækki stórlega eins og þeir verði að gera ... Mikilvægasta úrræðið til þess að brjótast út úr víta- Þjóðarframleiðsla + sölukjör = þjóðartekjur og lifskjör. hringnum," sagði Eyjólfur Kon- ráð, „er að ná verðbólgunni niður fyrir vaxtafótinn, þá þrýstir hann henni niður í stað þess að sparka henni stanzlaust upp“. „Vel kann að vera“, sagði Eyj- ólfur Konráð, „að einhver halli yrði á ríkissjóði um skeið (með slíkri lækkun neyzluskatta) ... en alls ekki er víst að hann yrði veru- legur ... það eru ekki bara tekjur ríkissjóðs sem minnkuðu heldur líka útgjöldin, þegar launahækk- anir og gengisbreytingar verða minni, enda er meginhluti ríkis- útgjaldanna launagreiðslur ann- arsvegar og gjaldeyrisnotkun hins vegar." Auðvitað er áhætta samfara slíkri tilraun til verðbólguhjöðn- unar sem hér er lauslega drepið á, sagði Eyjólfur Konráð ennfremur, „og máske yrði hallinn á fjárlög- um það mikill, að einhverja nýja skatta þyrfti að taka upp eftir 1—2 ár, þegar verðbólgan hefði hjaðnað verulega og hagur at- vinnuvega og einstaklinga hefði batnað svo að undir yrði risið". Hver er sinnar gæfu smidur Lífskjör í landinu hafa alltaf og munu alltaf ráðast af tvennu, sem sníður þeim stakk, hvað svo sem líður hugmyndafræðilegum bolla- leggingum um þjóðfélagsgerðir. I fyrsta lagi þeim verðmætum, sem verða til í þjóðarbúskapnum á hverri tíð, þ.e. þjóðarframleiðsl- unni. í annan stað þeim sölukjör- um sem við náum fyrir fram- leiðslu okkar á erlendum mörkuð- um. Þegar þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur dragast saman, eins og nú er sýnt, hlýtur slíkt að segja til sín í lífskjörum þjóðarinnar. Við slíkar aðstæður ber stjórn- völdum að draga saman segl í ríkisútgjöldum, lækka skatta til að örfa atvinnulíf og framleiðslu á ný og gæta hófs í erlendum lán- tökum. Lántökur til gjaldeyrispar- andi og arðsamra framkvæmda þjóna jákvæðum tilgangi, en eyðslulán, eins og núverandi ríkis- stjórn hefur staðið fyrir, eiga eng- ann rétt á sér. Á þessi nauðsyn- legu viðbrögð stjórnvalda hefur skort. Raunar hefur breytni þeirra verið þveröfug. Að því er líka að hyggja að fjöl- mörg ný atvinnutækifæri þurfa að verða til á næstu árum og áratug- um, vegna þess viðbótarvinnuafls sem óhjákvæmilega kemur á ís- lenzkan vinnumarkað. Til að fryggja framtíðaratvinnuöryggi og sambærileg lífskjör hér og í velmegunarþjóðfélögum verður því að efla alla hvata framtaks og atvinnulífs í þjóðarbúskapnum. Þetta gildir jafnt um hefðbundna atvinnuvegi og þá möguleika, sem eru fyrir hendi í tenglsum við stóraukna nýtingu innlendra orkugjafa. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. í umræðu um vantraust á ríkis- stjórnina: „Á næstu misserum verðum við að einbeita okkur að tvíþættu verkefni: • í FYRSTA LAGI að móta lang- tíma stefnu í efnahags- og at- vinnumálum fram til aldamóta og skapa skilyrði fyrir þá vaxtar- brodda í íslenzku atvinnulífi sem leysa vandann með vaxandi fram- leiðslu og framleiðni. • í ANNAN STAÐ að gera okkur grein fyrir því, hvernig við getum bezt aðlagað okkur eftir aðstæðum í efnahagsmálum viðskiptalanda okkar er ríkt hafa um nokkurt árabil. Í þeim efnum er eitt víst: Það gerum við ekki með haftakerfi eins og nýgerðar samþykktir Al- þýðubandalags og Framsóknar- flokks gefa í skyn.“ „Vandi er á höndum í því póli- tíska sundurlyndi og almennri þjóðfélagslegri upplausn sem því miður fylgir í kjölfar óðaverð- bólgu,“ sagði Geir ennfremur, en „ég hefi trú á því að nú sé betri jarðvegur til átaka í efnahagsmál- um okkar meðal alls almennings og meiri skilningur á þörf mark- tækra ráðstafana en verið hefur um langt skeið." Hver er sinnar gæfu smiður, þjóð og einstaklingar. Þjóðin verð- ur að velja þing og ríkisstjórn sem valda þeim brýnu verkefnum, sem ekki er sinnt af þeirri ríkisstjórn er hangir nú á horrim pólitískrar tregðu. Prófkjör um helgina Sjálfstæðisfólk gengur til prófkjörs um þessa helgi, bæði í Reykjavík og Norðurlandi vestra. Það er vert að minna á orð Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, á kynn- ingarfundi frambjóðenda í Reykjavík, er hann lagði áherzlu á að hér væru MEÐ- en ekki MÓT- frambjóðendur á ferð. Við þurfum að gæta þess, sagði flokksformað- urinn, þegar við hvert og eitt og öll sameiginlega röðum á fram- boðslista flokksins í Reykjavík, að hann höfði bæði til yngri og eldri, kvenna ekki síður en karla og fólks úr öllum starfsstéttum þjóð- félagsins, minnug kjörorðs sjálf- stæðisfólks: stétt með stétt. Hvernig verða framboðslistar flokksins bezt skipaðir með hlið- sjón af væntanlegu fylgi í þing- kosningum, með hliðsjón af vandamálum og viðfangsefnum sem bíða næsta þings, með hlið- sjón af heill og styrkleika Sjálf- stæðisflokksins í bráð og lengd? Þessum spurningum svörum við í prófkjörunum, bæði í Reykjavík og norðan heiða. Megi vel til tak- ast!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.