Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 Sjálfstæðismenn á Norðurlandi vestra: Góð kjörsókn í prófkjörinu PKÓFKJÖRI sjálfstæöismanna í Noröurlandskjördæmi vestra sem hófst í gær, verður haldið áfram i dag, sunnudag, en kosningu lýkur á þriðjudag. Kjörsókn var ágæt í gær samkvæmt upplýsingum er Morgun- IIM þessar mundir er Globus hf. 35 ára og hefur fyrirtækið gert miklar breytingar á salarkynnum sínum að Lágmúla 5. Hefur m.a. nýr sýningarsal- ur verið tekinn í notkun og verður þar efnt til sýningar á nýjustu tegundum Citroen-bifreiða. Á sýningunni er m.a. líkan af bíl, sem líklega verður einn af framtiðar- bílum Citroen-verksmiðjanna. Nefnist bifreiðin Citroen Karin og var með- fylgjandi mynd af bílnum tekin hjá Globus i vikunni. Kéttur áratugur er siðan Globus tók við Citroen-umboðinu Citroen-sýningin verður opin frá kl. 14—18 í dag. blaðið fékk á Sauðárkróki, og áður höfðu nokkur hundruð raanns kosið utan kjörstaðar. Kjörstaðir eru í öllum kauptún- um og kaupstöðum kjördæmisins og auk þess á sex stöðum öðrum, Varmahlíð, Húnavöllum, Flóð- vangi, Viðihlíð, Vesturhópsskóla og Laugabakka. I framboði eru Eyjólfur Konráð Jónsson, Jón Ásbergsson, Jón ísberg, Ólafur B. Óskarsson, Páll Dagbjartsson og Pálmi Jónsson. Prófkjör Alþýðuflokksins; f Úrslit kunn í kvöld PRÓFKJÖRI Alþýðuflokksins Reykjavík lýkur í kvöld, og ættu úr- slit að liggja fyrir seint í kvöld, sam- kvæmt upplýsingum er Morgunblað- ið fékk hjá Alþýðuflokknum í gær. Prófkjörið hófst í gær, laugardag, og því lýkur síðdegis í dag, kjörstaðir eru opnir frá klukkan 10 til 18. Prófkjörið er opið öllum stuðn- ingsmönnum Alþýðuflokksins í Reykjavík. Kjörstaðir eru á eftir- töldum stöðum: Iðnó, Sigtúni og Broadway. Frambjóðendur eru fimm: Ágúst Einarsson útgerðar- maður, Bjarni Guðnason prófess- or, Emanúel Morthens fram- kvæmdastjóri, Jóhanna Sigurð- ardóttir alþingismaður og Jón Baldvin Hannibalsson alþingis- maður. Togaraskipstjórar á Vestfjarðamiðum: Mótmæla harðlega ummælum Krist- jáns Ragnarssonar um smáfiskadráp MÖRGUNBLAÐINU barst eftirfarandi frétt í gegnum ísafjarðarradió, frá þrjátíu og sex togaraskipstjórum á Vestfjarðamiðum þar sem þeir mótmæla harölega þeim ummælum Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ, að illt sé til þess að vita ef rétt sé, að áhafnir togara og togskipa hafi í sumar veitt mikið af smáum þorski, er að stórum hluta hafi verið fleygt aftur í sjóinn. Ummæli þessi er aö finna í ræðu Kristjáns við setningu LÍÚ-þings. Ályktun togaraskipstjóranna er svohljóðandi: „Við undirritaðir togaraskip- stjórar furðum okkur á orðum Kristjáns Ragnarssonar, for- manns LÍÚ, í setningarræðu á aðalfundi LIÚ og höfð voru eftir honum í útvarpi 24. nóvember og skorum á hann að sanna mál sitt. Við mótmælum harðlega þeim ásökunum sem i þessum orðum felast, og vísum til eftir- litsmanna og gæslu um smáfisk í afla. Við togaraskipstjórar á Vestfjarðamiðum könnumst ekki við að slíkt smáfiskadráp fari fram og teljum að neikvæð um- ræða sé um veiðar togara í fjöl- miðlum.2 Undir ályktunina skrifa: Þorsteinn Vilhelmsson Kaldbak, Sigurður Jóhannsson Harðbak, Mótmæli togaraskipstjóra: Verðum að hafa raunhæf mörk, ef þetta kerfi á að vera við lýði — segir Þorsteinn Vilhelmsson skipstjóri „VIÐ erum fjúkandi illir og eins og fram kemur í ályktuninni könnumst við ekki við þetta smáfiskadráp," sagði Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri á Kaldbaki, í samtali við Morgunblaðið, en álits hans var leitað á ummælum Kristjáns Kagnarssonar um smáfiskadráp togara og togskipa. Þorsteinn sagði að fyrir trolli, allstaðar var lokunar- nokkrum árum hefði 57 cm fisk- ur verið talinn stór fiskur og þá hefðu menn mátt hirða fiska niður í 45 cm. Nú mætti hirða 50 cm fisk og sagt væri að fiskur undir 60 cm væri smáfiskur, „en það er ekki langt síðan að fiskur yfir 57 cm var stór fiskur, þann- ig að þetta er bara orðaleikur," sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagðist ekki kann- ast við að menn hentu þessum smáfiski fyrir borð, en hins veg- ar væri aldrei hægt að koma í veg fyrir að smærri fiskar en 50 cm veiddust. „Það að gera mál úr þessu er alveg út í hött,“ sagði Þorsteinn. „Við höfum verið með eftirlitsmenn og þeir hafa verið á miðunum í nokkur ár. Þeir kannast ekki við þetta," sagði Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvort unnt væri að leysa málið með því að setja eftirlitsmann um borð í hvert skip. Hann svaraði: „Ég get ekki svarað fyrir alla, en ég er búinn að fá minn skerf af þessum eftirlitsmönnum. Krist- ján Ragnarsson nefndi einhvern sem hefði neitað að taka eftir- litsmann um borð og það var ég. Það er vegna þess að það er hægt að setja mörkin þannig að þau séu út í hött. í sumar voru regl- urnar þær að 15% aflans mættu vera undir 58 cm og þá sér hver heilvita maður að það er ekki hægt að fara eftir því. Það var alveg sama hvar kastað var hæft,“ sagði Þorsteinn. „Ég hef farið marga túra með eftirlits- menn, en það er ætlast tíl þess að við fiskum og komum með afla að landi, en þegar reglurnar eru svona, þá er alveg sama hvar ég kastaði trolli, allstaðar varð að loka. Það verður að hafa mörkin raunhæf ef þetta kerfi á að vera við lýði. Ég hef ekki á móti því að hafa eftirlitsmann ef mörkin er raunhæf, en í þessu tilviki taldi ég mig ekki þurfa hann vegna þess að mörkin eru óraunhæf. Það er miklu hrein- legra að loka svæðinu alveg, frá Víkurál og austur í Berufjarðar- ál og þá er ég ansi hræddur um það að enginn afli hefði komið á land í sumar," sagði Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvort mönnum fyndist óþægilegt að hafa veiðieftirlitsmenn um borð. „Nei, það er ekkert slæmt að hafa þá um borð, ef mörkin eru sanngjörn, en eins nú er "þá er það slæmt,“ sagði Þorsteinn. „Mörkin núna, 30% aflans mega ekki vera undir 60 cm, eru ósanngjörn. Við höfum nú verið í ágætis fiski út af Hala og það er rétt að þetta sleppi, en menn eru allstaðar yfir mörkunum, ætli hlutfallið 40% undir 60 cm sé ekki nokkuð raunhæft," sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði að sl. sumar hefðu sumir skipstjórar hagað sér öðru vísi þegar eftirlitsmenn voru um borð, og það gæti hann viðurkennt, enda hefði hann ver- ið einn þeirra, vegna takmarkan- anna. „Ég get ekki klárað heilan túr, þegar ég get aðeins tekið tvö höl á hverjum stað og svo er lok- að. Hvernig heldur þú að túrinn endi? Ég kem aflalaus að landi, og ég er með 20 karla um borð sem þurfa að fá sitt kaup og út- gerðin fisk,“ sagði Þorsteinn Vilhelmsson. ívar Baldursson Snæfelli, Jó- hann Símonarson Bessa, Svavar Benediktsson Apríl, Hlöðver Haraldsson Sigurey, Sigurður Pétursson Má, Pétur Sigurðsson Bjarna Benediktssyni, Örn Sveinsson Tálknfirðingi, Birgir Þorbjörnsson Arnari, Kristján Ragnarsson Skafta, Einar Há- konarson Sveini Jónssyni, Ragn- ar Ólafsson Siglfirðingi, Vigfús Jóhannesson Björgvin, Björn Kjartansson Sólbergi, Hávarður Olgeirsson Dagrúnu, Kristinn Gestsson Bergvík, Hermann Skúlason Júlíusi Geirmundssyni, Ásgeir Guðbjartsson Guðbjörgu, Kristján Arnþórsson Svalbak, Ólafur Aðalbjörnsson Stakfelli, Sigurður Brynjólfsson Sölva Bjarnasyni, Kristján Bjarnason Stálvik, Sverrir Sigurðsson Ár- sæli Sigurðssyni, Bernharð Överby Páli Pálssyni, Ólafur Gunnarsson Ljósafelli, Sverrir Guðlaugsson Brettingi, Ólafur Jóakimsson Guðbjörgu, Runólf- ur Guðmundsson Runólfi, Ólafur Ólafsson Elínu Þorbjarnardótt- ur, Oddgeir Jóhannsson Hákoni, Kristján Rögnvaldsson Hafþóri, Runólfur Hallfreðsson Bjarna Ólafssyni, SigurbergurHauksson Jóni Kjartanssyni, Hörður Guð- bjartsson Guðbjarti. N Neikvætt að neita að taka eftirlitsmenn um borð — segir Kristján Ragnarsson „ÉG FURÐA mig ekki á því að skipstjórarnir andmæli þessum orðum um smáfiskadráp, en hinsvegar hef ég fyrir mér góðar upplýsingar sjómanna sem vilja koma þessu á framfæri til þess að reyna að hafa áhrif á að hlutir sem þessir gerist ekki í þeim mæli sem verið hefur,“ sagði Kristján Kagnarsson, formaður LÍÚ í samtali við Morgunblaðið, en hann var spurður álits á ályktun 36 skipstjóra, þar sem þeir visa meintu smáfiska- drápi á bug. „Vonandi er þetta í minna mæli en ég sagði. Afstaða skip- stjóranna er að því leyti skiljan- leg, að þeim hefur verið vísað út af fiskimiðum við Suðvestur- land, þar sem stærri fiskurinn heldur sig, en þeirra veiðisvæði eru aðallega þar sem fiskurinn er í uppvexti. Þeir eru þess vegna í eilífri baráttu við að forðast smáfisk. Sumir þessara skipstjóra, sem nú senda mér skeyti. hafa hringt í mig utan af sjó og sagt að þeirra veiðimögu- leikar séu útilokaðir, vegna þess að búið sé að loka svo mörgum svæðum vegna smáfisks. Þetta lýsir því sem ég sagði, að þetta væri þeim mjög erfitt. Það hefur jafnvel gengið svo langt að sum- ir þeirra skipstjóra, sem sendu mér skeyti, hafa neitað að taka fiskveiðieftirlitsmenn um borð. Þetta er að mínum dómi neikvæð afstaða af þeirra hendi og fyrir mér vakti einungis að benda á og vekja umræðu um þetta vanda- mál, í þeim tilgangi að við forð- umst þetta og gefum fiskinum tækifæri til þess að vaxa og gefa meiri arð fyrir þjóðfélagið," sagði Kristján. „Ég held að skipstjórunum hafi þótt miður að ég skyldi ein- göngu tala um þeirra veiðiskap, en þegar þeir heyrðu mín orð, greindi útvarpið einungis frá því sem að þeim snéri, en ekki því sem ég sagði um of mikla neta- notkun, of mikla veiði á þriðja flokks fiski og þörf fyrir úrbæt- ur í því efni. Við eigum ekki að stefna að því að veiða þorsk sem verður þriðja flokks hráefni og ekki nothæfur nema til mjöl- vinnslu,“ sagði Kristján. „Þegar skipstjórar segjast ekki koma með allan aflann að landi, styður það að ástandið sé með þeim hætti sem ég greindi frá. Málið er afskaplega við- kvæmt, vegna þeirra erfiðleika sem þeir eiga við að glíma og ég vona að þessi umræða leiði til bóta, en að menn séu ekki að reyna að finna einhverja söku- dólga til þess að refsa eða krefj- ast rannsóknar á. Það er ekki minn tilgangur," sagði Kristján Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.