Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
„Aðsegja
liveriiig það er
að lifa“
Morgunspjall við Kent Paul sem leikstýrir sýningu Þjóðleik-
hússins á leikriti O’Neills, Dagleiðin langa inn í nótt
TEXTI: SVEINBJÖRN I. BALDVINSSON
Við höfdum mælt okkur mót klukkan hálftíu að morgni föstudagsins
fyrir frumsýningarhelgina. Kent Paul hafði sagt að hann væri morgun-
maður og átt hugmyndina að þessari tímasetningu. Eg hafði ekki látið á
neinu bera. Skrifaði þetta bara hjá mér. Og eitthvað upp úr níu ók ég í
gegnum borgina á miðstöðvarlausum bíl, þakklátur fyrir að það var þó
ekki myrkur, heldur bara skuggsýnt og kuldi. Hálftíu hittumst við svo á
Hótel Borg og héldum á kaffihús, í morgunkaffi. Ég spurði, eins og
íslendinga er háttur, hvaðan hann væri.
„Ég er alinn upp í Nebraska-
ríki, í miðju landi, eiginlega al-
veg nákvæmlega í miðju landi, í
litlum bæ sem heitir Beatrice.
Pabbi rak herrafataverslun. Við
vorum ofurvenjuleg lægri-
miðstéttarfjölskylda. Ég hafði
alltaf mikinn áhuga á leikhúsi,
en það var ekkert atvinnuleikhús
neins staðar í nánd við okkur. Ég
skrifaði og leikstýrði leikriti
þegar ég var tólf ára, man ég.
Eitthvað var ég líka að fást við
leiklist í skóla, þarna heima.
Haustið 1954 fór ég svo í Har-
vard til náms, en skólinn er í
Cambridge í Massachusetts,
nærri Boston. Þarna kynntist ég
alvöruleikhúsi. Þá var það al-
siða, eins og reyndar enn, að
prufukeyra sýningar sem áttu að
fara á Broadway, fyrst á ná-
grannaborgunum og oft varð
Boston einmitt fyrir valinu.
Það varð snemma ljóst að ég
var með leikhúsdellu og vitan-
lega birtist hún fyrst þannig, að
mig langaði að verða leikari og
ég lék eitthvað í Harvard, en eft-
ir síðara árið mitt í Harvard
komst ég inn í mjög lítinn en
ákaflega góðan leiklistarskóla í
grenndinni. Hann heitir The
Neighborhood Playhouse School
of the Theater og ég held að á
fimmtíu árum hafi hann aðeins
útskrifað um 1.000 nemendur.
En marga fræga leikara þar á
meðal. Skólinn auglýsir aldrei og
nemendur fá enga gráðu, er þeir
útskrifast, en kennslan er fyrsta
flokks og þar ber hæst mann að
nafni Sanford Meisner. En síð-
ustu þrjú árin hef ég verið að
vinna að gerð sjónvarpsþátta um
þennan þekkta leiklistarkennara
og með mér að þessu hefur unnið
einn af þessum frægu nemend-
um hans, kvikmyndaleikstjórinn
Sydney Pollack (Absence of Mal-
ice, They Shoot Horses Don’t
They).“
Var aldrei
gódur leikari
Eftir að við höfðum lokið úr
súkkulaðibollunum á Nýja köku-
húsinu, lögðum við leið okkar út
í Austurstræti og þaðan áleiðis
upp í Þjóðleikhús, en þar átti að
hefjast ein af síðustu æfingum á
Dagleiðinni löngu um hádegis-
bilið. Eftir nokkrar samræður
við sviðsstjóra, aðstoðarleik-
stjóra, leikmyndahönnuð og leik-
Skilagrein
vegna söfnunar
til styrktar
fjölskyldunni
ad Brædraparti
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi skilagrein vegna söfn-
unar til stuðnings fjölskyldunni að
Bræðraparti v/Engjaveg í Reykja-
vík, Dagbjörtu Eiríksdóttur og
Magnúsi Erni Haraldssyni og börn-
um þeirra tveimur, er missti aleigu
sína í bruna:
Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands 15.000.-, Söfnun í Borgar-
nesi Eyvindur og Kristján Magn-
ússynir 9.930.-, NN 1.000.-, Afhent
séra Halldóri Gröndal 2.600.-, NN
1.000.-, NN 500.-, NN 500.-, G.S.Ó.
500.-, Lilja 500.-, NN 500.-, Ó.
Johnson og Kaaber 5.000.-, NN
2.000.-, NN 100.-, Ingveldur 500.-,
G.K. 100.-, NN 1000.-, Hildur
1.000.-, NN 500.-, Sveinn og fjöl-
skylda 300.- NN Fatasending og
2.000.-, Afhent Dagblaðinu og Vísi
1.000,-, Afhent séra Ólafi Skúla-
syni 500.-. Samtals komið 15. nóv-
ember 46.030.-
Innilegt þakklæti til allra þeirra
er rétt hafa fram hjálparhendur.
Söfnuninni verður haldið áfram
um sinn.
Sig. Haukur
Mctviiuhku) á hverjum degi!