Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
27
Séó eftir Austurstræti.
Sigfús Eymundsson, stofnandi
verslunarinnar.
er nú til húsa. I núverandi húsnæði
fluttist verslunin 19. nóvember
1960 og fékk í upphafi alla fyrstu
hæðina til afnota, en árið 1971 var
kjallari húsnæðisins einnig tekinn
í notkun fyrir bókabúðina og var
ritfangadeild verslunarinnar stað-
sett þar ásamt erlendri deild. Árið
1978 er gerð breyting á anddyri
búðarinnar og búðin stækkuð.
Fékkst þar aukið rými, sem lagt
var undir deild erlendra bóka.
Þrátt fyrir það að bókaútgáfa
hafi keypt verslunina og bókaút-
gáfu BSE, þá koma enn út bækur í
nafni BSE og hefur verið óslitið frá
því er til útgáfunnar var stofnað.
Eins og fyrr sagði er þetta elsta
sérverslun með bækur hérlendis.
Þar að auki mun BSE vera annað
elsta starfandi verslunarfyrirtæki í
Reykjavík, aðeins Reykjavíkurapó-
tek mun vera eldra.
Yfir 15 þúsund
bókatitlar
Einar Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Bókaverslunar Sigfúsar
Eymundssonar, var spurður um
núverandi rekstur verslunarinnar.
„Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar er skipt í þrjár deildir,
deild sem verslar með íslenskar
bækur, erlenda bókadeild og rit-
fanga- og gjafavörudeild. I sam-
bandi við islensku bókadeildina, þá
hefur bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar ávallt litið á það sem
skyldu sína við íslenska menningu,
að hafa á boðstólum allar fáan-
legar íslenskar bækur, en því miður
hafa þær breytingar sem gerðar
hafa verið á sölufyrirkomulagi
bóka, þegar horfið var frá um-
boðssölu þeirra yfir í staðgreiðslu,
orðið til þess að erfitt er að gegna
þessu hlutverki. Þrátt fyrir það
munu vera um 7 þúsund bókatitlar
á boðstólum í íslensku deildinni.
Við höfum haldið uppi sömu
stefnu og Sigfús Eymundsson gerði
á sínum tíma, að versla með lestr-
arefni og tengdar vörur, því það er
útilokað að grundvalla verslunina
eingöngu á sölu íslenskra bóka. í
erlendu deildinni bjóðum við upp á
eitt mesta úrval erlendra bóka,
blaða og tímarita hérlendis. Sala á
erlendum bókum hefur vaxið gíf-
urlega hér á landi á undanförnum
árum og nú bjóðum við upp á hátt á
9da þúsund bókatitla á erlendum
tungumálum. Þá erum við í þriðja
lagi með ritföng og gjafavörur og
hefur sú grein starfseminnar verið
starfrækt í kjallara verslunarinn-
ar. Nú hefur kjallarinn skipt um
svip, breytingar hafa verið gerðar á
innréttingum, bæði í tilefni afmæl-
isins og eins vegna þess að þeirra
var þörf og þar bjóðum við upp á
mikið úrval ritfanga og gjafavara.
Bókin heldur velli
Tryggur rekstrargrundvöllur
búðarinnar byggist að miklu leyti
upp á því að hafa gott starfsfólk,
sem við vissulega höfum. Hjá
versluninni starfa nú 25 manns og
elsti starfsmaður verslunarinnar,
Steinar Þórðarson, hefur starfað
hjá versluninni í 43 ár.
Það er enginn ellibelgur á Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar,
þrátt fyir aldurinn, þvi nú erum við
að byggja nýja verslun í Mjóddinni
í Breiðholti, sem vonandi verður
tekin til starfa innan þriggja ára,
en þessi verslun hér í miðbænum
mun áfram gegna sínu hlutverki,
þrátt fyrir það að við séum að færa
út kvíarnar.
Flestir Reykvíkingar hafa sjálf-
sagt einhvern tíma heimsótt þessa
verslun í hjarta miðborgarinnar og
ég held að hún skipi vissan sess í
huga flestra Reykvíkinga.
Nú, um framtíðina vil ég segja
það, að bókin á vissulega i harðri
samkeppni við aðra fjölmiðla, en ég
hef þá trú að hún haldi velli, enda
ber okkur skylda til þess að verja
hana áföllum og sjá til þess að hún
eigi áfram sinn þátt í menningunni
og skipi þann sess sem henni ber,"
sagði Einar Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Bókaverslunar Sig-
fúsar Eymundssonar, að lokum.
113
• V .-*• '
/> <•.
W f <2
t' * r
/a
/ * y y
4'
$ Ov
/
_ 13
/X iff /
h
c /M M6
,Ju
4W*
iJÍanntJ 2
/ffl
/•'i ./ /rtritfrt /rv. /%LO - » //?•/• yi4’i.« jí
./fj/ //> . /•//■■ .v.x-7 -/'i. ...
/y , .//,<„ /í/aiá.:*/, , . K ;a t/7, ífS’, '/•
. J/«. ’ // . ///ym< — C - %>/.-■<.,
f /j* . / ‘ * .) ■*- 'V /n - * /t/Jr/*, //>,■/'* ? /Jc
' Jtf, /&/*/** fc. /My»
. . / J'í i, /2/4 /A
* * ///,,*</«// /jt-rÁf /><*
jí«jU jf/ « //**//'* - J'/ /V, /o2< /
W/jJ-
tft jC
4 -*p
3 73
a /( ■
/> * i'
*'C
.3 .6/
9.27
/ 36
C Vo
/. /g-
:«*• J>-
J/f' /£ f$
/ í
n
Úttekt Hannesar Hafstein í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar fyrri part árs 1888.
a ii m
■ Vy. .J Jmjk I **" 0 rani * w t m-ui IjI
Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins, til vinstri og Einar Oskarsson, fram-
kvæmdastjóri bókaverslunar Sigfúsar Eymundssonar, til hægri í kjallara bókaverslunarinnar, en nýbúið er að
breyta um innréttingar þar. MorjunMtóií/ Krisiján Kinarmon